Discover
Trúnó
Trúnó
Author: Hlaðvarp
Subscribed: 1Played: 3Subscribe
Share
© Hlaðvarp
Description
Hlaðvarp um lífið, tilveruna, normin, ónormin, óöryggi, geðheilsu, mótandi minningar og allt hið ósagða í ofantöldum efnum. Trúnó er í umsjón Tómasar Valgeirssonar og Nínu Eck.
Nína er Mastersnemi í félagsráðgjöf, IPS jafningjaþjálfari og teymisstjóri jafningja á Geðsviði LSH. Tómas er fjölmiðlamaður, græjukall og söngleikjanörd.
Samtölin kunna að vera hljóðrituð. Vertu með í trúnóinu.
Nína er Mastersnemi í félagsráðgjöf, IPS jafningjaþjálfari og teymisstjóri jafningja á Geðsviði LSH. Tómas er fjölmiðlamaður, græjukall og söngleikjanörd.
Samtölin kunna að vera hljóðrituð. Vertu með í trúnóinu.
27 Episodes
Reverse
'Season tvö' af blaðvarpi Trúnós er hafið ásamt glænýju ári. Nína og Tómas snúa aftur í spjall eftir viðburðaríka fjarveru í lífi þeirra beggja. Nína skaust til Ástralíu og hefur nýlokið MA ritgerð sinni um rannsókn hennar á innleiðingu jafningjastuðnings í geðheilbrigðisþjónustu. Tómas hefur verið á fullu í nýrri vinnu og að hlaupa á milli kvikmyndasetta. Síðan voru víst einhver jól þarna á milli.
Trúnó-teymið veltir fyrir sér umfjöllunarefni þessarar ritgerðar og hversdagslegan kvíðann í kringum hátíðirnar. Rætt er um listina að vera aleinn á aðfangadegi, æskutengingar við flugelda, staðalmyndir þunglyndis, kerfishindranir, ýmsa stressfaktora og ólíkar skilgreiningar á hvað 'bati' getur þýtt. Mögulega leynast þarna fáein hvöss 'teik' og eitthvað af erfiðum spurningum, að venju.
Samtalið kann að hafa verið hljóðritað. Og skemmtilegt.
Heilinn er magnað fyrirbæri en þarf gjarnan að hlúa vel að honum á verstu tímabilum. Í öðrum þætti Trúnós segja Nína og Tómas sögur sínar af ýmsum botnum og erfiðleikum. Einnig er sérstök áhersla lögð á hin mögnuðu samtímagildi tölvuleiksins Farming Simulator og hversu ólíkar myndir geta fylgt því að kalla á hjálp þegar heilinn (og sálarorkan) er nálægt því að gefast upp.
Athugið að samtalið gæti hafa verið hljóðritað.
Í fyrsta þætti hlaðvarpsins Trúnó stúdera þáttastjórnendur ýmis konar ‘brot’ úr fortíð sinni, stefnumótaforrit, kynjamyndir og viðhorf Íslands til útlendinga (enda þau Nína og Tómas sjálf útlensk…). Þá veltur dúóið líka fyrir sér 'Like þumalinn' alræmda, hvað er við hæfi í samskiptum almennt og hvernig er best að tækla það þegar eitthvað liggur… eða ‘lyktar’ í loftinu.
Breen-istar, hatursorðræður, fordómar, þjóðarskömm, íslensk smábæjarhyggja, innlendir fréttamiðlar, prakkaralegir pólitíkusar og merku ættartengsl Nínu.
Þetta ku vera hinn víði völlur sem þau Tómas kryfja á einlægum nótum. Hvössum líka. Vitaskuld.
Innihald innslagsins að sinni er í persónulegri kantinum. Samtalið kann að hafa verið hljóðritað.
Alveg óvart.
Hvað þýðir það að vera 'geðveikur?' Hvað þýðir að vera 'eðlilegur?' Hver er munurinn á eðlilegum hugsanagangi og 'ofhugsara'?
Nína fer yfir sín hjartans mál í gegnum lífsleið sína á meðan bæði þau Tómas mikla fyrir sér stærri spurningum lífsins.
Samtalið var vissulega hljóðritað - Þáttastjórnendum óafvitandi.
Nína og Tómas kölluðu eftir alls konar ‘heimskulegum’ spurningum, frá hlustendum og víðar. Því persónulegri, því betra. Það er nefnilega ekkert til sem heitir heimskuleg spurning. En sérdeilis verða málin persónuleg.
Samtalið gæti hafa verið hljóðritað.
Hjálpi okkur.
Mál gerenda og þolenda eru ávallt viðkvæm sama hvar þau eru rædd. Nína lýsir frá persónulegri upplifun sinni á meðan Tómas spyr hana spjörunum úr (afsakið orðbragðið) í tengslum við hitamál og skoðanir sem margir hafa gagnrýnt hana fyrir - og þá bara nokkuð nýverið.
Það er eðli Trúnós að taka óþægilegri umræðurnar og þessi er svo sannarlega í þeim stíl.
Glætan að þetta samtal hafi verið hljóðritað.
Nína og Tómas mikla fyrir sér gagnlega gildi dagbóka úr æskunni, samfélagsmiðla, börnin og komandi kynslóðir YouTube’ara.
Þá er stórri spurningu jafnframt svarað í upphafi þáttar og annar þáttastjórnandinn gerir heiðarlega tilraun að átaki í miðri upptöku.
Ætli það hafi nokkuð verið kveikt á míkrafóninum?
Nú skal 'settla' málin (endanlega vonandi) um Sound of Freedom, hina vægast sagt umdeildu endursögn af svaðilförum fyrrum leyniþjónustumannsins Tim Ballard. Þá er mansal, barnaníð, áfallastreita og alls konar kristilegt kanaþvaður í brennidepli.
Nína skoðar myndina út frá sálfræðilegu sjónarmiði og Tómas gramsar aðeins í hlið kvikmyndagerðarinnar. Í sameiningu reyna þau að komast til botns á því hvers vegna myndinni fylgir svona mikil heift og reiði frá ólíkum hópum og hvað er vert að setja undir smásjánna.
Ætli það hafi verið kveikt á hljóðnemanum?
Hvað er það sem við sækjumst eftir í pörun við aðra? Hvað er ‘eðlileg’ krafa og hvenær eða hvar erum við að tapa hluta af okkur sjálfum?
Og af hverju í kvensköpunum eru bíómyndirnar Sound of Freedom og Barbie að skipta fólki í svona sterkar, ólíkar fylkingar?
Nína og Tómas grandskoða þessar pælingar út frá eigin reynslum.
Samtalið gæti hafa verið hljóðritað.
Gervigreind og mannleg tengsl við spjallbotta er umræða til upphitunar áður en Nína úskýrir reynslu sína af verkferlabrotum Neyðarlínunnar. Það sem hófst sem einföld og eðlileg starfsumsókn með kennslu varð fljótlega að dæmisögu um hvernig ófagleg vinnubrögð hjá fjarskiptaþjónustunni (auk brot á persónuverndarlögum getur valdið vantrausti á þjónustu sem ofar öllu á að stuðla að því að hjálpa. Tómas útskýrir nokkur klaufabrögð sín og ‘NeyðarNína’ fær orðið.
Samtalið kann að hafa verið hljóðritað.
Atli og Elías ræða við góða gesti í afmælisþætti sínum. (þetta upload er prufa, hver sem spottar hana hér má njóta heill)
Liðinn er rúmur áratugur síðan kvikmyndasagan kvaddi hinn síumdeilda myndabálk sem þó óumdeilanlega leynir á sér á hinum óvæntustu stöðum.
Ansi margt hefur runnið til sjávar hjá fyrrum stjörnuparinu Kristen Stewart og Robert Pattinson, en bæði tvö virðast hafa fylgt reglubók Daniels Radcliffe með því að hrista ‘stóra stimpilinn’ af sér með yndisklikkuðum indí-sarpi í hlutverkavali (þó Pattinson virðist óneitanlega hafa ýkt gaman af leðurblökueinkennum og nátthrafnsmynstrum). En hvað með alla hina leikaranna? Hvað með legasíu Twilight seríunnar? Er hægt að færa rök fyrir listrænu sjarmagildi í sögunni um Bellu Swan eða er þetta ennþá bara sama meinta glitrandi eitrið? Hvað segir það um persónuleika þeirra sem eru í teymi Jacobs frekar en Edwards? Hvað er Twilight Bingó eiginlega?
Nanna og Tómas spara ekki persónulegheitin í bítandi og ítarlegri köfun í gegnum klanið hjá Cullen, kunningja og kristaltæra mynd af kúltúr samtímans í denn. Skellum á okkur úlfahattana og grömsum saman í hormóna(vöðva)fjallinu.
Nýlega kom sjötta Scream-myndin var frumsýnd víða um heim við (hingað til) góðar viðtökur áhorfenda. Nanna og Tómas skelltu sér í bíó og ræða hvað sería á borð við Scream getur gert til að haldast áfram fersk. Getur serían enn fúnkerað án Neve Campbell? Hvað vilja áhorfendur fá frá Scream mynd?
Hér kryfja þau í myndina og ræða almennt áhrif og mótíf seríunnar eins og hún leggur sig og hvað liggur framundan.
Óskarsverðlaunin eru nýafstaðin, en þetta var í 95. sinn sem þau voru afhent. Everything, Everywhere, All at Once hélt sigurgöngu sinni áfram og er nú mest verðlaunaða kvikmynd allra tíma.
Nanna og Tómas fara yfir helstu flokkana og ræða hverjir voru hlunnfarnir, hvaða hefðir tilheyra Óskarnum og velta fyrir sér hvort þessi tilgerðarveisla sé loks að finna sálina sína. Af hverju eru sumar alþjóðlegar myndir meira áberandi? Er Angela Basset fúl útí Jamie Lee Curtis? Erum við orðin vön því að fá drama og uppákomur á Óskarnum?
Farið er um víðan völl um þessa sögulegu athöfn og rýnt í pólitík, klíkuskap og hvaða vægi gullstyttan kunnuga hefur.
Árið 2017 kom úr mynd sem ber nafnið Justice League. Leikstjórinn Zack Snyder hafði tekið við DC lineup’inu og verið að gera sitt með þann heim. Þegar hann þurfti svo að stíga til hliðar frá framleiðslu myndarinnar þegar persónulegur harmleikur skall á, var Joss Whedon fenginn til að koma og “klára” myndina fyrir hann. En myndin sem Zack Snyder vildi gera, og myndin sem Joss Whedon gerði eru tvær mjög, mjög ólíkar myndir.
Eftir almenna óánægju með Justice League fóru netverjar að biðja um útgáfu Snyder af kvikmyndinni, þar sem að kynningarefni fyrir myndina bar alls ekki saman við afurðina sem rataði í kvikmyndahús. Árið 2021 var svo loks gefið út hið svokallaða “Snyder-cut” á HBO max, og áhorfendur fengu að sjá myndina sem Justice League átti að vera.
Nanna og Tómas ígrunda hér muninn á þessum tveimur kvikmyndum, framleiðsluferlið og þessa furðulegu, víða hötuðu afbökun Whedons á (umdeilda?) stórverki Snyders.
Serían og kúltúrsfyrirbærið, frá höfundinum sem skal ekki nefna, lumar á ýmis konar undirtónum, viðeigandi sem og súrum. Kvikmyndabálkurinn um galdrastrákinn eftirsótta en umdeilda fær sérkennilega upprifjun að sinni. Það eru ekki einungis galdraþulurnar, karakterar og töfraheimur Potters sem svo lengi hefur/hafði heillað, heldur hormónaflóðin.
Nanna og Tómas skoða 10 gröðustu mómentin í myndunum og velta jafnframt fyrir sér áhrifunum sem höfundur sagnanna hefur haft á eigin sköpunarverk með opinskáum skoðunum og gildum. Hver verður eiginlega legasía þessa stórvinsæla vörumerkis ef til lengri tíma er horft.
Þá er gráupplagt að lyfta upp sprotum og varpa smá ‘Lumos maxima’ á málefnið.
Everything Everywhere All At Once er ein stórundarlega einstök tegund af bíómynd og fer ekki á milli mála að þessi metnaðarfulla litla gegnsúra dramakómedía hefur vakið gríðarlega athygli um heim allan. Myndin hlaut á dögunum 11 tilnefningar til Óskarsverðlauna, meðal annars í flokki bestu kvikmyndar, bestu leikstjórnar og fyrir besta frumsamda handrit.
Með aðalhlutverkin fara Michelle Yeoh, Ke Huy Quan, Stephanie Hsu, Jamie Lee Curtis og James Hong. Í myndinni er sagt frá kínverskum innflytjanda í Bandaríkjunum, Evelyn Wong, sem þeysist inn í klikkað ævintýri þar sem hún er ein fær um að bjarga heiminum með því að kanna aðra alheima sem tengjast lífum sem hún gæti hafa lifað.
'EEAAO' er eins og andstæðan við hefðbundna "Óskarsmynd" en það er svo margt og mikið til að grandskoða við þessa fjölheimaperlu. Einnig er svokallaða ‘mainstream’ gildi hennar tekið til umræðu, þó óneitanlega sé eitthvað fyrir alla að finna í þessari veislu. Þetta er ‘ein með öllu’ mynd, en hvers vegna?
Við vörum við spillum. Nú verður það persónulegt. Yeoh, takk!
Nú skal tala í tungum, slöggum og slæmum þýðingum og slást um slagorðin. Nanna leggur þraut fyrir Tómas þar sem hún Google-þýðir ýmis misþekkt slagorð (/slagyrði?) úr kvikmyndum með frussufyndnum árangri á tíðum.
Þá er dýpra kannaður sarpur þýðinga og titla sem hafa brennimerkt sig í okkar séríslensku kúltúrssögu. Manst þú ekki eftir hasarmyndinni Tveir á toppnum? Unglingamyndinni Trufluð tilvera eða Fjandakorninu?
Hvað með Bekkjarfélagið?
Óskarinn er kannski jafn hallærislegur og hann er skemmtilegur, eða vekur í það minnsta upp gjarnan skemmtilegar umræður. Um standardana, mistökin, skandalana, lítilmagnanna og sameiningarkraft snobbaða skemmtibransans.
Nanna og Tómas diskútera tilnefningarnar fyrir árið 2022, hvað gerir góðan Óskar temmilega djúsí, hvernig eru viðbrögð útsendingarstjóra og nefndarinnar hverju sinni við óvæntum uppákomum í gegnum árin.
Ef ekkert annað þá má alltaf sjá Óskarinn sem árlegt tilefni til að hlaða á glápslista viðkomandi. Allt og ekkert um Skara frænda og allt sem fram úr skarar þetta árið.
Dembum okkur þá í djúsið og spáum í stjörnuspilin.














