DiscoverMenntavísindavarpið
Menntavísindavarpið
Claim Ownership

Menntavísindavarpið

Author: Menntavísindavarpið

Subscribed: 0Played: 0
Share

Description

Hvað er að gerast í menntavísindum? Markmið Menntavísindavarpsins er að kynna rannsóknir fræðafólks Menntavísindasviðs, kynnast rannsakendum og fjölbreyttum hliðum menntarannsókna.

Upphafsstef: Adam Switala
Umsjón: Marta Goðadóttir, Áslaug Björk Eggertsdóttir og Íris Sigurðardóttir hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands
29 Episodes
Reverse
Díana Ívarsdóttir og Emilía Örlygsdóttir brautskráður nýverið frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og kynntu lokaverkefni sín á málþingi meistaranema í lok janúar. Emilía lauk meistaranámi í menntunarfræði leikskóla og ber meistaraverkefni hennar heitið: „Við verðum alltaf sterkari og sterkari“ Gildi mikillar útiveru, markvissrar hreyfingar og náms í nærumhverfinu“. Díana lauk meistaranámi í Starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf og heitir meistaraverkefni hennar: „Við erum enn þá að fóta okkur“ Hlutverk og verkefni tengiliða við innleiðingu farsældarlaga. Díana og Emilía spjalla hér um meistaraverkefni sín, niðurstöður og hvernig vinna megi áfram með þær.
Samkvæmt nýjum niðurstöðum rannsóknarinnar, Börn og netmiðlar, samstarfs Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands eru mörg dæmi þess að við séum að búa börnum heilbrigðara umhverfi á netinu. Ingibjörg Kjartansdóttir, verkefnisstjóri Menntavísindasviðs og Menntavísindastofnunar HÍ og Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís – Fjölmiðlanefnd, mættu í Menntavísindavarpið og ræddu niðurstöður um samfélagsmiðlanotkun ungmenna og viðhorf þeirra til áreitis og öryggis á netinu. Í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginum 10. febrúar kynna þau m.a. niðurstöðurnar á málþinginu, Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna í Hátíðarsal Háskóla Íslands, kl. 15:00–16:30. Málþingið eru hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi og unnin í samstarfi við Netvís – Fjölmiðlanefnd.
Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki við Menntavísindasvið ræðir nýja drauma um menntun framtíðar í nýjasta þætti Menntavísindavarpsins. Hann hefur unnið mikið með sjálfbærnimenntun þar sem kemur við sögu þær hörmungar sem ganga á í heiminum af margvíslegu tagi; loftslagsváin, líffræðilegur fjölbreytileiki, stríð, fátækt og gervigreind. Þá kemur að spurningunni, hvernig eigum við að skipuleggja framtíðina og þar á meðal skólakerfin í ljósi þessara áskorana?
Bryndís Gunnarsdóttir varði nýverið doktorsrannsókn sína, Félagslyndi ungra leikskólabarna: Rannsókn á óyrtum félagslegum samskiptum í jafningjahópnum og mætti í Menntavísindavarpið á dögunum þar sem segir frá rannsókninni, hvað kom á óvart í niðurstöðunum og hvernig þær geta nýst áfram. Í doktorsrannsókninni fjallar hún um félagslyndi (e. sociality) ungra leikskólabarna með áherslu á þátttöku þeirra og færni í samskiptum við jafningja. Sérstaklega var skoðað hvernig þau beita óyrtum aðferðum til að taka virkan þátt í jafningjahóp, móta hann í samvinnu við önnur börn og skapa tilfinningu fyrir hinu „sameiginlega við“ (e. mutual we).
Ingimar Ólafsson Waage, deildarforseti listkennsludeildar Listaháskóla Íslands varði doktorsritgerð sína í Deild faggreinakennslu við Háskóla Íslands á dögunum. Í Menntavísindavarpinu ræðir hann doktorsverkefni sitt og ferlið að vinna doktorsritgerð. Hann ræðir jafnframt helstu niðurstöður rannsóknarinnar sem leiða í ljós mikilvægi þess að nemendum gefist tækifæri til að ígrunda listaverk og ræða hugmyndir sínar og tilfinningar í tengslum við þau og eigið líf. Við mælum með að hlustun!
Bjarnheiður Kristinsdóttir lektor í stærðfræði og stærðfræðimenntun á Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði ræðir í Menntavísindavarpinu um þá aðferðafræði sem er notuð í stærðfræðikennslu til að fá nemendur til að hugsa í stað þess að mata nemendur af upplýsingum. 
Hver er samfélagslegur ávinningur aukinnar fræðslu um stafræna borgaravitund? Er frumvarp mennta- og barnamálaráðherra um lög sem heimila samræmdar reglur um notkun snjalltækja og samfélagsmiðla í skólum málið? Eru spurningar sem  Svava Pétursdóttir, dósent við Menntavísindasvið og talskona stafrænnar borgaravitundar ræðir í Menntavísindavarpinu auk þess sem hún ræðir INSPECT rannsóknina þar sem hún rannsakar upplifun nemenda í 5. bekk og 9. bekk á eigin snjallsímanotkun.  
Bryndís Ingimundardóttir og Aðalheiður María Þráinsdóttir eru að ljúka meistaranámi á Menntavísindasviði og kynntu lokaverkefni sín á málþingi meistaranema í byrjun september. Bryndís er að ljúka meistaranámi í uppeldis- og menntunarfræði og gerði lokaverkefnið; Hamingjuhópurinn - Áhrif jákvæðra inngripa á hamingju og einmanaleika grunnskólabarna og Aðalheiður er að ljúka meistaranámi í tómstunda- og félagsmálafræði. Lokaverkefni hennar heitir: „Mér finnst ég geta allt núna‘‘: Reynsla og sýn nemenda á verkefnið Krakkar með krökkum.  
Berglind Gísladóttir, dósent á Menntavísindasvið HÍ kynnir rannsóknir sínar á Menntakviku í ár. Ein rannsóknin sem hún vinnur með Birnu Svanbjörnsdóttur, dósent við Háskólann á Akureyri, ber heitið Sameiginleg sýn á kennaramenntun á Íslandi.  En rannsóknir hafa ítrekað sýnt mikilvægi þess að kennaranám byggi á skýrri sameiginlegri sýn á hvað felst í góðri kennslu. Berglind ræðir rannsóknir sínar á kennaramenntun í Menntavísindavarpinu.  
Karen Rut Gísladóttir, prófessor við Menntavísindasvið og Anna Kristina Regina Söderström, doktorsnemi í þjóðfræði rannsaka um þessar mundir heimalestur. Þær telja að tryggja þurfi jafnrétti í kringum lestrarþjálfun barna, og ef lestur er settur alfarið á hendur foreldra og fjölskyldna þá er  hætta á því að börn fái mismikla þjálfun. Niðurstöður síðustu PISA rannsóknar benda til þess að það eru tengsl milli félags- og efnahagslegra aðstæðna fjölskyldna og  lesskilnings. Að þeirra mati er mikilvægt að rýna í það og skoða nánar. Tilgangur rannsóknar þeirra er að stuðla að samtali um samstarf milli skóla og  fjölskyldna í tengslum við lestrarnám og skoða reynslu foreldra af heimalestri og hvernig ólíkar aðstæður fjölskyldna endurspeglast í framkvæmd heimalesturs. Hægt er að lesa meira um rannsóknina á rannsóknarsíðu Menntavísindasviðs: https://mvsrannsoknir.hi.is/rannsokn/heimalestur/
Hanna Ragnarsdóttir er prófessor í fjölmenningarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún kíkti í Menntavísindavarpið og ræddi meðal annars stóra rannsókna sem hún leiðir og vinnu í samstarfi við þverfaglegt teymi. Rannsóknin ber heitið ESRCI – Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og ungmenna á Íslandi þar sem aðlögun flóttabarna og -ungmenna á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi er skoðuð. 
Í þessum þætti Menntavísindavarpsins mæta meistaranemarnir, Aníta Jasmín Finnsdóttir meistaranemi í uppeldis- og menntunarfræði og Þórunn Kristín Erlingsdóttir, meistaranemi á námsleiðinni: Menntun allra og sérkennslufræði og segja hlustendum frá meistaraverkefnum sínum sem þær kynntu á dögunum. Aníta Jasmín segir frá rannsókn sinni og meistaraverkefni sem ber heitið „Útvalin eða útilokuð: Valferli og aðgengi nemendaráða í íslenskum grunnskólum“ og Þórunn Kristín segir frá rannsókn sinni og meistaraverkefni sem heitir „Námsrými í íslenskuverum Reykjavíkurborgar“.   
Erlingur Jóhannsson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði ræðir í nýjasta Menntavísindavarpi um Heilsuferðalagið – langtímarannsókn á Íslendingum fæddum 1988. Rannsóknin er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands auk erlendra samstarfsaðila. Markmið rannsóknarinnar er að skoða langtímabreytingar á andlegri, félagslegri og líkamlegri heilsu Íslendinga fæddra árið 1988 frá unglingsárum (15 ára), for-fullorðinsárum (23 ára) til fullorðinsára (36 ára). Með því að brúa bilið á milli unglings- og fullorðinsára gefst einstakt tækifæri til að skilja hvernig andleg líðan, félagslegur stuðningur, þrek, hreyfing og svefn tengjast og móta heilsu á fullorðinsárum. 
Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir, aðjúnkt við Deild menntunar- og margbreytileika ræðir í nýjasta Menntavísindavarpi um doktorsrannsókn sína sem hún varði á dögunum. Heiti doktorsritgerðar Rannveigar er: Feður sem beitt hafa ofbeldi: Hindranir og möguleikar til breytinga. Niðurstöðurnar varpa m.a. ljósi á hvernig feðurnir takast á við óþægindi í frásögnum sínum af ofbeldi, föðurhlutverkinu og breytingum. Rannveig ræðir niðurstöðurnar, áskoranirnar við að rannsaka eldfim málefni og hvernig niðurstöður rannsóknarinnar geta nýst áfram. 
Rannveig Björk Þorkelsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið og Jóna Guðrún Jónsdóttir, aðjúnkt í Deild faggreinakennslu eru leiklistarkennarar Menntavísindasviðs og öflugir rannsakendur. Rannveig Björk hefur verið leiðandi í kennslufræði leiklistar á Menntavísindasviði og hafa rannsóknir hennar og Jónu Guðrúnar snúið að bættum kennsluaðferðum í leik- og grunnskóla með aðferðum leiklistar. Hér segja þær frá þremur stórum Erasmus+ verkefnum sem þær hafa leitt; m.a. EcoDigital sem fjallar um hvernig grípa megi til aðgerða til að draga út umhverfisáhrifum stafrænnar tæknivæðingar og rannsóknarverkefni lýtur að því hvernig stuðla megi að haflæsi og sjálfbærni í skólasamfélögum. 
Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði við Menntavísindasvið HÍ og Berglind Lilja Guðlaugsdóttir, doktorsnemi á Menntavísindasviði ræða í Menntavísindavarpinu rannsóknina Bragðlaukaþjálfun sem Anna Sigríður bjó til og leiðir. Markmið rannsóknarinnar er að skoða matvendni barna og nota aðferð þar sem börn eru markvisst þjálfuð í að smakka og upplifa mat með öllum skynfærum sínum. Berglind leiðir hliðarrannsókn af verkefninu sem kallast „Litlu laukarnir“ þar sem hún skoðar matvendni barna og þjálfar börn á leikskólastiginu. 
Sæberg Sigurðsson, aðjúnkt og doktorsnemi við Menntavísindasvið rannsakar starfsnám og er að skoða sérstaklega málaraiðn, múraraiðn og bifvélavirkjun. Í doktorsrannsókn sinni skoðar hann sveiflur í aðsókn í iðngreinar og hvað valdi því. Fyrstu niðurstöður benda til þess að efnahagssveiflur eru stærsta breytan varðandi aðsókn í tilteknar iðngreinar sem tengjast mannvirkjagreinum og fólk virðist vera að sækja í vel launuð störf.  
Meistaranemarnir Áróra Huld Bjarnadóttir úr Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, MA. og  Jóna Rún Gísladóttir úr Stjórnun menntastofnana M.Ed. kynntu meistaraverkefni sín á dögunum. Áróra segir frá verkefninu „Að berjast við dreka“: Reynsla mæðra með geðsjúkdóma af móðurhlutverkinu og Jóna Rún segir frá verkefni sínu: Áskoranir og bjargir leikskólastjóra sem starfa við ungbarnaleikskóla. 
Íris Ellenberger, dósent í Deild faggreinakennslu í kennslu samfélagsgreina er jafnframt öflugur rannsakandi og hefur skoðað jaðarhópa í íslensku samfélagi og hvernig jaðarsetning og innlimun virkar. Íris hefur einnig rannsakað hinseginleika; en um þessar mundir er hún til að mynda að skoða hinseginleika í skólastarfi með sérstaka áherslu á kennara, nemendur og hinseginleika foreldra út frá ólíkum sjónarhornum. Hér ræðir hún rannsóknir sínar og bakslagið sem er að eiga sér stað í hinseginbaráttunni. 
Jakob Frímann Þorsteinsson, nýdoktor í menntavísindum, aðjúnkt og kennari til margra ára í tómstunda og félagsmálafræði við Háskóla Íslands ræðir í Menntavísindavarpinu um doktorsverkefni sitt um útimenntun. Þar skoðar hann möguleika til útimenntunar á Íslandi m.a. með því að skoða reynslu og upplifanir fólks á aldrinum 20-40 ára sem hefur tekið þátt í útiferlum. Einnig ræðir hann um mikilvægi þess að fara út, hvernig skapa megi áskorandi umhverfi í kennslu og í frjálsri útiveru. 
loading
Comments 
loading