Discover
Meginlandið
Meginlandið
Author: Evrópuhreyfingin
Subscribed: 3Played: 23Subscribe
Share
© Evrópuhreyfingin
Description
Meginlandið er hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar í stjórn Helgu Völu Helgadóttur og Páls Rafnar Þorsteinssonar. Þau bjóða til sín góðum gestum til að ræða það sem er efst á baugi í Evrópumálum, heima og að heiman.
7 Episodes
Reverse
Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB fer fram 29. ágúst næstkomandi. Um þetta var tilkynnt á föstudag og kemur mörgum á óvart hve skammt er til kosninga. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er gestur þáttarins og talar meðal annars um upplýsingaóreiðu, afskipti erlendra ríkja og hvað sé í húfi fyrir okkur Íslendinga.
Að þessu sinni ræðir Dr. Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar HR, við þau Helgu Völu og Pál Rafnar um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu, hvernig þær gætu mögulega litið út og hvort undanþágur séu á teikniborðinu eða ekki.
Gestir þáttarins eru þau María Malmquist og Sverrir Páll Einarsson en María hefur verið virk innan Ungra Evrópusinna og Sverrir er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Meginlandið að þessu sinni er helgað unga fólkinu og vangaveltum um áhugaleysi þeirra á Evrópusambandinu.
Í fjórða þætti Meginlandsins er sjónum beint að efnahagsmálunum og erlendum viðskiptum Íslands, sem og samkeppnisskorti á Íslandi. Gestur þeirra Helgu Völu og Páls Rafnar er Gylfi Magnússon prófessor og fyrrverandi ráðherra.
Gestir þáttarins eru þær Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherrar. Í þessum sérstaka hátíðarþætti ætlum við að horfa til alþjóðlegs samstarfs í víðri merkingu og rödd Íslands í alþjóðakerfinu. Gestir þáttarins eru reynsluboltar í pólitík en koma einnig úr ólíkum áttum og hafa því líklega ólíka sýn á stöðu Íslands á alþjóðasviðinu.
Í þessum þætti beinum við sjónum okkar að EES samningnum, sem varð þrjátíu ára í fyrra og hefur, að margra mati, að stórum hluta skilgreint samband Íslands við Evrópusambandið.
Gestur Meginlandsins er Dóra Sif Tynes lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti. Dóra hefur starfað hvort tveggja hjá Eftirlitsstofnun EFTA og starfsstöð EFTA í Brussel, auk þess sem hún hefur rekið fjölda mála fyrir EFTA dómstólnum og Evrópudómstólnum.
Í dag hefur göngu sína Meginlandið – nýtt Hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar.
Hlaðvarpið er leitt af Páli Rafnar Þorsteinssyni og Helgu Völu Helgadóttur en ætlun þeirra er að halda uppi umræðu um Evrópumál – Evrópusambandið og alla anga þess hvað felst í því að halda mögulega áfram aðildarviðræðum við þetta ríkjasamband.
Þau munu leitast við að takast á við Evrópumálin bæði á dýptina og breiddina - allt frá álitaefnum sem varða þessi grundvallargildi - til hversdagslegri spurninga um áhrif aðildar á okkar daglega líf.
Í hverjum þætti fyrir sig munu þau taka fyrir ákveðin viðfangsefni – hvaða málum sem þau tengjast. Þau munu bjóða til sín fólki víðsvegar úr þjóðfélaginu til þess að ræða þessi mál; fólk með þekkingu, reynslu eða hugmyndir sem vonandi geta hjálpað hlusteum að skilja betur hvaða áskoranir og tækifæri felast í Evrópusamstarfinu.
Af því að fyrsta þátt ber upp á sjálfan fullveldisdaginn, 1. desember, er tilvalið að fara beint í kjarnann, í stóru spurninguna sem oft kemur upp þegar umræða um Evrópusambandið er annars vegar - sjálft fullveldið – hvort aðild að Evrópusambandinu kunni að skerða fullveldi Íslands eða jafnvel styrkja það.
Gestur þáttarins er Davíð Þór Björgvinsson, deildarstjóri lagadeildar Háskólans á Akureyri, fyrrum dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og Landsrétt.







