Discover
Korter í kosningar
Korter í kosningar
Author: Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson
Subscribed: 45Played: 171Subscribe
Share
© Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson
Description
Korter í kosningar er hlaðvarp um kosningarnar framundan og er sniðið fyrir fólk sem vill fylgjast vel með þegar það er korter í kosningar.
Þáttastjórnendur eru Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson. Fyrirspurnir: maggi@maggi.is
Þáttastjórnendur eru Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson. Fyrirspurnir: maggi@maggi.is
8 Episodes
Reverse
Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi kíktu í Korterið. Kjörtímabilið 2006-2010 snerist í minningunni bara um marga borgarstjóra, dramatík og efnahagshrun. Það mikilvægasta á því kjörtímabili var það sem gerðist á bakvið tjöldin í skipulagsmálum þegar unga kynslóðin í borgarstjórn þvert á flokka sammæltist um að gera það sem væri rétt fyrir Reykjavík. Þökkum Enor, Tryggingum og ráðgjöf og Jómfrúnni fyrir samstarfið.
Korter vikunnar er tileinkað kosningastjórum um land allt. Diljá Ragnarsdóttir kosningastjóri Samfylkingarinnar og Helga Lára Haarde kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins kíktu til okkar í spjall um starf kosningastjórans og hvernig þeim líður með að vinna á bakvið tjöldin, hvort þeim takist að skila inn löglegum framboðslistum með öllum 46 frambjóðendum, því það má ekki klikka og hvort það sé búið að finna kosningaskrifstofu. Þökkum Enor, Tryggingum og ráðgjöf og Jómfrúnni fyrir samstarfið.
Byrjendanámskeið í Borgarlínu með Davíð Þorlákssyni nýjum framkvæmdastjóra Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins. Hvernig lítur planið út? Er samgöngusáttmáli rofinn ef Borgarlína er sleginn af borðinu? Hvað er meira í samgöngusáttmála? Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar
FM Belfast söngvarinn Bjössi “Borko” Kristjánsson og kosningagreinandinn Silja Rán Arnarsdóttir fara yfir stöðuna. Sameiningar sveitarfélaga, besti oddvitinn, Reykjavík, Hafnarfjörður, Drangsnes og Lars Løkke Rasmussen. Þökkum Enor endurskoðun, Tryggingum og ráðgjöf og Jómfrúnni fyrir samstarfið.
Fyrsta kosningaspá Korter í kosningar er kynnt í upphafi þáttar. Gestir eru Margrét Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar í Garðbæ fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir frambjóðandi í 3. sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Líflegar og skemmtilegar umræður um Garðabæ og Reykjavík og allt þar á milli.
Sálirnar í Besta flokknum Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri og S. Björn Blöndal fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra útskýrðu fyrir okkur hvernig flokkur sem bauð einu sinni fram og aldrei aftur - gjörsigruðu kosningarnar árið 2010. Ásamt því að líta um öxl spáðu þeir í spilin fyrir komandi kosningar þann 16. maí nk. Enor endurskoðun og Jómfrúin eru styrktaraðilar Korter í kosningar.
Hlaðvarpskempurnar og goðsagnirnar Árni og Grétar úr Hisminu komu til okkar í stöðugreiningu. Mun stemningin ein vinna kosningarnar í vor? Hvernig var hlaðvarpsleikurinn fyrir 13 árum? Má taka úr Góða hirðis gámnum í Sorpu eins og Þór bæjarstjóri? Samstarfsaðilar Korter í kosningar eru Enor endurskoðun og Jómfrúin.
Magnús Már Guðmundsson fyrrverandi borgarfulltrúi og Áslaug María Friðriksdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi spjalla við þáttastjórnendur Magnús Sigurbjörnsson fyrrverandi framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og Pétur Krogh Ólafsson fyrrverandi aðstoðarmann borgarstjóra um borgarstjórnarkosningarnar. Fullt af fyrrverandi í fyrsta þætti af Korter í kosningar.










