Send us a text Halldóra hefur tekið upp huggulegan lífsstíl og fræðir Steinunni um þær raunir sem hún hefur komist í við að gera hýbíli sín að tímaritaverðu ljósmyndaefni. Magga Erla Húsahvíslari kemur til sögunnar en hún kemur og galdrar inn á heimilum með því að færa til húsgögn, færa til myndir og leikur sér og endurnýtir eigur fólks sem fyrir er á staðnum - Kona með auga eins og Steinunn segir. Fyrrilíf eru til umræðu enda varð Steinunn fyrir þeirri merkilegu reynslu að reyna það lí...
Send us a text Steinunn ver sig fimlega þegar Halldóra reynir að fá hana til að axla ábyrgð á gengdarlausri leti sinni og vinnuframlagsleysi. Halldóra er langþreytt á gangi mála og reynir að ala vinkonu sína upp án árangurs. En Human Design þeirra vinkvennanna er undir og ýmislegt er gaman að skoða í kortum beggja enda eru þær báðar í því sem þær kalla ´transision´ án þess að þær skýri það nokkuð frekar. En stöllurnar eru að leita a vit nýrra ævintýra á sama tíma og móðurhlutverkið er a...
Send us a text Steinunn þekkir tvo íþróttamenn og annar er gestur þeirra Halldóru í þessum mjög þætti. Gesturinn er enginn meðalmaður, óvanalegur og einlægur, sá einstaki Óli Stef! Í fyrstu er gesturinn orðlaus, sem hann segir hollt.en þetta einlæga samtal fer um víðan völl enda þrír sveimhugar í leit að kjarna sem hvergi er að finna. Takk Íslandsbanki, Eldum rétt og Sjáðu. Við kunnum að meta stuðninginn! Ást og friður Support the show
Send us a text Í þessum þætti verður farið yfir óvenjulegt boðskort sem Halldóra hlaut á dögunum. Þar verður í boði að vera allsber en töluverður áhugi er að myndast hjá þeim stöllum um að ganga um naktar en sérstaklega ber á þessu hjá Halldóru. En hvað er nánd og hversu mikil nánd er Ok, of mikil o.s frv. Allt þetta of fleira á lendum þess erótíska verður rætt og krufið. Elsku áskrifendur, þessi fyrsti þáttur í læstri dagskrá er krassandi, allavega finnst okkur það enda báðar a...
Send us a text Sumir þættir podcastsins eru teknir upp á matsölu-og samfélagsstaðnum Mama í Bakarabrekkunni. Þar er fallegt og ört stækkandi samfélag fólks sem kýs að leggja stund á andlega iðkun, borða heilnæma náttúrufæðu og drekka gullna túrmerik drykki og draga sér svo sem eins og eitt tarot spil. Einn höfuðpaurinn á Mama er Adi Ævintýri, andlegur kennari og leiðbeinandi. Hann leggur ástundun á Natha Yoga, hefur heillandi hugmyndir um lífið o tilveruna og er alveg ævintýralega opin, fróðu...
Send us a text Steinunn skrópaði í þennan þátt og því brá Halldóra á það ráð að taka viðtal við eiginmann sinn Nikkó en um engan er þeim Steinunni meira tíðrætt um. Hjónin stikla á hjónamálum, Nikkó segir sögur frá uppvaxtarsögur frá Marokkó, kostulegar sögur af skurðlækninum pabba hans og einhver óskiljanlegur galdur er í því að heyra hjón tala saman þó þau viti vel að það er verið að taka þau upp. Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslun • uppruni í M...
Send us a text Hvað gerist þegar kakóbolli kveikir á minningu og bók breytist í brú á milli heima? Við sitjum saman yfir Mensu, matreiðslu- og minningabók sem setur fjölskyldu, unglingsár og samfélagið okkar við saman borð þar sem rababarabaka, salöt og glæstar kökur voru meira en bara matur. Sögur sem eru bæði fyndnar og hjartnæmar: konan sem borgaði með fallegum steinum, draugurinn sem tók hljóðlátan morgungang, og búálfar sem fela lykla þar til þú biður kurteislega. Á leiðinni heiðru...
Send us a text Ljós kviknar á í öllum hornum hugans þegar Anna Bloom stígur inn og segir okkur frá ferli sem byrjar í líkamanum en endar í rýminu þar sem hugrekki, húmor og heilun mætast. Galdra og lækningakonan Ana Bloom hefur frá mörgu að segja og hagnýt galdaráð leynast í samtalinu sem má prófa strax—gulur pýramídi til að finna týndan hlut, grænn styrkur fyrir plöntuna sem á erfitt. Ana afhjúpar hvernig plöntulækningar geta verið helgir kennarar sem krefjast samhengi, aga og leiðsagnar, o...
Send us a text Bókahillan varð að hliði inn í hugrekkið. Við förum frá hæðni og hálfkæringi yfir í djúpar sögur af microdósum, sveppum og ayahuasca, þar sem kvíði ´ breytingaskeiðinu, svefnleysi og stjórnsemi víkja fyrir mildi, leikgleði og heiðarlegri skuggavinnu. Á leiðinni skoðum við hvernig Portugal nálgast afglæpavæðingu og hvers vegna skaðaminnkun, öryggi og umgjörð skipta öllu þegar fólk velur að ferðast inn á þessi ókunnu svæði. Við lýsum ferð þar sem rödd verður að söng, sjálfstraus...
Send us a text Þórunn Thors Jónsdóttir er gestur Halldóru og Steinunnar en hún hefur um árabil leiðbeint Íslendingum sem nota kannabis í lækningaskyni. Þú heyrir sögur sem kveikja von—frá sjúklingunum sem endurheimta svefn og matarlyst til kvenna sem finna loksins tök á endómetríósu og miklum tíðaverkjum. Við förum frá bókaskápnum og brandaranum yfir í djúpa, heiðarlega umræðu um lífsgæði, virðingu fyrir líkamanum og frelsi til að velja náttúrulegar leiðirb til lækninga. Við brjótum nið...
Send us a text Í kjarna mannlegrar tilveru er samband okkar við reglur, gildi og samfélagið grundvöllur alls. Þessi framhaldsþáttur með Gesti Pálmasyni kafar djúpt í þessar pælingar og kannar hvernig mótþrói gegn yfirvaldi getur verið hluti af erfðamengi okkar og uppeldi. Þátturinn skoðar líka ólíkar nálganir á markmiðasetningu og skipulag. Sumir einstaklingar setja sér aldrei markmið en ná samt árangri, meðan aðrir þrífast á skipulagi. Þessi fjölbreytileiki er einmitt styrkur í teymis...
Send us a text Þegar þú skilur gildakerfi þín sérðu heiminn í allt öðru ljósi. Í þessum spennandi þætti förum við í djúpt ferðalag í gegnum þróun mannlegra gilda, allt frá grunnþörfum um að lifa af upp í heimsmiðaða hugsun. Hvað rekur þig áfram? Er það öryggið í að tilheyra hópi, löngunin til að hafa áhrif, reglur og skipulag, eða kannski draumurinn um betri heim? Með hjálp Gests Pálmasonar förum við í gegnum mismunandi gildakerfi sem hafa þróast í mannkynssögunni. Við ræðum hvernig þessi g...
Send us a text Lífið er ferðalag sem krefst þess að við horfumst í augu við allar hliðar okkar sjálfra - ekki bara þær fallegu. Í þessu samtali skoða Steinunn og Halldóra eðli sjálfsvinnu og BREAKING NEWS er að sjálfsþroski snýst ekki um að losna við erfiðu hlutina. Margir leita að "betri útgáfu" af sjálfum sér í gegnum andlegar æfingar, hugleiðslu eða jóga. En hvað ef sú leit er bara flótti? "Spiritual bypassing" hvað er það? Að vakna til vitundar um sjálfan sig er ekker...
Send us a text Hvað gerist þegar við sleppum tökunum? Hér hefst ferðalag inn í kjarna mannlegrar reynslu þar sem við könnumst við mikilvægi æðruleysis í daglegum æfingum. Enginn verður óbarinn biskup svo þær Steinunn og Halldóra fá til sín Vigfús Bjarna Albertsson til spjalls og ráðagerða. Hann sleppur reyndar óbarinn enda ekki biskup heldur rithöfundur, prestur og sálgætir. Í þessu einlæga samtali við Vigfús skoða þær Steinunn og Halldóra hvernig þjáningin er óhjákvæmilegur hluti af lífinu o...
Send us a text Móðurástin! Þurfum við hana? Getum við lifað án hennar? Uppeldisfræðingarnir ...hm...Steinunn og Halldóra tala fjálglega um uppeldi en það er lán að þær skuli ekki hafa nokkurt átorítet í þeim efnum. Umræðan snýst svo dálítið mikið um heilsu kvenna enda hafa þær stölluð hótað að tóra lengur en gott þykir. Steinunn talar annars nánast í viðstöðulausum um ráðstefnu sem er væntanleg, þar sem sérfræðingar munu deila nýjustu rannsóknum á áhrifum kannabis á kvenlíkamann. Hvað ef laus...
Send us a text Andans dýr Steinunnar, eða spirit animal, er ugla og hún holdgerðist sem ugla í samkvæmi nú fyrir stuttu og veit nú hvernig það er að vera fiðraður. Fróðlegt fyrir fuglaáhugamenn. Dóra er sem oft áður að velta fyrir sér the dark female sem hún reynir nú að styrkja í sér með því að vera meiri tík svona dags daglega. Það er líka töluvert talað um hvernig ljósið lýsir upp myrkrið og hvernig myrkrið er ótrúlegt afl í leikhúsvinnu. Skuggavinna sem er aðaláhugamál vinkvennanna er mik...
Send us a text Það kemur á daginn að bæði Halldóra og Steinunn telja sig völvur svo það er um að gera að fara að panta hjá þeim tíma. Þær ræða hvernig sýnir og hlutir birtast þeim eins og þetta rugl sé einhver vitniburður um forspárgáfu þeirra. En til umhugsunar er bókin, Völva Suðurnesja um alvöru íslenska völvu sem sagði: Ég er að sjá“, þegar hún var lítil og fór sálförum. Steinunn fær afmælisgjöf og dregur spil fyrir Dóru. Báðar segja þær af brúðkaupum helgarinnar en Halldóra veislus...
Send us a text Það kveður við nýjan tón í þessum þætti þar sem Halldóra gerist djörf hvað innslög og klippingar varðar. Hljóðið í þættinum reyndist ekki vera fullkomið og því þurfti að bútasauma þáttinn eins og handverkskonum einum er lagið. Útkoman – algjör nýlunda í hlaðvarpsþáttagerð á Íslandi ef ekki í heiminum! En tvær bækur koma við sögu þessu sinni, sem lesið er úr af handahófi verða því miður ekki til mikils innblástur en upp bætir að þær gera atlögu við ástarsöngva og ljóð sem ...
Send us a text Halldóra er skemmtanasjúk og kemur með partýbók og Steinunni langar strax á kjötkveðjuhátíðina í Ríó. Verður Freezing Man svar Íslands við Burning Man in the US of A!? Það er óviðeigandi hvað Halldóra talar mikið og oft um það að hún vilji vera allsber, hvað gengur konunni til? Báðar hafa þær verið Fjallkonur og þurfa að rifja upp þá óhæfu að Steinunn hafði verið fjallkona eftir mikið partýstand og stuttan svefn og að Halldóra er svo ólandsföðursleg að henni hefur aldrei dottið...
Send us a text Ef við byggjum í landi þar sem bara er hægt að týna ávexti sér til matar sem nota á samdægurs því annars myndi allt skemmast þá yrði okkur aldrei kalt en þannig er það í Frönsku -Pólónesíu þar sem Halldóra dvaldi ásamt fjölskyldu sinni. Sjöl eru mesta þarfaþing á ferðalögum en í þessum þætti má læra um notagildi sjala í tískuinnslagi frá Dóru. Ýmislegt er rætt um gleraugu í þessum þætti en þó ekki miðaldragleraugu sem kemur á óvart þar sem Halldóra og Steinunn sigla hraðbyri in...