Discover30 Plús
30 Plús
Claim Ownership

30 Plús

Author: Viktor A. Bogdanski

Subscribed: 2Played: 0
Share

Description

Í hlaðvarpinu 30 Plús ræðum við um þær áhugaverðu og óvæntu breytingar sem eiga sér í lífinu þegar við dettum inn á fertugsaldurinn. Það er margt sem breytist á þessum árum t.a.m. sjálfsviðhorf, tilfinningalíf, fjármál, barneignir, uppeldi, vinnan, framabrautin, heilsan, þroski, kynlíf og fleira í þeim dúr.

Markmiðið með hlaðvarpinu er að vera með opinskáar, persónulegar og skemmtilegar samræður út frá okkar persónulegu upplifun.
5 Episodes
Reverse
Gestur þáttarins er Björn Berg Gunnarsson, sem er reynslumikill fjármálaráðgjafi með áralanga reynslu af því að hjálpa fólki að skilja peninga, áhættu og framtíðarskipulag.Við ræðum fjármál út frá mörgum hliðum og setjum þau í samhengi við daglegt líf. Hvernig breytist nálgun okkar þegar ábyrgðin eykst, börn koma til sögunnar og framtíðin fer að skipta meira máli en næsta mánuður. Við förum yfir hvernig gott er að tala við börnin okkar um peninga, hvaða gildi skipta máli í fjármálauppeldi og hvernig við getum lagt grunn að heilbrigðu sambandi við fjármál strax á unga aldri.Í þættinum er einnig farið yfir fjármálalæsi og venjur sem styðja við betri ákvarðanatöku. Við ræðum neyslulán, húsnæðislán og þá algengu gildrur sem fólk fellur í þegar skammtímahugsun fær að ráða för. Einnig er fjallað um fjármál í ellinni og hvers vegna ákvarðanir sem teknar eru á þrítugs- og fertugsaldri geta haft afgerandi áhrif á lífsgæði síðar.Þessi þáttur er í boði:💡⁠⁠⁠Shutterrental⁠⁠⁠ - Leiga á kvikmyndatöku-, ljós- og hljóðbúnaði fyrir skapandi verkefni. 🎥⁠⁠Blindspot framleiðsla⁠⁠ - Auglýsingagerð og efnissköpun fyrir þitt fyrirtæki.
Gestur þáttarins er Andrea Rut Sigurjónsdóttir sem er þriggja barna móðir, leikskólakennari og stundar nám við Háskólann á Akureyri. Í þættinum stígum við inn á svæði sem kannski margir forðast – umræðuefni sem geta verið óþægileg, persónuleg eða einfaldlega sjaldan rædd nema innan innsta hóps góðra vina. Viktor tók saman nokkrar spurningar sem varða reynslu og viðhorf kvenna, á meðan Andrea kom með spurningar sem varða karla. Okkur langaði er opna á heiðarlegt samtal um allskonar hluti – frá túrtöppum yfir í sjálfsmynd, líkamsímynd, kynlíf, viðhorf og það sem fólk hugsar en segir sjaldnar upphátt. Þessi þáttur er í boði:💡⁠⁠⁠Shutterrental⁠⁠⁠ - Leiga á kvikmyndatöku-, ljós- og hljóðbúnaði fyrir skapandi verkefni. 🎥⁠⁠Blindspot framleiðsla⁠⁠ - Auglýsingagerð og efnissköpun fyrir þitt fyrirtæki.
Gestur þáttarins er hann Jónas Tryggvi Stefánsson markþjálfi. Í þættinum ræðum við ströggið og breytingarnar sem við upplifum innra með okkur sem geta dúkkað upp. Á þessu lífsskeiði eru oft breyttar áherslur, við breytumst sem persónur og væntingar til okkar sjálfra geta tekið breytingum. Við förum yfir hvað það er sem fólk er almennt að ströggla við og hvernig sjálfsvinna hefur áhrif á betra líf.Þessi þáttur er í boði:💡⁠⁠Shutterrental⁠⁠ - Leiga á kvikmyndatöku-, ljós- og hljóðbúnaði fyrir skapandi verkefni. 🎥⁠Blindspot framleiðsla⁠ - Auglýsingagerð og efnissköpun fyrir þitt fyrirtæki.
#2 - Að verða pabbi

#2 - Að verða pabbi

2025-11-0601:27:18

Gestur þáttarins er hann Birgi Dýrfjörð sem er faðir, eiginmaður og lærður gullsmiður. Við ræddum hver okkar upplifun var við það að verða pabbar, þetta nýja hlutverk og það hvað enginn sagði okkur að þetta gæti verið erfitt. Karlmenn eru ekker sérstaklega þekktir fyrir að ræða mikið um tilfinningamál og við viljum því kafa dýpra og opna á umræðuna á persónulegan hátt.Þessi þáttur er í boði:🎥⁠Blindspot framleiðsla⁠ - Auglýsingagerð fyrir þitt fyrirtæki💡⁠Shutterrental⁠ - Vantar þig leigu á búnaði fyrir kvikmyndagerð?
Gestur þáttarins er hún Írisi Mist Magnúsdóttir sem er fyrrum fimleikadrottning, tveggja barna móðir og framkvæmdastjóri barnaþáttanna Sólon sem hún og eiginmaður hennar Einar hafa verið að skapa saman. Í þættinum förum við yfir helstu breytingarnar og áskoranir sem fylgja því að komast á þennan aldur s.s. markmið, sjálfsvinna, barneignir og lífsviðhorf. Við ræðum okkar eigin upplifun við að komast á þennan aldur og íris segir frá sinni vegferð að jafnvægi í lífinu eftir að lenda á vegg, hvernig hún komst á þann stað sem hún er í dag og segir aðeins frá því hvernig Sólon Barnaefni varð til.Þessi þáttur er í boði:🎥Blindspot framleiðsla - Efnissköpun og auglýsingagerð fyrir þitt fyrirtæki.💡Shutterrental - Vantar þig að leigja kvikmyndatökubúnað fyrir komandi verkefni?
Comments 
loading