DiscoverMeð lífið í lúkunum
Með lífið í lúkunum

Með lífið í lúkunum

Author: HeilsuErla

Subscribed: 505Played: 12,586
Share

Description

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.


Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

182 Episodes
Reverse
Í nýjasta þættinum af Með lífið í lúkunum settist ég niður með Hrund Gunnsteinsdóttur, höfundi, leiðtogaþjálfa, fyrirlesara, frumkvöðli og könnuði. Hrund hefur um árabil rannsakað innsæið, bæði frá vísindalegu og andlegu sjónarhorni. Hún er meðal annars höfundur bókarinnar InnSæi og leikstjóri samnefndrar heimildarmyndar. Í þessu áhugaverða samtali förum við víða og veltum meðal annars fyrir okkur: Hvað er innsæi og hvernig greinum við það frá ótta?Getum við þjálfað innsæið eins og vöðva?Hver...
Í þættinum ræðir Erla við Hrund Ottósdóttur, höfund bókarinnar Skömmin var aldrei mín. Í þessari sjálfsævisögu deilir Hrund sögu sem snertir djúpt. Saga um fjölskyldubönd, þögn, áföll, fíkn, sorg og missi, en ekki síður um hugrekki, sjálfsvinnu, að rjúfa gömul mynstur og finna leiðina út úr gömlum vítahring. Þetta er samtal sem minnir okkur á að við berum ekki ábyrgð á því sem við urðum fyrir en á sama tíma að við berum ábyrgð á okkur og okkar hegðun. Takk til ykkar sem hlustið og sérstak...
Í þessum þætti ræðir Erla við alveg hreint dásamleg stelpukonu, Guðrúnu Hafþórs, um lífið og tilveruna, heilsumissi, streitu, myglu, áhrif áfalla, leitina að heilsunni, um ofurkonuna og dugnaðinn sem drepur! Á Instagram síðu sinni deilir Guðrún raunveruleikanum á einlægan og hispurslausan hátt undir slagorðinu „vott jú sí is vott jú get“. Þar fjallar hún um lífið eins og það er í heilsuorlofi, bæði hæðir og lægðir og reynir að smita gleði og dreifa glimmeri. Þessi þáttur er einnig í mynd og v...
Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um nýju bókina hans “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social magic and its decadence”. Bókin fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar og varpar ljósi á þá þversögn hvernig fjölbreyttari og víðtækari samskiptahættir hafa stuðlað að auknu samskiptaleysi og firringu, sem birtist meðal annars í auknum einmanaleika og angist, pólariseringu og á...
Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi. Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt um árabil. Guðni sem notar íslenskuna svo fallega með skilgreingum á orðum sem við notum hugsunarlaust, hefur meðal annars skrifað bækurnar Máttur athyglinnar, Máttur viljans og Máttur þakklætis. Hann hefur í gegnum tíðina talað mikið um athygli, áby...
loading
Comments