Discover
Spursmál
Spursmál
Author: Ritstjórn Morgunblaðsins
Subscribed: 956Played: 27,188Subscribe
Share
© Ritstjórn Morgunblaðsins
Description
Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is
Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14.
Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum
á mbl.is.
Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14.
Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum
á mbl.is.
165 Episodes
Reverse
Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir og verkefni stofnunarinnar hafa aldrei verið eins umfangsmikil. Georg Kr. Lárusson hefur verið forstjóri hennar í meira en tvo áratugi og hefur fylgt starfseminni eftir í gegnum gríðarlega breytingar, tæknilegar og þær sem tengjast umróti á alþjóðasviðinu.Georg er gestur Stefáns Einars í Spursmálum í dag og fer yfir þær áskoranir sem stofnunin stendur frammi fyrir.Samfélög og á hverfandi hveliÞá ræðir Stefán Einar einnig við RAX, Ragnar Axelsson en hann hefur á umliðnum áratugum tekist á hendur það magnaða verkefni að ljósmynda samfélög á hverfanda hveli norðan heimskautsbaugs.Á næstunni kemur út ný bók úr smiðju RAX en hún er prentuð í íslenskri og enskri útgáfu og fjallar öðrum þræði um grænlenska veiðimanninn Hjelmer Hammeken. RAX ræðir við Stefán Einar um bókina og ævistarfið sem fyrir löngu hefur vakið athygli milljóna manna um heim allan.Er von á frekari vistaskiptum í þinginu?Þá mun pólitíkin fá sinn verðuga sess í þættinum þegar Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar og Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins mæta til leiks. Það hefur allt leikið á reiðiskjálfi í þinginu frá því á mánudaginn þegar Ingvar Þóroddsson gekk úr þingliði Viðreisnar og til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.Er von á frekari vistaskiptum eins og Guðrún Hafsteinsdóttir hefur ýjað að eða er þingflokkur Viðreisnar þéttari nú en nokkru sinni fyrr? Ljósi verður varpað á það í Spursmálum dagsins.
Hver er staða Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í lok vikunnar nú þegar Landsvirkjunarmálið hefur enn undið upp á sig? Getur stjórnin sem nú er yfir fyrirtækinu ráðið nýjan forstjóra þrátt fyrir skakkaföllin að undanförnu?Þessu svara stjórnmálarýnendurnir Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins í Spursmálaþætti dagsins.Þá mæta þau á vettvang, glæpasagnahöfundarnir Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir. Þú hafa bæði gefið út bók fyrir þessi jól en þau standa einnig fyrir mikilli glæpasagnahátíð sem nú stendur yfir en hún hóf göngu sína árið 2013 og hefur vaxið mjög að burðum á þeim þrettán árum sem síðan eru liðin. Þau fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari.Í lok þáttar ræða þau Georg Lúðvíksson hjá Spesíu og Snædís Ögn Flosdóttir, forstöðumaður markaða hjá Arion banka um þóknanir í fjármálakerfinu þegar kemur að fjárfestingum einstaklinga í verðbréfasjóðum. Hafa bankarnir verið að ofrukka fólk og er Spesía að slá nýjan tón á markaðnum? Allt kemur það í ljós á vettvangi Spursmála.
Hvert er pólitískt erindi Viðreisnar nú þegar þjóðin hefur hafnað Evrópuleiðangri flokksins? Þessari spurningu er hreyft í nýrri bók Björns Bjarnasonar þar sem hann gerir upp þjóðaratkvæðagreiðsluna sem efnt var til 29. ágúst síðastliðinn.Hann er gestur Spursmála að þessu sinni og ræðir stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og öðrum samstarfsþjóðum nú þegar ljóst er að Ísland er ekki á leið þangað inn.Pólitískur lífróður LandsvirkjunarÁ sama tíma og Viðreisn sleikir sárin eftir að hafa tapað þjóðaratkvæðagreiðslunni rær Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra pólitískan lífróður vegna málefna Landsvirkjunar. Hann er sakaður um að hafa afvegaleitt sjálft Alþingi með svörum sínum um málefni fyrirtækisins og eins eru uppi spurningar um pólitísk afskipti af þessu verðmætasta fyrirtæki landsins.Til þess að ræða þetta mál mæta þau á vettvang Álfheiður Ingadóttir fyrrverandi alþingismaður og ráðherra en hún sat í stjórn Landsvirkjunar með hléum í hálfan annan áratug, og Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður og fyrrverandi fjármálaráðherra. Hann þekkir málefni Landsvirkjunar vel af þeim vettvangi.
Hvað segir heimsókn Muhammad Taqi Usmani til Íslands um uppgang íslamskra öfgahópa hér á landi? Hver er afstaða múslima á Íslandi til þeirra viðhorfa sem hann heldur á lofti?Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum í dag. Þar mætast þau Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss og Jasmina Vajzovic, stjórnmálafræðingur. Þau hafa átt orðastað á samfélagsmiðlum síðustu vikuna í kjölfar þess að Elliði lagði orð í belg um innflytjendamál á Íslandi.Síðar í þættinum er rætt við Dagnýju Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Orkuhússins. Hún bendir á brotalamir í heilbrigðisþjónustunni hér á landi þar sem stjórnvöld draga úr fjölda aðgerða sem einkaaðilar hafa kost á að gera á sjúklingum sem eiga í alvarlegum stoðkerfisvanda á baki auk hnjá- og mjaðmaliða. Í lok þáttarins er rætt við Gunnar Birgisson sem hefur starfað sem lögmaður í Bandaríkjunum í áratugi. Hann ræðir um stöðuna í stjórnmálunum þar í landi og leggur mat á stöðuna í kosningabaráttunni sem nær hápunkti í komandi viku. Þar verður kosið um þriðjung sæta í öldungadeild Bandaríkjaþings og öll sætin 435 sem skipuð eru í fulltrúadeild þingsins.
Um tuttugu glæpahópar, sem flestir hafa rík tengsl við útlönd eru starfræktir hér. Vopnaútköllum lögreglu hefur fjölgað og tilteknir hópar innflytjenda hika ekki við að veifa skotvopnum á götum úti.Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjón og sviðsstjóra öryggis- og greiningarsviðs Ríkislögreglustjóra í Spursmálum í dag. Í þættinum eru birtar ljósmyndir af hópi innflytjenda sem veifa fjölda skammbyssa á götum úti á höfuðborgarsvæðinu og þær eru bornar undir Karl Steinar.Í fréttum vikunnar er rætt við Illuga Gunnarsson, fyrrverandi formann Ungra vinstri-grænna og Júlíus Viggó Ólafsson, formann Sambands ungra sjálfstæðismanna. Ræða þeir meðal annars innantökurnar í þingflokki Viðreisnar, mótmæla- og vargöldina sem geisar í París og sitthvað fleira.





