Discover
Hlaðvarp Iðunnar
Hlaðvarp Iðunnar
Author: Iðan fræðsluetur
Subscribed: 0Played: 1Subscribe
Share
© All rights reserved
Description
Hlaðvarp Iðunnar er fyrir fagfólk í iðnaði og þá sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á sviði iðngreina. Tekin eru viðtöl við sérfræðinga, kennara og fólk úr atvinnulífinu sem miðla þekkingu sinni og vekja áhuga á möguleikum starfsmenntunar og framþróunar innan iðnaðarins.
111 Episodes
Reverse
Lilja Diljá Ómarsdóttir er nýsveinn í vélvirkjun og nýkomin úr krefjandi en skemmtilegu starfsnámi í Essen í Þýskalandi. Hún segir frá ævintýrum sínum í nýjasta hlaðvarpi Ævintýra í Evrópu.
Á nýju ári leiðum við oft hugann að því sem við getum bætt í eigin fari. Þríeykið Patricia Anna Þormar, Silja Lind Haraldsdóttir og Valý Ágústa Þórsteinsdóttir standa að fyrirtækinu Serious Play Iceland og verða með námskeið hjá Iðunni sem kallast Vegvísir að árangri. Á þessu námskeiði fær fólk tækifæri til vaxtar og breytinga en markmið þess er að þátttakendur öðlist djúpan skilning á eigin færni og styrkleikum og hvernig megi nýta þá til fulls í lífi og starfi.
Patricia sem er vanalega kölluð Patsí, Silja og Valý eru viðmælendur Kristjönu Guðbrandsdóttur í nýjasta þætti Augnabliks í iðnaði. Þær segja söguna á bak við fyrirtækið og lýsa þeim miklu breytingum sem þær sjá á fólki og teymum á vinnustöðum eftir vinnu með aðferðafræði Seroius Play Legó.
Luiz Lobo, margverðlaunaður fréttamaður er gestur Helen Gray í nýjasta þætti hlaðvarpsins Mobility Without Borders.
Velkomin í þennan sérstaka hlaðvarpsþátt sem var tekinn upp í Reykjavík í tengslum við undirbúningsheimsókn Nordplus. Að þessu sinni fengum við til liðs við okkur Bo Erik Strömback, Josefin Born Nilson, Martin Nielsen og Jytte Eikenes til að ræða framtíð símenntunar á Norðurlöndum.
Við veltum fyrir okkur nýjustu straumum og tækifærum í starfsþróun, áhrifum stafrænnar umbreytingar, hlutverki örviðurkenninga og leiðum til að efla norrænt samstarf á þessu sviði.
Ólöf Ólafsdóttir, konditor, og Andrea Ylfa Guðrúnardóttir, matreiðslunemi og framreiðslumeistari, spjalla um ástríðuna sína fyrir eftirréttum og hvernig Erasmus+ námsmannaskipti hafa hjálpað þeim að elta draumana.
Best að þróa vörur og þjónustu með viðskiptavininum
„Að þróa og búa til vöru og þjónustu í samstarfi við viðskiptavininn er áhrifamesta markaðsstarf sem hægt er að vinna,“ segir Abel Sanchéz sérfræðingur hjá HP í spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga prent- og miðlunarsviðs í nýjasta hlaðvarpi Iðunnar.
Abel er þrautreyndur sérfræðingu og með rúmlega 15 ára reynslu af fjárfestingum í hönnun og þróun vörumerkja.
Abel hélt fyrirlestur fyrir fullu húsi í Iðunni fræðslusetri um miðjan janúar í samstarfi prent- og miðlunarsviðs og PMT.
Fagfólk frá auglýsingastofum og prentsmiðjum sótti fyrirlesturinn sem fjallaði um nýjar leiðir í prentun til uppbyggingar á vörumerkjum og til að auka arðsemi markaðsherferða. Í þessu hlaðvarpi fer hann yfir það helsta sem hann fræddi gesti fyrirlestursins um.
Bóksala er alltaf að dragast saman, forsendan fyrir því að bókamenning þrífist er að fólk kaupi bækur,“ segir Ragnheiður Jónsdóttir rithöfundur sem skaust fram á sjónarsviðið 2023 með frumraun sína Blóðmjólk og hlaut fyrir hana glæpasöguverðlaunin Svartfuglinn. Fyrir jól gaf hún út sína aðra bók; Svikaslóð sem hlaut afar góðar viðtökur. Ragnheiður kom í spjall til Kristjönu Guðbrandsdóttur í hlaðvarp Iðunnar, Bókaást og lýsti því vel hvernig er að vera nýgræðingur í stétt rithöfunda og því hvernig henni gekk að halda sér á floti í jólabókaflóðinu.
„Ég heyri svo oft að fólk nenni ekki að kaupa sér bækur. Heimilið fyllist af bókum. Ég er að hvetja fólk til að endurhugsa þetta,“ segir hún. „Við kaupum okkur ekki buxur sem við ætlum að eiga út ævina,“ tekur hún sem dæmi og segist hvetja fólk til að styðja við íslenskar bókmenntir með því að kaupa bækur og gefa þær hreinlega áfram ef það vill ekki eiga þær lengi.
Dögg Hjaltalín og Anna Lea Friðriksdóttir, eigendur Sölku útgáfu og bókabúðar á Hverfisgötu, áttu lausar örfáar mínútur til að spjalla við Kristjönu Guðbrandsdóttur í hlaðvarpinu Bókaást á milli þess sem þær vöktuðu skipasiglingar með jólabækur í símanum. „Líf bóksala er ekki á línulegum tíma,“ útskýrir Anna Lea. Þær Dögg og Anna Lea eru líkega með uppteknari bóksölum landsins. Þær ritstýra bókum og skrifa bækur, þýða bækur og halda myndlistarsýningar og námskeið í bókabúðinni. „Já og svo er bókabúðin líka bar!“ Segja þær og segja frá ævintýrum sínum og hvers vegna það eru engar líkur á því að bókabúðir hætti að vera til.
Ólafur Stolzenwald sölu- og markaðsstjóri prentsmiðjunnar Litróf og Eyjólfur Jónsson umbrotsmaður skoða bækur jólabókaflóðsins með Kristjönu Guðbrandsdóttur með augum fagmanna í nýjasta þætti hlaðvarps Iðunnar- Bókaást.
Hvaða bókakápur skara fram úr og af hverju? Hvaða tískustrauma er hægt að greina og hvaða reglur eru hönnuðir að leika sér að því að brjóta? Kiljur, saurblöð, vandað umbrot og stafræn prentun jólabóka koma til tals. Og síðast en ekki síst þarf að útkljá um það hvort einhverjir grafískir skandalar séu í jólabókaflóðinu í ár.
Ekki gera sér allir grein fyrir því hvað hönnun og umbrot bóka er persónulegt ferli. Kjartan Hreinsson grafískur hönnuður og ljósmyndari lýsir vinnu sinni við bókina Óli K sem mögnuðu ferðalagi. Ferðalagi sem hófst á táknrænan hátt á flugsýningu í Reykjavík þar sem Kjartan rakst á höfund bókarinnar, sagnfræðinginn Önnu Dröfn Ágústsdóttur. Brautryðjandinn og blaðaljósmyndarinn Óli K var nefnilega forfallinn flugáhugamaður og Kjartan var meira að segja í forláta flugmannsleðurjakka þegar þau Anna spjölluðu um þá hugmynd hennar að gera bók um hann. Nú er bókin komin út en í henni eru birtar hundrað fimmtíu og fimm myndir Óla K sem fanga íslenska sögu og mannlíf á áhrifamikinn hátt.
Viðmælandinn að þessu sinni er Ólöf Ólafsdóttir, einn fremsti eftirréttakokkur landsins. Ólöf útskrifaðist sem Konditor frá ZBC Ringsted í Danmörk árið 2021 og sama ár bar hún sigur úr býtum í keppni um eftirrétt ársins. Ólöf fór með íslenska kokkalandsliðinu á Ólympíuleikana í Stuttgart í febrúar síðastliðnum þar sem liðið hlaut tvenn gullverðlaun og hafnaði í þriðja sæti. Ólöf gaf út bókina „Ómótstæðilegir eftirréttir“ árið 2023 en í dag starfar hún sem eftirréttakommur á veitingastaðnum Monkeys.
Heiðar Karlsson segir okkur frá loftgæðum innanhúss og hvernig er hægt að gera innivist betri. Heiðar er framkvæmdastjóri VISTA verkfræðistofu en VISTA sérhæfir sig í allskonar mælingum, þar á meðal loftgæðamælingum.
Edda Konráðsdóttir framkvæmdastjóri og einn stofnenda Iceland Innovation Week er viðmælandi okkar í Augnablik í iðnaði. Hún segir frá dagskránni í ár sem er mjög viðamikil. Von er á metfjölda fjárfesta á viðburðinn í ár sem fer fram 14.-16.maí í Kolaportinu og er haldin í fimmta sinn. Hvert ár hafa Edda og hennar teymi aðlagað sig að aðstæðum í samfélaginu hverju sinni. Edda segir frá reynslu sinni og mikilvægi nýsköpunar.
VHE fór því nýlega í gegnum verkefnið Fræðslustjóri að láni. „Helstu markmið með verkefninu var að fá heildaryfirsýn yfir fræðsluþörfina og skipuleggja fræðslustarf framtíðarinnar“ segir Guðrún Blandon mannauðsstjóri.
Hún mælir aukna starfsánægju hjá starfsfólki sem hún vill tengja beint við verkefnið.
Þetta og margt fleira í þessu fræðandi og skemmtilega spjalli
Við útskrift úr bakaraiðn fann Ástrós fyrir faglegri þreytu og langaði í nýja reynslu sem myndi styrkja hana sem fagmann. Hún kynnti sér því Erasmus+ fyrir nýsveina og setti stefnuna á Kaupmannahöfn. Málin þróuðust þó þannig að hún endaði á því að fara til Tallin í Eistlandi og sér ekki eftir þeirri ákvörðun.
Helen Gray leiðtogi alþjóðaverkefna hjá Iðunni spjallar hér við Ástrósu um reynsluna af því að fara út til Tallin.
Eva Karen Þórðardóttir hjá Effect ræðir hér við Guðna Erlendsson mannauðsstjóra Samkaupa.
Mikil saga og menning er fyrir fræðslu hjá Samkaupum. Kaupmannsskólinn var rekinn eins og hefðbundinn skóli með staðbundnum námskeiðum sem nú hafa verið færð mikið til yfir í rafræna fræðslu. Covid hjálpaði til við að ýta undir umbreytinguna þó að vissulega hafi sú vinna verið hafin áður. Guðni segir Samkaup einnig vera í góðum samskiptum við Bifröst hvað varðar námsleiðir fyrir starfsfólk.
Alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík fær til sín margar milljónir gesta ár hvert. Það kallar á að starfsfólk viti nákvæmleg til hvers er ætlast af því og hlotið viðeigandi þjálfun. Gerður Pétursdóttir fræðslustjóri Isavia er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli en hún hefur ásamt öflugu teymi byggt upp Isavia skólann síðan árið 2016.
Ásgeir Valur Einarsson leiðtogi sjálfbærnimála hjá Iðunni ræðir hér við Jennifer Schwalbenberg lögfræðing um tilskipun ESB um sjálfbærniupplýsingagjöf og hvernnig hún á eftir að hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki.
Upplýsingagjöf í sjálfbærni felur í sér hvernig við komum á framfæri þeim upplýsingum sem við erum að safna um sjálfbærniþætti og tilgreinir þau markmið og stefnur sem settar eru varðandi m.a. kolefnisspor, loftlagsmál og starfsmannastefnu.
Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Tækniseturs er hér í afar fróðlegu spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga nýsköpunar hjá Iðunni. Tæknisetur byggir á fjögurra áratuga reynslu á sviði efnistækni, lífvísinda og orkumála. Það er öflugur samstarfsaðili í hagnýtum rannsóknar og þróunarverkefnum og býr yfir sérhæfðum búnaði og aðstöðu sem er gagnast sprotafyrirtækjum á sviði hátækni.




















