DiscoverPant vera blár!
Pant vera blár!
Claim Ownership

Pant vera blár!

Author: Davíð, Kristleifur, Styrmir, Þorvaldur

Subscribed: 14Played: 1,011
Share

Description

Pant vera blár! er íslenska borðspilapodcastið. Stjórnendur þáttarins eru Davíð Baldursson, Kristleifur Guðjónsson, Styrmir Hafliðason og Þorvaldur Guðjónsson ræða spil og spilatengd málefni ásamt því að segja öðru hverju brandara sem falla misvel í kramið hjá öðrum meðstjórnendum.
98 Episodes
Reverse
Þar sem landsmenn eru sveittir á efrivörinni þessa dagana að ákveða hvað skal setja í Jólapakkann þá hefur PVB ákvað að smala saman fullmönnuðum þætti og ræða ítarlega hvað skal kaupa fyrir jólin 2025. Aldrei að vita nema við hendum í brandarasprell í leiðinni
97. Essen Upphitun

97. Essen Upphitun

2025-10-0501:03:41

Linda og Þorri úr Spilavinum eru komin aftur til þess að fara yfir skemmtilega og mikilvæga þætti sem snúa að borðspilahátíðinni SPIEL í Essen, en þau hafa farið árlega síða 2007. Í þættinum verður farið yfir þá hluti sem við erum spenntust fyrir ásamt góðum ráðum fyrir fólk sem er að fara í fyrsta skiptið eða vill læra eitthvað nýtt. Við fáum líka smá innsýn í það hvernig þau sem eigendur spilabúðar nálgast þennan magnaða viðburð
96. Spilavinir

96. Spilavinir

2025-09-2201:56:31

Linda og Þorri úr Spilavinum komu í heimsókn til að tala um allskonar sem tengist spilum, því að eiga spilabúð og alls konar. Þau fá hina klassísku PVB yfirheyrslu sem er tækluð á einstaklega heimspekilegan máta af hjónunum úr Spilavinum.
95. Skammastu þín!

95. Skammastu þín!

2025-07-2048:06

Sumir kunna ekki að skammast sín - sérstaklega ekki Pant Vera Blár!
94. ValdaStyrmisÞema

94. ValdaStyrmisÞema

2025-06-2901:13:22

Já HæGÆ! Við heitum Valdi og Styrmir og í dag ætlum við að ferðast til Berlín að borða Berlínarbollur og láta ræna okkur þar sem maður kemur að okkur og segir við okkur nokkrum sinnum.... ef þú hendir ekki einu af þessum tveimur spilum þá er mér að mæta!
93. Iacta Alea Est

93. Iacta Alea Est

2025-06-1452:31

Ef einhver er góður í tengingaleikjum þá er það Valdi. Valdi eeeeelskar allt sem er með teninga, sérstaklega þegar hann þarf að kasta mörgum teningum í einu. Þar sem Valdi elskar teningaspil svo mikið er hann búinn að þrýsta á hópinn að taka saman smá lista yfir bestu spil sem innihalda teningakast. Valdi heimtaði að fá að kasta tening og fékk töluna 5. Við tökum smá snúning á topp5 tengingaspilum.
92. Er partíið búið?

92. Er partíið búið?

2025-05-2501:00:04

Erum við að sjá breytingu á borðspilaiðnaðinum í ljósi tolla og gjaldþrota fyrirtækja i iðnaði. Við rennum yfir málefni borðaspila og hvað áhrif hins appelsínugula á áhugamálin okkar.
Að undirbúa spilakvöld getur verið vinna... svona eins og í vinnunni þegar þú þarft að ráða inn nýja starfsmenn. Þetta er ferli - hvað skal spila, hverjum skal bjóða, hvernig skal haga sér, hvað á að bjóða upp á o.s.frv. Við förum einnig yfir það hvernig er best að tilkynna fyrir fólki að það hafi verið ráðið í vinnu......
90. Spilavin

90. Spilavin

2025-02-1655:16

Það er fátt skemmtilegra en að henda sér í spilaveislu yfir heila helgi.... Hey! Það er einmitt það sem við erum að fara fjalla um hérna. Við fáum til okkar góðan gest og rennum yfir Spilavin sem haldið verður á Hvolsvelli í apríl.
89 - Algjört Fíaskó

89 - Algjört Fíaskó

2025-01-2601:23:07

Þessi þáttur er algjör fíaskó... höfum ekkert meira um það að segja.
88 – Spilaárið 2024

88 – Spilaárið 2024

2025-01-1201:03:03

Árið 2025 er gengið í garð. Tunglið er í sjöunda húsi vatnsberans á sama tíma og Satúrnus, Júpíter og Neptúnus eru í beinni línu við jörðina. Þetta þýðir bara eitt. Styrmir, Valdi, Leifur OG Davíð komust allir til þess að taka upp þátt. Í þessum þætti verður spilaárið 2024 gert upp með topplistum yfir bestu spilin sem voru spiluð í fyrsta skiptið á þessu ári ásamt greiningu á spilatölfræði út BGStats. Svo er aldrei að vita nema það verði hnoðað í einn eða tvo orðabrandara.
Fegurð borðspilanna felst að miklu leyti í samveru og snertingu við falleg spil og fallega íhluti þeirra (eða ljót spil eins og Hansa Teutonica). En hvernig notum við internetið í borðspilasamfélaginu og er það af hinu góða? Íris frá Doktor Spil spjallar um tækifæri tækninnar þegar kemur að borðspilum.
86 - Jólaspilin 2024

86 - Jólaspilin 2024

2024-12-0801:27:04

Nú styttist í jólin og fer fólk að velta fyrir sér hvaða spil hentar vel í jólapakkann …eða möndlugjöfina. Pant vera blár ásamt Doktor Spil eru með svörin fyrir ykkur – hvort sem um er að ræða vana spilara, nýgræðinga, börn eða fjölskyldur.
85 – Kosningaspil

85 – Kosningaspil

2024-11-1701:11:07

Í dystópískum heimi eru meðlimir Pant vera blár að fara að halda röð spilakvölda fyrir stjórnmálaflokkana. Hvaða spil væri best að bjóða hverjum flokki fyrir sig upp á?
84. Essen SPIEL 2024

84. Essen SPIEL 2024

2024-11-0357:09

SPIEL er stærsta borðspilaráðstefna Evrópu og er hún haldin árlega í Essen. Styrmir var fulltrúi Pant vera blár á ráðstefnunni í ár og fer hann yfir hvað bar hæst ásamt góðum gestum.
83 - Spilavinir

83 - Spilavinir

2024-10-2001:16:20

Svanhildur og Addó frá Spilavinum kíkja í heimsókn til að ræða spil, Spilavini, áhugamálið og allt milli himins og jarðar.
Spiel des Jahres verðlaunin eru líklega virtustu borðspilaverðlaunin í heiminum. Í þessum þætti koma Íris og Auður frá Doktor Spil aftur í heimsókn og velja í (drafta) 5 spila lista af þeim sem okkur þykja vera bestu spilin sem hafa hlotið þessi virtu verðlaun. Hlustendur fá svo tækifæri til þess að kjósa besta listann á facebook síðu Pant vera blár og á @doktor_spil á instagram.
81 – Doctor Spil

81 – Doctor Spil

2024-08-2101:17:28

Valdi og Styrmir eru spilasjúkir og þá er ekkert í stöðunni annað en að fá Doktor Spil til að kíkja í heimsókn. Doktor Spil (@doktor_spil) er instagram reikningur sem er tileinkaður borðspilum og í þessum þætti fáum við innsýn í þetta fyrirbæri, tilkomu þess og kvennanna sem standa á bakvið verkefnið.
VIð höfum ákveðið að breyta Pant Vera Blár í FightClub! HIttum þennan ágæta mann sem heitir Tylor Durden og hann sannfærði okkur um að betra væri að slást enn að spila
HELP! I NEED SOMEBODY HELP! Þetta er jú frægur texti úr lagi með Bítlinum enn það vita það ekki margir að John Lennon hrópaði þetta yfir hópinn þegar hann vakti drekann í hinu sígilda spili CLANK! Paul McCartney matreiddi þetta svo í skemmtilegt lag. Hljómsveiti spila víst líka! Enn hvaða hljómsveitir passa við hvaða spil?
loading
Comments