Discover
Heilsuvarpid
129 Episodes
Reverse
Okkar allra besti Helgi Ómars er orðinn heilsumarkþjálfi og fræðir okkur hér um núvitund, streitulosun, öndunaræfingar og tónheilun ´a sinn fallega og einlæga hátt.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi
@nowiceland
Kóði NAGLINOW20
Unnur Valdís Kristjánsdóttir vöruhönnuðuur og vatnsmeðferðaraðili er gestur Heilsuvarpsins
Hún er hugmyndasmiður Flothettu sem er flotbúnaður sérhannaður ti að veita stuðning í vatni og skapa djúpslökun, draga úr verkjum í vöðva og stoðkerfi líkamans. Þetta slökunarástand í vatninu losar um streitu í öllu kerfinu og er gott fyrir kvíða, depurð og andlega heilsu.
@flothetta
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi
@nowiceland
Afsláttarkóði á Hverslun.is NAGLINOW20
Alma Hafsteinsdóttir er spilafíklaráðgjafi, með B.S í sálfræði, viðskiptafræðingur og spilafíkill í bata. Hún situr í stjórn Samtaka Áhugafólks um spilafíkn sem vilja umræðu um spilakassarekstur Háskóla Íslands, og lokun spilakassa. Spilafíkn fylgir mikil skömm svo fólk ræðir ekki vandann opinberlega og þær alvarlegu samfélagsleg, efnahagslegu og heilsufarslegu afleiðingar sem hljótast af þessari fíkn. Við töluðum um spilafíkn, spilakassa, veðmálasíður og margt fleira tengt þessu útbreidda vandamáli sem því miður virðist færast í aukana.
Styrktaraðili Heilsuvarpsins er NOW á Íslandi
@nowiceland
Þessi þáttur fjallar um hvaða bætiefni eru góð fyrir geðheilsuna. Sem bæta svefn, minnka bólgur, lækka kortisól, minnka kvíða. Hvaða rannsóknir styðja notkun þeirra.
Omega-3
L-theanine
Magnesíum Glycinate
D-vítamín
Góðgerlar
Klækjabrögð og stjórnunartækni sem finnast oft í eitruðum samböndum og hjá narssistum.
Margir upplifa að grunnbrennslan virðist hægari en áður. Þessi þáttur fjallar um grunnbrennsluna og svarar vonandi mörgum spurningum. Hvað er grunnbrennsla? Hvers vegna lækkar grunnbrennsluhraðinn þegar við förum í megrun? Hvernig hækkum við grunnbrennsluna aftur? Hvernig getum við misst fitu á heilbrigðan hátt með dúndur grunnbrennslu?
Allt sem þú þarft að vita um prótín. Hvað er prótín. Hvað gerir prótín fyrir okkur í líkamanum? Hversu mikið prótín þarftu til að byggja og viðhalda vöðvamassa? Hvaða matvæli eru prótínrík? Hver er munurinn á mismunandi prótíndufti. Af hverju er prótín mikilvægt. Af hverju er mikilvægt að byggja upp vöðva.
Halldóra Skúla frá Kvennaráð er óendanlegur brunnur visku og þekkingu þegar kemur breytingaskeiðinu. Halldóra heldur úti fróðleikssíðu og fyrirlestra um breytingaskeiðið fyrir vinnustaði en i þessum þætti tölum við um áhrif breytingaskeiðs á atvinnuþátttöku og fjármál kvenna og hvað vinnustaðir geta gert til að vera breytingaskeiðsvænir og styðja við konur svo þær detti ekki út af vinnumarkaði a þessum besta aldri.
Magnús F Ólafsson sálfræðingur hjá Sálstofunni vinnur með hegðunarvanda barna/ unglinga ásamt ráðgjöf til foreldra, starfaði áður með Fjölkerfarmeðferð, fjölskyldumiðað úrræði á vegum Barna – og fjölskyldustofu fyrir unglinga með alvarlegan hegðunarvanda. Magnús er hokinn af reynslu af vinnu með börnum og unglingum. Við ræddum skjánotkun barna/ unglinga og áhrif á andlega/ líkamlega heilsu. Hvaða hættur blasa við þeim, sem og þættina Adolescence á Netflix. Mgnús kemur með góð ráð fyrir foreldra til ná betur til barna sinna og setja skýrari mörk.
Lilja Sigurgeirsdóttir eða Liðleika Lilja er ÍAK einkaþjálfari sem sérhæfir sig í liðleika og hreyfanleika. Hún heldur úti námskeiðunum Flex Fit, Stirðir strákar, lyftingar fyrir konur, liðleiki fyrir golfara og margt fleira. Lilja er hafsjór af fróðleik um liðamót, líkamsstöðu og allt sem viðkemur þjálfun líkamans.
Hún setur inn myndbönd af góðum liðleikaæfingum á Instagram @lidleika_lilja
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og vil ég sérstaklega mæla með Female Balance sem er einstök blanda af jurtum og næringarefnum til að styðja við heilsu kvenna.
Heilsuvarpið er í boði NETTÓ og vil ég mæla sérstaklega með Anglamark vörunum sem eru lífrænar, svansvottaðar og umhverfisvænar.
@nowiceland
@netto.is
Verkfæri fyrir góða svefnrútínu til að stuðla að dúndur góðum svefni, hvers vegna við vöknum oft kl 2-3 á nóttunni og dettum í ofhugsanir, og hvað við getum gert til að róa líkamann niður og sofna aftur.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
Erla Guðmundsdóttir, HeilsuErla, er íþróttafræðingur og markþjálfi sem starfar sem íþróttakennari og heldur úti hlaðvarpinu 'Með lífið í lúkunum'. Við töluðum um hennar reynslu af kulnun og streitu, og hvað hjálpaði henni tækla það sem og allskonar mýtur í heilsubransanum.
Ótrúlega skemmtilegt spjall enda erum við á sömu bylgjulengd í öllu þessu heilsubrölti.
@heilsuerla
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
Gestur þáttarins er Berglind Sigmarsdóttir sálfræðingur hjá Samkennd heilsusetri og veitir einstaklingsmeðferð og heldur námskeiðið Tölum saman samskiptanámskeið.
Svo hún er hokin af reynslu þegar kemur að heilbrigðum uppbyggilegum samskiptum.
Við fórum um víðan völl í hvernig við setjum mörk hvað einkennir góð samskipti, og virka hlustun og hvernig við leysum deilur á uppbyggilegan hátt.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
Þetta sólóvarp fjallar um hvers vegna við þurfum að næra okkur vel fyrir og eftir æfingu og hvað sé best að borða.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó.
@nowiceland
@netto.is
Þessi þáttur er sólókast þar sem ég tala um vegferð mína á breytingaskeiðinu, hvað ég þurfti að gera í heilbrigðiskerfinu og hverju ég breytti varðandi lífsstíl, bætiefni, mataræði og æfingar til að fara í gegnum þetta skeið eins þægilega og kostur er.
Vonandi einhverjum konum þarna úti til gagns og jafnvel gamans.
Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi
@nowiceland
@netto.is
Gestir Heilsuvarpsins eru Helga Fríður Garðarsdóttir félagsráðgjafi, Inga Guðlaug Helgadóttir sálfræðingur, Margrét K. Pétursdóttir jógakennari standa að baki Ég alla leið, sem er sjálfsræktardagbóka helguð sjálfseflingu sem og sjálfsstyrkingarnámskeiðum. Við spjölluðum um allt sem tengist sjálfsrækt, núvitund, sálfræði með allskonar ráð til að hlúa að andlegu hliðinni.
@eg.allaleid
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
Ég mæli með mysuprótíni eftir æfingu frá NOW sem fæst bæði í Hverslun og í Nettó.
Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður á Morgunblaðinu og lyftingakappi per exelans er gestur Heilsuvarpsins. Atli er fimmtugur og hefur lyft síðan hann var 14 ára gamall. Við tölum um hvað stuðlar að langlífi í lyftingum nú þegar við samanlagt erum með 70 ára lyftingasögu. Atli talar líka um hverju hann þurfti að breyta og aðlaga eftir því sem hann varð eldri.
Atli er megahress og þetta var stórskemmtilegt spjall.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó.
@nowiceland
@netto.is
Hafdís Helgadóttir næringarfræðingur er gestur Heilsuvarpsins var að gefa út barnabókina Petra paprika, fræðsluefni um næringu fyrir börn sem nýtist líka fullorðnum. Hafdís kom með góðar ráðleggingar bæði fyrir matarvenjur barna og fullorðna.
Súper fróðlegur þáttur, svo dragið fram penna og glósubók.
Fylgið Hafdísi á Instagram @hafdisnaering
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
Gestur Heilsuvarpsins er Þorleifur Þorleifsson últrahlaupari.
Hann er gríðarleg fyrirmynd því hann sýnir okkur að öll geta hreyft sig því hann er faðir í fullri vinnu sem byrjaði að hlaupa þrítugur en lauk nýverið 62 hringum í Bakgarðshlaupinu og sló Íslandsmet. Við tölum um vegferð hans í hlaupunum, hvernig félagslegur stuðningur hefur spilað stórt hlutverk í árangrinum, og hvernig hann kemst andlega og líkamlega í gegnum þrekraun eins og Bakgarðshlaupið og hvaða hlaupaskór hafa hentað okkur í hlaupum.
Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari er gestur Heilsuvarpsins. Hún býr í Slóveníu og þarf vart að kynan fyrir neinum en hún var fyrsta og eina konan til að fara Suðurpólinn og ganga 8000 m tind ein síns liðs. Hún hefur marga fjöruna sopið í fjallamennskunni, en hún upplifði bæði jarðskjálfta og snjóflóð á Everest. Og haldið fjölda fyrirlestra um mikilvægi þess að taka bara eitt lítið skref í einu til að komast á leiðarenda.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is












Magnaður þáttur. Takk 👍
það heyrist ekkert í sálfræðingnum