Discover
ILLVERK Podcast
ILLVERK Podcast
Author: Inga Kristjáns
Subscribed: 5,269Played: 240,866Subscribe
Share
© Copyright 2019 All rights reserved.
Description
Hlaðvarpið sem hefur svalað forvitni íslendinga um sannsöguleg sakamál síðan 2019.
• www.illverk.is
• #illverkpodcast
• [email protected]
• www.illverk.is
• #illverkpodcast
• [email protected]
205 Episodes
Reverse
Þann 17. nóvember 2011 hvarf hin 33 ára Michelle Parker sporlaust í Orlando í Flórída, sama dag og sjónvarpsþáttur þar sem hún og fyrrverandi unnusti hennar ræddu stormasamt samband sitt var sýndur.
Eftir hvarfið hófst umfangsmikil leit að fjögurra barna móðurinni, en þrátt fyrir áralanga rannsókn fékk fjölskylda hennar engin svör við því hvað hafði gerst.
Nú, tæpum 15 árum síðar, hafa loksins orðið tímamót í málinu. Ný þróun í rannsókninni hefur vakið upp spurningar sem hafa legið ósvaraðar frá því Michelle hvarf. Hvað gerðist í raun þennan nóvemberdag árið 2011?
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 400+ aukaþáttum og nýja þætti alla Fimmtudaga.
Áskriftin kostar 1299,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding.
Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is
Hafðu samband:
• [email protected]
• #illverkpodcast
sᴀᴍғᴇʟᴀɢsᴍɪᴅʟᴀʀ:
• ɪɴsᴛᴀɢʀᴀᴍ | ɪʟʟᴠᴇʀᴋᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ
• ʟᴏᴋᴀᴅᴜʀ ғᴀᴄᴇʙᴏᴏᴋ ʜᴏᴘᴜʀ
ʜʟᴀᴅᴠᴀʀᴘɪᴅ sᴇᴍ ʜᴇғᴜʀ sᴠᴀʟᴀᴅ ғᴏʀᴠɪᴛɴɪ ɪsʟᴇɴᴅɪɴɢᴀ ᴜᴍ sᴀɴɴsᴏɢᴜʟᴇɢ sᴀᴋᴀᴍᴀʟ sɪᴅᴀɴ 𝟸𝟶𝟷𝟿 ®
Þann 18. maí árið 1827 yfirgaf hin 26 ára gamla María Marten heimili sitt í litla þorpinu Polstead á Englandi. Hún var á leið til fundar við elskhuga sinn, William Corder, en þau höfðu ákveðið að hittast í gamalli hlöðu sem kölluð var Rauða hlaðan, áður en þau hæfu nýtt líf saman.
En María sneri aldrei aftur heim.
Mánuðir liðu án þess að fjölskylda hennar fengi að sjá hana. William hafði þó sínar skýringar á fjarveru hennar, þar til stjúpmóðir Maríu, Ann Marten, fór að upplifa nokkuð sem átti eftir að breyta öllu.
Árið 1828 komst upp um einn alræmdasta glæp 19. aldarinnar á Englandi. Mál þar sem ást, lygar, svik og dularfullir draumar fléttuðust saman með óhugnanlegum hætti.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 400+ aukaþáttum og nýja þætti alla Fimmtudaga.
Áskriftin kostar 1299,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding.
Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is
Hafðu samband:
• [email protected]
• #illverkpodcast
sᴀᴍғᴇʟᴀɢsᴍɪᴅʟᴀʀ:
• ɪɴsᴛᴀɢʀᴀᴍ | ɪʟʟᴠᴇʀᴋᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ
• ʟᴏᴋᴀᴅᴜʀ ғᴀᴄᴇʙᴏᴏᴋ ʜᴏᴘᴜʀ
ʜʟᴀᴅᴠᴀʀᴘɪᴅ sᴇᴍ ʜᴇғᴜʀ sᴠᴀʟᴀᴅ ғᴏʀᴠɪᴛɴɪ ɪsʟᴇɴᴅɪɴɢᴀ ᴜᴍ sᴀɴɴsᴏɢᴜʟᴇɢ sᴀᴋᴀᴍᴀʟ sɪᴅᴀɴ 𝟸𝟶𝟷𝟿 ®
Glasgow, mars 1857. Hinn 28 ára gamli Pierre Émile L’Angelier snýr óvænt aftur til borgarinnar eftir að hafa fengið bréf frá 21 árs gamalli Madeleine Hamilton Smith, konu sem hann hafði átt í leynilegu ástarsambandi við í tæp tvö ár.
Að morgni 23. mars 1857 er Pierre látinn. Það sem kemur í ljós næstu daga breytir skyndidauða hans í eitt umtalaðasta sakamál Viktoríutímans. Hundruð ástarbréfa, leynileg trúlofun, arsenik og samband sem mátti aldrei komast upp.
Í þættinum förum við aftur til Glasgow árið 1857 og skoðum ráðgátuna um Madeleine Smith og Pierre Émile L’Angelier — mál sem enn, tæpum 170 árum síðar, skilur eftir eina stóra spurningu: Hvað gerðist í raun síðustu nóttina sem Pierre lifði?
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 400+ aukaþáttum og nýja þætti alla Fimmtudaga.
Áskriftin kostar 1299,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding.
Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is
Hafðu samband:
• [email protected]
• #illverkpodcast
sᴀᴍғᴇʟᴀɢsᴍɪᴅʟᴀʀ:
• ɪɴsᴛᴀɢʀᴀᴍ | ɪʟʟᴠᴇʀᴋᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ
• ʟᴏᴋᴀᴅᴜʀ ғᴀᴄᴇʙᴏᴏᴋ ʜᴏᴘᴜʀ
ʜʟᴀᴅᴠᴀʀᴘɪᴅ sᴇᴍ ʜᴇғᴜʀ sᴠᴀʟᴀᴅ ғᴏʀᴠɪᴛɴɪ ɪsʟᴇɴᴅɪɴɢᴀ ᴜᴍ sᴀɴɴsᴏɢᴜʟᴇɢ sᴀᴋᴀᴍᴀʟ sɪᴅᴀɴ 𝟸𝟶𝟷𝟿 ®
Árið 2016 leitaði Jason Worley ráða hjá ókunnugu fólki á Reddit. Hjónabandið hans var að hrynja og eftir margra ára svik og vantraust vissi hann ekki hvort hann ætti að vera áfram — eða fara. Jason fór að ráðum fólksins og tók ákvörðun. Aðeins nokkrum vikum síðar var líf hans gjörsamlega lagt í rúst. Í þessum síðasta þætti um flokkun Dr. Philip Resnick á foreldrum sem myrða börn sín skoðum við mál Brandi Worley — og mögulega einn óhugnanlegasta flokkinn af þeim öllum:
Spouse revenge.
Þegar barn verður að vopni til að særa makann eins mikið og mögulegt er.
Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti?
Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 400+ aukaþáttum og nýja þætti alla Fimmtudaga.
Áskriftin kostar 1299,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding.
Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is
Hafðu samband:
• [email protected]
• #illverkpodcast
sᴀᴍғᴇʟᴀɢsᴍɪᴅʟᴀʀ:
• ɪɴsᴛᴀɢʀᴀᴍ | ɪʟʟᴠᴇʀᴋᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ
• ʟᴏᴋᴀᴅᴜʀ ғᴀᴄᴇʙᴏᴏᴋ ʜᴏᴘᴜʀ
ʜʟᴀᴅᴠᴀʀᴘɪᴅ sᴇᴍ ʜᴇғᴜʀ sᴠᴀʟᴀᴅ ғᴏʀᴠɪᴛɴɪ ɪsʟᴇɴᴅɪɴɢᴀ ᴜᴍ sᴀɴɴsᴏɢᴜʟᴇɢ sᴀᴋᴀᴍᴀʟ sɪᴅᴀɴ 𝟸𝟶𝟷𝟿 ®
Andrea Yates var fimm barna móðir í Texas þegar ólýsanlegur harmleikur átti sér stað á heimili fjölskyldunnar sumarið 2001. Á bak við málið var löng saga alvarlegra geðrænna veikinda, innlagna, lyfjabreytinga og viðvörunarmerkja. Í þættinum förum við ítarlega yfir sögu Andrea og skoðum málið út frá flokkun réttargeðlæknisins Dr. Phillip Resnick. Þar fellur mál Andrea undir altruistic filicide – þegar foreldri drepur barn í þeirri trú að dauðinn sé barninu fyrir bestu.