Discover4 vaktin
4 vaktin
Claim Ownership

4 vaktin

Author: Hlaðvarpið 4 vaktin

Subscribed: 0Played: 3
Share

Description

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4 vaktinni. Þegar við tölum um 4 vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu okkar. 1 vaktin er þá hefðbundinn vinnudagur, endurhæfing eða annað, 2 vaktin er það sem við þurfum að gera utan vinnutíma og 3 vaktin er huglæg og einsskonar verkstjórn yfir 2 vaktinni. Fyrir foreldra langveikra og eða fatlaðra barna þá er 2 og 3 vaktin umfangsmeiri og þess vegna ætlum við að tala um hana sem 4 vaktina. Við spjöllum um réttindi,þjónustu ofl og munum tala við aðra foreldra og fagfólk.
13 Episodes
Reverse
Duchenne muscular dystrophy eða Duchenne vöðvarýrnun á íslensku og er algengasti vöðvarýrnunarsjúkdómurinn en það skal tekið fram að Duchenne er samt sem áður sjaldgæfur sjúkdómur.
Spjallið

Spjallið

2024-06-2647:39

Hér er einn spjallþáttur á léttu nótunum...
Saga einhverfunnar

Saga einhverfunnar

2024-06-0950:19

Í þessum þætti stiklum við á stóru í sögu einhverfunnar. Þetta er því miður ofboðslega sorgleg saga að mörgu leyti en okkur finnst mikilvægt að tala um hana til að við getum fagnað því að við séum komin lengra og einnig til að við getum átt samtalið um hvernig við getum gert enn betra.
Masking

Masking

2024-05-2225:46

Hvað er að maska? Í þessum þætti förum við yfir hvað það er að maska og hvaða afleiðingar það getur haft fyrir einhverfa.
Að stimma

Að stimma

2024-05-2111:05

Hvað er stimm og að stimma? Þessi þáttur er stuttur þáttur þar sem við útskýrum hugtakið stimm.
Skólahöfnun

Skólahöfnun

2024-05-1530:50

Hvað er skólahöfnun? Við viljum taka út orðið skólaforðun vegna þess að okkur finnst það vera að segja að barnið sé vandinn en ekki að það sé ekki verið að mæta þörfum barnsins. Hvernig getum við unnið með þessum hóp barna?
Kjörþögli

Kjörþögli

2024-05-0729:26

Hefur þú heyrt um kjörþögli? Í þessum þætti tölum við um kvíðaröskunina kjörþögli. Hver eru einkenni, hvert er hægt að leita og hvernig er hægt að vinna með kjörþögli.
Í þessum þætti förum við yfir hvað liðveisla og stuðningsfjölskylda er og hver markmiðin með því úrræði er.
Skóli án aðgreiningar

Skóli án aðgreiningar

2024-04-2401:06:27

Í þessum þætti tölum við um hugtakið skóli án aðgreiningar. Hvaðan er hugmyndafræðin og hvernig gengur að innleiða hana í Íslensku skólakerfi?
Foreldrakulnun

Foreldrakulnun

2024-04-1048:24

Í þessum þætti ræðum við um hugtakið foreldrakulnun. Hvað gerist þegar einstaklingur fer í kulnun og hvað geta verið áhættuþættir fyrir því að lenda í foreldrakulnun ásamt fleiru sem tengist kulnun.
4 vaktin (Trailer)

4 vaktin (Trailer)

2024-04-0900:57

Hvað er 4 vaktin

Hvað er 4 vaktin

2024-04-0237:23

Í þessum þætti ætlum við að fara yfir það hvað okkur finnst tilheyra 4 vaktinni og afhverju við viljum skilgreina hana sem auka 4 vakt og þar af leiðandi bæta henni við þær þrjár vaktir sem hafa nú þegar verið skilgreindar.
Kynningarþáttur

Kynningarþáttur

2024-03-3106:59

Þessi þáttur er örstuttur kynningarþáttur um okkur. Við heitum Sara og Lóa og erum með hlaðvarpið 4 vaktin. Þar sem við munum spjalla um ýmislegt tengt því að vera á 4 vaktinni sem foreldrar langveikra eða fatlaðra barna.