DiscoverMorðcastið
Morðcastið
Claim Ownership

Morðcastið

Author: Unnur Borgþórsdóttir

Subscribed: 7,167Played: 341,267
Share

Description

Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum.
Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi.

Til að hafa samband:
mordcastid@gmail.com
instagram.com/mordcastid
twitter.com/mordcastid
310 Episodes
Reverse
Góðan daginn, fimmtudaginn Í þætti dagsins hverfum við aftur til fortíðar í margskonar skilningi orðsins. Unnur segir frá máli sem gerist í Bandaríkjunum árið 1997 þegar ung háskólastelpa var myrt og málið er óleyst í fjölda ára, en þátturinn sjálfur var jafnframt tekinn upp fyrir einhverju síðan. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Weetabix. Kíkið inná www.pardus.is/mordcastid fyrir óklippta þætti, áskriftarþætti og annað blaður.
Orð dagsins er: Sýra

Orð dagsins er: Sýra

2026-01-2256:331

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur til Bandaríkjanna (sjokker) og segir ykkur frá algjörlega hrikalegu máli. Margir ungir menn taka mjög misgáfulegar ákvarðanir með vægast sagt hræðilegum afleiðingum. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate og Weetabix
Í Winnipeg logar heldur glatt í heilu húsi og það virðist eiga rætur að rekja til konu sem hatar tengdamóður sína.  Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Anamma og Happy Hydrate.
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins förum við til Bandaríkjanna eins og eiginlega alltaf, nema í þetta skiptið skoðum við eitt allra undarlegasta málið til þessa.  Gríðarlega margar spurningar, margar samsæriskenningar, margar misgóðar upplýsingar og endalausar spurningar. Þáttur dagsins var í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Anamma.
GLEÐILEGT NÝTT ÁR! Á þessum fyrsta degi ársins ferðumst við bæði til Svíþjóðar og Bandaríkjanna og hittum alls konar fólk. Ákaflega misgott og misgáfulegt, eins og gengur og gerist. Þátturinn er í boði Nettó, Ristorante og Happy Hydrate.
Orð dagsins er: Jólasveinn

Orð dagsins er: Jólasveinn

2025-12-2501:00:431

Góðan daginn, jólafimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Kanada, kíkir þar í hýrt og hamingjusamt hverfi þaðan sem síðan hverfa alltof margir menn. Málið er hið sorglegasta, sérstaklega þegar að í ljós kemur að jólasveinninn (nema augljóslega ekki hann skiljiði) sjálfur gæti verið viðriðinn málið. Hrikalegt. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Göteborgs og 1104bymar.  
Í Bandaríkjunum (sjokker) er gríðarlega löng hefð fyrir því að ungmenni stundi mikið partýstand í vorfríi. Fara gjarnan til sólríkari staða og hafa það náðugt, í sæmilegri prósentu. Það var vissulega planið í þætti dagsins en það plan gekk auðvitað alls ekki eftir, eiginlega bara þvert á móti. Þáttur dagsins er í boði Göteborgs, Nettó, Ristorante, Happy Hydrate, Forlagsins og 1104 by Mar.
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Unnur frá algjörlega hörmulegum eltihrelli sem tekur margar hræðilegar ákvarðanir áður en hann tekur síðan hræðilegustu ákvörðunina sem þú getur tekið. Lögreglan er léleg, stelpan er dásamleg og tie dye er æði.  Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Göteborgs, Dineout, 1104byMar og Mfitness.  
Orð dagsins er: Crocs

Orð dagsins er: Crocs

2025-12-0401:05:25

Ætli það sé nú ekki enn og aftur fimmtudagur. Í þætti dagsins segir Bylgja frá unglingsstelpu sem skrifar í dagbók, elskar dýr, rífst við mömmu sína og fer út úr húsi í bleikum Crocs í góðri trú. Þátturinn er í boði Ristorante, 1104 by Mar, Dineout, Forlagsins, Göteborgs, Happy Hydrate og Nettó
Orð dagsins er: Snapchat

Orð dagsins er: Snapchat

2025-11-2701:05:19

Góðan daginn, fimmtudaginn! Þáttur dagsins er af ömurlegri endanum. Unglingar taka hræðilegar ákvarðanir, hanga talsvert á netinu, en brjóta líka of mikið á öðrum. Algjör hörmungar samloka. Þáttur dagsins var í boði Dineout, Mfitness, Forlagsins, 1104bymar, Fulltingi, Göteborgs, Nettó, Ristorante og Happy Hydrate.
Eftir fjármálahrunið mikla 1929 dundi yfir heimsbyggðina mikið volæði. Leiðindamál fannst fólki, líka fólki í Austurríki. Ein austurrísk kona reyndi að taka málin í sínar hendur en færðist heldur mikið í fang og úr varð einhvers konar spírall af dauðsföllum.   Þáttur dagsins er í boði 1104 by Mar, Dineout, Forlagsins, Fulltingi, Göteborgs, Happy Hydrate, Nettó og Ristorante.        
Orð dagsins er: Glugganet

Orð dagsins er: Glugganet

2025-11-1301:05:00

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur í agnarsmáa þyrpingu húsa hvar ung kona finnst látin. Margar spurningar vakna, enn fleiri harmleikir eiga sér stað og síðan þessu lauk eru bæjarbúar búnir að vera eitt stórt spurningamerki. Svoleiðis. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Ristorante, Göteborgs kexins, Nettó, 1004bymar, Fulltingi og Forlagsins
Í þætti dagsins erum við í Uttar Pradesh héraði í Indlandi. Þar hittum við fyrir svakalega marga ógeðslega menn, marga feiga menn og eina óþægilega stelpu (finnst sumum). Og typpahálsmen. Við heyrum um typpahálsmen.  Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Göteborgs og 1104 by Mar.
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag ferðumst við til Bandaríkjanna á Hrekkjavökunni sjálfri en í staðinn fyrir mikið gerviblóð er alltof mikið alvörublóð. Margt ömurlegt gerist en sem betur fer líka eitthvað gott. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104bymar
Gömul og góð hjón ganga unglingsstúlku í foreldra stað. Fallegt, ekki satt? Alls ekki satt og í Georgíufylki Bandaríkjanna gengur ýmislegt á.   Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104 by Mar.  
Orð dagsins er: Ostakaka

Orð dagsins er: Ostakaka

2025-10-1501:05:00

Í þætti dagsins hittum við fyrir fólk í galopnu sambandi, fólk í alls konar krísu, fólk sem ferðast um með súpupott. Not in a good way! Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Göteborgs og 1104 by Mar.
Orð dagsins er: Klaufhamar

Orð dagsins er: Klaufhamar

2025-10-0201:21:48

Góðan daginn, fimmtudaginn. Stundum er það morð, stundum er það björgun, stundum er það 19 blaðsíðna leiðbeiningabæklingur um hvernig skal myrða með árangri. Þátturinn er í öllu falli ógeðslegur en auðvitað á sama tíma svakalega sorglegur og áhugaverður. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi, Göteborgs og MFitness. Óklipptan þátt má finna inná pardus.is/mordcastid
Í dag eins og svo ótrúlega marga daga áður erum við staðsett í Bandaríkjum Norður Ameríku, nánar tiltekið í New York fylki. Í Syracuse býr hress týpa á besta aldri sem finnst gaman að dansa og fara á tónleika. Hefði svo bara í raun mátt fá að gera meira af því. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi og Göteborgs.
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins förum við til Frakklands hvar tveir ungir strákar fara út að hjóla, en hjóla því miður aldrei aftur heim. Rannsókn málsins er skrítin en allt er gott sem endar vel. Eða hvað? Skrítin endalok mögulega, kannski bara eins góð og hægt er. Við vitum auðvitað ekki neitt.  Í boði Göteborgs kexins, Fulltingi, Nettó, Happy Hydrate og Ristorante.
loading
Comments (2)

OBF1

Unnur og Bylgja, ykkar er sárt saknað💖 Fimmtudagar eru bara venjulegir núna🥺 Ég skil vel að þið þurfið smá frí.... og að það eru bara komnar 2-3 vikur... EN vá.... it feels like months and months? Þið eruð frábærar!💖

Jun 26th
Reply

Kristjana Ragnarsdóttir

það er svo skrýtið þegar þið eruð að hlæja í tíma og ótíma af hræðilegu atburðum

Jul 26th
Reply