DiscoverMeining
Meining
Claim Ownership

Meining

Author: RÚV Hlaðvörp

Subscribed: 1Played: 16
Share

Description

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

7 Episodes
Reverse
Leikmenn

Leikmenn

2026-03-3058:03

„Að mínu áliti er kirkjan heilög. Þrátt fyrir að það séu til slæmir prestar, slæmir biskupar og það hafi verið mjög slæmir páfar í gegnum tíðina þá er kirkjan sjálf heilög. Ef hún væri það ekki, þá væri ég ekki í henni,’’ segir Jónas Sen, tónlistarmaður, gagnrýnandi og leikmaður í leikmannareglu Karmels í þætti dagsins. Í þættinum skoðum við leikmannareglunna nánar. Þegar talað er um leikmenn kaþólsku kirkjunar er átt við venjulegt kaþólskt fólk sem lifir sínu hefðbundna lífi utan kirkjunnar en kýs að fylgja andlegum reglum ákveðinna trúarreglna kirkjunnar. Hér á Íslandi finnum við leikmannareglu Karmels sem leikmenn eru vígðir í inn með formlegum hætti, fá brúnt herðaklæði í anda Karmelreglunnar og strengja ákveðin trúarleg heit. „Maður lofar að lifa í innri fátækt, ánetjast ekki auðum og völdum. Að reyna að vera í ákveðinni fjarlægð frá lífsgæðakapphlaupinu,“ segir Jónas um eitt af fornu loforðunum, en hann hefur verið í reglunni í rúman áratug. Rætt er við tvo leikmenn í reglunni, fyrirbæri eins og tíðabænir koma við sögu, einnig íslenskt-kaþólskt snjallsímaforrit, lesleiðbeiningar frá Róm og merkingarmyndun í kjölfar áfalla. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Karmel

Karmel

2026-03-2301:00:19

„Lífið er nógu þungt og því gott að hlæja vel,“ sagði ein karmelsystra árið 1957 í útvarpsviðtali. Karmelreglan er ein fárra höfuðreglna kaþólskrar trúar sem finnst hér á landi í dag. Á Karmelfjalli forðum hófst búseta einsetumanna sem bjuggu hver í sínum litla helli en komu daglega saman til bæna. Árið 1209 hafði hópurinn komið sér saman um að lifa samkvæmt skipulagðri reglu sem fékk heitið Karmel eftir fjallinu og eru fylgjendur hennar gjarnan kallaðir karmelítar. Í þættinum er skoðuð saga reglunnar og einsetuhefðin, Maríudýrkun og rík andleg bókmenntahefð sem hefur heillað marga utan veggja klaustranna. Við heyrum gömul og ný viðtöl við systur í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. „Þessar konur sem ævilangt hafa sagt skilið við ættland sitt og aðstandendur og flust til þessa fjarlæga eylands þar sem þær munu dvelja til hinstu stundar inniluktar gráum múrveggjum agaðar við sið löngu liðinna alda og fórna öllu því sem við hinir köllum lífshamingju fyrir trú sína,“ eins og Björn Th. Björnsson orðaði það í þætti sínum fyrir tæpum 70 árum. Teresa af Avíla kemur aftur við sögu í þessum þætti, Jóhannes af Krossi, Edith Stein, Teresa af Lisieux, Íslandsheimsókn Jóhannesar Páls páfa II, vefsíða karmelsystranna og ört vaxandi söfnuður kaþólskra í Asíu og Afríku. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Pentecostés

Pentecostés

2026-03-0959:29

„Við erum eins og eiginkonur Guðs,“ segir systir María de Pentecostés og bendir á gullhring á baugfingri vinstri handar. „Okkur langar að gefa Guði allt okkar líf.“ Við kynnumst systur Pentecostés í þættinum en hún er postulleg Maríusystir við St. Jósefskirkju sem tilheyrir reglunni Þernur drottins og Maríu meyjar frá Matará. Systurnar eru rúmlega 1200 í meira en 35 löndum víðs vegar um heiminn. Þær klæðast gráum kyrtli, skærbláum herðaklæðum og blárri blæju. Heilög Teresa af Avíla kemur sömuleiðis fyrir í þættinum, Maríusystur á samfélagsmiðlum, nun core-kvikmyndir, Black Narcissus, tónlistarkonan Rósalía og sitthvað fleira. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Dauðasynd

Dauðasynd

2026-03-0258:32

Sumir mega eta blóð og hold Krists, sameinast honum, öðlast eilíft líf. Aðrir ekki. Í þessum þætti er leitast við að skilja hverjir það eru sem mega meðtaka altarissakramentið og hverjir ekki. Flókinn syndalisti kaþólsku kirkjunnar er skoðaður, sér í lagi tvö brot á trúarritningunni sem teljast til alvarlegra synda, annars vegar samkynhneigðir sem lifa „virku hinsegin lífi“ og hins vegar fráskildir sem komnir eru í ný sambönd. Kaþólska kirkjan, á Íslandi sem og annars staðar, gerir sérstakan greinarmun á þeim sem hneigjast til samkynhneigðar og þeirra sem iðka hana. Samkynhneigðir mega sum sé meðtaka altarissakramentið, svo lengi sem þeir eiga sér ekki samkynja ástarlíf. Jakob Rolland, prestur, kanslari og fjölmiðlafulltrúi kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, útskýrir málið nánar. Hann segir að kirkjan sömuleiðis vonist til að samkynhneigðir breyti sér með tímanum og bætir við að hún veiti þeim aðstoð. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Altarissakramentið

Altarissakramentið

2026-02-1656:03

,,Altarissakramentið er líkami og blóð Jesú Krists,’’ segir kanslari kaþólsku kirkjunnar. Þáttastjórnandi er engu nær. Kirkjunnar fólk segir altarissakramentið aðal sakramentið í kaþólskri trú þar sem sókn sameinast Jesú Kristi. Þetta er bæði mikið kraftaverk og mikil ráðgáta, segir á vef kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Leitast er eftir að skilja fyrirbærið til hlítar í þætti dagsins. Vangaveltur um notkun og magn brauðs og víns koma við sögu en kaþólska kirkjan verslar ekki vín sitt í áfengisverslunum hér á landi eins og við flest. Einnig koma við sögu dæmisögur úr Biblíunni, guðslíkamahús, fermingarbörn í Hafnarfirði og ýmislegt fleira. Ferðalagið er drifið áfram af sögu Carlos Acutis, nýslegins dýrlings sem gjarnan er kallaður verndari internetsins enda fyrsti þúsaldardýrlingurinn sem þekktur er fyrir forritun á gagnagrunni um kraftaverk tengd altarissakramentinu. Við heimsækjum systur Pentecostés, nunnu í St. Jósefskirkju. Hún er nýkomin heim úr pílagrímsferð til Ítalíu með íslenskum unglingum. Þangað fóru þeir meðal annars til að vitja helgs dóms Acutis. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kaþólski söfnuðurinn á Suðurlandi hefur verið án eiginlegrar kirkju í meira en áratug, flakkað úr einu leiguhúsnæði í annað og heldur um þessar mundir messur sínar í tveggja hæða íbúðarhúsi við Smáratún 12 á Selfossi sem kirkjan festi kaup á fyrir nokkrum árum. „Þetta er að stærstum hluta fólk sem er fætt erlendis. Það er frá Póllandi, Litáen, Filippseyjum, spænskumælandi löndum, Norðurlöndunum, Bandaríkjunum, alls staðar að,“ segir Ragnar Geir Brynjólfsson, sjálfboðaliði í kirkjunni og leikmaður í Karmelreglunni, um söfnuðinn sem er að miklu leyti af erlendu bergi brotinn. Við kynnumst Ragnari og Maríu Geraldine Cuizon, eiginkonu hans, í þætti dagsins en María tekur líka virkan þátt í safnaðarstarfinu. Við sækjum messu í Smáratúni og heimsækjum sóknarprestinn, séra Mercurio Rivera, sem er frá Filippseyjum. Einnig er fjallað um þekktar Maríubirtingar í kaþólskri hefð, sér í lagi sýn ungrar nunnu við Rue du Bac í París árið 1830, og rýnt í kraftaverkamedalíuna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í fyrstu þáttum Meiningar eru hinar ýmsu hliðar Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi skoðaðar. Við byrjum á trúarsöfnuði kaþólskra á Selfossi þar sem nú er verið að byggja nýja kirkju.„Núna er komið að því að þetta er ekki lengur mögulegt vegna þess að það eru svo margir. Á Selfossi og í kringum Selfoss eru fleiri en þúsund kaþólskir,“ segir David B. Tencer, biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Við heimsækjum hann í þættinum og fræðumst fræðast nánar um málið.Nýja guðshúsið ber heitið Kirkja hins heilaga kross og er tileinkað kirkjunni í Kaldaðarnesi sem á sínum tíma var einnig helguð heilögum krossi Jesú Krists. Við kirkjuna í Kaldaðarnesi stóð kross einn sem mikill átrúnaður hvíldi á. Að gefnu tilefni kynnum við okkur krossinn í Kaldaðarnesi með Dr. Margaret Cormack, miðaldafræðingi sem stúderað hefur íslenska dýrlinga og helgisögur. Sömuleiðis skoðum við aldagamla sögu krossmarksins með hjálp þáttar úr safni RÚV frá 1969 í umsjón Séra Lárusar Halldórssonar og Sigurðar Helga Guðmundssonar.Við byrjuðum á því að skoða aukna trúrækni ungs fólks á síðasta ári og höldum þeirri rannsókn áfram við og við í þessari þáttaröð.„Það eru alltaf ný andlit í hverri einustu sunnudagsmessu,“’ segir Rúnar Gerard Ragnarsson, ungur sjúkraliði og félagi í nýstofnuðu Bræðralagi kaþólsku kirkjunnar. Hann segir okkur m.a. frá uppvaxtarárum sínum á Selfossi, söfnuðinum þar og trú sinni almennt. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Comments