Discover
Morðskúrinn
Morðskúrinn
Author: mordskurinn
Subscribed: 2,733Played: 157,313Subscribe
Share
© Höfunarréttur 2026
Description
Spjöllum saman um morð, mannshvörf, raðmorðingja og dularfull dauðsföll sem eru bæði leyst eða óleyst mál! Nýr þáttur kemur út alla miðvikudaga. Þú finnur okkur á facebook og instagram: Morðskúrinn.
www.pardus.is/mordskurinn
www.pardus.is/mordskurinn
350 Episodes
Reverse
Elnaz hafði nýverið komið úr ofbeldissambandi þegar tveir grímuklæddir menn réðust á hana og lömdu með steikarpönnu. Hún lifði árásina af, en fékk ekki færi á að lifa lífinu mikið lengur því þremur vikum seinna var henni rænt af heimili frændfólks síns af þremur lögreglumönnum og kom ekki til með að sjást á ný.
Þátturinn er í boði Heimaskipulag og Define The Line
48 ára Kent var íþróttafréttamaður hjá Tribune og var að vinna frameftir á hrekkjavöku aðfaranótt 1. nóvember 2001. Að vinnudegi loknum komst hann þó ekki lengra en að bílnum sínum, því þar voru tveir menn sem komu til með að berja og kyrkja hann til bana. Tveir menn voru að lokum ákærðir fyrir að manndrápið, byggt eingöngu á vitnisburði en engra haldbærra sönnunargagna.
Þann 21. febrúar árið 1980 ætlaði hin 18 ára gamla Katherine Foster að gera sér góðan dag með bestu vinkonum sínum og kíkja í verslunarmiðstöð.
Katherine átti tíma eftir hádegi þennan dag og var planið því að skjótast fyrir hádegi en hún átti aldrei eftir að komast alla leið.
Lík hennar átti eftir að finnast tveimur dögum síðar og við tók heilmikil rannsókn sem að skilaði afar litlu í allmörg ár.
Þátturinn er í boði
Define the Line Sport
Heimaskipulag
Komdu í áskrift!
www.pardus.is/mordskurinn
Nicole var 8 ára gömul þegar hún ætlaði að fara út ein með vinkonu sinni í sundlaug íbúðarsamstæðunnar sinnar. Vinkona hennar beið eftir henni í andyrinu, en þar sem Nicole bjó á efstu hæð þá þurfti hún að taka lyftuna niður. Nicole kom hinsvegar aldrei til með að koma út úr lyftunni þennan dag.
Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag
Hin 19 ára gamla Missy Grubaugh var virkilega sjálfstæð, var farin að búa sjálf, vann mjög mikið til að eiga þak yfir höfðinu og fyrir skólagjöldunum sem hún var sjálf að greiða fyrir. Það var ekki mikill hasar í lífi hennar og áfallið því gríðarlegt þegar Missy fannst látin inn í herberginu sínu eftir bruna inn á heimilinu hennar.
Þátturinn er í boði
Define the Line Sport www.definetheline.is
Heimaskipulag www.heimaskipulag.is
Komdu í áskrift!
www.pardus.is/mordskurinn







