DiscoverVíkingar
Víkingar
Claim Ownership

Víkingar

Author: RÚV

Subscribed: 63Played: 330
Share

Description

Víkingar er leikið hlaðvarp í níu hlutum sem byggir á frásögnum frá víkingatímanum. Þetta er saga um fólk sem lifði í okkar heimi fyrir þúsund árum síðan. Hún fjallar um háskafarir og hrottaleg rán. Um sjóferðir vestur yfir Atlantshafið og lengst austur í Asíu. Um ævintýri sem áttu eftir að breyta Norðurlöndunum öllum.

Fjórar persónur eru í forgrunni, Ragnar Loðbrók, Guðríður Þorbjarnardóttir, Ingigerður Ólafsdóttir og Haraldur Harðráði.

Þáttaröðin Víkingar var unnin af sænska ríkisútvarpinu SR með stuðningi frá Nordvision sjóðnum, NRK, DR og RÚV. Verkið sækir innblástur í heimildir á borð við Íslendingasögurnar og aðrar norrænar fornsögur en nýtir sér möguleika skáldskaparins þegar við á.
10 Episodes
Reverse
Stikla

Stikla

2023-12-2200:41

Haraldur snýr aftur til Noregs þar sem hann ætlar að hefna dauða bróður síns og ná aftur norsku krúnunni, en um þessar mundir stjórnar bróðursonurinn Magnús landinu. Sögumaður: Tinna Hrafnsdóttir Þórólfur, hirðskáld Haralds Harðráða: Sveinn Geirsson. Höfundar texta og hljóðmyndar: Ulla Svensson, Emelie Rosenqvist, Mathilda von Essen og David Rune. Þýðandi: Salka Guðmundsdóttir Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson Tónlist: Matti Bye Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir
Haraldur Harðráði missir bróður sinn Ólaf í orustunni á Stiklastöðum og flýr með skáldi sínu, Þórólfi. Takmark hans er að snúa aftur og þá sem konungur Noregs. Sögumaður: Tinna Hrafnsdóttir Þórólfur, hirðskáld Haralds Harðráða: Sveinn Geirsson. Höfundar texta og hljóðmyndar: Ulla Svensson, Emelie Rosenqvist, Mathilda von Essen og David Rune. Þýðandi: Salka Guðmundsdóttir Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson Tónlist: Matti Bye Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir
Ingigerður stendur frammi fyrir erfiðum valkostum. Hún þarf að velja hvort hún ætlar að fylgja föður sínum eða hjarta sínu og þar með norska konunginum Ólafi Haraldssyni. Sögumaður: Tinna Hrafnsdóttir Ingigerður Ólafsdóttir: María Heba Þorkelsdóttir Höfundar texta og hljóðmyndar: Ulla Svensson, Emelie Rosenqvist, Mathilda von Essen og David Rune. Þýðandi: Salka Guðmundsdóttir Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson Tónlist: Matti Bye Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir
Ingigerður verður gegn vilja sínum þáttakandi í valdatafli föður síns, Svíakonungs, sem fær hótanir bæði frá ásatrúar- og kristnum mönnum. Sögumaður: Tinna Hrafnsdóttir Ingigerður Ólafsdóttir: María Heba Þorkelsdóttir Höfundar texta og hljóðmyndar: Ulla Svensson, Emelie Rosenqvist, Mathilda von Essen og David Rune. Þýðandi: Salka Guðmundsdóttir Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson Tónlist: Matti Bye Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir
Þorsteinn lifir harðan veturinn ekki af en Guðríður heyrir rödd hans engu að síður, hann segir henni að láta draum þeirra rætast og sigla til Vínlands. Sögumaður: Tinna Hrafnsdóttir Guðríður Þorbjarnardóttir: Margrét Vilhjálmsdóttir Höfundar texta og hljóðmyndar: Ulla Svensson, Emelie Rosenqvist, Mathilda von Essen og David Rune. Þýðandi: Salka Guðmundsdóttir Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson Tónlist: Matti Bye Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir
Guðríður siglir frá Íslandi, hún ætlar að hefja nýtt líf á Grænlandi. Hún giftist Þorsteini en veturinn er harður og hann veikist alvarlega. Sögumaður: Tinna Hrafnsdóttir Guðríður Þorbjarnardóttir: Margrét Vilhjálmsdóttir Höfundar texta og hljóðmyndar: Ulla Svensson, Emelie Rosenqvist, Mathilda von Essen og David Rune. Þýðandi: Salka Guðmundsdóttir Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson Tónlist: Matti Bye Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir
Ragnar vill kvænast konungsdótturinni Ingibjörgu en fyrsta kona hans, Kráka, spáir því að allt muni fara á versta veg í lífi hans ef hann lætur verða af því. Sögumaður: Tinna Hrafnsdóttir. Ragnar Loðbrók: Sveinn Ólafur Gunnarsson Höfundar texta og hljóðmyndar: Ulla Svensson, Emelie Rosenqvist, Mathilda von Essen og David Rune. Þýðandi: Salka Guðmundsdóttir Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson Tónlist: Matti Bye Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir
Ragnar er útvalinn af stríðsguðinum Óðni en þegar hann hertekur París ásamt syni sínum Birni Járnsíðu kemur í ljós að Óðinn er óáreiðanlegur bandamaður. Sögumaður: Tinna Hrafnsdóttir. Ragnar Loðbrók: Sveinn Ólafur Gunnarsson Höfundar texta og hljóðmyndar: Ulla Svensson, Emelie Rosenqvist, Mathilda von Essen og David Rune. Þýðandi: Salka Guðmundsdóttir Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson Tónlist: Matti Bye Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir
Ragnar Loðbrók dreymir um að verða mikill stríðskappi en neyðist dag einn til að flýja heimili sitt. Þá birtist stríðsguðinn Óðinn honum skyndilega. Sögumaður: Tinna Hrafnsdóttir Ragnar Loðbrók: Sveinn Ólafur Gunnarsson Höfundar texta og hljóðmyndar: Ulla Svensson, Emelie Rosenqvist, Mathilda von Essen og David Rune. Þýðandi: Salka Guðmundsdóttir Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson Tónlist: Matti Bye Leikstjóri: Tinna Hrafnsdóttir
Comments