DiscoverTvær á báti
Tvær á báti
Claim Ownership

Tvær á báti

Author: Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir

Subscribed: 20Played: 145
Share

Description

Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir eru tvær miðaldra hlaupakonur sem hafa náð góðum árangri í hlaupum í aldursflokknum 40 – 49 ára. Þær þreytast ekki á að tala um hlaup og setja sér ný markmið. Í hlaðvarpsþættinum Tvær á báti ræða þær um hlaup út frá ýmsum hliðum, fá til sín góða gesti og segja hlaupasögur. Fyrst og fremst eru þær þó venjulegar konur að gera hlaðvarp fyrir venjulega hlaupara.
18 Episodes
Reverse
Linda og Álfrún eru næstum komnar aftur á beinu brautina eftir að hafa lagt allt í sölurnar í maraþoni fyrir tæpum þremur mánuðum. Þær ræða einnig brautina, MÍ öldunga, MÍ 2026, hálft í París eftir viku og langan aðskilnað í febrúar.
Þjálfari ársins

Þjálfari ársins

2026-02-1301:26:14

Þjálfari ársins hjá Þrótti, Jens Elvar Sævarsson mætti sem gestur og gestastjórnandi í fjarveru Álfrúnar. Hann er án gríns alltaf í góðu skapi og segist tileinka sér jákvæða hluti í fari annarra. Haustið 2025 byrjaði hann með hlaupahóp Þróttar og stefnir á að ná fjöldanum upp í 100 meðlimi. Það skemmir svo ekki fyrir að honum finnst hrikalega gaman að rausa um hlaup og heilbrigðan lífsstíl og smellpassaði því í settið.
Reiknum okkur góðar

Reiknum okkur góðar

2026-02-0601:28:37

Í þættinum ræða Linda og Álfrún við Fríðu Rún hlaupakempu með meiru. Hlaupari á heimsmælikvarða í sínum aldursflokki. Hún sagði frá mjög áhugaverðum ferli, gaf góð ráð og kom á óvart með skemmtilegum sögum af sjálfri sér. Frábær hlustun fyrir langa hlaupið um helgina.
Tvær á báti eru að komast upp úr janúarlægðinni og fóru um víðan völl í rausi dagsins. Félagaskipti, sól í perlu, hvernig þær komast reglulega í tísku og síðast en ekki síst mini körfuboltahorn.
Í þættinum fá Álfrún og Linda hlauparann Huldu Guðnýju Kjartansdóttur í viðtal en hún hljóp sitt besta maraþon í Valencia á dögunum. Þær þrjár fóru yfir hlaupaferil Huldu og markmiðin hennar fyrir 2026. Þegar þessar þrjár hittast er heldur betur malað og nauðsynlegt að hafa framhaldsþátt.
Uppgjör nýliðans (65'E)

Uppgjör nýliðans (65'E)

2026-01-0801:04:21

Í þessum fyrsta þætti 2. seríu hlaðvarpsins Tvær á báti kemur nafnlausi nýliðinn Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona og gerir upp hennar Valencia eða Gamlárshlaup ÍR. Virkilega skemmtileg og hvetjandi yfirferð fyrir hlaupara sem eru að koma sér af stað á nýju ári.
40'E

40'E

2025-12-2339:47

Í þessum lokaþætti ársins hjá Tveimur á báti fá Linda og Álfrún nafnlausa nýliðann með sér í settið. Uppleggið í Gamlárshlaupinu er rætt og farið yfir síðustu æfingarnar fyrir stóra daginn. Nýliðinn kom færandi hendi með tvennar Costco buxur og er brattur fyrir hlaupinu þann 31.12.
60'E

60'E

2025-12-1301:01:09

Í 11. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fara Álfrún og Linda yfir alla vegferðina í Valencia. Ekki bara uppgjör á hlaupinu sjálfu heldur öll helstu smáatriðin í ferðinni, allar áhyggjurnar sem geta fylgt maraþonhlaupi kvíðann fyrir veðrinu og klósettferðir.
85'E

85'E

2025-11-2801:23:57

Í 10. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fá Álfrún og Linda sjálfan Arnar Pétursson einn besta hlaupara landsins og þjálfara þeirra beggja í settið. Í þættinum fara þau yfir lokametrana í vegferðinni til Valencia og ræða undirbúning fyrir maraþon.
50'E

50'E

2025-11-1754:09

í 9. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti hringja Álfrún og Linda til Danmerkur og heyra í nýju uppáhalds hlaupafyrirmyndinni sinni, Jónu Dóru Óskarsdóttur. Hún hefur náð þvílíkum bætingum í öllum hlaupavegalengdum og er 53 ára gömul. Alveg svakalega þreyta einkennir Valencia vegferðina og Nafnlausi nýliðinn er örlítilli brekku.
55'E

55'E

2025-11-1052:28

Í 8. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti hringja Álfrún og Linda til New York frá París og heyra í öðrum hlaupanýliða, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur sem er að farin elska hlaupin. Nafnlausi nýliðinn átti frábæra viku meðan það var smá brekka í vegferðinni til Valencia.
95'E

95'E

2025-11-0401:33:29

Í 7. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti taka Álfrún og Linda drottningarviðtal við Hlaupabjössa aka Bjössa Borko meðlim hljómsveitarinnar FM Belfast. Í viðtalinu segir hann frá því hvernig hlaupin björguðu lífi hans tvisvar. Vegferðin til Valencia er á sínum stað að ógleymdu símtali við Nafnlausa nýliðann.
65'E

65'E

2025-10-2501:04:50

Í 6. þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fara Álfrún og Linda yfir fasta liði eins og vegferðina til Valencia og Nafnlausa nýliðann. Þær setja sig líka í spor hlauparanna Arnars Péturs og Þorsteins Roy í Víðavangshlaupinu og enda síðan á einni góðri skemmtisögu úr hlaupaferð.
100’E

100’E

2025-10-1701:37:57

Í fimmta þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fá Linda og Álfrún Dr. Vöku Rögnvaldsdóttur í frábært spjall um svefn, hjartslátt, æfingaálag og fleira. Fastir liðir þáttarins eru að sjálfsögðu á sínum stað líka.
60'E

60'E

2025-10-1101:01:07

Í fjórða þætti hlaðvarpsins Tvær á báti rausa Álfrún og Linda enn meira um hlaup. Þær fara yfir 90 km vikuna í Valencia vegferðinni og kynna nýjan styrktaraðila, Fætur toga, fyrir Nafnlausa nýliðann. Mittispyngjan góða er áfram til umræðu ásamt hlaupurum sem hafa verið að standa sig vel.
80'E

80'E

2025-10-0301:19:09

Í þriðja þætti hlaðvarpsins Tvær á báti kynna Linda og Álfrún inn nýjan lið, Nafnlausa nýliðann. Einnig fáum við glóðvolgar sögur um hitann í Berlínarmaraþoninu sem var á dögunum. Valencia vegferðin verður á sínum stað ásamt almennu rausi um hlaup, þó aðeins minna frá okkur en meira frá gestum. 
70'E

70'E

2025-09-2501:07:10

Magnið eykst og þættirnir lengjast. Í öðrum þætti hlaðvarpsins Tvær á báti fjalla Álfrún og Linda um hálfmaraþonið í Kaupmannahöfn, tilraun Bolla Más Bjarnasonar til sub50 í 10 km, Valencia vegferðina og síðast en ekki síst stóru spurninguna í startinu: Hvar er klósettið?
40'E

40'E

2025-09-1845:11

Í fyrsta þætti Tveggja á báti segja Álfrún og Linda stuttlega frá hlaupaferlinum og því sem framundan er. Þær velta því fyrir sér hvort nú sé rétti tíminn fyrir þær til að byrja með hlaupahlaðvarp þar sem fjallað er um venjulegt fólk á hlaupum og hvernig væri best að byggja upp þættina. 
Comments