Discover
LANGA - hlaðvarp
86 Episodes
Reverse
Synir LANGA, Egill Örn og Guðlaugur Ari, fara yfir liðna atburði og veisluna sem er í vændum:Þarf að vera besti hlaupari landsins OG áhrifavaldur til þess að leggja íþróttina fyrir sig?Óánægja með landsliðsvaliðPendúllinn sveiflast: er FH að skemma partýið? Er brautin snúin aftur?Annað hvort er Arnar Péturs í formi lífs síns eða að hlaupa á biluðu hlaupabretti.Hvort myndirðu frekar: 27:40 í 10km eða 6:20:00 í 100km?Elísa og Andrea keppa á móti bestu hlaupurum í heiminum eftir nokkra daga!Hlynur Andrésson með sub29 í 10km og keppir stíft næstu vikur.UFA Hype Train er bremsulaus.SISUKilian Jornet gaf fólkinu nákvæmlega það sem það vildi. 2026 er árið.
Það dugði ekki minna til en að fá ólympíufarann, og fyrrum keppniaut Klæbo, Sævar Birgisson til þess að kafa djúpt í árangur og yfirburði Johannes Høsflot Klæbo sem við erum að horfa upp á þessa dagana. Hvernig varð hann svona góður? Er eðlilegt að geta unnið bestu sprettarana og líka mestu úthaldsvélarnar? Er þetta grunsamlegt? Hvernig æfir hann? Af hverju gera hinir ekki bara eins og hann? Hver er afi hans og af hverju geta þeir tveir farið gegn kerfinu og sigrað heiminn? Sævar fer með stórleik í sögugreiningu og fróðleik, gegn misgáfulegum spurningum Snorra Björnssonar, í þessum þætti.
Sigurður Örn Ragnarsson, Siggi í Greenfit, ræðir hér kaloríur, íþróttir og hvar við förum út af sporinu: Testesterón, lægri fituprósenta, bætingar, endurheimt, hormónajafnvægi, beinheilsa, þreyta og orkuleysi, orkuþörf á hvíldardögum, æfingamagn og ótrúleg tölfræði þeirra bestu í heiminum.
Djúpköfun á árangri Johannes Klæbo: besta skíðagöngu- og sýklahræddasta íþróttamanni sögunnar. Afrek hans eru öll samkvæmt plani en afi hans og þjálfari lagði upp með að gera Klæbo að þeim besta í heiminum fyrir mörgum árum - þegar engar tölur bentu til þess að þarna væri „talent“ á ferðinni.Gunnar Birgisson mætir til þess að fræða okkur um afrek Klæbo og annarra Ólympíufara en við krefjum hann einnig um svör við valinu á Íþróttamanni ársins, hvernig Baldvin endaði í 17. sæti og hvort að íþróttamenn þurfi að vera duglegri við að láta bera á sér.Þessi þáttur er ekki bara smekkfullur heldur funheitur í þokkabót.
Baldvin tók 10km tímann sinn úr 29:30 niður í 27:40 á aðeins nokkrum vikum. Íslandsmetið er núna 2 sekúndum frá landsmeti Breta og 8 sekúndum frá landsmeti Bandaríkjamanna. Baldvin lýsir sjálfstraustinu sem byggðist upp vikurnar fyrir hlaup, ákvörðuninni um að breyta keppnisrútínunni (sleppa koffíni, sleppa rauðrófusafa) og treysta sjálfum sér, hvort að hann hefði getað hlaupið þetta hraðar (svarið er já), léttinn við að koma í mark og afleiðingarnar dagana eftir. Við ræðum þessi tímamótaskref sem eru án vafa að setja feril Baldvins í veldisvöxt með tilheyrandi athygli almennings og styrktaraðila.
Siggi og Latsi mættu með 13.000 efnaskiptapróf og glósubók undir beltinu til að athuga hvað sé hægt að læra af manninum sem þjálfaði upp fjóra heimsmeistara:Hugarfarið, magnið, ákefðin, kaloríurnar, hvíti djöfullinn og mjólkursýrumælingarnar, og hvernig þetta nýtist þér á þínum æfingum – ásamt greiningu á VO2max og mögulegum maraþontíma Baldvins Þórs eftir sögulegt 10km hlaup og vegferð Andreas Almgren úr 200m yfir í hálft maraþon (hrottaleg meiðslasaga yfir í besta hlaupara Evrópu).
Arild Tveiten tók við Kristian Blummenfelt árið 2011, sem þá var "not good at anything," og gerði hann að besta þríþrautarmanni heims. Þjálfunaraðferðir Arilds hafa getið af sér þrjá Ironman heimsmeistara til viðbótar og orðið heimsfrægar undir formerkjum The Norwegian Method.Arild leyfði norsku krökkunum ekki að efast í eina sekúndu um að þau gætu orðið best í heimi og ræðir í þættinum lykilinn að árangrinum: double threshold, freistinguna til að byggja upp hraða, Norwegian 4x4mín, álagsstýringu, mjólkursýrumælingar, krossþjálfun fyrir hlaupara og magn magn magn.
Yfirferð á árinu sem leið og hvaða bombur eru væntanlegar 2026. Greiningar á nýliðum, framförum, frammistöðum, óvæntum atburðum og vinsældum hlaupa á Íslandi - allt rökstutt með gögnum og góðum sögum. Viktor Orri mætti í stúdíóið í miklum gír, vægt til orða tekið.
Kiddi Aero og Davíð Jónssynir eru með bestu hjólreiðamönnum landsins. Kristinn var hjólreiðamaður ársins 2023 og 2024 og Davíð 2025. Davíð hefur keppt í elítuflokki síðan hann var 16 ára og það mætti segja að getustig bræðranna sé orðið það hátt að Ísland er orðið of lítið fyrir þá.
Hafdísi finnst lengra betra, LANGA hlaðvarp er sammála. 17.000 hitaeiningar fyrir tvo sólarhringa af hjóla-bakgarðinum, áherslur á þyngdarstjórnun í hjólreiðum, úr sundi í þríþraut og svo hjólreiðar, hausinn sem þarf til að verða góður úthaldsíþróttamaður og mörg önnur góð umræðuefni í þessum þætti.
Ætla Tobbi og Þorsteinn loksins í götumaraþon? Munu þeir hafa Arnar Péturs? Hversu hratt þarftu að hlaupa keppnishlaup til að mega húðflúra tímann á þig?Tilnefningar til besta járnkarlsins, yfirferð á íþróttamannalaunum, hröð maraþon frá fjallahlaupurum og vinsælasti skór ársins 2025.Það var af nægu að taka.
Arnar Péturs hefur svo sannarlega fengið augu á langhlaupin síðasta áratugin og tekur hér væna yfirferð á Valencia maraþoninu næstu helgi, málaferlinu eftir Ármannshlaupið, hvort hann sé bestur í 100km vegalengdinni, ÍBR, ábyrgð hlaupahaldara gagnvart bestu hlaupurum landsins, hvort almenningi langi að skokka eða keppa, Víðvangs-víginu, Why Always Arnar og Laugaveginn 2026.
Sigurður Örn og Latsi gæddu sér á hlaðborði umræðuefna á einlægan, hvetjandi og fræðandi máta! Bjargaði happaeistað mannslífi síðustu helgi? Ætti Tobbi séns í Íslandsmetið í Ironman? Hvaða hvatning virkar best í erfiðri keppni? Hvað viltu heyra og hvað viltu alls ekki heyra yfir erfiðasta kaflann? Síðast en ekki síst fengum við Top 5 ástæður fyrir árangri Norðmanna (hefur þetta viðfangsefni verið tekið fyrir áður?) frá Latsa með viðbótargreiningu Sigga. Þessi þáttur hressir, bætir og kætir.
Latsi í þráðbeinni frá Cozumel, Mexíkó, þar sem Geir Ómars og Siggi Tri mætast á sunnudaginn næsta í Einvígi aldarinnar™. Íslandsmethafinn á móti besta þríþrautarmanni Íslands í heilum Ironman: 3,9km sund, 180km hjól og heilt maraþon!Hver ber sigur úr býtum? Er verið að horfa framhjá myrkrahestinum? Hvernig eru aðstæður og hvað koma þeir mörgum grömmum af kolvetnum ofan í sig?
Synir LANGA fengu aldeilis umræðuefnin í hendurnar þessa helgina. Hér er farið yfir dramatíkina í víðavangshlaupunum, kærumenningu í hlaupasenunni, stór nöfn möguleg í Laugaveginn, íslenska atvinnumennsku, niðurstöður úr lyfjaprófum, Courtney Dauwalter og Harry Styles í götumaraþoni, enn annar norskur sigur og nýtt "heimsmet" hringinn í kringum Ísland.
Íslensku Kristian Blummenfelt og Gustav Iden, þríþrautarkóngarnir Latsi og Geir Ómarsson mæta í settið og fara yfir víðan völl: Norsku þríþrautarprinsarnir sem röðuðu sér í fyrstu þrjú sætin á heimsmeistarmótinu nýverið, vendingar í þjálfarteyminu þeirra og ný nálgun á æfingar, Siggi Örn reyndi við Íslandsmet í Ironman og ætlar að gera aðra tilraun eftir nokkrar vikur, Casper Stornes innbyrti 183gr af kolvetnum á klukkustund í frammistöðu lífs síns, Latsi greinir low-efficiency og high-efficiency skó og Geir Ómars mætir með glænýja (eins manns) rannsókn á carbon skóm og mjólkusýrumælingum.
Guðfinna Kristín og Halldór Hermann (your favorite runner's favorite runner) mæta fyrir og eftir sín hlaup á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum hér í Canfranc. Þau glímdu (og glíma enn) bæði við beinbrot á árinu og þurftu að hagræða æfingum til þess að komast á mótið – sem gekk líka svona vel hjá þeim báðum. Allt um það og aðrar frammistöður í þessum þætti.
Sigurjón Ernir hefur átt brösótt ár sökum bílslyss en náð gríðar góðum árangri þrátt fyrir það. Hann ræðir landsliðsverkefnin sín síðasta áratuginn, hvernig hann breytti æfingum og fór að geta hlaupið meira/hraðar og bætingarárið sem hann átti fyrir tveimur árum. Hann deilir einnig með okkur litlum miða sem hann tekur með í hlaupið sitt á laugardaginn til þess að minna hann á fyrir hvern og af hverju hann er að gera þetta.
Andrea er kannski Strava og Instagram dark en það er engin ástæða til að óttast. Hún mætir á ráslínuna, hliðin á Katie Schide, í sínu besta formi til þessa.
Virkilega skemmtileg innsýn inn í haus eins besta hlaupara Íslendinga: Næringarplanið, brautin, vegferðin frá HM í Tælandi til dagsins í dag, valið milli long og short, hröð ultra hlaup og segment hunting í miðju heimsmeistaramóti.


















