DiscoverKonungssinnar í Kísildal
Konungssinnar í Kísildal
Claim Ownership

Konungssinnar í Kísildal

Author: RÚV Hlaðvörp

Subscribed: 122Played: 857
Share

Description

Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í febrúar.

Frá því að hann tók við embætti forseta hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið.


Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar.


Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir.

Í þessum þáttum sökkvum við okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal.


Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson.


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

10 Episodes
Reverse
Elon Musk hefur lýst yfir mikilli vanþóknun á nýju frumvarpi Bandaríkjaforseta, Big, Beautiful Bill, því það mun auka ríkisútgjöld og vinna gegn þeirri miklu niðurskurðarvinnu sem Musk og liðsmenn hans í DOGE, hagræðingahópnum, hafa staðið í síðastliðna 130 daga. Hvort þetta þýði að áhrif Musks fari minnkanndi í Hvíta Húsinu á eftir að koma í ljós. En fyrir hvað stendur hann, fyrir hverju berst hann og á hvað trúir hann? Hvernig tengist nýlenda á Mars börnunum 14?Efni sem var notað við gerð þáttarins:Ævisagan Elon Musk eftir Walter Isaacson (2023)Viðtöl við Elon Musk og fleira:Elon Musk: War, AI, Aliens, Politics, Physics, Video Games, and Humanity | Lex Fridman Podcast #400 https://www.youtube.com/watch?v=JN3KPFbWCy8Elon Musk at Qatar Economic Forumhttps://www.youtube.com/watch?v=76nZJbiSTqQJoe Rogan Experience #2281 - Elon Musk https://www.youtube.com/watch?v=sSOxPJD-VNoElon Musk delivers SpaceX update on Starship, Mars goals and more at Starbasehttps://www.youtube.com/watch?v=0nMfW7T3rx4Í ljósi sögunnar: Ættir og ævi Elon Muskhttps://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/b78sch Elon Musk í Norður-Ameríkuhttps://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/b78sciAnnað efni:We Went To The Town Elon Musk Took Hostage https://www.youtube.com/watch?v=5cZEZoa8rW0The Tactics Elon Musk Uses to Manage His ‘Legion’ of Babies—and Their Mothershttps://www.wsj.com/politics/elon-musk-children-mothers-ashley-st-clair-grimes-dc7ba05cOn the Campaign Trail, Elon Musk Juggled Drugs and Family Dramahttps://www.nytimes.com/2025/05/30/us/elon-musk-drugs-children-trump.htmlLongtermismhttps://www.williammacaskill.com/longtermismÁhrifarík umhyggja - umfjöllun í Lestinnihttps://www.ruv.is/utvarp/spila/lestin/23619/b72p37/georg-ludviksson-um-effective-altruism  Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Varaforseti Bandaríkjanna er kaþólskari en Páfinn. Hann fann trúna fyrir örfáum árum, skírðist til kaþólskrar trúar og segir það móta mjög sýn sína á pólitík. Áður en J.D. Vance hélt inn á hið pólitíska svið var hann metsöluhöfundur. Árið 2016 gaf hann út Hillbilly Elegy, þar sem hann lýsir uppvexti sínum í Ohio og Kentucky, þar sem hann bjó við óöruggar heimilisaðstæður en með hjálp ömmu sinnar og afa rættist úr honum. Það rættist ansi vel úr honum, eftir fjögur ár í hernum og tvö í háskóla hlaut Vance inngöngu í laganám hins virta Yale-skóla. Þar kynntist hann örlagavaldi í sínu lífi, fjárfestinum Peter Thiel. Vance á marga vini í Kísildalnum og það mætti segja að hann tengi saman tæknigeirann og þjóðernispopúlistana sem fylkja sér á bak við Trump. Efni sem var notað við gerð þáttarins:Sjálfævisagan Hillbilly Elegy eftir J.D. Vance (2016)Aðrir textar og viðtöl við J.D. Vance:How I joined the resistance -https://thelampmagazine.com/blog/how-i-joined-the-resistanceJD Vance speaks at private Teneo Network Event, Sept 21 https://www.youtube.com/watch?v=XU7n4id7uSMJD Vance on his faith and Trumps most controversial policieshttps://www.nytimes.com/2025/05/21/opinion/jd-vance-pope-trump-immigration.htmlRegime Change and the Future of Liberalism | Patrick Deneen, JD Vance Kevin Roberts & Christine Embahttps://www.youtube.com/watch?v=2ZbsiKEhy-8&t=2943sRæða á American dynamism-conferencehttps://www.presidency.ucsb.edu/documents/remarks-the-vice-president-the-american-dynamism-summitGreinar um J.D. Vance og hugmyndir hans:How (and why) J.D. Vance does ithttps://www.economist.com/united-states/2025/04/03/how-and-why-jd-vance-does-itWhat is postliberalism? How a Catholic intellectual movement influenced JD Vance’s political viewshttps://www.pbs.org/newshour/politics/what-is-postliberalism-how-a-catholic-intellectual-movement-influenced-jd-vances-political-viewsPope Francis and JD Vance clash over “ordo amoris”https://www.ncregister.com/cna/pope-francis-vance-clash-over-ordo-amorisThe rise of pronatalismhttps://www.theguardian.com/us-news/2025/mar/11/what-is-pronatalism-right-wing-republicanThe talented J.D. Vancehttps://www.theatlantic.com/magazine/archive/2025/07/jd-vance-reinvention-power/682828/J.D. Vance's short career in venture capitalhttps://www.axios.com/2024/07/16/jd-vance-venture-capital-career Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í áttunda þættinum sökkvum við okkur ofan í baráttuna gegn dauðanum sem er háð þessa dagana í Kísildalnum og mögulega í heilbrigðisráðuneyti Donalds Trump. Peter Thiel, Jeff Bezos, Sam Altman og fleiri tækniforstjórar moka peningum í rannsóknir á langlífi. Þeir ætla að lifa að eilífu. Andlit þessarar hugmyndafræði er Bryan Johnson, undir formerkjunum Don’t Die, ekki deyja. Við skoðum tengsl Trans-húmanisma við MAHA-hreyfinguna svokölluðu, Make America Healthy Again. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði og hefur sérhæft sig í frjálshyggju. Hann þekkir til í Silicon Valley, hefur hitt Peter Thiel og einnig marga helstu hugsuði frjálshyggjunnar. Hann hefur rætt við Thatcher og Hayek og Milton Friedman. Fáir þekkja hægristefnuna jafn vel og hafa barist jafn mikið fyrir sjónarmiðum frjálshyggjunnar hér á landi, í ræðu og riti. Við ræðum Trump-stjórnina, ólíkar stefnur innan bandaríska hægrisins, muninn á frjálshyggju og liberalisma (sem er víst það sama) og Kísildalinn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Á dögunum var David Sacks útnefndur gervigreindar og rafmynta-keisara hvíta hússins, semsagt helsti ráðgjafi Trump í þessum málefnum. Sacks er gamall skólafélagi Peter Thiel og JD Vance hefur sagt hann sinn nánasta félaga í Kísildalnum. Sacks eignaðist umtalsverða peninga eftir að hann tók þátt í að koma Paypal á koppinn, og hefur æ síðan verið áhugasamur um rafmyntir. Í þessum þætti sökkvum við okkur ofan í heim rafmynta og þá hugmyndafræði sem liggur honum til grundvallar - trúna á að tími ríkisvalds og skattheimtu sé að líða undir lok. Þessar hugmyndir koma meðal annars fram í forvitnilegri bók frá 1997 Sovereign Individual eftir þá William Rees-Mogg og James Dale Davidson.Við fáum stutt innlegg frá Eiríki Inga Magnússyni áhugamanni um Bitcoin og Gylfa Magnússyni hagfræðiprófessor. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í þætti dagsins kynnum við okkur hugmyndir fjárfestisins Marc Andreessen. Marc hefur þangað til nýlega verið yfirlýstur demókrati en nú styður hann Trump. Hann tók þátt í því að hjálpa Trump að velja inn starfsfólk í nýju Trump-stjórnina og kallar sig ólaunaðan lærling hjá D.O.G.E. Hvað gerðist? Hverjar eru skoðanir Marc Andreessen, sem hefur stundum verið kallaður hugmyndafræðingur Kísildalsins? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fjórði þátturinn er með óvenjulegu sniði. Við fáum til okkar viðmælendur sem hjálpa okkur að skilja stofnun bandaríska lýðveldisins og frjálslyndisstefnuna, liberalismann, sem Peter Thiel og fleiri álíta að sé komin á endastöð.Viðmælendur: Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Páll Rafnar Þorsteinsson heimspekingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Við fjöllum um útópískar hugmyndir Kísildalsins, meðal annars Netríkið, Network State, sem Balaji Srinivasan hefur talað fyrir. Við ræðum meðal annars GAZA Inc, Prospera og tilraunir Praxis til að kaupa Grænland. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Curtis Yarvin er tölvunarfræðingur og bloggari. Hann er líka maður myrku upplýsingarinnar, eða Dark Enlightenment og hann hefur lengi talað fyrir því að Bandaríkin þurfi að taka upp konungsveldi. Við kynnum okkur hugmyndir Curtis Yarvin eða Mencious Moldbug, eins og hann kallaði sig áður, og tengsl hans við Hvíta húsið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Við fjöllum við um þýsk-amerísk-nýsjálenska fjárfestinn Peter Thiel, læriföður varaforsetans JD Vance og fyrsta áhrifamanninn úr Silicon Valley sem studdi við Donald Trump.Það efni sem við notuðum við gerð þáttarins var meðal annars eftirfarandi:Textar eftir Peter Thiel:- Zero to One: Notes on Startups, Or How to Build the Future (2014)- Education of a Libertarian (2009):https://www.cato-unbound.org/2009/04/13/peter-thiel/education-libertarian/- The Straussian Moment (2007):https://gwern.net/doc/politics/2007-thiel.pdfViðtöl við Thiel:- Triumph of the Counter-Elites (2024):https://podcastnotes.org/honestly-with-bari-weiss/peter-thiel-on-the-triumph-of-the-counter-elites-honestly-with-bari-weiss/- Peter Thiel is taking a break from democracy (2023):https://www.theatlantic.com/politics/archive/2023/11/peter-thiel-2024-election-politics-investing-life-views/675946/- The state contains violence (2023):https://www.youtube.com/watch?v=qh_nxwTwKrgUmfjallanir blaðamanna um Thiel- Ævisagan The Contrarian: Peter Thiel and Silicon Valley's Pursuit of Power (2019) eftir Max Chafkin.- Inside the New Right, Where Peter Thiel Is Placing His Biggest Bets (2022):https://www.vanityfair.com/news/2022/04/inside-the-new-right-where-peter-thiel-is-placing-his-biggest-bets Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Comments