DiscoverEkkert að þakka
Ekkert að þakka
Claim Ownership

Ekkert að þakka

Author: Stefán Ingvar Vigfússon

Subscribed: 7Played: 61
Share

Description

Grínistinn Stefán Ingvar Vigfússon fær til sín góða gesti og fer ítarlega yfir síðustu viku í lífi viðkomandi, næst leysir hann fyrir hann vandamál og loks má gesturinn spyrja Stefán að hverju sem er, en ber engin skylda til.
Ekkert að þakka.
22 Episodes
Reverse
Í öðrum þætti Spektrúms heimsækir Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir Stefán og spyr hvort afi hans hafi verið sköllóttur.
Systur hlaðvarp Ekkert að þakka!  Hvernig endurheimtir frjálsi markaðurinn votlendi?  Má keyra á fólk? Af hverju er gamalt fólk alltaf fullt? Í Spektrúm ræða gestir af hinu pólitíska sviði og ræðum fjórar skoðanir þeirra; þá vinstri sinnuðustu, þá hægri sinnuðustu, þá frjálslyndustu og þá ráðríkustu. Í fyrsta þætti situr Finnur Ricart Andrason fyrir svörum, en hann bindur vonir við að verða oddviti Vinstri grænna í Reykjavík í komandi sveitastjórnarkosningum. Höfundar Spektrúm eru Aron Martin Ásgerðarson, sem einnig er framleiðandi, og Stefán Ingvar Vigfússon.
Hver er Hugleikur Dagsson? Hann er grínisti en umfram allt, vinur Stefáns og hann myndi bjóða Stefáni í brúðkaupið sitt ef hann væri að gifta sig í dag.   Aron Martin Ásgerðarsson er framleiðandi og meðskapari Ekkert að þakka. Góða skemmtun og ekkert að þakka.
Rithöfundurinn og leikarinn Ævar Þór Benediktsson heimsækir Stefán. Aron skrópaði í vinnunni og fær tiltal í næstu viku. Ævar og Stefán töluðu um ritstörf, sköpun og grín.  Framleiðandi og meðskapari Ekkert að þakka er Aron Martin Ásgerðarson.
Stefán fær Kötlu Njálsdóttur til sín til þess að tækla stóru málin: Svefnrútínu, þemapartí og stafrænan atvinnurekstur fullorðinna iPad barna.
Leikkonan, uppistandarinn og spunaleikarinn Laufey Haraldsdóttir heimsækir Stefán og þau komast að því að þau eru ekki sammála um einn einasta hlut (nema um Hófí). Framleiðandi, meðskapari og goblin Ekkert að þakka er Aron Martin Ásgerðarson. Góða skemmtun og ekkert að þakka.
Leikkonan, grínistinn og spiritúalistinn Björk Guðmundsdóttir heimsækir Stefán og það fer allt úr böndunum. Allt. Framleiðandi og meðskapari Ekkert að þakka er Aron Martin Ásgerðarson.
Loksins grefur góða (Stefán) og vonda (Tóti) fólkið stríðsöxina. Tóti (vonda fólk) úr Ein pæling heimsækir Stefán og þeir tala um fullt. Framleiðandi og meðskapari Ekkert að þakka er Aron Martin Ásgerðarson (góða fólkið). Góða skemmtun og ekkert að þakka.
Hvað hefur Helgi Seljan að fela? Góða skemmtun og ekkert að þakka.
WE’RE BACK BABY Leikkonan og spunaleikkonan Hólmfríður Hafliðadóttir heimsækir Stefán og þau tala einna helst um klám. Góða skemmtun og ekkert að þakka.
Leikarinn, uppistandarinn og besti vinurinn Villi Neto heimsækir Stefán. Smá banter, leikhús. Góða skemmtun og ekkert að þakka.
Leikarinn, listamaðurinn og lífskúnstnerinn Níels Thibaud Girerd heimsækir Stefán. Þeir ræða leikhús, óperur, heimspeki úr Talmúdnum og allskonar fullt fleira. Góða skemmtun og ekkert að þakka.
Uppistandarinn og prakkarinn Friðrik Valur heimsækir Stefán. Þeir tala eiginlega bara um uppistand. Ekkert að þakka og góða skemmtun.
Lögfræðingurinn, varaþingmaðurinn, grínistinn og hlaðvarpsgoðsögnin Árni Helgason heimsótti Stefán. Þeir ræddu golf, drengskaparheit og margt fleira. Góða skemmtun og ekkert að þakka.
Engin önnur en Lenya Rún Taha Karim heimsækir Stefán, þau fara á dýptina og tala um hvað kærasti Lenyu er massaður til dæmis.
Svandísi Svavarsdóttur þarf vart að kynna fyrir nokkrum manni, en núna rýfur hún þögnina um hvað hún gerir á venjulegum degi.
Uppistandarinn Sóley Kristjáns heimsækir Stefán. Þau tala um grín, fjölskyldur, tímastjórnun og margt margt fleira.
Uppistandarinn og grafíski hönnuðurinn Sindri Sparkle heimsækir Stefán. Þau ræða grín, pólitík og hvort Stefán sé betri podcastari en Hugleikur Dagsson (Sindri segir já)
Stefán fær Matthías Tryggva Haraldsson, leikskáld, listrænan ráðunaut Þjóðleikhússins, fyrrverandi Hatara og tveggja barna faðir í heimsókn. Þeir ræða foreldra hlutverkið, þokuna og fjármál. Hlustaðu á þennan þátt ef þú vilt græða fullt af pening. Góða skemmtun og ekkert að þakka.
Stefán fær Arnór Björnsson, leikara og handritshöfund í heimsókn. Fyrst hrósar Arnór stúdíóinu, að eigin frumkvæði, síðan ræða þeir grín, DnD og margt fleira. Stórskemmtilegt spjall. Góða skemmtun og ekkert að þakka.
loading
Comments