DiscoverEftirmál
Eftirmál
Claim Ownership

Eftirmál

Author: Tal

Subscribed: 1,597Played: 24,955
Share

Description

Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.

38 Episodes
Reverse
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Í þessum þætti fara elstu börn Johns Snorra Sigurjónssonar yfir hinstu för föður síns á K2 í Pakistan. Málið hefur undanfarið verið í umræðunni eftir að heimildarmynd um málið fór í sýningu. Ættingjar Johns Snorra hafa hingað til ekki tjáð sig um ferðina en börn hans opna sig hér í fyrsta sinn um atburðarásina, biðina óbærilegu á meðan leit stóð yfir og hvernig þau hafa unnið úr áfallinu.
Edition-málið

Edition-málið

2026-10-0101:59:57

Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition málið svokallaða. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition lúxushótelinu. Þegar lögregla kom á vettvang á voru eiginmaður og dóttir Ming Ting Mancel látin af völdum stungusára, en Ming Ting sjálf lifði af. Hún afplánar nú 12 ára fangelsisdóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Við förum yfir þetta mál og dóminn yfir Ming Ting, sem á engan sinn líka í...
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Nadine og Þórhildur fara um víðan völl í Öðrum málum. Í þessum þætti ræða þær við Leif Halldórsson rannsóknarlögreglumann sem rifar upp hvarf Birnu Brjánsdóttur, yfirheyrslur yfir Thomasi Möller Olsen og fleiri eftirminnileg mál frá hans ferli. Þá förum við yfir lausa enda í Edition-málinu.
Þórhildur og Nadine kynna spennandi breytingar og glænýtt systurhlaðvarp Eftirmála - Önnur mál. ➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is
Hryðjuverkamálið

Hryðjuverkamálið

2026-07-2801:43:33

Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka sem er einsdæmi í íslenskri réttarsögu. Í kjölfarið velktist málið um í réttarkerfinu í fjögur ár og í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Við ræðum við einn sakborninganna og lögmann hans í þættinum. Málið er eitt umfangsmesta, umtalaðsta og umde...
loading
Comments