Discover
Bíófíklar
104 Episodes
Reverse
Oft er betra að veðja á Black. Þegar kemur að kjaftforum karakterum, kostulegum hasar og ruglaðri framvindu sem spila með væntingar áhorfenda, er yfirleitt hægt að reiða á hinn þrælskemmtilega Shane Black. The Nice Guys er (ó)umdeilanlega á meðal hans betri mynda en þarna fara þeir Ryan Gosling og Russell Crowe tvímælalaust á kostum og sýna jafnvel sínar bestu hliðar. Kómík og kaos er að minnsta kosti allsráðandi ásamt fjölda frasa og uppákoma sem endalaust er hægt að vitna í… allavega að mati þeirra sárafáu sem hafa séð myndina.The Nice Guys lenti ekki beinlínis með miklum vinsældarhvelli á sínum tíma - þvert á móti endaði hún í töluverðu tapi - en hefur seglað til sín dygga aðdáendur á undanförnum áratug. Þau Kjartan, Tommi, Frikki fastagestur og Guðbjörg Marín (e. betri helmingur Frikka, réttara sagt) rifja upp þessa ómótstæðilegu veislu af vitleysu þar sem harðsoðnar klisjur eru teknar í gegn með stöðugu sprelli í ólgandi ‘70s stíl. Sannkölluð “frasa-hasarmynd.” Um að gera að leggja í hlustunina, hafa það næs og vera memm!Efnisyfirlit:00:00 - Grín með meiru…06:25 - Shane Black’isminn12:03 - Ryan Gosling og öskrið21:51 - Harðsoðnir stælgæjar27:06 - Fyndnir aukaleikarar32:04 - Drykkja og mannúð39:03 - Aðsókn/“Dumping ground”50:16 - Play Dirty og bolir!
Einhver umtalaðasta mynd síðasta árs, jafnvel af mörgum talin ein sú heitasta ef ekki bitastæðasta. ‘Dom-com’ kvikmyndin Pillion virðist hafa heillað og heltekið gagnrýnendur og áhorfendur víða um heim og því er kjörið að komast til botns á því hvað einkennir þessa fyrstu kvikmynd leikstjórans Harrys Lighton. Hérna sameinast tveir gerólíkir karlmenn í umræðuvert og geysilega eftirminnilegt samband og það tekur ekki langan tíma fyrir áhorfandann til að laðast að öðrum þeirra, eða báðum.Kjartan og Tommi tóku á móti Írisi Árnadóttur og Steingerði Friðriksdóttur þar sem hver við sinn míkrafón lýsir upplifun sinni á myndinni. Að sjálfsögðu fylgir þessu líka að fara yfir hæðir og lægðir lykilsambandsins í myndinni. Hlustandi er því hvattur til að smella sér í leðrið og skella sér á fjórar fætur, vegna þess að nú hitnar í stúdíóinu!Efnisyfirlit:00:00 - Hvað er ‘Pillion’?04:02 - Samantekt á undan spillum09:20 - Nördinn Colin (ath. spillar!)14:31 - Samþykki ofar öllu 21:26 - Mýtur um BDSM37:19 - Ást eða ekki ást43:23 - Draumadagurinn50:42 - Þróun Colins (og Secretary)
Aldrei er góð vísa of oft kveðin, ekki satt? Hin goðsagnarkennda skáldsaga Wuthering Heights eftir Emily Brontë frá 1847 hefur nú verið reglulega kvikmynduð á nánast hverjum áratug síðan á þriðja áratug síðustu aldar.Þessi tímamótasaga um erfiðar (lesist: eitraðar) ástir, þráhyggju, hefndir, stéttaójafnvægi, örlög og kynslóðaskipti hefur farið í gegnum öll mögulegu form til að höfða til nýrra kynslóða, frá einfölduðum bíómyndum til mini-sería og afbakaðra hroða (helst ber þar að nefna rokkuðu unglingamyndina frá 2002 eða Lifetime-mynda viðbjóðinn Wuthering High School frá 2015…). Hver flutningur hefur átt sitt sérsnið þegar kemur að áherslum en hörðustu aðdáendur bókarinnar hafa margir hverjir fært rök fyrir því að sögunni hefur aldrei fyllilega náð að komast til skila. Steingerður Friðriksdóttir, mannfræðingur og einlægur aðdáandi skáldsögunnar, er mætt í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að meta þessa hjólgröðu aðlögun hinnar efnilegu Emeralds Fennell (sem færði okkur áður Promising Young Woman og Saltburn). Hverjar eru áherslurnar að sinni (fyrir utan gredduna) og hvað meira aðskilur þessa tilteknu nálgun á sögu Brontës sem áður hefur ekki sést? Stóru málin eru öll könnuð með spillum.Efnisyfirlit:00:00 - Wuthering Heights í heila öld09:14 - Titillinn í gæsalöppum13:52 - Þrjóska, grimmd og frekjuskapur22:53 - Meira lagt í Cathy en vanalega28:44 - Heathcliff eða Edgar?34:35 - Næsta kynslóðin38:37 - Isabella og Nelly46:19 - Um kemistríuna…50:57 - Nútíma taktar01:01:05 - Samantekt
Jim Henson var sannkallaður galdrakarl í tengslum við sköpunargleði sína með brúðum; alveg frá Sesame Street til Prúðuleikaranna og fleira sem löngu er orðið tímalaust eða sígilt. Það er að minnsta kosti klárt mál að Henson eigi stóran hlut í nostalgíu ákveðinna kynslóða.Friðrik Önfjörð fastagestur er mættur aftur í stúdíóið til Kjartans og Tomma en að þessu sinni mætti hann ásamt maka sínum, Guðbjörgu Marín Guðmundsdóttur. Það var hugmyndin hennar Guggu að kafa aðeins ofan í þetta furðuverk Hensons og kollega hans, Frank Oz, og hvetja drengina í senn til að endurnýja kynnin við þetta léttmyrka ævintýri. Myndin er óneitanlega glæsileg í sjónarspili, hönnun og leikmyndum og einkennist af masterklassa ‘80s svip. Hvernig ræman eldist og hvað býr á bak við hennar költaða orðspor er hins vegar skemmtilegra til umræðu.Hljómar þetta ekki Prúðulega? **Talandi um hljóð, þá var tæknin í Podcaststöðinni eitthvað að stríða Bíófíklum heiftarlega að sinni. Reynt var eftir bestu getu að minnka rafsuðið úr míkrafónunum, en það laumast enn í gegn á köflum. Afsakið þetta innilega.Efnisyfirlit:00:00 - Gagnslausi Jen05:13 - Henson feðgin á hóteli11:11 - Latex og gervihár17:39 - Nostalgíutenging26:35 - Erfiðin á settinu34:25 - Umgjörð vs. handrit42:55 - Að djamma með “kartöfludúddum”46:05 - ‘80s ‘Tráma-myndir’
Viti menn, þá er komið að hundraðasta þætti Bíófíkla þar sem tilefnið er að halda upp á einn stórlega vanmetinn og fjölhæfan listamann. Ef þú vilt orku, dúndurgóða tónlist, skemmtilega leikara í essinu sínu og stílíseraða fjölbreytni, þá ætti breski dugnaðarforkurinn Danny Boyle að geta glatt þig á margs konar vegu - allavega oftar en ekki. Margt kvikmyndaáhugafólk þekkir til mannsins en stærri sarpinn í allri sinni dýrð ber að ræða.Kjartan og Tommi eru eldhressir að sinni (og Óli Bjarki Austfjörð enn fremur en hann settist einnig þarna niður með dúóinu) með það að markmiði að fræða hlustandann betur um alla þann Boyle’isma sem ber að ræða yfir vænan og tilraunakenndan feril.Opnum nú þennan maníska konfektkassa og skoðum hvar styrkleikarnir liggja.Athugið að þátturinn hefur verið klipptur aðeins til - af ástæðum sem kunna að skýrast þegar líður á hlustunina… en það er líka bara vel í anda Boyle mynda!Efnisyfirlit: 00:00 - Þáttur 100! 02:19 - Hvers vegna Boyle?12:54 - Shallow Grave18:49 - ‘Runner up’ myndir25:18 - Yesterday31:18 - Slumdog Millionaire37:07 - Sunshine41:11 - Steve Jobs50:44 - Trance01:00:30 - 28 Days Later…
Það er ekkert rétt eða rangt, bara skemmtilegt og leiðinlegt. Svo er mælt í spennu- og unglingamyndinni Hackers. Um er að ræða gífurlegt barn síns tíma frá Iain nokkrum Softley með stórskotaliði minnisstæðra leikara og fullt af fríkuðum karakterum, ef ekki ógleymanlegum.Myndin varð fyrir valinu hjá Atla Sigurjónssyni kvikmyndagerðarmanni og skoða þeir Tommi ræmuna út í gegn, þar sem ein mikilvæg spurning er meðal annars vörpuð fram;‘Er þetta mesta* ‘90s mynd allra tíma?*Ath. Hvorki besta né vinsælasta, heldur ‘mesta’ ...Efnisyfirlit:00:00 - Iain svo Softley07:17 - ‘Cyberpunk’ ræmur13:31 - Í leit að einkenni20:41 - Eldri ungmenni og Íslandsvinur25:19 - Gibson’inn29:17 - Tónlistin35:38 - Mömmu-komplexar41:21 - Kjarnahópurinn49:18 - Hvar eru allir í dag?01:00:26 - Skondnir dómar
Fílar þú 28 Days Later en ert óviss með álit þitt á seinni myndunum? Finnst þér Ralph Fiennes vera frábær leikari en óskaðir þess að hann fengi stærra vægi í 28 Years Later? Ef svo, þá er aldeilis lukkan með þér í liði því nú fær Fiennes fókusinn til að leika meira lausum hala í framhaldinu á einni umdeildustu kvikmynd síðasta árs.Kjartan, Tommi og Atli Freyr renna yfir legasíu og bragðtegundir þessara '28 x Later' kvikmynda og hvað gæti verið næst í vændum eftir þennan ruglaða miðkafla sem hér er til umræðu, með og án spilla. Upp með öfugu krossana, hendum einhverju geggjuðu á fóninn og dönsum eins og hálfvitar, því nú skal ræða eina stöppugeðveika ræmu...Spoiler-umræða hefst á klukkutíma-og-korters markinu...Efnisyfirlit:00:00 - Forsýning og eðli mannsins11:15 - Upprifjun á seríunni25:15 - Boyle vs. Nia DaCosta37:32 - Part 1 og Part 244:38 - The Bone Temple án spilla01:15:01 - SPILLAR hefjast...!01:24:06 - Heljarinnar Kelson01:34:06 - Lokamínúturnar01:42:01 - Part 3?...
Nú þegar topplistarnir eru að mestu leyti að baki er um að gera að demba sér í *hinn* pólinn á liðnu bíóári.Kjartan og Tommi fara nú yfir mestu vonbrigði ársins 2025 ásamt slökustu myndunum með tilheyrandi útúrdúrum. En til að gefa aðeins breiðari mynd af þessu þéttpakkaða ári er upprennandi kvikmyndagerðarmaður sestur með þeim í stúdíóið. Það er hann Páll Kristinn Jakobsson sem leiðir með þeim ýmsu hverju mynstrin sem er vert að ræða. Þess að auki var hvergi komist hjá því að biðja Pál um að mæta með sína lista af því versta (og reyndar besta) frá umræddu tímabili.Yfir í fjöreríið!Efnisyfirlit:00:00 - Rýnt betur í heildarárið06:04 - Companion08:12 - Bring Her Back og Bloodlines12:31 - Elio og Pixar18:55 - Mickey 1726:50 - Frankenstein/Snyder umræða... (?)37:45 - Bugonia47:44 - Keeper51:50 - K-Pop Demon Hunters56:11 - Skiptum um gír...01:00:38 - Tíu verstu (Kjartan)01:09:55 - Tíu verstu (Tommi)01:21:15 - Fimm slökustu (Páll)01:28:01 - Vonbrigði ársins01:40:21 - Sjónvarpsefni ársins01:44:38 - Mynstur á árinu
Atvinnunördið Heimir Bjarnason hefur verið að gera frábæra hluti í íslenskum kvikmyndabransanum og gegnir ófáum rullum í þeim iðnaði. Fram að þessu hefur hann verið framleiðandi, handritshöfundur, tökumaður, leikstjóri auk þess að vera einn færasti ef ekki virkasti klippari landsins. Árið 2022 gaf hann út kvikmyndina Þrot, sína fyrstu (af fleirum, vonandi) í fullri lengd en leiðin að þeim draumi hófst fyrst og fremst með brennandi ástríðu fyrir kvikmyndaforminu og fjölbreytileika þess.Þeir Kjartan og Tommi tóku á móti Heimi þar sem hann leiðir hlustandann í gegnum tíu kvikmyndir sem skipta honum gífurlegu máli og hvers vegna. Áheyrnin er sögu fríkaðri. Efnisyfirlit:00:00 - Hlé/ekki hlé?08:19 - Listasmíði Heimis16:38 - Betri Mamma Mia myndin19:10 - It's a Wonderful Life24:20 - The Life Aquatic with Steve Zissou29:50 - All About Eve36:07 - Chicago42:37 - Billy Elliot46:54 - Once Upon a Time in Hollywood54:31 - Ocean's Twelve01:01:08 - Beautiful Thing01:04:49 - The Worst Person in the World01:11:29 - Before Sunset01:22:42 - Aftur að Mamma Mia...
Jæja, hið mikla uppgjör á liðnu kvikmyndaári blasir nú við og þá í tvímælalaust stærsta þætti Bíófíkla til þessa (eins og lengdin kann að gefa til kynna…). Gestirnir að sinni eru ekki af óskemmtilegri endanum en það eru þau Ragnar Aðalsteinn Guðjónsson og Hildur Evlalía Unnarsdóttir úr bíóhlaðvarpinu Video rekkinn. Bækur eru allverulega bornar saman - tímunum saman - um hvað stóð upp úr á þessu viðburðaríka og umræðuverða kvikmyndaári. Hér mætast við mækana ansi hreint ólíkir persónuleikar og smekkir, en það er vissulega bara ávísun á hressilegri hlustun. Lofað er líflegri dýnamík… og nokkrum svindlum.Dembum okkur í þetta.Efnisyfirlit: 00:00 - Video rekkinn á samfélagsmiðlum10:05 - Hvernig var árið?27:46 - 'Runner-up' listarnir01:08:51 - Predator: Killer of Killers01:12:05 - Eldarnir01:16:17 - Bugonia01:21:50 - Companion01:24:11 - Black Phone 201:28:10 - Ballerina01:32:23 - K-Pop Demon Hunters01:35:45 - Die My Love01:38:12 - Superman01:45:32 - Caught Stealing01:48:22 - A Real Pain01:54:04 - Sisu: Road to Revenge01:57:56 - The Phonecian Scheme02:07:11 - Sinners02:15:02 - Frankenstein02:24:07 - Avatar: Fire and Ash02:48:00 - Nosferatu02:53:48 - One Battle After Another03:07:03 - 28 Years Later03:18:03 - Sentimental Value03:20:36 - Weapons03:27:51 - Samantekt03:32:32 - Bíóárið 2026...
Þá skal halda áfram með spurningaleikinn þar sem fást engin ‘rétt’ svör og stigin skipta nákvæmlega engu máli. Á meðal pælinga er skoðað hver er versta Stjörnustríðsmyndin til að sýna einhverjum í fyrsta sinn, hvaða Bond-mynd ætti aldrei að vera fyrst fyrir valinu og hver eru stærstu feilsporin hjá virtum leikstjórum.Kjartan og Tommi bjóða kvikmyndaáhugamanninum Þorstein Valdimarsson hjartanlegaa velkomnum í stúdíó Podcaststöðvarinnar þar sem markmiðið er að kynnast smekk Þorsteins örlítið betur í gegnum gallsúrar en (vitaskuld) há-nördalegar spurningar.Hlustandi er að sjálfsögðu hvattur til að hlera þetta húllumhæ þar sem aldrei er of langt í algjöra steypu.Efnisyfirlit:00:00 - Nördismi og 'physical media'17:19 - Besta myndin frá lélegum leikstjóra25:57 - 'Gateway'-Stjörnustríð30:22 - "Versta tillagan að Bond-mynd..."39:42 - Eyðieyjuhörmungin43:18 - Óþolandi bíóupplifun49:41 - Hugleiðing um fræg vélmenni01:03:04 - Michael, Freddy eða Hannibal?
Apaplánetan hefur verið ófáu kvikmyndaáhugafólki kunnug síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Þessi umræðuverði kvikmyndabálkur hefur verið títt þekktur fyrir að þræða saman samfélagsádeilu við sci-fi og einstaka sinnum tímaflakk. Þegar þetta er (hljóð-)ritað eru myndirnar orðnar tíu og endurræsingar tvær að talsins. Kjartan, Tommi og Frikki fastagestur taka létta yfirferð í gegnum þessar merku myndir en hafa ákveðið að einbeita sér að mestu að nýjustu núllstillingunni sem hófst árið 2011. Frikki hafði ekki séð neina af þeim myndum og verður þá stórt spurt um hvernig útkoman reynist, og á hvaða Apaplánetu er best að vera.Þremenningarnir virðast ekki alveg vera samhljóma um hvaða eining þessa fjórleiks ber hvað mest af. En hlustunin er klárlega þess virði að gæða sér á banana yfir og lát duglega heyra,00:00 - 10 myndir tótal24:29 - Rise of the Planet of the Apes43:11 - Dawn of the Planet of the Apes01:19:20 - War for the Planet of the Apes01:57:57 - Kingdom of the Planet of the Apes
Þriðja myndin í Knives Out-seríunni frá Rian Johnson um eitursnjalla einkaspæjarann Benoit Blanc hefur verið á vörum margra síðustu vikur. Að þessu sinni er kirkja og trú tekin fyrir þar sem Blanc snýr bökum saman við ólukkulegan prest til að komast til botns á stórfurðulegu morðmáli.Líkt og hefur áður fylgt þessari seríu leiðir Daniel Craig stórskotalið leikara í líflegum bræðingi af glensi og alvöru. Viðsnúningar finnast reglulega handan við hornið í leitinni að svörunum við eftirfarandi spurningum; Hver framdi morðið? Hvernig og hvers vegna?Þeir Kjartan, Tommi og Birgir Snær skoða framvinduna og meta hvernig allt kemur heim og saman hjá Blanc og félögum að þessu sinni. Spillar verða tilgreindir og má finna skilmörkin í tímakóðunum hér að neðan.Efnisyfirlit:00:00 - Byrjum á Clue12:29 - Undir áhrifum Christie17:18 - Knives Out (með spillum)24:32 - Glass Onion (með spillum)32:36 - Wake Up Dead Man (*án* spilla)47:26 - Spillar hefjast hér!52:13 - "Fullur af Krist"59:26 - Johnson djókar með Star Wars01:02:09 - Vald yfir öðrum
Hér er hún; stærsta mynd ársins 2025, umdeilanlega stærsta myndin til þessa frá stórmyndakóngnum James Cameron og í senn ábyggilega umdeildasta Avatar-myndin. Nú er Cameron er kominn í logandi hágír með hæðir og lægðir Sulley fjölskyldunnar, vini þeirra, óvini og þær ófáu orrustur sem þar fylgja. Karaktersúpan er orðin meiri en áður og siglir allt í húrrandi sjónarspil þar sem peningurinn sést svo sannarlega á skjánum. Hvort að rassinn hjá áhorfandanum verði orðinn fullaumur eftir þriggja (plús) tíma setu er annað mál. Myndin er að sjálfsögðu rædd í þaula, með og án spilla (sem hefjast á circa 40 mínútna markinu). Hvort að Fire and Ash marki gígantískan endi á risa þríleik eða sé enn ein upphitunin að einhverju stærra er í brennidepli hjá Kjartani og Tomma. Auk þess er farið grimmt út í þær umræður um hvort að þetta sé meira af því sama eða djúsí stigmögnun og stækkun á þeim þrívíða bíóheimi sem yfirgnæfir Pandoru. Eitt er þó allavega víst; Þetta er KLÁRLEGA graðasta Avatar-myndin…Efnisyfirlit:00:00 - Ástríðan í heimi Camerons11:24 - "Rosalega mikil mynd"20:47 - Meira af því sama?35:01 - Samantekt á undan spoilerum44:44 - HFR eða ekki HFR?49:30 - Spoiler-umræða hefst!58:06 - Litlu stóru augnablikin01:02:17 - Á gráa svæðinu...01:08:16 - Um aðra karaktera01:16:26 - Með einfaldleikann að vopni01:27:30 - "Að ná betri tengingu"01:40:00 - Hafsjór af stöffi....
Ofurþjarkurinn James Cameron hefur skipað sér í allsvakalegan sérflokk með að eiga þrjá titla á listanum yfir fimm tekjuhæstu kvikmyndir allra tíma. Það eru að sjálfsögðu Titanic og fyrstu tvær Avatar myndirnar, en þegar sú fyrri leit fyrst dagsins ljós hafði Cameron ekki gefið út bíómynd í heil 12 ár og liðu síðan 13 ár á milli Avatar myndanna sem nú skal aðeins kryfja áður en þriðja eintakið fær sitt sviðsljós.Kjartan og Tommi rýna í efnistök þessara gígantísku sci-fi fantasíuæintýramynda og skoða hvort meira leynist þarna sem nær út fyrir óumdeilanlegt sjónarspil. Netverjar hafa oft fullyrt að Avatar (e. "Strumpa-")myndirnar hafi ekki skilið eftir sig neitt svakalegt ‘kúltúrs-fótspor’ ef svo má segja, en Bíófíklatvíeykið kanna slík ummæli í þaula og ýmist annað sem þessum ævintýrum fylgir… þangað til þeir verða bláir í framan…Þá er bara að skottast yfir til Pandoru og gæðatesta viðveruna þar.Efnisyfirlit:00:00 - "Baby's First Cameron"06:56 - 'Anti-Netflix' upplifunin14:37 - Avatar 20:05 - Styttri eða lengri útgáfan?35:27 - Avatar: The Way of Water47:41 - 'Mo-Cap' ferlið og smáatriðin58:01 - Samantekt og framtíð
Einn þáttur. Tveir fastagestir. Þrjú spil. Fjórir við míkrafónana og hefst þá gæðaprófið um besta kvikmyndaspil þessa árs. Nýverið voru gefin út þrjú ólík spurningaspil þar sem áherslur hvers þeirra eru nokkuð mismunandi. Spilin heita Bak við tjöldin, Bíóblaður og Bíótöfrar.Kjartan og Tommi eru sestir niður með Atla Sigurjónssyni og Fannari Trausta til að (svo það sé pent orðað…) gæðatesta skítinn úr þessu.Hvaða spil mun bera höfuð og herðar yfir hin tvö? Hvert þeirra er síst? og hvaða lið mun sigra; A.K.A. (Kjartan & Atli) eða Travolta's Demons (Tommi & Fannar)?Hlustunin er sögunni ríkari, enda lengir hláturinn lífið. **Spyrjið bara Mel Brooks...Efnisyfirlit: 00:00: - A.K.A. vs. Travolta's Demons03:29 - Bak við tjöldin37:42 - Bíóblaður01:12:41 - Bíótöfrar02:16:25 - Samantekt
Yorgos Lanthimos, grískur furðufugl og mannfræðingur í anda, er kominn á skurðarborð Bíófíkla þar sem markmiðið er að skoða hvaða fimm titlar frá kauða bera mest af. Lanthimos hefur farið yfir víðan völl, frá búningadrama til vísindaskáldskaps og alls þess á milli; sennilega hvað þekktastur fyrir titlana Dogtooth, The Favourite og Poor Things. Íris er sest með þeim Kjartani og Tomma og bera allir saman sínar (fræðilega…) ólíku bækur. Þau skoða í senn hvað það er sem einkennir þennan grísk ættaða ‘auteur’ sem á rætur sínar að rekja til leikhússins og hefur gegnumgangandi gífurlegan áhuga að kreista fram krefjandi frammistöðu úr leikurum sínum, sér í lagi Emmu Stone. Þess ber líka að geta að Tommi ákvað að leggja í galna áskorun, sem lýsir sér í refsistilgangi til að reyna minnka enskusletturnar sínar.Eins og mannaparnir segja: Þetta verður eitthvað.Efnisyfirlit:00:00 - Af hverju Yorgos?23:27 - Dogtooth33:01 - Kinds of Kindness46:26 - The Killing of a Sacred Deer52:42 - Alps01:00:28 - The Favourite01:11:46 - Bugonia01:39:11 - The Lobster01:52:51 - Poor Things
Svanasöngur leikstjórans Stanley Kubrick og í senn hans ‘bjartasta’ kvikmynd, í þeim skilningi að hún er uppfull af von um betri tíma. Þetta þykir sérlega umræðuvert af sögu sem dílar við hjónabandsbresti, tryggð, myrku öfl elítunnar og býður upp á eitt drungalegasta kynsvall fyrr eða síðar á hvíta tjaldinu.Tom Cruise leggur í eitt stórfurðulegt og draumakennt ferðalag um “Oz” (eða réttar sagt martraðarkenndu útgáfuna af New York) þar sem hann mætir hverri viðreynslunni á eftir annarri og ógrynni af furðufuglum. Á meðan þessu stendur liggur hugur hans á því hvort hjónaband hans við Nicole Kidman sé raunverulega að gliðna í sundur eða hvort hægt verði að stíga yfir þennan erfiða hjalla.Útkoman er vægast sagt lágstemmd en stórspennandi (en það er smekksatriði, vissulega…), eins og þeir Kjartan, Tommi og Atli Sigurjóns diskútera í þættinum að sinni. Þá ákvað Atli einnig að gefa hlustendum smá innsýn inn í sleggjudómana og volgu viðbrögðin sem myndin fékk um sumarið 1999 á meðan stærri málin koma líka til tals; eins og hvort Eyes Wide Shut teljist virkilega til jólamyndar… Lokið augunum fast og sperrið upp eyrun. Aðgangsorðið er ‘Fidelio’…. Efnisyfirlit:00:00 - 199906:41 - Tom Cruise 14:30 - Aðferðafræði Kubricks25:51 - Ekki allra…34:05 - “Traumnovelle”38:40 - Viðreynslurnar í “Oz”47:17 - Týndu tækifærin57:47 - “Fyrirlestur um einkvæni”
Aðdáendur söngleiksins Wicked biðu óþreyjufullir eftir því í tuttugu ár að bíómyndaútgáfa sögunnar komi út. Fyrri myndin var frumsýnd við gríðarlegar vinsældir í nóvember 2024 og sópaði meira að segja til sín hlass af Óskarsverðlaunum. Seinni hlutinn var tekinn upp á sama tíma og virðast viðbrögð vera misjöfn um hvor helmingurinn beri meira af, þó adáendur virðast heilt yfir vera massasáttir.Kjartan og Tommi tóku á móti Wicked-aðdáendunum Hönnu Töru og Eyrúnu Sif (ásamt leynigesti) til að skoða ævintýraheiminn Oz í margs konar formum; hvernig bíóaðlögunin á Wicked - í allri sinni fimm klukkustunda dýrð - breytir, bætir og kætir, auk þess að meta hápunktana, lægðirnar og helstu slagarana. Upp með kústinn, galdrahattinn og töfrasprotann og njótið heil, en ekki gleyma að pússa glerskóna.Efnisyfirlit:00:00 - Broadway og með’ví06:04 - Wicked: Part 115:41 - Wicked: For Good 23:03 - Höskuldarviðvörun32:02 - “Skrilljón vísbendingar”40:13 - Samantekt
Hayao Miyazaki, Paul Verhoeven, Michael Crichton, Mel Brooks, Sam Raimi, Ridley Scott, Vangelis og (vitaskuld!) John Carpenter. Þetta er aðeins brot af þeim snillingum sem koma til umræðu í þætti þessum, þar sem Atli Freyr - hinn tíði fastagestur og óformlegur þriðji þáttastjórnandi Bíófíkla - fær sviðsljósið og kynnir betur smekk sinn af mikilli innlifun. Atli leiðir Kjartan og Tomma í gegnum sinn lista yfir tíu uppáhalds kvikmyndir… þó megi gera ráð fyrir smávægilegu svindli.Efnisyfirlit:00:00 - Heimavinnuleysið05:02 - “Honorable mentions” 08:14 - Spaceballs 11:43 - Starship Troopers19:33 - Transformers: The Movie20:45 - Congo32:25 - Friday the 13th… 36:44 - In the Mouth of Madness40:22 - Army of Darkness50:17- Kiki’s Delivery Service56:15 - Blade Runner 01:06:09 - The Thing























