DiscoverSpursmál
Spursmál
Claim Ownership

Spursmál

Author: Ritstjórn Morgunblaðsins

Subscribed: 931Played: 26,093
Share

Description

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is

Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14.

Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum
á mbl.is.
159 Episodes
Reverse
Farið verður yfir fréttir vikunnar með fjölmiðlakonunni Elísabetu Ingu Sigurðardóttur og Hallmundi Albertssyni lögmanni. Elísabet hefur setið undir árásum Helga Magnússonar og Ólafs Arnarson í nafnlausum skrifum þeirra á DV en pistill sem þeir birtu í liðinni viku hefur nú verið fjarlægður af vef fjölmiðilsins. Hallmundur hefur tekið að sér hagsmunavörslu fyrir forsvarsmenn hlaðvarpsins Chess after Dark en Fjölmiðlanefnd hefur sótt að þeim félögum eins og nokkrum öðrum hlaðvarpsstjórnendum sem ekki hafa viljað skrá starfsemi sína undir merkjum fjölmiðlunar.Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur staðið í eldlínunni síðustu daga vegna endurskoðunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði en fyrr í vikunni gekk hin svokallaða Breiðfylking frá framlengingu samninga við SA til næsta árs. Hún hefur verið mjög gagnrýnin á framgöngu forystu VR sem beið með það fram á síðustu mínútu að staðfesta framlengingu samninganna. Hefur Sólveig frá því í gærkvöldi haft uppi stór orð um aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar sem hún segir að hafi verið kominn fram þegar Breiðfylkingin undirritaði framlengingu samninganna, jafnvel þótt látið hafi verið að því liggja að pakkinn hafi komið fram í kjölfar bægslagangs VR og fagfélaganna sem voru í samfloti með félaginu.Jón Bjarnason er bóndi og oddviti Hrunamannahrepps. Hann hefur gagnrýnt harkalega fyrirætlanir stjórnvalda um stóraukna gjaldtöku á ferðaþjónustuna hér á landi og sér í lagi á Suðurlandi. Vísar hann þar bæði til hækkunar virðisaukaskatts á starfsemi baðlóna og náttúru- og innviðagjald sem sérstaklega er beint gegn Þingvöllum, Gullfossi og Geysi sem eru allt áningarstaðir á hinum svokallaða Gullna hring.Hann ræðir þessi mál ásamt Bryndísi Björnsdóttur sem er framkvæmdastjóri Laugaráss Lagoon, sem er eitt af nýjustu baðlónum landsins og staðsett við bakka Hvítár í Biskupstungum. Fyrirtæki hennar endurmetur nú hvort ráðist verði í hóteluppbyggingu á svæðinu í kjölfar þess að stjórnvöld tilkynntu um stóraukna skattheimtu á starfsemi fyrirtækisins.Í þættinum verður sömuleiðis rætt við Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóra peningastefnu en fyrr í vikunni tilkynnti Seðlabanki Íslands að hann hyggðist halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 8%. Hvað þarf til þess að bankinn taki að lækka vexti á ný og hvernir sér Þórarinn horfurnar þróast í íslensku hagkerfi á komandi misserum?
Tveir bjóða sig fram til embættis forseta Alþýðusambands Íslands nú í mánuðinum en það fagnar 110 ára afmæli um þessar mundir. Þeir telja sig geta borið klæði á vopnin í erjum innan hreyfingarinnar.Þetta eru þeir Arnaldur Grétarsson, sem starfar á skrifstofu ASÍ og Georg Páll Skúlason, formaður stéttarfélagsins Grafíu.Í þættinum er einnig rætt við þau Brynjar Níelsson, borgarfulltrúa og fyrrverandi aðstoðarmann dómsmálaráðherra og Lísu Kristjánsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmann forsætisráðherra.Þar verður meðal annars farið yfir atburðarás síðustu vikna þar sem Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi barna- og menntamálaráðherra hefur upplýst hvernig honum var bolað úr ráðherraembætti á sama tíma og hann jafnaði sig eftir stóra hjartaaðgerð á Landsspítalanum.
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 1.700 milljarða útgjöldum ríkissjóðs á komandi ári. Allt stefnir í hörð átök í þinginu um þessi viðamiklu og stefnumarkandi lög.Af því tilefni mæta þeir í Spursmál þingmennirnir Grímur Grímsson frá Viðreisn og Stefán Vagn Stefánsson frá Framsóknarflokki. Þeir líta þessi mál gjörólíkum augum og munu meðal annars takast á um skattahækkanir sem stefnir í á banka, ferðaþjónustu og ökumenn.Í þáttinn mætir líka sveitarstjórnarfólk af Suðurnesjum. Þar eru á ferðinni Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Þau munu ræða fréttir vikunnar, niðurstöður Pisa-könnunar og margt fleira.
Grípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi.Í liðinni viku var greint frá umtalsverðum skipulagsbreytingum hjá borginni sem spara eiga um 900 milljónir króna á ársgrundvelli. Fer Hildur yfir þessar aðgerðir í þættinum og hvernig hún hyggist á sama tíma standa vörð um grunnrekstur borgarinnar.Í fréttum vikunnar er rætt við þá Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikara og Örn Arnarson, fjölmiðlarýni og hagfræðing sem starfar á Viðskiptablaðinu. Þeir ræða meðal annars miklar væringar á fjölmiðlamarkaði sem birtast í því að kvöldfréttir Sýnar heyra nú sögunni til.Í síðasta hluta þáttarins er rætt við dr. Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hann rýnir í niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um liðna helgi og hvað úrslitin þýða fyrir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.
#141. - Uppgjörið

#141. - Uppgjörið

2026-09-0101:01:52

Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum?Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu mánuði þar sem ljósi hefur verið varpað á kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.Í síðari hluta þáttarins mætir Óli Björn Kárason fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður í þáttinn og ræðir nýjustu tíðindi af fjölmiðlamarkaði en í gær var tilkynnt um það að kvöldfréttatími Stöðvar 2 og síðast Sýnar hefði lagt upp laupana eftir 40 ára úthald.Hvað þýðir þetta fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu og af hverju eiga fjölmiðlar jafn erfitt uppdráttar og raun ber vitni?
loading
Comments