DiscoverHnit - allir hafa sögu að segja
Hnit - allir hafa sögu að segja
Claim Ownership

Hnit - allir hafa sögu að segja

Author: RÚV

Subscribed: 8Played: 41
Share

Description

Allir búa yfir góðri sögu. Brynja Þorgeirsdóttir kastar rafrænni pílu á kort og heyrir frásögn þess sem býr á lendingarstaðnum. Smáar sem stórar sögur, fyndnar sem hamrænar - hver einasta manneskja hefur sögu að segja.
4 Episodes
Reverse
Staðarhnitið í þessum fyrsta þætti er 64 gráður og tólf mínútur norður, 21 gráða og 73 mínútur vestur. Á þessu svæði býr ung kona að nafni Inga Hlín Pálsdóttir. Sagan hennar hverfist um lífsbreytandi andartak - tilviljanakenndan fund í flugvél sem opnaði henni nýja veröld.
Jörundur Jökulsson

Jörundur Jökulsson

2020-07-2040:00

Staðarhnitið að þessu sinni er 64 gráður og sex mínútur norður, 22 gráður og 2 mínútur vestur. Þar býr Jörundur Jökulsson. Hann reynist vera frá Vatni í Haukadal, hestamaður mikill og söngmaður sem kann ógrynni af vísum. Hann segir okkur óborganlega sögu um skíðaferð sem hlaut afar óvæntan endi.
Gunnhildur Halla Carr

Gunnhildur Halla Carr

2020-07-2740:47

Staðarhnitið er 64 gráður og 13 mínútur norður, 21 gráða og 91 mínúta vestur. Þetta er í bakgarðinum hjá Gunnhildi Höllu Carr, ungum kennaranema og einstæðri móður tveggja stúlkna. Hún segir okkur frá leitinni að föðurnum sem hún hefur aldrei fengið að kynnast, þar sem við sögu kemur selló sem seinna skilaði Óskarsverðlaunum til Íslands.
Sigfús Ólafsson

Sigfús Ólafsson

2020-08-0340:00

Staðarhnitið er 64 gráður og 14 mínútur norður, 21 gráða og 94 mínútur vestur. Viðmælandinn er Sigfús Ólafsson, ævintýramaður mikill sem fæddist með flugbransann í blóðinu. Hann segir okkur sögur frá ævintýrum sínum á Kúbu sem hljóma eins og efni í spennandi Hollywood-kvikmynd.
Comments