DiscoverHeilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms
Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms
Claim Ownership

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Author: heilsuhladvarp

Subscribed: 217Played: 3,709
Share

Description

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?

Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.

Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?

Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.

Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.

Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar! 

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is

Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

65 Episodes
Reverse
Í þessum þætti er rætt við Sölva Tryggvason um stóru myndina þegar kemur að heilsu og ábyrgð. Hvernig samfélagið ýtir stöðugt að okkur óhollustu og hvernig við erum orðin samdauna óhollum lifnaðarháttum sem ógna heilsu okkar og lífsgæðum.  Við veltum fyrir okkur hvort lausnin felist í sjálfsábyrgð og þá jafnframt í frelsi einstaklinga til ákvarðanatöku um eigin heilsu.  ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
Í Heita pottinum setjumst við í pottinn með Aroni Skúlasyni, verkfræðingi sem heldur úti Instagram-reikningnum Frá toppi til táar ásamt konunni sinni Hildi Leonardsdóttur. Með okkur er líka Magnús Stefánsson, flugstjóri með meiru, sem hefur – með eiginkonu sinni Lukku – prófað ýmislegt í lífsstíl og næringu í gegnum síðustu 30 ár. Við ræðum: Nýjar næringarleiðbeiningar í Bandaríkjunum og hvað einkennir þær. Hvernig þetta er frábrugðið ráðleggingum á Íslandi. Carnivore-mataræði og áhrif þess á andlega og líkamlega heilsu Magnúsar. Hvort allar hitaeiningar séu “eins” þegar kemur að fitusöfnun — eða hvort uppruni orkunnar skipti máli. Muninn á áhrifum mettaðrar fitu, fræolía og frúktósa á lifrina. Birtuskilyrði og sólargeislarnir — tengingin við efnaskiptin - starfsemi hvatberanna. Af hverju local food getur skipt máli út frá birtuskilyrðunum þar sem við búum. Hvað gerist í efnaskiptunum á ketó-mataræði: þegar líkaminn fer að nota fitu sem aðaleldsneyti. Og já… við förum líka í praktísku hliðina sem allir hugsa um en fáir spyrja: hvað gerist í meltingunni á kjötmataræði? Er þetta “klósettpappírs-sparnaðarplan”? :) Og hvað með viðreksturinn — verður hann meiri, minni, eða bara… öðruvísi? Og þurfum við að borða trefjar á kjötmataræði? Heiðarlegt og forvitnilegt heitapottsspjall — þar sem við reynum að skilja hvað er að breytast, hvað skiptir máli og hvað virkar í alvöru í daglegu lífi. ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
Í þessum þætti setjumst við niður með Elínu Jónsdóttur, verkefnastjóra heilsu og vellíðunar hjá Nettó, og förum bæði í persónulega sögu hennar og stóra myndina: hvernig er að leiða heilsu- og vellíðunarverkefni innan eins stærsta smásölufyrirtækis landsins? Elín segir frá sinni eigin heilsuvegferð, stofnun 101 Granda, dvölinni í Costa Rica í litlu sjálfbærniþorpi sem varð mjög mótandi tími í lífi hennar og fjölskyldunnar.  Síðan færum við okkur yfir í Nettó: hvað felst í því að vinna markvisst að því að gera Nettó að heilsu- og vellíðunarvænni verslun — ekki sem tískubylgju, heldur sem stefnu sem á að leggja lóð á vogarskálarnar í að efla lýðheilsu fólksins í landinu. Elín lýsir sýninni og markmiðinu um að Nettó verði besta heilsuvörubúð landsins, hvernig unnið er að því í framkvæmd, og hvað þarf að vera til staðar svo breytingar í vöruúrvali, fræðslu og upplifun verði trúverðugar og gagnlegar. Við leyfum okkur síðan að velta fyrir okkur alls konar hugmyndum um hvernig matvöruverslanir geti almennt geti tekið skrefið enn lengra til að gera þær að því eina og sanna heilbrigðiskerfi - þar sem heilsan hefst.    ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
Í þessum fróðlega og hagnýta þætti fáum við til okkar Gígju Sunnevu Bjarnadóttur, með meistaragráðu í heilsusálfræði, og kafað er djúpt í eitt það sem flest okkar glímum við: 👉 Hvernig breytum við hegðun og vana – í alvöru? 👉 Hvernig festum við venjur og viðhöldum þeim til lengri tíma? Við ræðum: 🧠 Hvernig heilinn virkar þegar kemur að hegðunarbreytingum ❌ Af hverju við gefumst svona oft upp, jafnvel þegar við vitum „hvað er best“ 🔄 Algengar hugsanavillur sem halda okkur föstum í gömlum mynstrum ⚡ Hlutverk dópamíns í hvatningu, vana og endurtekningu 📝 Mikilvægi vanaskráningar – að gera ósýnilega hegðun sýnilega 🌱 Meðvitund og sjálfsþekkingu sem lykil að varanlegum breytingum Gígja deilir skýrum, jarðbundnum og raunhæfum ráðum sem hjálpa fólki að: byrja aftur (án sektarkenndar) byggja upp venjur sem endast skilja sjálft sig betur í ferlinu Þetta er þáttur fyrir alla sem: ✨ vilja breyta lífsstíl ✨ hafa reynt oft og „misheppnast“ ✨ vilja skilja hvernig – ekki bara hvað 🎧 Valdeflandi umræða sem tengir saman vísindi, sjálfsvinnu og daglegt líf – og gefur hlustendum verkfæri sem virka. ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
Í sérstökum áramótaþætti fáum við til okkar Guðrúnu Bergmann – konu sem hefur í rúmlega fjóra áratugi miðlað þekkingu um heilsu, lífsstíl, sjálfsvinnu og andlega þróun. Guðrún er 75 ára, enn á fullu og knúin áfram af óbilandi ástríðu og forvitni – sannkallaður frumkvöðull sem hefur oft verið á undan sinni samtíð og ekki hikað við að fara á móti straumnum þegar sannfæring hennar hefur kallað á það. Í þættinum ræðum við heilsuvegferð hennar, hvað það þýðir að standa í eigin sannleika, hvernig það er að ryðja nýjar brautir – og hvernig tímarnir hafa breyst. Samhliða horfum við fram á við: 🔮 Hvað ber næsta ár í skauti sér? 🌌 Guðrún deilir innsýn í stöðu stjarnanna, lykilhreyfingar reikistjarnanna á komandi ári og hvernig þær kunna að endurspeglast í lífi okkar – bæði einstaklingslega og á heimsvísu. Við förum um víðan völl, ræðum heima og geima í orðsins fyllstu merkingu, tengsl manns og alheims, tímamót, breytingar og tækifæri.   ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
Gestur þáttarins er Tryggvi Hjaltason greinandi, gagnasérfræðingur og áhrifamikil rödd í umræðu um menntakerfið okkar, föstur, lífstíl, heilsu og andlega iðkun. Tryggvi hefur vakið mikla athygli fyrir opna og persónulega umræðu um föstur, áhrif þeirra á líkama og heilsu, og tengsl föstu við trú, bæn og andlega dýpt. Hann hefur sjálfur gengið í gegnum langar föstur og deilt reynslu sinni af bæði líkamlegum breytingum og innri umbreytingu. Í samtali okkar ræðum við hvernig föstur geta verið bæði lífeðlislegt verkfæri til að bæta heilsu og andleg iðkun. Við förum yfir hvaða áhrif föstur geta haft á líkamann en Tryggvi hefur fylgst náið með áhrifum á líkamann með því að mæla fjölmörg gildi í blóðinu - og hann gefur þeim sem hafa áhuga á að prófa að fasta góð ráð. Við komum einnig víða annars staðar við en Tryggvi menntaði sig m.a. í leyniþjónustufræðum í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum þar. Hann hefur einnig látið til sín taka í umræðu um menntakerfið - og sérstaklega stöðu drengja í kerfinu en hann vann fyrir stjórnvöld skýrslu um stöðu þeirra og hvernig mætti bæta hana.   ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
🎄 Gestur þáttarins: Kristjana Steingrímsdóttir – Jana heilsukokkur Í þessum þætti spjöllum við við Kristjönu Steingrímsdóttur – Jönu, heilsukokk, heilsuráðgjafa og skapandi matgæðing sem hefur farið einstaka vegferð í eldamennsku og hollustu. Jana var um árabil kokkur á Happ veitingastaðnum í Lúxembúrg, sem enn í dag er talinn einn sá besti og þekktasti á sínu sviði.  Árið 2022 flutti Jana heim til Íslands, þar sem hún hefur síðan helgað sig því að kenna fólki að elda holla, einfalda og skapandi rétti, fara út fyrir boxið og njóta matar með meiri meðvitund – án þess að fórna bragði eða gleði. 🥗 Í þættinum ræðum við meðal annars: Vegferð Jönu Jólagúmmelaði með heilsuívafi – hvernig má njóta jólanna án samviskubits Heilsusamlegt jólakonfekt og nammi – einfaldar, sniðugar og girnilegar uppskriftir Flott meðlæti á jólaborðið Ráð til að undirbúa vikuna í matargerð – skipulag, einfaldleiki og tímasparnaður Fjölskyldan og eldamennskan – hvernig börn og fjölskylda taka þátt í matargerðinni Hvernig Jana hjálpar fólki að vera skapandi í eldhúsinu og finna sína eigin leið Jana er þekkt fyrir að gera hlutina aðgengilega, fallega og raunhæfa. Hún sýnir að hollur matur þarf ekki að vera flókinn, leiðinlegur eða takmarkandi – heldur getur hann verið skemmtilegur, fjölbreyttur og hátíðlegur. Á vefsíðunni hennar jana.is má finna fjölda uppskrifta, fróðleik og innblástur fyrir daglegt líf og hátíðir. Þáttur fyrir alla sem elska mat, heilsu, jólin – og að prófa eitthvað nýtt. Hér fyrir neðan eru nokkrar uppskriftir sem Jana sagði okkur frá. ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is Frosnir nammi molar (ca 18 molar) Hráefni: 2 * 180 gr dósir grísk jógúrt sem þú elskar ** 3 msk saxaðar pistasíur  3 msk þurrkuð trönuber 50 gr brætt dökkt gæða súkkulaði  Aðferð: Byrjið á að hræra grísku jógúrtina við pistasíurnar og trönuber. Setjið ca 1 matskeið af blöndunni í litlar hrúgur á bökunnarpappírs klæddan disk sem passar í ykkar frysti. Bræðið súkkulaðið og dreifið yfir molana - frystið yfir nótt og njótið    **ef þú notar hreina gríska jógúrt er gott að blanda smá vanillu og sætu og hræra vel saman   Hollustu nammimolar með trefjum, og frábærri næringu  Bleikir molar Hráefni: 3 bollar kókosmjöl 1 bolli möndlumjöl 1/3 bolli fljótandi kókosolía 1/3-1/2 bolli fljótandi sæta t.d. Akasíu hunang eða hlynsýróp 1 tsk vanilla 1 msk gott rauðrófuduft  Smá salt Aðferð: Blanda saman í skál og gera annaðhvort kúlur eða þetta niður og skera í litla bita og frysta  Geymist í frysti í 2-3 mánuði    Grænu molar Hráefni: 3 bollar kókosmjöl 1 bolli möndlumjöl 1/3 bolli fljótandi kókosolía 1/3-1/2 bolli fljótandi sæta t.d. Akasíu hunang eða hlynsýróp 1 tsk vanilla 1/2-1 tsk gott gæða matcha duft Smá salt Aðferð: Blanda saman í skál og gera annaðhvort kúlur eða þetta niður og skera í litla bita og frysta  Geymist í frysti í 2-3 mánuði    Súkkulaðikúlur Hráefni: 1,5 bolli valhnetur (ma lika nota möndlur / kasjúhnetur) 14 mjúkar steinlausar döðlur 2 msk kakóduft  1 msk kókosolía (brædd)  Börkur og safi úr 1 lífrænni appelsínu( ma sleppa ) ½ tsk vanilludropar Örlítið salt (Valfrjálst:1 dropi piparmyntuolía fyrir frískandi bragð) Aðferð: Allt sett í matvinnsluvélina og blandað vel saman. Mótaðu í litla bita eða kúluform, eða þrýstu í form og skerðu í mola, hægt að velta upp úr kókosmjöli eða kakó dufti.  Kældu í ísskáp í 30 mínútur áður en þú nýtur þeirra. Mér finnst gott að geyma í boxi í frysti og næla mér í kúlu og kúlu.   Alhliða sítrus–hunangs dressing Fullkomin á salöt, grænmeti, fisk, kjúkling og jafnvel ofan á ristað rótargrænmeti. Hráefni: 6 msk extra virgin ólífuolía 2 msk sítrussafi (sítróna, lime eða appelsína – má blanda) 1 tsk eplaedik eða balsamik (ljóst) 1-2 msk náttúruleg sæta (t.d hunang eða hlynsíróp ) 1 tsk Dijon sinnep (valfrjálst en er voða gott) Salt og nýmalaður pipar eftir smekk Aðferð: Settu allt saman í krukku, skrúfaðu lokið á og hristu vel saman. Smakkaðu til með salti og pipar. Auðvelt að breyta : Fyrir meiri ferskleiki: rifinn lífrænn sítrónubörkur Fyrir meiri dýpt: smá tahini eða hvítlauksrif Skemmtilegt twist að setja ferskar kryddjurtir út í eins og saxað basil, dill eða kóríander Asískt twist: skiptu ediki út fyrir hrísgrjónaedik og auka dropa af ristaðari sesamolíu og smá chili flögur
Gauti Grétarsson er sjúkraþjálfari og stofnandi Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur. Hann hefur meira en fjörutíu ára reynslu af því að vinna með fólki á öllum aldri – frá handboltakrökkum til eldri kylfinga – og hefur skapað sér sérstöðu með beinskeyttri, heildrænni og gagnreyndri nálgun á lýðheilsu og forvarnir. Gauti hefur jafnframt stýrt þjálfunarhópnum AGGF – Afrekshópi Gauta Grétarssonar fimleikastjóra – sleitulaust frá stofnun hans árið 1989. Í þættinum ræðir hann um sex lykiláhrifaþætti sem hann telur að sé óhjákvæmilegt að hlúa að – bæði í afreksþjálfun og í „afrekum“ okkar allra í daglegu lífi.  ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is  
„Að fylgja innri áttavitanum“ - Samtal við Björn Skúlason eiginmann forseta Íslands, heilsukokk og frumkvöðul Í þessum þætti fáum við að kynnast Birni Skúlasyni, eiginmanni forseta Íslands, á persónulegan og opinskáan hátt. Hann ræðir heilbrigði, lífsstíl, karlmennsku og tilgang – og hvernig hans eigin vegferð hefur mótað þá ákvörðun að nota nýja stöðu sína til að gera gagn í samfélaginu. Björn segir frá því þegar hann kvaddi fjármálageirann til að fylgja hjartanu og læra matargerð í New York, og hvernig samband hans við Höllu hjálpaði honum að treysta eigin innsæi. Hann talar um ábyrgðina sem fylgir því að vera í sviðsljósinu og ástríðu sína fyrir lýðheilsu, forvörnum og skýrari fræðslu til almennings. Við ræðum mataræði, tilraunir hans með ólíkar fæðutegundir og hvernig hann hefur fundið hvað hentar honum best. Hann talar opinskátt um sykurnotkun, vítahringi daglegs lífs og mikilvægi þess að fræða fólk um einföldar, raunhæfar leiðir til betri heilsu. Hann deilir einnig skoðunum sínum á GLP-1 lyfjunum og þeirri umræðu sem hefur þróast í kringum þau. Björn segir frá eldamennskunni heima – þar sem hann sér alfarið um matseldina og finnur mikið skapandi frelsi og gleði. Hann talar um karlmennsku, mýkt, hugleiðslu og hvernig þetta hefur bætt líf hans og samskipti. Þá rifjar hann upp skemmtilegar sögur úr opinberum heimsóknum og áhrifaríka ferð til Tansaníu sem hafði djúpstæð áhrif á hann. Þátturinn er einlægt, heiðarlegt og fræðandi spjall um heilsu, sjálfsþekkingu og það að fylgja innri áttavitanum. ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is  
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins.  
✨ Í þessum þætti fáum við til okkar Auði Bjarnadóttur, sem hefur kennt jóga í 25 ár og á að baki langan feril sem ballettdansari.  Við ræðum hvað jóga er í grunninn, hvað það stendur fyrir og hvernig það tengir saman líkama, huga og anda. Við skoðum líka mikilvægi þess að tengjast hinu andlega, hvernig jóga getur orðið leið til meiri innri friðar, skýrleika og innri styrks. Auður segir frá því hvað vakti áhuga hennar á jóga og hvernig ferðalagið hófst. Við tölum einnig um líkamsstöðu, hvernig hún hefur áhrif á líðan okkar og hvernig jóga getur hjálpað til við að opna, rétta úr, styrkja og skapa jafnvægi í daglegu lífi. Þá deilir Auður góðum og hagnýtum ráðum sem hún sjálf notar í tengslum við beinþynningu. Þátturinn er fyrir alla sem vilja dýpka skilning sinn á jóga og leita að leiðum til að efla vellíðan, hamingju og tengingu við sjálfa sig, aðra, náttúruna og æðri mátt.   💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur: 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. ✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.
Magasýrur, melting og næring – þegar vísindin og reynslan mætast Í þessum þætti spjöllum við við Elísabetu Reynisdóttur, næringarþerapista og næringarfræðing, sem hefur áratuga reynslu á sviði heilsu og næringar. Samræðan spannar víðan völl — frá magasýrum og meltingu yfir í samsetningu máltíða, vítamín, og dýpri spurningar um hvernig við getum hlustað á líkamann. Við ræðum meðal annars: 🔬 Magasýrur og melting: hvers vegna magasýra er mikilvæg fyrir upptöku næringarefna og hvaða hættur geta fylgt langvarandi notkun magasýruhamlandi lyfja. 🍽️ Matarsamsetningar: er betra að borða prótein og kolvetni sitt í hvoru lagi? 🌞 Vítamín: Beta segir okkur frá sögunni þegar Rannsóknarstofa næringarfræðinnar á Íslandi hótaði að kæra hana til Landlæknis í byrjun Covid fyrir að ráðleggja stóra skammta af D, A og C-vítamínum í grein á mbl.is. 🇮🇹🇨🇭 Reynsla erlendis: hvað hún lærði á Ítalíu og í Sviss, og hvernig sú þekking hefur mótað sýn hennar á heilsu og jafnvægi líkamans. Þetta er hlýtt og forvitnilegt spjall, þar sem fræðin, reynslan og innsæið mætast – með áherslu á að skilja líkama okkar betur og efla eigin heilunarmátt. 💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur: 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Minnum á lífræna ísinn þeirra og sítrónu grísku jógúrtina. 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. Nýtt jólabragð komið - og svo má ekki gleyma creatine happy hydrate. 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. Geggjuð lagkaka mætt á svæðið fyrir jólin. 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. Hægt að skrá sig á námskeið og kaupa gjafakort í SPA-ið þar fyrir jólin. 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins - minnum á lífræna merki Nettó Ánglamark - geggjað í baksturinn fyrir jólin.
🌿 Í þessum þætti hittum við Þórdísi Skúladóttur, sem eftir áralanga þrautargöngu með mikla verki, meltingarvandamál, Hashimoto-sjúkdóm, Sjögrens, vefjagigt og mikla lyfjanotkun ákvað að taka heilsuna í eigin hendur. Þórdís tók mataræðið í gegn – prófaði alls konar en endaði á ketó mataræði, byrjaði að taka háa skammta af D-vítamíni og Curcumin olíu, og segir að það hafi bókstaflega gjörbreytt lífi sínu. Í dag, 64 ára gömul, er hún lyfjalaus, verkjalaus og full af orku – og hefur aldrei liðið betur. Hún deilir ferðalaginu, lærdómnum og hvernig það sem virtist ómögulegt varð að veruleika. ✨ Saga hennar er mikil hvatning um að taka ábyrgð á heilsunni okkar og sýnir okkur hve mikil áhrif við getum haft til að snúa við sjúkleika, fyrirbyggja sjúkdóma og viðhalda vellíðan og heilbrigði. https://heilsuhringurinn.is/2021/01/16/dr-coimbra-hefur-nad-storkostlegum-arangri-med-ofurstorum-skommtum-af-d3-vitamini/   💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur: 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. ✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.  
✨ Í þessum þætti fáum við í heimsókn Hrund Gunnsteinsdóttur rithöfund, lífsspeking, fyrirlesara og ráðgjafa sem gaf nýverið út bókina InnSæi og hefur í dag helgað líf sitt því að hjálpa fólki að tengjast innsæinu sínu og efla það.✨  Hún hefur komið ótrúlega víða við á sínum starfsferli en það var mjög erfið reynsla sem hún gekk í gegnum sem starfsmaður Sameinuðu Þjóðanna í Kosovo eftir stríðið á Balkanskaga sem leiddi Hrund á braut innsæisins. Rétt liðlega þrítug lenti hún á vegg, tapaði áttum og fór í gegnum myrka tíma. ✨ Eina leiðin út úr því ástandi var leiðin inn á við og það ferðalag varð upphafið að lífi í samhljómi við innsæið sem hún hefur ásett sér að lifa ávallt eftir. 🪷 Við ræðum: 🌿 Hvað er innsæi - og hvernig það tengist greind og heilsu 💖 Af hverju það er mikilvægt að næra, tengjast og hlusta á innsæið - hvernig getur það hjálpað okkur á lífsins braut 🌸 Hvað rannsóknir sýna um innsæi 💎 Hvernig við getum styrkt innsæið með einföldum en reglulegum æfingum 💖 Skilaboð Hrundar snerta svo sannarlega hjartað og eru innblástur til að lifa lífinu í fullri vitund og í meiri tengingu við okkar innsta sjálf, aðra og náttúruna - og þá gerast kraftaverkin.  👉 hrundgunnsteinsdottir.com ------- 💚 Þátturinn er í boði Heilsuhersins, okkar frábæru samstarfsaðila sem styðja heilbrigðan lífsstíl á Íslandi: 🥦 Bíóbú – nærandi mjólkurvörur úr lífrænni íslenskri mjólk með meira af hollum fitusýrum en vörur úr mjólk sem er ekki lífræn 💚 🍞 Brauð & Co – handgerðar kræsingar og súrdeigsbrauð með ást og ástríðu - allt lífrænt og ekkert rusl 🥖 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. 💪 Hreyfing – heimili hreyfingar, vellíðunar og samfélags - kosin besta líkamsræktarstöð landsins mörg ár í röð 💫 🛒 Nettó – aðgengilegt og fjölbreytt úrval hollra matvæla - stefnir að flottustu heilsudeild landsins 🌱 🏡 Húsaskjól fasteignasala – með hjartað á réttum stað þegar heimili skipta máli ❤️ Meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. 🥗 Spíran veitingahús í Garðheimum – ferskir og bragðgóðir réttir - ekta heimilismatur og allt búið til frá grunni 🌿
🌸 Í þessum þætti fáum við til okkar Teklu Hrund Karlsdóttur lækni, sem hefur mikla reynslu og brennandi áhuga á efnaskiptaheilsu, frumustarfsemi og heilbrigðum lífsstíl. Hún vinnur á mörkum hefðbundinnar læknisfræði og nýrra nálgana — með áherslu á að skilja líkamsstarfsemina, orku og hvað við getum gert til að fyrirbyggja sjúkdóma og koma á jafnvægi í líkamsstarfseminni. ✨ Við ræðum m.a.: ⚖️ Hvað efnaskiptaheilsa raunverulega þýðir 🧪 Hvaða mælikvarðar segja til um efnaskiptavillu 🔋 Hlutverk hvatberanna – orkustöðva líkamans 💚 Hvers vegna lifrin og glútaþíon skipta öllu máli fyrir hreinsun og orku 🦴 Yfirhreyfanlega liði – hvað einkennir fólk með slíka liði og hvernig það tengist heilsu og líðan 💬 Tekla deilir innsýn, reynslu og hagnýtum ráðum sem geta hjálpað þér að skilja líkamsstarfsemina betur og efla heilsuna 🌿 🤝 Þátturinn er í boði Heilsuhersins, okkar frábæru samstarfsaðila sem styðja heilbrigðan lífsstíl á Íslandi: 🥦 Bíóbú – nærandi mjólkurvörur úr lífrænni íslenskri mjólk með meira af hollum fitusýrum en vörur úr mjólk sem er ekki lífræn 💚 🍞 Brauð & Co – handgerðar kræsingar og súrdeigsbrauð með ást og ástríðu - allt lífrænt og ekkert rusl 🥖 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. 💪 Hreyfing – heimili hreyfingar, vellíðunar og samfélags - kosin besta líkamsræktarstöð landsins mörg ár í röð 💫 🛒 Nettó – aðgengilegt og fjölbreytt úrval hollra matvæla - stefnir að flottustu heilsudeild landsins 🌱 🏡 Húsaskjól fasteignasala – með hjartað á réttum stað þegar heimili skipta máli ❤️ Meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. 🥗 Spíran veitingahús í Garðheimum – ferskir og bragðgóðir réttir - ekta heimilismatur og allt búið til frá grunni 🌿
🌙 Allt um svefninn með Dr. Erlu Björnsdóttur 💤 Í þessum afar fræðandi og áhugaverða þætti fáum við til okkar Dr. Erlu Björnsdóttur, svefnsérfræðing og doktor í líf- og læknavísindum, sem hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S) og vinnur að rannsóknum á svefni í samstarfi við vísindamenn í Evrópu og Bandaríkjunum. Við ræðum: 🌙 Af hverju við sofum – og hvað raunverulega gerist í líkamanum og heilanum í mismunandi stigum svefnins 🧬 Hvernig svefn tengist ónæmiskerfi, þyngdarstjórnun og hvatberum 🔹 Hvað gerist þegar við sofum of lítið – og hvernig við getum bætt svefngæðin 🕯️ Hvernig dægursveiflan stjórnar líkamlegum ferlum og hversu mikilvæg birtan og myrkrið eru fyrir svefngæði 🌅 Hlutverk melatóníns, “næturhormónsins”, og hvernig lífstíll, skjátími og ljós á kvöldin hafa áhrif á framleiðslu þess 🛏️ Hugsanleg áhrif uppgufunar eiturefna úr svampdýnum og efnum í rúmum á svefngæði og heilsu 💊 Áhrif svefnlyfja og geðlyfja á svefninn 😮‍💨 Umræða um kæfisvefn, einkenni hans og lausnir sem virka 🌸 Svefnvandamál á breytingaskeiði kvenna 📱 Nýja SheSleep-verkefnið og svefnappið sem Erla hefur þróað til að styðja konur við að bæta svefninn með vísindalegum aðferðum 💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur: 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. 🌱 Spíran er fjölskylduvænn bístróstaður í Garðheimum sem leggur áherslu á hollan og góðan mat – gerðan frá grunni úr gæða hráefnum. Þar fær fjölskyldan að njóta nærandi rétta sem styðja við heilsuna. ✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.
🌿Gestur þáttarins er Ingibjörg Sigfúsdóttir – frumkvöðull, ritstjóri og einn stofnanda Heilsuhringsins🌿 Í þessum þætti fáum við að hitta Ingibjörgu Sigfúsdóttur, eina af stofnendum Heilsuhringsins – tímarits sem hefur miðlað heildrænni visku og fræðslu um heilsu í 47 ár. Ingibjörg er 83 ára orkubolti, enn forvitin, lærdómsfús og ástríðufull í að miðla reynslu sinni og fróðleik til annarra. Hún greindist með MS taugasjúkdóminn árið 1964, aðeins 22 ára, en ákvað fljótt að feta sína eigin leið – án lyfja og með náttúrulegum, heildrænum aðferðum. Hún hefur í gegnum áratugina lært af læknum og vísindamönnum víða um heim og deilir hér reynslu sinni af því sem hefur hjálpað henni að lifa vel með sjúkdómnum – allt frá ofurskömmtum af D-vítamíni til sykurlauss mataræðis, markvissra bætiefna og hreyfingar. Við spjöllum jafnframt um nýjustu greinar hennar á heilsuhringurinn.is um lektín sem finnast í grænmeti, baunum og korni og möguleg áhrif þeirra á meltingarveginn og Hashimoto sjúkdóminn. Ingibjörg er sannkallaður brautryðjandi sem var langt á undan sinni samtíð og hefur aldrei látið neitt stoppa sig á sinni heilsuvegferð.    Heilsuherinn okkar Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.  Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur.  Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu.  Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum.  Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu.  Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist.  Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu.  Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins.  Spíran er fjölskylduvænn bístróstaður í Garðheimum sem leggur áherslu á hollan og góðan mat – gerðan frá grunni úr gæða hráefnum. Þar fær fjölskyldan að njóta nærandi rétta sem styðja við heilsuna.  
Í þessum þætti fjöllum við um nýlegar ráðleggingar bandarískra heilbrigðisyfirvalda sem hafa verið mikið í umræðunni í Bandaríkjunum og víðar undanfarið. Þær snúa annars vegar að notkun Tylenols (paracetamol - acetaminophen) á meðgöngu og hins vegar að lyfinu leucovorin hjá börnum með einhverfu. Tylenol á meðgöngu Í ágúst 2025 birtist stór rannsókn frá Harvard og Mount Sinai sem skoðaði notkun Tylenols (paracetamols) á meðgöngu. https://ehjournal.biomedcentral.com/articles/10.1186/s12940-025-01208-0 Hún dregur fram tengingu milli notkunar og aukinna líka á taugaþroskaröskunum, m.a. ADHD og einhverfu. Heilbrigðisyfirvöld í USA leggja nú áherslu á að nota paracetamol aðeins ef nauðsyn krefur, í sem minnstum skömmtum og í stuttan tíma. Use of Negative Control Exposure Analysis to Evaluate Confounding: An Example of Acetaminophen Exposure and Attention-Deficit/Hyperactivity Disorder in Nurses' Health Study II. Am J Epidemiol. 2019 Apr 1;188(4):768-775. doi: 10.1093/aje/kwy288. PMID: 30923825; PMCID: PMC6438812. https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/30923825/ Prenatal and postnatal exposure to acetaminophen in relation to autism spectrum and attention-deficit and hyperactivity symptoms in childhood: Meta-analysis in six European population-based cohorts. Eur J Epidemiol. 2021 Oct;36(10):993-1004. https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/34046850/ Leucovorin og einhverfa Nýlega hefur FDA í Bandaríkjunum gefið út nýjar ráðleggingar. sem snúa að lyfinu leucovorin (folinic acid) sem getur hjálpað ákveðnum hópi barna með einhverfu. Þetta á sérstaklega við um börn með folínsýruskort í heila (cerebral folate deficiency), þar sem mótefni hindra eðlilegan flutning fólats. Rannsóknir sýna að hjá þessum hópi getur leucovorin bætt m.a. málþroska og samskipti. Dæmi um rannsóknir - en þær er mun fleiri sem hægt er að kíkja á inn á pubmed.com. https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/32892962/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/39243316/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/27752075/   B-vítamín og erfðabreytileikar Í þættinum komum við einnig aðeins inn á muninn á mismunandi B-vítamínum, sérstaklega B9-vítamíni. Sumir geta unnið eðlilega úr kemísku fólínsýru (folic acid) sem finnst í hefðbundnum vítamínum og styrktu korni. Aðrir bera ákveðna genabreytingu (t.d. í MTHFR-geninu) sem veldur því að líkaminn umbreytir fólínsýru ekki nægilega vel í virkt form. Þessi hópur nýtur þess frekar að taka inn methyl-form (L-methylfolate), sem líkaminn getur nýtt beint. Þetta er önnur umræða en um leucovorin og einhverfu, en sýnir að það eru til fleiri hópar sem þurfa að huga sérstaklega að því hvaða form af vítamínum hentar þeim.   💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur: 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. 🌱 Spíran er fjölskylduvænn bístróstaður í Garðheimum sem leggur áherslu á hollan og góðan mat – gerðan frá grunni úr gæða hráefnum. Þar fær fjölskyldan að njóta nærandi rétta sem styðja við heilsuna. ✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.
✨ Viðtal við Söru Sigmunds CrossFit meistara ✨ Í þessum þætti fáum við að heyra ótrúlega sögu Söru Sigmundsdóttur, eins þekktasta crossfit keppanda heims. Sara hefur gengið í gegnum gríðarlega erfiða meiðslasögu en hefur aldrei látið það stöðva sig – hún heldur áfram með ótrúlegri seiglu og járnvilja. Hún segir okkur frá því hvað dró hana fyrst inn í crossfit, hvernig ferillinn hefur þróast og hvernig hún tók stórt skref þegar hún ákvað að hætta að treysta eingöngu á hefðbundna læknavísindi þegar læknir sagði henni að hún þyrfti að hætta í íþróttum, sætta sig við liðskipti innan fárra ára og að hún gæti jafnvel aldrei leikið sér með börnunum sínum. Í stað þess að sætta sig við örlögin valdi Sara aðra leið – hún tvíefldist, fór að rannsaka hvaða aðrir möguleikar væru í boði og fann sína eigin leið til bata. Hún hætti á öllum lyfjum – þar á meðal krabbameinslyfjum sem henni voru ávísuð vegna gigtargreiningar – og hefur ekki lengur greiningu á gigt. Í staðinn tók hún mataræðið í gegn og hefur snúið sér að óhefðbundnum meðferðum, meðal annars stofnfrumumeðferð og blóðmeðferð sem hún sækir nú til Argentínu. Við ræðum einnig um hvernig það er að keppa á hæsta stigi íþrótta án krossbands.  Þetta er einstök saga af þrautseigju, hugrekki og því að neita að gefast upp. 🌟   💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem ætla að taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur: 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. 🌱 Spíran er fjölskylduvænn bístróstaður í Garðheimum sem leggur áherslu á hollan og góðan mat – gerðan frá grunni úr gæða hráefnum. Þar fær fjölskyldan að njóta nærandi rétta sem styðja við heilsuna. ✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.
loading
Comments