DiscoverHlaðvarp Lestrarklefans
Hlaðvarp Lestrarklefans
Claim Ownership

Hlaðvarp Lestrarklefans

Author: Lestrarklefinn

Subscribed: 8Played: 118
Share

Description

Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða þáttastjórnendur við fjölbreytta lesendur um öll málefni tengd bókmenntum, lestri og menningu. Fáðu þér endilega sæti í Lestrarklefann.

18 Episodes
Reverse
Leikhúsgagnrýnendurnir okkar Díana Sjöfn og Sjöfn Asare fara yfir liðið leikár og líta til þess sem er spennandi í leikhúsunum 2026. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
Í þessum hressilega hátíðarþætti Hlaðvarps Lestrarklefans fara Rebekka, Díana og Sjöfn yfir bókmenntaskandala ársins 2026. Er Laxness úti? Arnaldur líka? Hver á að skrifa ungmennabækur? Hver er Akörn? Mun Bókaklúbbur Íslands fordæma þennan þátt? Gleðilegt nýtt lestrarár kæru lesendur!Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare
Í þætti dagsins fáum við Emblu Bachmann til okkar að ræða barna- og ungmennabækur og lífið sem ungstirni með milljón bolta á lofti. Leiðrétting: Í þættinum er rætt um ungmennabækur og að þær séu allar fantasíur þetta árið, en það er ekki rétt, þær eru nánast allar fantasíur, það leynist ein hversdagssaga þarna! Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Sjöfn Asare og Díana Sjöfn
Einn afkastamesti rithöfundur Íslands settist með okkur í Lestrarklefann og spjallaði við okkur um skrif og bókmenntir. Ævar Þór Benediktsson er með fjórar nýjar bækur í jólabókaflóðinu, Skólastjórann, Góðan daginn, Piparkökuborgina og Gleðileg jól. Verkefnin eru óteljandi og því nóg um að ræða. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
Í hlaðvarpi dagsins fáum við rithöfundinn Þórdísi Helgadóttur í heimsókn sem gaf nýverið út skáldsöguna Lausaletur. Við ræðum við Þórdísi um bókina, rithöfundalífið og heimsenda. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
Hrekkjavaka og hræðilegar verur hafa tekið yfir bókmenntirnar þessa dagana. Við fengum Gunnar Theodór til okkar sem hefur einmitt skrifað nokkrar hrollvekjur, þar á meðal Vatnið brennur og Álfareiðina, sem er nýútkomin og er ætluð ungmennum. Kannið með okkur hryllilegar slóðir í hlaðvarpi dagsins. Það er vel við hæfi að þátturinn sé einmitt númer þrettán!Umsjónarmenn: Rebekka Sif og Sjöfn Asare
Í þætti dagsins fáum við góðan gest, ljóðskáldið og rithöfundinn Maó Alheimsdóttur, sem gaf nýverið út ljóðabókina Hvalbak. Við ræðum um ljóðið, náttúruna og innblásturinn. Stjórendur hlaðvarpsins eru Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare.
11. Fyrir flóðið

11. Fyrir flóðið

2025-10-0839:40

Haustlestur er okkur efst í huga í þætti dagsins. Fyrsta bylgja flóðsins er hafin og við könnum þær gersemar sem hafa nú þegar skolað á land. Við skoðum einnig leikárið og ræðum um þau leikverk sem við erum spenntastar fyrir. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare
Í fyrsta hlaðvarpsþætti vetrarins fengum við góða heimsókn frá rithöfundinum Kristínu Björgu Sigurvinsdóttur sem skrifar einnig umfjallanir fyrir Lestrarklefann. Við ræðum okkar uppáhalds ungmennabækur og ræðum um bókmenntaformið, fortíð þess og framtíð. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare
Í níunda þætti Hlaðvarps Lestrarklefans ræða Rebekka, Díana og Sjöfn um smásögur, aðdráttarafl þeirra og hvort markaðsöflin komi í veg fyrir blómlegri útgáfu smásagna. Þær eru einnig höfundar smásagnasafnsins Innlyksa sem kom út í byrjun apríl og ræða því einnig um aðferðir við að skrifa stuttar sögur og texta. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða Díana og Sjöfn við rithöfundinn Pedro Gunnlaug Garcia sem er þekktastur fyrir skáldsöguna Lungu sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2022. Pedro segir frá ferðum sínum erlendis á bókmenntahátiðir þar sem Lungu hefur nú verið þýdd á fjölda tungumála. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
Í sjöunda þætti hlaðvarps Lestrarklefans fengum við góðan gest, rithöfundinn og bóndann Hörpu Rún Kristjánsdóttur. Hún starfar einnig sem þýðandi og hefur meðal annars þýtt bækur Emily Henry og leikritið Rómeó og Júlíu eftir sjálfan Shakespeare. Þáttarstjórnendur: Rebekka Sif Stefánsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans, og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, aðstoðarritstjóri Lestrarklefans.
Í hlaðvarpi Lestrarklefans í dag ræðum við um flóru hinsegin bókmennta. Til okkar kom góður gestur, Bergrún Andradóttir skrifstofustýra og aðstoðarframkvæmdarstjóri Samtakanna ´78. Bækur sem voru meðal annars ræddar, Eldri konur, You Exist Too Much, Drottningarnar í garðinum, DJ Bambi, Ungfrú Ísland, Herbergi Giovanni ásamt fleirum. Þáttastjórnendur: Rebekka Sif Stefánsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans, og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, aðstoðarritstjóri Lestrarklefans.
Rebekka, Díana og Sjöfn ræða lestrarmarkmið, lestrarsnallforrit og furðulegar lestrarvenjur.
Í jólabókaflóðsþætti Lestrarklefans fengum við góðan gest, leikarann og grínistann Vilhelm Neto. Rætt var um nýútkomnar bækur, hvað við erum að lesa og mikilvægi þess að bera út boðskap bóklesturs á TikTok!Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare.
Í þriðja þætti fjalla Rebekka Sif og Díana Sjöfn um jólalegar bækur eða svokallaðar jólabækur. Bæði fyrir fullorðna og börn. Inn í það blandast jólahefðir, notalegheitin við lestur yfir hátíðarnar og að lokum örstutt umræða um jólabókaflóðið.
Í öðrum þætti ræðum við sjálfsútgefið rusl, Mikilvægt rusl og hvernig rithöfundurinn Halldór Armand yrði flokkaður ef hann væri rusl. Fáðu þér endilega sæti í Lestrarklefann. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
Í fyrsta þætti hlaðvarps Lestrarklefans ræða Rebekka, Díana og Sjöfn um tilgang menningargagnrýni. Einnig er farið yfir sögu Lestrarklefans og þáttastjórnendur kynntir til leiks.
Comments