Discover
Fotbolti.net
2954 Episodes
Reverse
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir landsleikjahlé til að undirbúa hlustendur fyrir 12. umferð. Einar tæknimaður frá Livey hélt áfram að kynna nýja grafík til leiks og því góð ástæða til að taka þennan þátt í mynd.
Stefan Alexander Ljubicic var gestur Kára Snorrasonar í hljóðveri þar sem rætt var um vistaskipti hans til Breiðabliks.
Einnig var farið yfir gott gengi Keflavíkur í sumar, tíma Stefans hjá Brighton og hæfileika hans við píluspjaldið.
Lífið verður æ erfiðara fyrir stuðningsmenn Manchester United. Niðurstaðan var 4-0 tap gegn erkifjendunum í Liverpool í gær.
Sjáum við bæði Manchester-liðin í Championship-deildinni á næsta tímabili?
Þá er umræða um að Íslendingar séu á leið í ensku úrvalsdeildina.
Rætt var um helstu sögulínur í kringum enska boltann í Coke stúdíóinu í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Sigurjón Árni fóru yfir málin.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net frumfluttur á föstudegi. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, félagaskipti í Bestu deildinni, landsliðið og fleira.
Gestur þáttarins er Flosi Eiríksson formaður Breiðabliks. Hann ræðir um tímabilið í Kópavogi, þjálfarabreytingarnar og landslagið í íslenska boltanum.
Fyrrverandi fjölmiðlamaðurinn Ingólfur Hannesson ræddi við Kára Snorrason og fór yfir feril og kynni sín af Guðjóni Þórðarsyni sem lést á dögunum.
Ingólfur starfar jafnframt hjá ÍTF og var farið lauslega yfir stöðu Bestu deildarinnar undir lok þáttar.








