DiscoverFréttir dagsins
Fréttir dagsins
Claim Ownership

Fréttir dagsins

Author: Fréttir dagsins

Subscribed: 0Played: 0
Share

Description

Fréttir dagsins er hlaðvarp sem gefur út helstu fréttir dagsins alla morgna.
79 Episodes
Reverse
Í fréttum er þetta helst Netþrjótar komust í upplýsingar um tugi þúsunda fyrrverandi og núverandi skjólstæðinga, starfsmanna og aðstandenda á Grundarheimilum þegar þeir réðust á netþjóna hjúkrunarheimilanna í desember. Interpol og Europol koma að rannsókn málsins ásamt lögreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson gerði uppgang popúlista og öfga að umfjöllunarefni sínu í sinni hinstu ræðu sem formaður Framsóknarflokksins á 38. flokksþinginu sem fer fram í dag og á morgun. Eitrað var fyrir Alexei Navalní helsta andstæðingi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta með froskaeitri. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum. Fjórir eru grunaðir um að hafa í síðasta mánuði svipt mann frelsi sínu, misþyrmt honum í bíl og skilið hann eftir utandyra. Maðurinn var þungt haldinn þegar hann fannst. Esa, Eftirlitsstofnun EFTA, krefur íslensk stjórnvöld upplýsinga um leyfi veitt til sjókvíaeldis hér á landi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota liggi fyrir. Lucas Pinheiro Braathen vann fyrsta Ólympíugull Brasilíu í sögu Vetrarleika í dag. Hann fagnaði sigri í stórsvigi þar sem okkar maður Jón Erik Stefánsson var á meðal keppenda. Kjartan Guðmundsson er kominn heim til Íslands rúmum átta vikum eftir að hann lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku. Móðir hans og dóttir létust í slysinu. Hann flaug í sjúkraflugvél ásamt bróður sínum og ferðalagið tók hátt í sólarhring. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Heilbrigðisráðuneytið, Landspítali og einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin eiga í viðræðum um hvort sú síðastnefnda geti tekið við sjúklingum frá Landspítala vegna neyðarástands sem þar ríkir. Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir að nú þegar séu yfir tuttugu rúm laus. Heilbrigðisráðherra segir að aldrei hafi verið brugðist eins hratt við stöðunni. 23 einstaklingar frá Bakkakoti og 15 frá öðrum vistheimilum hafa formlega veitt lögmannsstofunni Solidum umboð til að sækja sanngirnisbætur frá ríkinu. Lögmaður stofunnar segir lýsingar þeirra sem þangað hafa leitað sláandi. Yfir 50 manns eru með stöðu sakbornings í máli þar sem fimm menn er grunaður um að hafa nýtt sér kerfisvillu hjá reikningsstofu bankanna til að komast yfir hundruð milljóna króna frá Landsbankanum. Von er á að enn fleiri bætist í hóp sakborninga á næstunni. Drögum að frumvarpi um fullnustu refsinga, sem varðar brottvísun og afplánun erlendra fanga hefur verið dreift í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir tímabundinni heimild til að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar aðeins einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Samkvæmt gildandi lögum þarf helmingi afplánunar að vera lokið til að veita megi reynslulausn, en frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að viðkomandi verði vísað úr landi þegar í stað við reynslulausn. Forsætisráðherra vísar gagnrýni ASÍ og SA á bug um að óráðlegt sé að tengja launavísitölu við elli- og örorkubætur líkt og kemur fram í frumvarpi um breytingar á almannatryggingum. Um sé að ræða réttlætismál sem ríkisstjórnin sé einhuga um. Breytingin kunni að valda verðbólguþrýstingi ef hún leiði til hækkunar bóta. Það eigi líka við um aðrar launahækkanir. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segir að fundur hennar og Jens-Frederik Nielsen, formanni landsstjórnar Grænlands, með Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi verið uppbyggilegur. Þau eru stödd á öryggisráðstefnunni í München, sem hófst í dag. Stjórnvöld ríkjanna hafa nýverið átt í viðræðum í kjölfar tíðra fullyrðinga Bandaríkjaforseta um að Bandaríkin verði að eignast Grænland. Ekkert rykbindiefni er til á landinu og er því ekki hægt að bregðast við mikilli svifryksmengun í borginni. Þau sem eru mjög viðkvæm ættu að íhuga að halda sig inni, segir heilbrigðisfulltrúi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið. Samanlagður hagnaður bankanna þriggja í fyrra, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, nemur nærri 94 milljörðum króna. Íslandsbanki birti uppgjör síðasta árs í dag. Þar kemur fram að arðsemi eigin fjár hafi verið 10,5 prósent í fyrra og að vaxtatekjur hafi aukist töluvert. Sendiherraefni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í stöðu sendiherra á Íslandi, William Long, baðst afsökunar á ummælum sínum um að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna þegar hann kom fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins í gær. Long vafðist tunga um tönn í fyrstu í svari sínu en sagði svo: „Þetta var þriggja manna tal. Einhver sagði eitthvað og annar sagði annað, og já, ég bætti þessu við með 52. ríkið sem var algerlega óviðeigandi en það var not eitthvað sem ég sagði sem alvarleg yfirlýsing. Hann bætti svo við að hann vonaðist eftir því að Íslendingar myndu gefa honum annað tækifæri. Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu. Þetta verður gert í gegnum sérstakt verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins, þar sem vopn eru keypt frá Bandaríkjunum og send til Úkraínu. Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í stærsta kristal-metamfetamínsmáli Íslandssögunnar. Sigurður Ragnar Kristinsson hlaut þyngstan dóm sex sakborninga, átta ára fangelsi. Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti í dag að hækka skrásetningargjald háskóla landsins um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári. Fulltrúar stúdenta mótmæltu fyrirhugaðri hækkun í aðdraganda fundarins en höfðu ekki erindi sem erfiði. Flugsveit sænska flughersins mun næstu vikurnar sinna loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi en verkefnið er á vegum NATO og unnið í samvinnu við varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar. Yfirliðsforingi í sænska flughernum segir rússneskar sprengjuflugvélar helstu ógnina og að móttökurnar hér á landi hafi verið afar góðar. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans kom saman í dag og fundaði um starfsaðstæður þeirra. Það krefst þess að framkvæmdar verði úttektir á aðbúnaði og áhrifum á sjúklinga. Tíu eru látnir og að minnsta kosti 25 særðir eftir skotárás sem beindist gegn skóla í norðurhluta Bresku-Kólumbíu í Kanada í gær. Árásarmaðurinn er meðal látnu. Atlantshafsbandalagið hefur formlega hleypt af stokkunum verkefninu Vörður norðurslóða (e. Arctic sentry) sem er ætlað að auka eftirlit og umsvif hersveita og efla viðbragðsgetu bandalagsins í norðri. Utanríkisráðherra er mætt til Brussel og segir að Íslendingar muni finna fyrir hinu aukna umfangi. Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV í kvöld. Hryðjuverkamálið svokallaða verður tekið fyrir í Hæstarétti í dag. Tæpt ár er síðan Landsréttur staðfesti sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir sakborningunum Sindra Snæ Birgissyni og Ísidór Nathansson af ákæru er varðar hryðjuverk, en þeir voru fundnir sekir um vopnalagabrot. Stjórn Arion banka leggur til arðgreiðslu sem nemur 11,5 krónum á hlut sem jafngildir 15,3 milljörðum króna. Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum bankans var 30,6 milljarðir króna á árinu 2025, samanborið við 26,1 milljarð króna 2024. Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum bankans var 14,9 prósent, samanborið við 13,2 prósent 2024. Um 59% þátttakenda í könnun á viðhorfum Grindvíkinga segja andlega heilsu sína verri en fyrir rýmingu í Grindavík og 51% segir líkamlega heilsu verri. Helmingur þátttakenda hefur nýtt sér sálrænan stuðning og segja hann hafa nýst vel. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Alþjóðleg glæpasamtök sem stóðu að flutningi kókaíns frá Suður-Ameríku til Íslands hafa verið leyst upp. Samtökin notuðu burðardýr til að flytja efnin. Lögregla í Litháen, Spáni og Íslandi unnu með Evrópulögreglunni við rannsókn málsins óslitið í eitt ár og réðst í handtökur og húsleitir þann 4. febrúar síðastliðinn í samræmdum aðgerðum. Alls voru 24 handteknir, þar af 11 á Íslandi og eru íslenskir ríkisborgarar þar á meðal. Talið er að brotahópurinn hafi hagnast um fjórar milljónir evra með stórfelldu smygli eða um sex hundruð milljónir króna. Sjö manns voru drepnir og 27 særðust í skotárás í gagnfræðaskóla í Tumler Ridge í Bresku-Kólumbíu í Kanada í gær. Lögreglunni barst tilkynning um vopnaðan árásarmann í Tubler Ridge síðdegis að staðartíma. Þegar lögreglan kom á vettvang voru sex einstaklingar látnir og sjöunda fórnarlambið lést á leið á spítala. Tveir hinna særðu eru með alvarlega áverka en 25 eru með minni háttar áverka. Árásarmaðurinn svifti sig lífi en nafn og aldur árásarmannsins hefur ekki verið upplýst. Staðan á bráðamóttökunni var slæm fyrir en nú er hún afleit, segir forstjóri spítalans. Þar bíður fólk í rúmlega tvo sólarhringa eftir legurými. Í ofanálag er krafa um hagræðingu, en tækifærin til þess að hagræða eru takmörkuð að mati forstjórans. Runólfur segir að færa þurfi allt að 50 manns af spítalanum á hjúkrunarheimili til að þau endurheimti legurými. Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um opnun sérhæfðrar ofbeldismóttöku innan Landspítala sem mun bera heitið Bryndísarhlíð en minningarsjóður Bryndísar Klöru er fjárhagslegur bakhjarl verkefnisins. Móttakan er kennd við Bryndísi Klöru sem lést á spítalanum eftir fólskulega árás á menningarnótt. Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar, fyllist stolti yfir arfleifð hennar en söknuðurinn er alltaf jafn sár. Mínútuþögn var í upphafi sérstaks íshokkíleiks í kvöld sem er spilaður til minningar um Patrek Frey Sveinsson, sautján ára dreng sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku. Leikurinn hófst klukkan 19.45 í Skautahöllinni í Laugardal og var húsfyllir í höllinni. Patrekur Freyr spilaði í undir 18 ára-liði SR en spilaði áður með Fjölni. Allur ágóði af leiknum í kvöld rennur til fjölskyldu Patreks. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir skjálftahrinu við Eldey til marks um að plötuskilin séu „komin í gang“ og ekki óvænt ef það fari að gjósa. Gjósi þar geti það valdið truflunum á flugi. Skjálftahrinan við Eldey er til marks um að plötuskilin séu „komin í gang“ og ekki óvænt ef það fari að gjósa. Almennur samhljómur virtist vera á meðal áhorfenda um að setja ætti á samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni yngri en 15 ára á Íslandi. Í umræðuþættinum Torginu í kvöld var rætt um símabann í skólum og samfélagsmiðlabann. Meirihluti viðmælenda var hlynntur símabanni í grunnskólum landsins en deilt var um hvern árangur og markmið slíks banns myndu hafa í för með sér. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja úr starfi. Mikið hefur gengið á innan veggja skólans eftir að þrír starfsmenn voru kærðir til siðanefndar. Karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að ráðist var á hann á þorrablóti HK sem fram fór í Kórnum í Kópavogi þann 30. janúar. Annar maður sat í gæsluvarðhaldi í um tvo sólarhringa grunaður um verknaðinn en var síðan sleppt úr haldi lögreglu. Allt virðist dottið í dúnalogn eftir jarðskjálftahrinu síðustu sólarhringa þar sem hundruð jarðskjálfta mældust við Eldey á Reykjaneshrygg. Flestir skjálftarnir voru smáir en þó nokkrir mældust yfir þremur að stærð. Sá stærsti, af stærðinni 3,4, skók hafsbotninn á sunnudaginn. Eitt mesta landrof í manna minnum hefur orðið í Reynisfjöru í Mýrdal. Landeigandi segir óvíst hvort ásýndin sé breytt til framtíðar. Gjörbreytt landslag blasir nú þar við ferðamönnum en í stað svörtu fjörunnar sem hefur dregið marga víða að blasa nú við steinar úti um allt. Þá hefur sjórinn náð að grafa sig inn í fjöruna og myndað nokkurra metra háan vegg. Lagt er til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól húsnæðislána verði gerð varanleg í drögum að frumvarpi sem eru í samráðsgátt stjórnvalda. Ari Edwald verður oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík í vor. Hann staðfestir þetta í færslu á samfélagsmiðli. Eftir langa fjarveru frá íslenska landsliðinu er Gylfi Þór Sigurðsson í landsliðshópnum sem mætir Mexíkó í vináttulandsleik ytra í lok mánaðarins. Hópurinn er nær eingöngu skipaður leikmönnum úr Bestu deildinni. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Þrír eru í haldi vegna stunguárásar fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Gabríel Douane einn grunaðra. Hann losnaði úr fangelsi í síðustu  viku. Elín Agnes Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjónn í miðlægri deild lögreglunnar, segir rannsókn í gangi. Á fjórða hundrað jarðskálftar umhverfis Eldey frá hádegi í gær. Jarðskjálftahrinan við Eldey á Reykjaneshrygg færðist í aukana á ný á þriðja tímanum í nótt eftir að nokkuð dró úr virkninni undir miðnætti. Nokkrir skjálftar af stærðinni tveir til þrír mældust þegar leið á nóttina og í kjölfarið fylgdu smærri eftirskjálftar. Afstaða-félag fanga segir að fjórþættar aðgerðir sem stjórnvöld hafi tilkynnt vegna Bakkakotsmálsins nái ekki til allra einstaklinga sem málið varði. Einn sem hafi orðið fyrir ofbeldi á vistheimilinu í æsku sitji nú í fangelsi á Spáni þar sem hann hafi hvorki fengið endurhæfingu né áfallastuðningi. Félagið segir engan mega vera skilinn eftir. Sveitarstjórnarfólk víða um land óttast frekari samþjöppun valds á suðvesturhorninu, verði af breytingum á kosningalögum sem jafni vægi atkvæða á landsvísu. Á Íslandi er misvægi atkvæða milli landshluta með því allra mesta í Evrópu. Seattle Seahawks er NFL-meistari eftir stórsigur á New England Patriots í Super Bowl í Santa Clara í Kaliforníu í nótt. Þetta er í annað skiptið sem Lombardi-bikarinn fer til Seattle og í fyrsta sinn í tólf ár. Nýleg dæmi eru um að stjórnendur við Háskólann á Bifröst hafi hringt í nemendur og beitt þá þrýstingi segir Sigrún Lilja Einarsdóttir, prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst og stjórnarmeðlimur í Félagi akademískra starfsmanna á Bifröst. Mona Juul hefur sagt af sér sem sendiherra Noregs í Jórdaníu og Írak vegna tengsla við fjárfestinn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Utanríkisráðherrann Espen Barth Eide tilkynnti þetta í gær. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Lögmaður manna sem dvöldu í Bakkakoti á Rangárvöllum sem börn segist ekki hafa átt von á svo skjótum viðbrögðum stjórnvalda. Tugir manna og kvenna hafa leitað til hans eftir að Kveikur greindi frá aðstæðum drengja í Bakkakoti sem segjast hafa verið beittir ofbeldi þar. Hugmyndir um að tvímenna í herbergjum íbúa hjúkrunarheimila til að bregðast við skorti á legurýmum á Landspítala eru með ólíkindum, að mati Steinunnar Þórðardóttur, formanns Læknafélagsins. Það er lagt til í minnisblaði Landspítala til heilbrigðisráðuneytisins frá því í upphafi árs. Stjórnarmaður í Félagi akademískra starfsmanna við Bifröst segir vantrauststillögu gegn rektor skólans enn standa, þrátt fyrir að rektorinn segi niðurstöðu siðanefndar grundvöll sáttar í málinu. Hann er gagnrýninn á að siðanefnd hafi tekið málið fyrir en ekki vísað því frá. Tilkynnt var um fjögur efstu sæti á framboðslista Framsóknar í kvöld. Kosið var um fjögur efstu sætin á fundi Framsóknar í dag. „Ef við fáum ekki peninga til að fara að ráða núna, við getum ekki auglýst bara í maí af því að við þurfum að þjálfa fólk á nýja kerfið, þá mun þetta landamæraeftirlit fara í bál og brand,“ segir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá landamæradeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Morgunblaðið. Sautján ára gamli pilturinn sem lést í bílslysi á Miklubraut hét Patrekur Freyr Sveinsson. Hann var liðsmaður í U18 liði Skautafélags Reykjavíkur en félagið birtir í dag samúðarkveðjur til fjölskyldu Patreks. Töluvert landrof hefur orðið í Reynisfjöru síðustu daga. Stór bakki hrundi úr hlíðum Reynisfjalls alveg að viðvörunarskiltunum við fjöruna. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Málefni Bakkakots, sem fjallað var um í fréttaskýringaþættinum Kveik í vikunni, var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í þættinum sögðu fimm menn að húsfreyjan á Bakkakoti á Rangárvöllum hefði beitt þá margvíslegu ofbeldi. Börn voru í fóstri á bænum á árunum 1975-2002. Tíu menn segjast hafa verið beittir ofbeldi á bænum. Sautján ára piltur lést í umferðarslysi á Miklubraut í gærkvöldi. Tveir voru í bílnum. Ökumaðurinn, piltur á sama aldri, slasaðist töluvert og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Matsfyrirtækið Fitch Ratings hækkaði í dag lánshæfiseinkunn Íslands úr A í A+ með stöðugum horfum. Ástandið á leikskólum borgarinnar hefur aldrei verið verra að mati formanns Eflingar. Leikskólakerfið eins og það sé nú gangi ekki upp og ástandið bitni á andlegri og líkamlegri heilsu starfsfólksins. Hún hvetur stjórnvöld til að lengja fæðingarorlofið til að létta á kerfinu. Forstjóri Landspítalans segir í erindi til heilbrigðisráðherra að vandi spítalans ógni heilsu aldraðra og komi niður á bráðaþjónustu spítalans. Biður spítalinn meðal annars um tafarlausar neyðaraðgerðir. Spítalanum er nú nærri ómögulegt að takast á við skyndilega atburði eins og fjöldaslys, segir forstjórinn. „Þegar við kíktum út um gluggann sáum við bara skilti og grasbala við vélina. Ætli skiltin hafi ekki verið um 30 metra frá okkur og því mátti bókstaflega engu muna,“ segir Magnús Kristjánsson, forstjóri Orkusölunnar. Hann var einn níu Íslendinga um borð í vél Scandinavian Airlines sem lenti í hættulegu atviki á flugvellinum í Brussel í Belgíu. Stjórnvöld í Tyrklandi hafa óskað eftir því að opna sendiráð á Íslandi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Þrír menn sem vistaðir voru á sveitabænum Bakkakoti í barnæsku og beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið hittu forsætisráðherra í stjórnarráðinu í dag. Þeir vilja að fósturkerfið verði tekið til alvarlegrar skoðunar og hvetja fleiri til að stíga fram. Yfirfull bráðamóttaka, aldrað fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými og skurðaðgerðir sem þarf að fresta eru þau verkefni sem stjórnendur Landspítalans þurfa að glíma við. Þeir lýsa alvarlegri stöðu spítalans í þremur minnisblöðum til heilbrigðisráðherra Um tveggja ára barn var skilið eftir eitt í lok dags á leikskóla í Breiðholti á mánudag. Þegar foreldri barnsins kom að sækja barnið var leikskólinn lokaður og barnið eitt úti í garði. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur harmar atvikið og segir að reynt verði að tryggja að slíkt gerist ekki aftur. Ríkissaksóknari hefur gert lögreglu að taka aftur upp rannsókn á tveimur málum vegna meintra kynferðisbrota fyrrverandi starfsmanns leikskólans Múlaborgar. Foreldrar fjögurra barna kærðu niðurfellingu mála til ríkissaksóknara, sem á eftir að taka afstöðu til tveggja þeirra. Forystumenn stjórnarandstöðunnar þjörmuðu að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna stöðu efnahagsmála í landinu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Formenn Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins sögðu stjórnvöld kenna öllu öðru en aðgerðum ríkisstjórnarinnar um aukna verðbólgu. Kristrún segir ríkisstjórnina ætla að „halda sig við planið“ og að ríkisstjórnin ætli ekki að „hlaupa upp til handa og fóta“ vegna einstakra mælinga. Icelandair tapaði 1,2 milljörðum króna árið 2025 eftir skatta. Um er að ræða samdrátt frá fyrra ári þegar tap nam 2,8 milljörðum króna. Stjórnendur segja tekjur félagsins aldrei hafa verið hærri og þær aukist um 11 prósent milli ára í 223,6 milljarða. Landsréttur hefur þyngt dóm yfir Jóni Þór Dagbjartssyni og gert honum að sæta fangelsi í sjö ár, frekar en sex, fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps. Landsréttur taldi það hafið yfir skynsamlegan vafa að Jón hefði ætlað sér að svipta fyrrverandi sambýliskonu sína lífi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Forsætisráðherra segir kerfið hafa brugðist börnunum í Bakkakoti. Leikskólastjórnendur í Reykjavík krefjast aðgerða: „Við getum ekki haldið svona áfram“. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25 prósent. Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag til siðanefndar flokksins að hópurinn Konur í Framsókn skuli auglýsa fund með Lilju Alfreðsdóttur nokkrum dögum áður en flokksþing Framsóknar hefst. Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Samtals 84 var sagt upp í tveimur hópuppsögnum sem voru tilkynntar til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði. Öllum verður boðin vinna aftur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Íslenskur karlmaður sem greindist með berkla í ágúst í fyrra eftir að hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans lést á spítalanum í janúarmánuði á þessu ári eftir að meðferð hafði ekki borið árangur. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar. Níu menn hafa krafið forsætisráðherra um rannsókn og bætur vegna mikils ofbeldis sem þeir segjast hafa upplifað á sveitabæ sem börn allt til ársins 2002. Barnaverndarnefndir sendu fjölda barna á bæinn og eftirlit virðist hafa verið í molum. Framleiðslueldhúsi fyrir aldraða á Vitatorgi var lokað í gær vegna listeríu. Framkvæmdir við nýtt eldhús gætu tekið meira en ár. Ríflega 900 máltíðir eru framleiddar í eldhúsinu á hverjum degi. Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin að mati hagfræðings sem segir verðtrygginguna ekki aðalvandamálið og kallar eftir auknu samráði á vinnumarkaði. Að minnsta kosti átta starfsmenn á bráðamóttökunni í Fossvogi í Reykjavík hafa verið útsettir fyrir berklum, en þeir eru hvorki veikir né smitandi. KR hafði betur og mætir Stjörnunni í úrslitaleik á laugardaginn. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Laufey Lín Jónsdóttir hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í kvöld. Breiðskífa hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna. Hún hlaut verðlaun í sama flokki árið 2024. Tveir eru í haldi lögreglu í tengslum við andlát á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum. Reykjavíkurborg hefur lokað framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi eftir að bakterían Listeria monocytogenes, betur þekkt sem listería, fannst þar við reglubundna sýnatöku. Yfir níu hundruð máltíðir eru framleiddar í eldhúsinu á dag. Meirihluti þingmanna samþykkti síðdegis frumvarp dómsmálaráðherra um sameiningu sýslumannsembætta. Það felur meðal annars í sér að landið verður eitt sýslumannsumdæmi og að sýslumönnum fækkar úr níu í einn. Dómsmálaráðherra kynnti í morgun stefnu og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi hér á landi sem felur meðal annars í sér nýtt samræmt verklag við meðferð brottvísunarmála brotahópa frá EES-ríkjum. Ráðherrann segir að með stefnunni sé brotahópum send skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands. Rússnesk flóttamannafjölskylda sem íslensk stjórnvöld vísuðu úr landi tveimur vikum eftir keisaraskurð verður að óbreyttu send til Rússlands. Króatísk stjórnvöld hafa synjað móðurinni og börnunum um alþjóðlega vernd. Örlög föðurins, sem hefur sætt pólitískum ofsóknum í Rússlandi, eru óljós þar sem fjölskyldunni var sundruð í Króatíu. Forsætisráðherra segir að tekin verði fyrstu skref í áttina að því að afnema verðtryggingu hér á landi um næstu áramót. Nauðsynlegt sé að rjúfa þann vítahring sem hún hafi skapað þar sem hún viðhaldi hærri stýrivöxtum en nauðsynlegt sé. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Lafuey Lín Jónsdóttir hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í kvöld. Breiðskífa hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna. Hún hlaut verðlaun í sama flokki árið 2024. Gagnagrunnur heimilisfanga og annarra persónuupplýsinga fjölda ICE-liða er hýstur á íslenskum netþjóni. Upplýsingunum hefur verið safnað og er haldið úti á síðunni sem lýst er af aðstandenda sem „átaki í ábyrgð“. Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf að sætta sig við 4. sæti Evrópumótsins í handbolta eftir súrt eins marks tap gegn Króötum í bronsleiknum í dag, 34-33. Náttúruhamfaratrygging gerir ráð fyrir að heildarbótagreiðsla á atburðinum í Grindavík, eins og hann hefur orðið, sé kannski um eða yfir 12 milljarðar. Verðbólgan mældist 5,2% í nýliðnum janúarmánuði og jókst um 0,7 prósentustig á milli mánaða, svo ekki er von um frekari vaxtalækkanir í bili og ekki ómögulegt að Seðlabankinn hækki vexti á miðvikudag. Um 350 börn eru í meðferð við offitu í Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins og þeim fjölgar ár frá ári. Börn niður í níu ára fá þyngdarstjórnunarlyf. Leikstjórnandi íslenska karlalandsliðsins í handbolta, Gísli Þorgeir Kristjánsson, var valinn í úrvalslið Evrópumótsins 2026. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Ísland er komið áfram í undanúrslitin á EM í handbolta eftir öruggan 39-31 sigur gegn Slóveníu í síðasta leik milliriðilsins. Fjörutíu og fimm manns var sagt upp hjá Íslenskri erfðagreiningu í dag. Atvinnuvegaráðherra segir bandarískt stórfyrirtæki reyna að hafa áhrif á íslenska lagasetningu í eldismálum. Þrír Íslendingar þjálfa lið í undanúrslitum Evrópumóts karla í handbolta í ár. Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Elísabetu Benedikz tímabundið í embætti landlæknis á meðan María Heimisdóttir landlæknir er í veikindaleyfi. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir fólk sem ekki virðir íslensk gildi ekkert hafa hingað að gera. Ísland mun mæta Danmörku í undanúrslitum Evrópumóts karla í handbolta klukkan 19:30 á föstudagskvöld. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar, hefur ákveðið að gefa kost á sér til að verða næsti formaður Framsóknarflokksins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirstrikar að Ísland standi áfram með Dönum og Grænlendingum í deilu þeirra við Bandaríkin. Mörgum létti þegar Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagðist í gær ekki ætla að beita hervaldi gegn Grænlandi og afboðaði tolla á Evrópuríki vegna stuðnings þeirra við Grænlendinga. Hann og Mark Rutte framkvæmdastjóri NATO komust að samkomulagi um Grænland í gær sem fól ekki í sér eignarhald eða yfirráð yfir landinu. Aldrei hafa jafn margir leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa á einum degi líkt og á þriðjudag þegar níutíu slösuðust. Leggja þurfti fimm inn á sjúkrahúsið. Foreldrar sex ára gamallar stúlku höfðu enga vitneskju um að brotið hefði verið kynferðislega gegn henni fyrr en lögregla hafði samband. Karlmaður sem er ákærður fyrir brotið dreifði ljósmyndum á netinu sem komu lögreglu á snoðir um málið. Alþjóðlegt samstarf skipti sköpum. Óbirt skýrsla um fjárhagsstöðu Félagsbústaða lýsir veikri fjárhagsstöðu félagsins sem hafi verið rekið með ósjálfbærum hætti undanfarin ár. Öllum starfsmönnum Vélfags hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sem segir að öllum hafi verið sleppt í gærkvöldi að lokinni skýrslutöku. Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun vonast til að endanlegt framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun fáist í næsta mánuði og að smíði hennar fari þá á fulla ferð. Fyrirtækið hyggst jafnframt hefja stækkun þriggja eldri virkjana í ár. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fallið frá áformum sínum um að setja tolla á Danmörku og sjö önnur Evrópuríki vegna Grænlands. Trump fundaði með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, eftir ræðu sína á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos í dag og hafa þeir lagt grunninn að framtíðarsamkomulagi á norðurslóðum. Fimm hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn héraðssaksóknara á starfsemi fyrirtækisins Vélfags. Einn þeirra er stjórnarformaður fyrirtækisins, Alfreð Tulinius. Hinir fjórir tengjast starfsemi fyrirtækisins á einn eða annan hátt. Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, segir eðlilegt að Íslendingar séu áhyggjufullir á tímum þar sem leiðtogi Bandaríkjanna sýni að hann sé tilbúinn að brjóta alþjóðalög. Trump hefur undanfarið gengið á eftir því að hefja viðræður um að fá yfirráð yfir Grænlandi, þrátt fyrir skýr skilaboð frá Dönum og Grænlendingum um að það komi ekki til greina. Varnarmaðurinn Elvar Örn Jónsson handarbrotnaði í glæstum sigri Íslands á Ungverjalandi í gærkvöld. Hann þarf að undirgangast aðgerð sem hann fer í hér heima strax á morgun. En Snorri Steinn hefur kallað inn mann í stað Elvars Arnar. Það er Elvar Ásgeirsson, leikmaður Ribe-Esbjerg og hann flýgur út til Svíþjóðar strax í kvöld. Dagur Sigurðsson og Króatía mættu Svíþjóð í kvöld í úrslitaleik um efsta sæti E-riðils á EM karlalandsliða í handbolta. Þar beið króatíska liðið lægri hlut og liðið fer því án stiga inn í milliriðil. Miðflokkurinn mælist með 22,2 prósent í nýrri könnun Maskínu og eykst fylgið um þrjú prósent milli mánaða. Samfylkingin mælist með 27 prósent og því munar einungis tæpum fimm prósentustigum á flokkunum. Viðreisn mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Borgarstjórn samþykkti í gær tillögu meirihlutans sem meðal annars felur í sér um 2,4 milljarða króna eiginfjárframlag til Félagsbústaða á næstu fimm árum. Tillagan var afgreidd í borgarstjórn, þrátt fyrir að skýrsla um stöðu Félagsbústaða hafi ekki verið gerð opinber, en í skýrslunni eru meðal annars settar fram tillögur um fjárhagslega endurskipulagningu stofnunarinnar. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Hálfgert hættuástand skapaðist sunnan- og vestanlands fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur vegna flughálku í morgun. Rekja má fjölda umferðaróhappa og slysa til hennar. Á hádegi höfðu þrjátíu manns leitað á bráðamóttöku vegna hálkumeiðsla en í kvöld hafði sú tala hækkað í áttatíu. Ísland vann frækinn eins marks sigur gegn Ungverjum í hreinum úrslitaleik um efsta sæti F-riðils á EM í handbolta í kvöld. Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins hefur boðið sig fram til formanns flokksins. Þetta tilkynnti hún í morgun en hún segir flokkinn standa á tímamótum og mikilvægt að formaður flokksins eigi sæti á Alþingi. Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti franskra feðgina á Edition-hótelinu í júní er lokið. Konan sem grunuð er um að hafa orðið eiginmanni sínum og dóttur að bana játaði á vettvangi að hafa drepið þau, og sagðist hafa ætlað að svipta sig lífi í leiðinni, en neitar sök í dag. Tæplega tuttugu milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast saman undir Svartsengi frá því í síðasta gosi á Sundhnúksgígaröðinni og er enn talið líklegt að aftur gjósi á næstu vikum. Hættumat er óbreytt fram í næsta mánuð. Fjöldi ofbeldisbrota gagnvart lögreglumönnum hefur nær tvöfaldast síðasta áratuginn. Dæmi eru um að glæpamenn hafi átt við bíla lögreglumanna og formaður Landssambands lögreglumanna kallar eftir harðari dómum vegna alvarlegra brota. Samtölum vegna sjálfsvígshugsana í hjálparsíma Rauða krossins fjölgaði um nærri 70% milli ára. Verkefnastjóri kallar eftir aukinni þjónustu fyrir fólk sem líður illa. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Framgöngu Trumps gagnvart Grænlandi verður að linna „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Fimmta hver koma á bráðamóttöku tengd áfengi Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin ráðist í viðeigandi úrbætur til að bæta umferðaröryggi á hringveginum við Steinafjall undir Eyjafjöllum. Vegarkaflinn er þekktur grjóthrunsstaður og varð hrun úr fjallinu konu að bana í mars. Loðnuvertíðin er hafin en fyrsta loðnan veiddist í dag út af Austfjörðum og er stefnt að því að henni verði landað á Norðfirði á morgun. Þá héldu fimm skip á miðin í dag til loðnumælinga á vegum Hafrannsóknastofnunar en niðurstöðurnar ráða miklu um það hversu stór loðnukvótinn verður. Heiðar Guðjónsson hefur verið kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka. Tilnefninganefnd bankans tilnefndi hann sem stjórnarformann en hann leiddi hóp fjárfesta í bankanum sem fóru fram á að hluthafafundur yrði haldinn. Enginn annar gaf kost á sér og því var Heiðar sjálfkjörinn. Sex voru handteknir og hald lagt á umtalsvert magn af fíkniefnum, vopnum og fjármunum í lögregluaðgerðum á Akureyri um helgina. Ráðist var í aðgerðirnar í leit að vopni sem grunur er um að notað hafi verið til að beita hótunum, en ráðist var í húsleit og handtökur á fjórum stöðum og eru tveir enn í varðhaldi. Rannsókn málsins beinist þó einkum að fjórum einstaklingum, þar af tveir undir átján ára aldri, eru til rannsóknar. Þá voru fjórir handteknir í sama lögregluumdæmi í tengslum við innbrot og þjófnað. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
Í fréttum er þetta helst Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins hefur ákveðið að kalla saman ráðið vegna hótana Donalds Trumps Bandaríkjaforseta er varða innlimun Grænlands. Trump boðaði í gær tolla á átta NATO-ríki sem höfðu sent hermenn til landsins. Átta löndin sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað nýjum tollum sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu fyrr í dag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafa báðar tekið undir yfirlýsinguna. Líf Magneudóttir, oddviti VG í Reykjavík, segir það ekki sinn skilning að sameiginlegt framboð VG í Reykjavík og Vors til vinstri hafi verið samþykkt á félagsfundi. Sanna treystir því að hægt verði að leysa úr málinu. Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann öruggan átta marka sigur er liðið mætti Pólverjum í 2. umferð riðlakeppninnar á EM í handbolta í dag. Sigurinn kemur íslensku strákunum í kjörstöðu til að vinna riðilinn. Verðbólga gæti sprengt hina svokölluðu „stöðugleikasamninga“ strax í haust. Í lok árs mældist verðbólga 4,5 prósent og Landsbankinn spáir verðbólgu upp á 5,1 prósent í janúar og Arion spaír 4,9 prósent. Forsenduákvæði kjarasamninganna sem skrifað var undir 2024 miða við 4,7 prósent. Að minnsta kosti 21 er látinn og tugir slasaðir eftir árekstur á milli tveggja lesta í suðurhluta Spánar á sunnudagskvöld. Lestarslysið varð nærri bænum Adamuz þegar háhraðalest á leið frá Malaga til Madrídar fór út af sporinu og inn á aðra lestarteina. Önnur lest sem var á leiðinni í hina áttina, frá Madríd til Huelva, fór einnig út af sporinu. Alls fylgdi lögreglan 115 einstaklingum úr landi vegna ólögmætrar dvalar árið 2025. Þetta er 37% fjölgun frá því árið á undan þegar 84 var vísað úr landi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
loading
Comments 
loading