DiscoverBókaspjallið | Borgarbókasafnið
Bókaspjallið | Borgarbókasafnið
Claim Ownership

Bókaspjallið | Borgarbókasafnið

Author: Borgarbókasafn Reykjavíkur

Subscribed: 0Played: 0
Share

Description

Hlaðvarpsþættir úr smiðju Borgarbókasafnsins, bókaspjall, vangaveltur og ýmislegt fleira.
43 Episodes
Reverse
Aðstæður í samfélaginu gera að verkum að ekki er hægt að fagna hrekkjavökunni með hefðbundnum hætti í ár. Borgarbókasafnið býður fjölskyldum því upp á hrekkjavökugaman í formi rafrænnar bókmenntagöngu sem hægt er að fara saman, hvar og hvenær sem er. Sunna Dís Másdóttir les úr skuggalegum, draugalegum, já og stundum hreint út sagt hryllilegum bókum íslenskra barna- og unglingabókahöfunda.Lesið er úr eftirfarandi bókum: Bölvun Múmíunnar eftir Ármann JakobssonDrauga-Dísa eftir Gunnar Theodór EggertssonDúkka eftir Gerði KristnýjuEitthvað illt á leiðinni er, ritstjóri Markús Már Efraím. Höfundar sögunnar: Ronja Björk Bjarnadóttir og Matthea Júlíusdóttir Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkín Beck Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur
Skrimslavarpid

Skrimslavarpid

2019-11-0522:38

Í tilefni Hrekkjavöku hertu starfsmenn Borgarbókasafnsins upp hugann og ræddu helstu skrímsli hryllingsbókmenntar, allt frá Dracula og skrímsli Frankensteins til Pennywise Stephens Kings - með viðkomu hjá Greppikló og Litla og stóra skrímslinu.
Hryllingshlaðvarpið

Hryllingshlaðvarpið

2019-10-2522:20

Björn Unnar, Jóhannes, Maríanna Clara og Vala eru að komast í Hrekkjavökugírinn og spjalla um hrylling í ýmsu formi.
Bókstaflegir titlar!

Bókstaflegir titlar!

2019-10-0418:51

Maríanna Clara og Björn Unnar rýna í „bókstaflega titla" - þar sem fólk lýsir bók án þess að nota nafnið - og giska á hvaða bók er talað um. Spyrill þáttarins er Esther.
Byggt á bók

Byggt á bók

2019-09-2727:18

Maríanna Clara, Björn Unnar, Ólöf og Ingi spjalla um myndir og þætti sem byggja á skáldsögum.
loading
Comments