Discover
Uppbrot

Uppbrot
Author: Guðni Sighvatsson, Guðmundur Finnbogason
Subscribed: 17Played: 610Subscribe
Share
© Guðmundur Finnbogason
Description
Hlaðvarp um skóla, nám og kennslu. Guðni og Guðmundur tala um menntamál við áhugaverða gesti sem eru að gera áhugaverða hluti.
19 Episodes
Reverse
Brynhildur og Ólafur kenndu heimspeki á unglingastigi saman. Þau þróuðu frábæra kennslu og ræða við Guðna og Guðmund um heimspeki í grunnskólum út frá fjölbreyttu sjónarhorni. Bæði praktískum áherslum en ekki síður hugmyndafræðinni að baki og hvernig heimspekin getur opnað dyr fyrir dýpri kennslu í öllum greinum. Spennandi og áhugaverður þáttur fyrir alla kennara.
Ólafur Páll Jónsson er heimspekingur og prófessor við Menntavísindasvið Hí. Þar kennir hann heimspeki í ýmsum áföngum með fjölbreyttum áherslum. Í þættinum ræðum við um heimspeki í sinni víðustu mynd, um drauma skólann hans Ólafs og um það hvað skiptir máli í skólastarfinu. Skemmtilegar umræður þar sem að Guðni og Guðmundur komast bara ágætlega frá þessu. Hérna má finna fjölda áhugaverðra svara Ólafs á Vísindavefn HÍ: https://www.visindavefur.is/hofundur/475/olafur-pall-jonsson/#
Þriðji þátturinn um leiklist í skólum. Nú er rætt við Flosa Einarsson aðstoðarskólastjóra Grundaskóla á Akranesi. Flosi er potturinn og pannan í söngleikjum skólans en þeir hafa verið settir upp síðan 2003. Ekki nóg með það þá semja Flosi og kennarar við skólann handrit og tónlist söngleikjanna. Þátturinn var tekinn upp í miðju covid í gegnum Teams og því eru hljóðgæðin ekki alveg nógu góð. Vonandi verður það fyrirgefið þar sem að það heyrist mjög vel í Flosa en aðeins verr í Guðna og Guðmundi (sem er þá kannski bara kostur?). Á heimasíðu Grundaskóla má finna bort úr söngleikjunum og tónlistina ásamt útvarpsþáttum nemenda sem að rætt er um í þáttunum. https://www.youtube.com/user/Grundaskolihttps://soundcloud.com/grundaskolihttps://www.grundaskoli.is/is/nemendur/utvarp-grundaskolaNjótið vel!
Árni Þór Hilmarsson hefur um árabil verið einn af kennurum Flúðaskóla sem sér um að setja upp leikrit á unglingastigi.
Árni segir okkur frá því en Flúðaskóli fékk á dögunum Menntaverðlaun Suðurlands fyrir leiklistarverkefnið sitt.
Magnús J. Magnússon skólastjóri við Barnaskólann á Eyrabakka og Stokkseyri ræðir við Guðna og Guðmund um leiklist í skólastarfi.
Magnús hefur sett upp yfir 80 leikskýningar í skólum víða um land og hefur leikhús hugsjónina að leiðarljósi í öllu starfi.
Til að hafa samband við Magnús er hægt að senda póst á [email protected]
Hann bendir einnig á síðu Bandalags íslenskra leikfélaga sem má finna hér: https://leiklist.is/
Þar má finna fjöldann allan af leikritum sem hægt er að fá keypt. Meðal annars um 15 leikrit eftir Magnús.
Njótið vel!


