Discover
Silfrið
Silfrið
Author: RÚV Hlaðvörp
Subscribed: 22Played: 201Subscribe
Share
© RÚV Hlaðvörp
Description
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
24 Episodes
Reverse
Stríð er hafið í Miðausturlöndum eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Hverjar eru ástæðurnar, og hverjar gætu afleiðingarnar orðið? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Þróun gervigreindar verður sífellt hraðari og áhrif hennar á samfélagið og vinnumarkaðinn að verða greinilegri. Vitum við hvert stefnir og erum við tilbúin? Gestir:Andri Snær Magnason rithöfundur Anna Sigríður Islind, prófessor í tölvunarfræði við HRLilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Silfrið er helgað efnahagsmálum í kvöld. Gestir okkar eru Gestir þáttarins eru Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við HR. Tekist er á um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á þingi, Það ætlar að reynast erfitt að koma verðbólgunni niður og stýrivextir eru háir og. Almenningur situr uppi með hærri lán og vöruverð, en bankarnir og risar á matvörumarkaði mala gull. Festi sem á Krónuna hagnaðist til að mynda um 6,2 milljarða í fyrra, mun meira en spáð hafði verið. Við förum yfir þessi mál og fleiri. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Epstein-skjölin hafa afhjúpað tengsl auðjöfra, stjórnmálamanna og frægðarfólks víða um heim við bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, og margir valdsmenn riða til falls, einkum í Bretlandi og Noregi. Hversu víðfeðm voru tengslin, og ná þau alla leið til Íslands? Hulda Þórisdóttir stjórnmálafræðiprófessor, Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur og Jón Trausti Reynisson blaðamaður ræða um Epstein-skjölin í Silfrinu í kvöld. Í síðari hluta þáttarins er rætt við Ingibjörgu Isaksen og Lilju Alfreðsdóttur, sem báðar sækjast eftir því að verða formaður Framsóknarflokksins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir verðbólguskot og blikur á lofti í efnahagsmálum. Síðari hluti þáttarins er helgaður umræðu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðnanna, en hlé var gert á þeim árið 2013. Ragnhildur Helgadóttir lögfræðingur og rektor HR, sem átti sæti í samninganefnd Íslands, og Sigurður Kári Kristjánsson, lögfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, rifja upp gang viðræðnanna og spá í spilin um framhaldið.Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Þórunn Guðjónsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Dagur B. Eggertsson, Jens Garðar Helgason, María Rut Kristinsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson eru gestir Silfursins.Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum, atvinnuleysi hefur aukist, það er spáð hækkandi verðbólgu, verkalýðshreyfingin varar við að forsendur kjarasamninga gætu brostið í hausti og órói í alþjóðamálum bætir gráu ofan á svart. Forsætisráðherra segir að nú sé réttur tími til að huga að aðildarviðræðum við ESB á ný. Stjórnarandstaðan telur það vera kolranga forgangsröðun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Deilan um Grænland, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna og hagsmunir Íslands eru til umræðu í þætti kvöldsins.Í fyrri hluta þáttarins er viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og stjórnarformann Hringborðs norðurslóða.Í seinni hlutanum koma þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir, Sigríður Á. Andersen, Dagbjört Hákonardóttir og Pawel Bartoszek í pallborð. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í fyrri hluta þáttarins koma Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Pétur H. Marteinsson rekstrarstjóri. Þau berjast um oddvitasætið í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Í seinni hlutanum er viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson sem er glænýr félags- og húsnæðismálaráðherra. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Aðgerðir Bandaríkjastjórnar í Venesúela hafa valdið uppnámi, þótt viðbrögð flestra ríkja hafi einkennst af varkárni. Nú óttast margir að Trump auki ásælni sína á Grænlandi. Hvar stendur Ísland í þessum veruleika, og hvernig gæti varnarsamningur okkar við Bandaríkin virkað við slíkar aðstæður? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Þetta er síðasta Silfur fyrir jól og þingið er á lokametrunum fyrir þinghlé. Formenn flokkanna á Alþingi koma og fara yfir stöðuna eins og hún horfir við þeim á miðjum þingvetri. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræðir stöðu Íslands í breyttri heimsmynd eftir að Hvíta húsið birti nýja þjóðaröryggisstefnu fyrir helgi. Í síðari hluta þáttarins koma þau Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Hildur Þórisdóttir bæjarfulltrúi í Múlaþingi og Stefán Pálsson sagnfræðingur til að ræða stjórnmálaumræðu undanfarinna daga, meðal annars um samgöngumálin. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Mál sem varða fullveldi Íslands hafa verið nokkuð til umræðu að undanförnu. Evrópusamvinna Íslendinga, varnarsamstarf, stafrænt fullveldi og tungumálið er meðal þess. Leggja allir sama skilning í hugtakið fullveldi? Halldór Benjamín Þorbergsson stjórnarformaður Almannaróms, Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor í sagnfræði við HÍ, Ragnhildur Helgadóttir rektor HR og Lóa Björk Björnsdóttir dagskrárgerðarmaður á Rás 1 eru gestir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna COP30, var haldin í vikunni sem leið í fjarveru Bandaríkjanna. Í lokayfirlýsingu hennar var samþykkt að ríkari þjóðir myndu þrefalda fjármagn til að aðstoða þjóðum sem hafa orðið verst fyrir barðinu á hlýnun jarðar. Engin samstaða náðist hins vegar um að draga úr jarðefnaeldsneyti. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, er gestur Silfursins. Á vettvangi dagsins rýnum við í hið pólitíska landslag í ljósi kólnandi hagkerfis með þeim Andreu Sigurðardóttur, blaðamanni á Morgunblaðinu, Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur blaðamanni og Þórhalli Gunnarssyni, almannatengli. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Það harðnar á dalnum samkvæmt nýrri þjóðhagsspá og Ísland kann að standa úti í kuldanum gagnvart Evrópusambandinu. Hvaða áhrif hefur þetta á kjör landsmanna og hvernig eiga stjórnvöld að bregðast við? Þingmennirnir Bergþór Ólason (M), Dagur B. Eggertsson (S) og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (D) ræða málin. Þá verður Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, í viðtali. Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hvernig greiðum við úr óvissunni á íbúðalánamarkaði? Hvaða gagn gerir fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar sem var kynntur í síðustu viku? Svo eru það áfrom Reykjavíkurborgar um að bjóða einkaaðilum að fjárfesta í byggingu grunninnviða í boðuðu hverfi á Höllum í Úlfarsárdal.Gestir eru Dóra Björt Guðjónsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, Már Wolfgang Mixa dósent við viðskiptadeild HÍ, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Halla Gunnarsdóttir formaður VR. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Bilun í verksmiðju Norðuráls kemur líklega til með að valda búsifjum. Óvíst er hversu mikil áhrifin verða fyrir þjóðarbúið, sem hefur þegar sýnt merki þess að vera farið að kólna. Þá eru húsnæðislánamarkaður í uppnámi: í kjölfar dóms Hæstaréttar um ólöglega skilmála á óverðtryggðum lánum hafa bankarnir þrengt lánakjör sín og Landsbankinn ætlar að hætta að veita verðtryggð lán nema fyrir fyrstu kaupendur. Við förum yfir stöðuna með Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, Ragnari Þór Ingólfssyni, þingmanni Flokki fólksins, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, varaformanni Framsóknarflokksins, og Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, þingmanni Samfylkingarinnar. Í seinni hluta þáttar ræðum við við Carstein Staur, formann Þróunarsamvinnunefndar OECD, um breytt landslag í þróunarsamvinnu eftir stórfelldan niðurskurð stórra framlagsríkja til opinberrar þróunaraðastoðar það sem af er ári. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Silfrið heldur sig á innlendum vettvangi þessa vikuna. Verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra setja samgöngur úr skorðum, viðskiptabankar gera hlé á veitingu verðtryggðra lána meðan þeir ná áttum eftir vaxtadóm Hæstaréttar, og Sigurður Ingi Jóhannsson hefur tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér aftur sem formaður Framsóknarflokksins. Við förum yfir þessi mál og fleiri með þingmönnunum Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, Ingibjörgu Isaksen, Ólafi Adolfssyni og Snorra Másssyni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Við ræðum við Vladirmir Kara-Murza, sem er rússneskur stjórnarandstæðingur. Hann hefur lifað af tvær eitranir og fékk 25 ára fangelsisdóm í öryggisfangelsi í Síberíu fyrir að gagnrýna innrás Rússa í Úkraínu. Hann fékk frelsi í fangaskiptum í fyrra.Þá eru margar spurningar um framhaldið þegar vopnahlé er komið á, á Gaza. Til að ræða það mál koma Hallgrímur Indriðason fréttamaður, Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Unicef. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Við byrjum á vettvangi dagsins. Ýmis teikn benda til að hagkerfið sé að kólna, vinnumálastofnun var tilkynnt um fimm hópuppsagnir í september, fyrir utan gjaldþrot Play. Þá hefur ríkisstjórnin boðað sérstaka atvinnustefnu og lætur í skína að nú sé liðinn sá tími að hagvöxtur sé fyrst of fremst borinn uppi af innfluttu vinnuafli. Gestir Silfursins eru Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og Einar Freyr Elínarson, bæjarstjóri í Mýrdalshreppi. Í seinni hluta þáttar ætlum við að ræða við mann að nafni John Fund, þrautreyndan blaðamann frá Bandaríkjunum sem skrifað hefur meðal annars fyrir Wall Street Journal en er nú einn af ritstjórum National Review, tímariti Íhaldsmanna þar í landi. Hann hefur þekkt og skrifað um Donald Trump Bandaríkjaforseta í meira en 40 ár - og segir að hann sé kominn á yfirsnúning, vitandi að tími hans sé af skornum skammti. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri er í viðtali um ýmis mál sem hefur verið deilt um í borginni að undanförnu. Þá ræða Hörður Ægisson ritstjóri Innherja, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri íslenska ferðaklasans og Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair um fall Play. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.




