DiscoverHið yfirnáttúrulega
Hið yfirnáttúrulega
Claim Ownership

Hið yfirnáttúrulega

Author: Ghost Network®

Subscribed: 83Played: 1,188
Share

Description

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega.

Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum.

Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls.

Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.

78 Episodes
Reverse
78. Klón

78. Klón

2026-03-1101:15:56

Klónun er ekki vísindaskáldskapur, Klón er tækni sem notuð í heiminum í dag!Frá því að sauðkindin Dolly var klónuð árið 1996 breyttist allt. Vísindamenn sýndu að hægt væri að endurskapa líf úr einni frumu. En spurningin er ekki bara hvernig er klónað heldur afhverju er verið að klóna?Hver var raunverulegur tilgangur klónunar? Er það til þess að bjarga dýrategundum, eða til þess að þróa lækningar, Eða eitthvað miklu dularfyllra en það.....?Sumir velta því fyrir sér hvort klón þekkingin hafi komið hraðar en hún ætti að gera og mögulega tæknileg viska frá ójarðnenskum verum.Í þessum þætti skoðum við staðreyndirnar um klónun, tilgang hennar og þær dularfullu spurningar sem fylgja henni. Við köfum í samsæriskenningar um klónin í Hollywood og hverjir eru taldir vera klónaðir, eru þeir sem eru á bak við klónun á fólki mögulega Iluminati?Stundum er raunveruleikinn bara miklu ótrúlegri en skáldskapurinn.Mentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
77. Sálarskipti

77. Sálarskipti

2026-03-0910:36

Hvað ef sálin er ekki bundin líkamanum?Hvað ef „þú“ ert ekki líkaminn þinn heldur eitthvað sem hægt er að færa?Sálarskipti, eða soul swapping, er hugmynd sem hefur birst í fornum trúarhugmyndum, dulfræðum kenningum og nútíma samsærisumræðu. Sumir trúa því að meðvitund sé orka sem hægt sé að flytja á milli líkama. og að það sé til tækni sem getur tekið persónuleika, minningar, taugakerfið ofl. og fært það allt saman yfir í annan líkama og halda áfram að lifa í þeim líkama!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift áwww.patreon.com/hidyfirnatturulega
Í dag ætlum við að kafa inn í heim yfirnáttúrulegra vera, furðulegra, dularfullra og stundum ógnvekjandi fyrirbæra sem hafa fylgt mannkyninu í gegnum aldirnar.Við kynnumst m.a. verum sem kallast Selkies úr Íslenskum þjóðsögum, en þetta eru selir sem geta farið úr ham sínum og breyst í menn. Fresno Nightkrawler er undarleg vera sem er eiginlega bara hægt að lýsa sem krúttlegir hvítir fætur og án frekari útlima. Árið 2007 náði öryggismyndavél í borginni Fresno undarlegu fyrirbæri á filmu sem síðar fékk nafnið Fresno Nightcrawler.Kentár er hálfur hestur og hálfur maður, þessi vera kemur úr grískri goðafræði. Kentárar bjuggu í fjöllum og skógum og voru oft taldir villtir, drykkfelldir og óstýrilátir. Þeir tákna oft frumkraft, dýrslegt eðli og togstreitu milli siðmenningar og eðlishvatar.Við kynnumst einnig Fönix fuglinn sem rís úr öskunni, djöfullegri veru sem kallast Keres.Mentioned in this episode:Komdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
Við höldum áfram þar sem við hættum með honum Gunnari Dan geimveru sérfræðing.Bókin Ufo 101 er að finna á flestum stöðum þar sem þú getur keypt bækur! Þetta er svo falleg og vegleg bók sem enginn áhugamaður um ójarðnensk öfl og verur ætti að láta fram hjá sér fara!Ufo 101:Við erum ekki ein! Jörðina heimsækja reglulega gestir utan úr geimnum sem búa yfir langtum þróaðri tækni en við mannfólkið. Þessar heimsóknir skilja eftir sig spor. Fjöldi fólks hefur sagt frá samskiptum við aðkomnar verur. Enn fleiri eru til vitnis um geimverur hér á jörð en óttast að stíga fram og segja frá reynslu sinni.En nú hefur hulunni verið svipt af sannleikanum og frekari upplýsingar eru að koma í ljós. Vitnaleiðslur fyrir Bandaríkjaþingi sýna hvernig djúpríki og leyniþjónustur rannsaka geimverur og tækni þeirra en halda vitneskju jafnframt frá almenningi.Gunnar Dan fjallar hér með lifandi og grípandi hætti um geimverur, fljúgandi furðuhluti og sögu samskipta mannkyns við ójarðneskar verur.
Í þessum þætti förum við um víðan völl og fáum að vita allt það heitasta og nýjasta í geimfréttum. Það er ekkert skemmtilegra en að kíkja í kaffi til Gunnars og heyra æsifréttirnar í ufo og geimveru heiminum!Gunnar er okkar helsti geimveru sérfræðingur og var hann að gefa út bókina Ufo 101 og er önnur bók í smíðum og kemur út í haust.Bókin Ufo 101 er að finna á flestum stöðum sem selja bækur! Við mælum svo sannarlega með að þið tryggið ykkur eintak eða leigið á bókasafni og kíkið á þessa mögnuðu bók!Ufo 101:Við erum ekki ein! Jörðina heimsækja reglulega gestir utan úr geimnum sem búa yfir langtum þróaðri tækni en við mannfólkið. Þessar heimsóknir skilja eftir sig spor. Fjöldi fólks hefur sagt frá samskiptum við aðkomnar verur. Enn fleiri eru til vitnis um geimverur hér á jörð en óttast að stíga fram og segja frá reynslu sinni.En nú hefur hulunni verið svipt af sannleikanum og frekari upplýsingar eru að koma í ljós. Vitnaleiðslur fyrir Bandaríkjaþingi sýna hvernig djúpríki og leyniþjónustur rannsaka geimverur og tækni þeirra en halda vitneskju jafnframt frá almenningi.Gunnar Dan fjallar hér með lifandi og grípandi hætti um geimverur, fljúgandi furðuhluti og sögu samskipta mannkyns við ójarðneskar verur.Mentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskrift
Í þættinum í dag köfum við ofan í bresku heimildarmyndina Confessions of an Alien Abductee, þar sem fylgst var með fólki sem taldi sig hafa verið brottnumið ítrekað yfir ævina.Í þáttunum eru m.a. lýsingar frá manni sem heldur því fram að hann eigi móður sem er geimvera og einnig að hann hafi átt í nánu og kynferðislegu sambandi við veru utan úr geimnum, samband sem hann lýsir sem bæði líkamlegu og tilfinningalegu.Við kynnumst einnig einstaklingum sem lýsa endurteknum heimsóknum og æknisfræðilegum „aðgerðum“ um borð í óþekktum farartækjum.Sumir viðmælendurnir líta á þessar upplifanir sem köllun eða sérstakt hlutverk í stærra kosmísku samhengi. Aðrir lýsa djúpum ótta, skömm og einangrun og baráttu við að fá einhvern til að trúa sér.Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
Svefnlömun er ástand þar sem heilinn er vakandi en líkaminn er enn í djúpsvefni og þú getur ekki hreyft líkamann. Þetta gerist vegna þess að í REM-svefni slakar líkaminn á vöðvum til að koma í veg fyrir að við framkvæmum draumana okkar. Stundum vaknar meðvitundin áður en þessi vöðvalömun hverfur og þá upplifir einstaklingurinn að hann sé vakandi en fastur í eigin líkama.Margir sem upplifa svefnlömun segja að hún geti verið mjög ógnvekjandi. Algengt er að finna fyrir þrýstingi á brjósti, erfiðleikum við að anda og sterkri tilfinningu um ótta. Sumir upplifa einnig ofskynjanir, það er að sjá, heyra eða skynja hluti sem eru ekki raunverulega til staðar.Fólk sem hefur upplifað svefnrofalömun lýsa flest svipuðum hræðilegum verum sem þau sjá í þessu ástandi, þar má nefna: skuggaveru sem stendur í horni herbergisins eða við rúmið, púka eða djöfullegar verur, gamla konu sem er hræðileg, geimverur og allskonar hræðilegar verur.Önnur algeng lýsing er vera sem situr á brjósti viðkomandi. Fólk finnur þá fyrir miklum þrýstingi á bringunni og á erfitt með að anda.Sumir upplifa að veran hvísli, gefi frá sér hljóð eða reyni jafnvel að snerta þá. Í nútímanum tengja sumir slíkar upplifanir við geimverur eða svokallaðar „alien abductions“ þar sem fólk upplifir að vera rannsakað eða numið brott.Svefnlömun er í sjálfu sér ekki hættuleg, en hún getur verið mjög raunveruleg og skelfileg fyrir þann sem upplifir hana.Mentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
71. The Glimmer man

71. The Glimmer man

2026-02-1611:04

Í dag ætlum við að fjalla um dularfullt fyrirbæri sem kallast The Glimmer Man. Við viljum taka fram að það var mikill galsi og gleði í þessari upptöku! En okkur þykir bara svoooooo gaman að taka svona undarleg mál fyrir og erfitt að vera ekki í smá hláturskassti á meðan...ENThe Glimmer man er heiti sem sumir nota yfir yfirnáttúrulega veru eða skugga sem fólk segist hafa séð, en sem er ekki alveg sýnilegur. Fólk sem lýsir The Glimmer Man segir oft að fyrirbærið líti út eins og mannslaga skuggi sem er gegnsær en með glóandi augu.Það eru margar kenningar um hvað þetta gæti verið. Sumir halda að þetta séu andar eða aðrar yfirnáttúrulegar verur. Aðrir telja að um geti verið að ræða geimverur með háþróaða tækni sem gerir þær ósýnilegar. Enn aðrir nefna möguleikann á verum úr annarri vídd. Hins vegar eru engar vísindalegar sannanir sem styðja þessar hugmyndir.
70. Remote viewing

70. Remote viewing

2026-02-1150:11

Remote viewing er lýst sem aðferð þar sem einstaklingur reynir að fá upplýsingar um fjarlægan stað, hlut eða atburð án þess að vera líkamlega til staðar, og án þess að nota hefðbundin skynfæri.Hugmyndin byggir á því að vitundin sé ekki bundin við tíma og rúm, heldur geti hún ferðast, skynjað og upplifað veruleika sem liggur utan hefðbundinna skynfæra. Margir sem hafa stundað remote viewing lýsa upplifunum sem minna á djúpa hugleiðslu, innsæi eða meðvitaða tengingu við stærra svið upplýsinga.Sumir tala um upplifanir þar sem vitundin hefur ferðast til tunglsins, þar sem þeir lýsa landslagi, mannvirkjum eða tilfinningu fyrir nærveru sem þeir telja ekki vera tilviljun. Aðrir segja frá sýnum tengdum svæðum eins og Area 51, þar sem þeir upplifa aðgang að upplýsingum sem eru faldar almenningi, hvort sem það er í formi tákna, mynda eða tilfinninga sem koma fram í djúpu einbeitingarástandi.Mentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
69. Fake miðlar

69. Fake miðlar

2026-02-0910:06

Í dag ætlum við að ræða andlega miðla og spámiðla nánar tiltekið þá sem eru ekki að starfa af heiðarleika. Margir leita í andlega þjónustu á erfiðum tímum í lífinu: í sorg, óvissu eða þegar fólk er að leita að svörum en þar liggur líka hættan.Því miður eru til einstaklingar sem nýta sér trú, vonir og viðkvæma stöðu fólks í eigin þágu. Þeir geta notað almenn orð, sálfræðileg brögð og óljósar spár sem hljóma persónulegar án þess að hafa raunverulega innsýn eða getu.Markmið þessa þáttar er ekki að gera lítið úr trú fólks eða andlegri leit, heldur að:Vekja athygli á því að ekki eru allir með góðan ásetning og sækjast í peninga og misnota vald sitt.Við tölum um rauðu flöggin sem birtast hjá fake miðlum.Lang flestir þarna úti eru heiðarlegir og með hjartað á réttum stað, en því miður er fólk að lenda í svikaprettum á viðkvæmum tímum og við viljum vekja athygli á því í þessum þætti.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega
68. Man in black

68. Man in black

2026-02-0431:16

Ef þú skyldir sjá fljúgandi furðuhlut eða eitthvað yfirnáttúrulegt sem er ekki á þessari jarðvist og segir frá því, þá gætu komið dularfullir menn í heimsókn til þín. Þetta eru mennirnir í svörtu jakkafötunum með svarta hatta og sólgleraugu þekktir sem Man in black og er kvikmyndin Man in black byggð á þessum mönnum.Það veit enginn fyrir hverja þeir starfa en eitt er víst að þeir eru mjög dularfullir og geta verið ógnvekjandi með þann ásetning að fjarlægja sönnunargögn eða fá þig til að tala ekki um það sem þú sást opinberlega. Fólk sem hefur fengið heimsókn frá þessum mönnum hafa lýst þeim sem mjög hávöxnum og sviplausum, það undarlega er að þeir vita allt um þig og fjölskylduna þína.Komdu í áskrift áwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
Sjórinn er eitt mesta ráðgátaumhverfi Jarðar. Þrátt fyrir að hann þeki meirihluta yfirborðs plánetunnar höfum við aðeins rannsakað lítið brot af djúpinu. Þetta óþekkta rými hefur í gegnum aldirnar alið af sér fjölda samsæriskenninga.Ein sú elsta snýst um glataðar neðansjávarsiðmenningar, líkt og Atlantis, og möguleg manngerð mannvirki sem sumir telja hafa fundist á hafsbotni. Aðrir beina athyglinni að óþekktum lífverum í djúpinu, risavaxnum skrímslum úr sögum sjómanna sem fá nýtt líf í ljósi þess að nýjar og framandi sjávartegundir finnast enn í dag.Einnig hafa komið fram kenningar um leynilegar herstöðvar stórvelda á hafsbotni, sérstaklega í tengslum við kalda stríðið, sem og fræga goðsögn um Bermúdaþríhyrninginn þar sem skip og flugvélar eiga að hverfa með óútskýrðum hætti. Á síðari árum hafa svo sögur um óþekkt fyrirbæri sem fara inn og út úr sjónum ýtt undir hugmyndir um tengsl hafsins við geimverur.
Þetta eru verur sem eiga rætur í þjóðtrú og geta tekið á sig mynd dýra… eða jafnvel manna.Þessar óhugnanlegu verur þær fylgjast með, læra og herma.Á afskekktum búgarði í Utah betur þekktur sem Skinwalker Ranch. Þar hefur fólk í áratugi greint frá óútskýranlegum atburðum eins oghræðilegar verur á reiki, dýr eru drepin á hrottalegan hátt og svo sjást þessar ógeðslegu verur á kreiki sem vilja ekkert nema nærast á óttanum.
65. Risar

65. Risar

2026-01-2609:18

Risar hafa fylgt okkur í gegnum mannkynnsöguna og birtast þeir í fornum goðsögnum, í biblíunni, í þjóðsögum og jafnvel í landslagi jarðarinnar sjálfrar. En hvað ef þessar sögur eru ekki bara táknrænar? Hvað ef þær lýsa raunverulegum verum og atburðum sem hafa verið fjarlægðir úr sögunum til að fela eitthvað?Í þessum þætti skoðum við sögur af risum í Biblíunni, eins og Nefílím og köfum í samsæriskenningar sem halda því fram að ummerki um risa hafi verið markvisst þögguð niður. Þar á meðal eru furðuleg fjöll og landslagsmyndir sem sumir telja vera risavaxna trjástubba en eru mögulega leifar af risavöxnum trjám sem eitt sinn gætu hafa þakið jörðina.Komdu í áskrift og hlustaðu á þáttinn í fullri lengd á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
64. Gateway experience

64. Gateway experience

2026-01-2140:22

Við ætlum að kafa í Monroe Institute og Gateway hugleiðslurnar, kerfi sem var ekki aðeins þróað fyrir andlega leitendur, heldur einnig rannsakað og notað af CIA.Monroe Institute er skóli og rannsóknarsetur sem hefur í áratugi kennt fólki að kanna meðvitund sína með kerfisbundnum aðferðum.Gateway hugleiðslurnar eiga að geta opnað aðgang að breytt meðvitundarástandi þannig þú getur þjálfað þig upp í m.a. remote viewing og astral traveling. Þetta er ekki alveg hefðbundin hugleiðsla, heldur þjálfun sem byggir á nákvæmlega hönnuðum og vísindalega hönnuðum hljóðupptökum til að hjálpa þér að ná ákveðnum ásetningi.Komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
Hessdalen er pínu lítill dalur í Noregi. Þar hafa óútskýrð ljós birst á himninum í marga áratugi, ljós sem svífa hljóðlaust, þau breyta um lit og lögun, og skjótast fram og hverfa án skýringa. Ljósin hafa verið séð af heimamönnum, ferðamönnum og eru mæld með vísindatækjum og hafa verið rannsökuð í meira en 40 ár!Hessdalen er talinn einn helsti UFO-hot spot í Evrópu. Þar hafa sést óvenju mörg óútskýrðir fljúgandi furðuhlutir. Í þessum þætti skoðum við Hessdalen ljósin, mögulegar náttúrulegar skýringar, UFO-kenningar og hvers vegna þessi litli dalur heldur áfram að draga að sér bæði vísindamenn og áhugafólk um hið óþekkta.Vertu hluti áf yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
62. Gate program

62. Gate program

2026-01-1448:28

The GATE Program for the gifted and talented.Opinberlega átti þetta að vera prógramm fyrir hæfileikaríkt fólk. En samkvæmt frásögnum þeirra sem fóru í gegnum það, var GATE program svo miklu meira og dularfyllra en það.Börn voru tekin í fram í greindarpróf og allskonar sálfræðilegar greiningar, viðbragðspróf, blóðprufur og heyrnamælingar sem áttu að greina hvernig fólk skynjaði tíðnir, boð og áreiti. Allt endaði þetta með munnskoli í lokinn.Sumir segja að markmiðið hafi verið að finna einstaklinga sem hugsuðu öðruvísi, börn sem voru extra næm og jafnvel skyggn sem gætu þá unnið verkefni fyrir cia....
The Mall World er dularfullur og endurtekinn draumaheimur sem margir lýsa að heimsækja aftur og aftur í draumum sínum. Hann birtist oft sem risastór innanhússheimur sem sameinar verslunarmiðstöðvar, hótel, flugvelli, skóla, sundlaugar og óendanlega ganga sem virðast tengjast á óskiljanlegan hátt. Þrátt fyrir að um draum sé að ræða, upplifa margir staðinn sem óvenju raunverulegan og það skrítan er að fólk sem dreymir sig inni í Mall world lýsa umhverfinu alveg eins. Það er nánast eins og margar sálir séu farnar í þennan heim á næturna, en bara þessar völdu sálir. Afhverju dreyma þetta bara sumir en ekki allir? Það höfum við ekki hugmynd um!Sumir telja að heimurinn endurspegli undirmeðvitundina, félagslegt álag eða flótta frá raunveruleikanum, á meðan aðrir líta á hann sem sameiginlegt draumarými sem margir tengjast. Aðrir segja að þetta tengist The Gate program eða jafnvel geimverum!Allavega þetta er stórundarlegur heimur sem frú Dagný hefur oft og mörgum sinnum heimsótt, hvað þetta er í alvörunni vitum við ekki, en við erum sammála um það að þetta er frekar dularfullt, jafnvel smá óhugnanlegt.
Í dag ætlum við að tala um einn dularfyllsta stað jarðar, Bermuda-þríhyrninginn.Bermuda-þríhyrningurinn er svæði í Norður-Atlantshafi, afmarkað lauslega af Flórída, Bermúdaeyjum og Púertó Ríkó. Í áratugi hafa sögur gengið um óútskýrð hvarf skipa og flugvéla á þessu svæði. Sumir kenna um óvenjuleg segulsvið, aðrir tala um tímagáttir, geimverur eða jafnvel týnda heimsálfu Atlantíku.Er Bermuda-þríhyrningurinn raunverulegt fyrirbæri sem vísindin ná ekki utan um, eða er þetta einfaldlega samansafn ýktra sagna, rangra skýrslna og mannlegra mistaka?Í þessum þætti ætlum við að kafa ofan í söguna, frægustu hvörfin og vísindalegu skýringarnar á bak við þennan umdeilda stað og reyna að svara spurningunni:Er Bermuda-þríhyrningurinn raunverulega jafn hættulegur og orðspor hans segir til um?Mentioned in this episode:Komdu í áskrift
59. Fyrri líf

59. Fyrri líf

2026-01-0505:43

Fyrrilífs upplifanir
loading
Comments (2)

Johnny Joe (Johnny vegan)

mamman er að ljúga og scama. þannig eru langflestir miðlar, annars eru þeir geðveikir og trúa þessu sjálfir. Það þarf að athuga hvort barnið er öruggt hjá henni. kúbumálið, sennilega geimskot, drónar eða blys. jafnvel flugeldar. neanderdalsmenn voru jafn gáfaðir og við og með stærri heila. horus er jesus 1 minnir mig. ekki orkuver, þetta hefur verið afsannað svo gott sem. tæknin sem notuð var til að sjá þetta er óáreiðanleg og rannsoknaraðilarnir eru alls ekki trúverðugir.

May 28th
Reply

Johnny Joe (Johnny vegan)

ljósin yfir phoenix voru blys eða flairs úr herþotum en það fór fram heræfing lol. þau eru notuð til varnar gegn flugskeytum. það er ekki satt að þetta sé enn ráðgáta.i raunverulegu tómi er enginn tími, ef enginn tími er getur ekkert gerst. hinsvegar gerist spooky action milli atóma í geimnum og þar er tími. tíminn er til, þess vegna erum við til. fyrir mikla hvell var enginn tími þannig ekkert gat verið til.

May 28th
Reply
loading