DiscoverHeppni og Hetjudáðir
Heppni og Hetjudáðir
Claim Ownership

Heppni og Hetjudáðir

Author: Jóhann, Svandís, Ívar og Kristín

Subscribed: 63Played: 4,957
Share

Description

Fjögurra manna hópur sem spilar Dreka & Dýflissur, fimmtu útgáfu. Spilið er hlutverkaspil sem byggir á spuna. Saman búum við til ævintýri með hjálp teninga. Hlaðvarpið er á íslensku, eða við reynum eftir fremsta megni að þýða það sem er á ensku. Aðal markmiðið er að hafa gaman og hlægja saman.
87 Episodes
Reverse
1 - Bjór og kamillute

1 - Bjór og kamillute

2019-11-2701:21:322

Fyrsti dagur í lífi hetjanna okkar!Gya, Nomanuk og Egor eru í rólegheitum á helsta ferðamannastað Alandriu, þegar óvæntir hlutir eiga sér stað. Litlar drekaverur, upprennandi tónlistarmaður, og skuggalegir óvinir koma við sögu, í þessum fyrsta þætti af Heppni og Hetjudáðum!Music: Blood Eagle, Vopna, Blacksmith and Entertainment by Alexander Nakarada (www.serpentsoundstudios.com)Licensed under Creative Commons BY Attribution 4.0 Licensehttp://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2 - Sjávarháski

2 - Sjávarháski

2019-12-0801:01:521

Hetjurnar okkar fá sitt fyrsta verkefni, lenda í ævintýrum á sjó og finna dulafullt skip...
3 - Gettu betur

3 - Gettu betur

2019-12-1501:46:471

Hetjurnar okkar skoða strandað skip, og lenda í óvæntri spurningakeppni. Þau finna vísbendingar um óvenjulegan farm um borð. Kannski berjast þau við uppvakning og fiskiskrímsli eða tvö...
Hetjurnar okkar sogast inn í ævintýraheim, þar sem einhver hefur stolið jólunum!Tekst þeim að bjarga jólunum, og öllum stolnu hjólunum?Music: Silent Night, God Rest Ye Merry Gentlemen, Joy to the world, We three celtic kings & We wish you a merry christmas by Alexander Nakarada (www.serpentsoundstudios.com)Licensed under Creative Commons BY Attribution 4.0 License
5 - Tímapressa

5 - Tímapressa

2019-12-2901:20:591

Hetjurnar okkar lenda í vandræðum með tíma, djöfla og kynnast nýjum vin.Þau er áfram á leið upp til Doctra að sinna sínu verkefni fyrir Aes. Music: Marked, Borgar, Góða Nótt, Vetur frosti, Cold Journey, Behind the sword & Fólkvangr by Alexander Nakarada (www.serpentsoundstudios.com)Licensed under Creative Commons BY Attribution 4.0 License
6 - Nemendaverkefni

6 - Nemendaverkefni

2020-01-0501:03:42

Hetjurnar okkar komast loks til Doctra, kynnast nýjum persónum og velta fyrir sér næstu skrefum.
Hetjurnar okkar eru staddar í Doctra. Þær fara á fund ráðsins sem stýrir Doctra, og teknar afsíðis af Delat sem segir þeim frá því að eitthvað óeðlilegt sé á ferðinni, bæði í borginni, sem og í Alandriu allri. Þessu fylgir eftirminnileg ferð á bókasafnið í borginni.
8 - Djöflar í yfirvigt

8 - Djöflar í yfirvigt

2020-02-0201:31:021

Hetjurnar rekja slóð veranna í kuflunum, sem hafa sést um götur Doctra.Þau leggja á ráðin og komast í hann krappann, og berjast við óvini sem fáir hafa séð. Hvaða tákn eru þetta? Af hverju er þetta að gerast í Doctra? Music: Songs;Cockroaches, Halloween Theme, Haunted House, The Butcher, Grundar, Borgar, Góða Nótt, Blacksmith, Blood Eagle, Entertainment, Fólkvangr, Now we Feast, Vetur Frosti, Vopna and Wanderer, by Alexander Nakarada (www.serpentsoundstudios.com)Licensed under Creative Commons BY Attribution 4.0 Licensehttps://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
Hetjurnar okkar láta vita af því sem fannst í skólanum. Þau leggja svo land undir fót, eignast nýja hest, og hafa það notalegt í skóginum. 
Í þessu þætti ferðast hetjurnar okkar í dularfullan píramída í Roheline skóginum. Þau finna þar illvígan óvin, sem stenst flestar þeirra árasir. Ráðgátan flækist enn frekar, þegar á móti þeim teku einhverskonar samblanda af dreka og djöfli...
11 - Egor Drekakló

11 - Egor Drekakló

2020-02-2356:56

Hetjurnar okkar eru ansi hætt komnar í þessum þætti, þegar þau berjast við óvæntan óvin í botni píramídans, og tilfinningar leikmanna taka völdin.
12 - Meridia

12 - Meridia

2020-03-0101:00:591

Hetjurnar okkar hitta ráðið í Doctra til að segja þeim allt af létta, hvað um var að vera í Roheline skóginum. Kemur svo í ljós að einn í ráðinu virðist ekki vera sá sem þau héldu...
Við Varðeldinn 1

Við Varðeldinn 1

2020-03-0524:29

Fyrstur í röð stuttra milliþátta, þar sem við sitjum og spjöllum um söguna, sköpunina og þankagang persónanna. Í þessum þætti förum við aðeins yfir hvað drífur persónurnar að þessum tímapunkti sögunnar, sköpun og innblásturinn á bakvið Doctra, ásamt mörgu öðru.
Hetjurnar okkar ferðast í átt að Bellum. Það eina sem þau þurfa að muna, er að virkja armbandið sem Delat gaf þeim, svo að Meridia geti ekki sent útsendara sína í átt að þeim...
14 - Satanískt Flubber

14 - Satanískt Flubber

2020-03-1501:21:15

Hetjurnar okkar kíkja í námuna sem þau fundu. Þau eru ekki viss hvað þetta endilega þýðir... en lofar ekki góðu fyrir framhaldið...
15 - Bellum

15 - Bellum

2020-03-2201:10:591

Hetjurnar okkar komast loks til Bellum. Þau hitta kattarlíkan stríðsherra borgarinnar, Nomanuk lendir í einvígi við tannlausan barbara og Gya gerir sitt besta í drykkjukeppni...
16 - Risatásveppir

16 - Risatásveppir

2020-03-2901:03:31

Nafnlausu hetjurnar okkar skella í sig staupi og kanna hvaða fát er á fólki í Bellum. Gya leynir frá vinum sínum ýmsu sem hún sá og gleymdi. Nuk gerir tilraun til að tæla gest, og eru þau send í verkefni á vegum Tiana, sem verður til þess að Egor býr til brauð.
17 - Kvörtunarbréf

17 - Kvörtunarbréf

2020-04-0501:04:001

Hetjurnar okkar ranka við sér í læstum kjallara. Þau skoða sig um í Bellum, og reyna að átta sig á hverjum er hægt að treysta, og hverjum ekki...
18 - Innrás

18 - Innrás

2020-04-1201:02:29

Gya, Egor og Nomanuk takast á við spillingu í Bellum, komast að því að ekki er allt sem sýnist. Síðan hittir saurinn viftuna.
19 - Þyrnir í myrkrinu

19 - Þyrnir í myrkrinu

2020-04-1901:07:21

Í lok síðasta þáttar stóðu hetjur okkar augliti til auglitis við svartan drekadjöful, og svarteygðan Praesul Ther'u. Tekst þeim að hreinsa borgina, og komast nær einhverjum svörum?
loading
Comments (2)

fire spot

frábærir þættir en þarf að bíða eftir næsta. haldið áfram👍

May 17th
Reply

MRWAFFLE

geggjađ podkast

Jan 5th
Reply
loading
Download from Google Play
Download from App Store