DiscoverVeröld sem er
Veröld sem er
Claim Ownership

Veröld sem er

Author: Hallgrimur Oddsson

Subscribed: 2Played: 1
Share

Description

Í Veröld sem er, hlaðvarpi Evrópustrauma hugveitu, er fjallað um alþjóðamál, Evrópumál og stöðu og hagsmuni Íslands á alþjóðavettvangi. Með gestum af öllu tagi, sérfræðingum, stjórnmálafólki og álitsgjöfum er rýnt í stóru málin, fréttir líðandi stundar og þau atriði sem varða mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu.
3 Episodes
Reverse
Hallgrímur, Hjalti Geir Erlendsson og Hjörtur Ingvi Jóhannsson ræða um það sem efst er á baugi. Frétt Politico um að ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla gæti farið fram síðsumars, tollar Trumps í ljósi dóms Hæstaréttar Bandaríkjanna um ólögmæti frelsis-tollana, stigmögnun í Íran, Epstein-skjölin, handtaka Peter Mandelson og fingraför hans á setningu hryðjuverkalaganna gegn Íslandi 2008 eru til umfjöllunar. 00:00 Frétt Politico um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst10:35 Tollar Trumps22:07 Íran32:20 Epstein, Mandelson og Íslandstengingar
Þingmaðurinn og fyrrum utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ræðir stöðu mála í Úkraínu, hvernig innrás Rússa fyrir fjórum árum hefur haft áhrif á hana sem manneskju, um þýðingu þess fyrir Ísland að vera bandamaður, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna, og Evrópusambandsumræðuna á Íslandi. www.evropustraumar.is00:00 Inngangur01:26 Þórdís Kolbrún breyttist og mun aldrei breytast til baka05:12 Stuðningur almennings við Úkraínu09:57 Vopnuð átök hefðu áhrif á Ísland14:45 Ræður JD Vance og Rubio í Munchen20:00 Pallborðsumræður með H. Clinton, Navalnia og Haddad21:44 Friðarviðræður við Rússa og framtíð Úkraínu27:02 Staða Nato og viðbrögð Evrópu við breyttri stefnu BNA29:28 Hvernig geta Evrópuleiðtogar talað um og við Bandaríkjastjórn38:00 Þátttaka Íslands á alþjóðavettvangi - hvað gerist bakvið tjöldin?45:23 ESB-umræðan á Íslandi: Ekki bara já eða nei
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar, er fyrsti gestur í Veröld sem er, hlaðvarpsþáttum um alþjóðamálin og stöðu Íslands. Dagur ræðir við Hallgrím um NATO og stöðu þess í dag, stefnu Bandaríkjanna undir Trump og áhrifin í Evrópu, Evrópusambandsmál og valkosti Íslands á víðsjárverðum tímum. Evrópustraumar er sjálfstæð hugveita um Evrópumál. Greinar, útgefið efni og skráning á póstlista má nálgast á evropustraumar.is. 00:00 Kynning01:42 NATO, NATO-þingið og heimsmálin35:50 Evrópusambandsumræðan
Comments 
loading