Asthmakastið

Næstum því systurnar, Sunneva og Inga brúa bilið á milli Reykjavíkur og Barcelona og ræða mikilvæg málefni á borð við sambönd, kynlíf, geðkvilla, vandræðalegar sögur og dagsins amstur á misgáfulegan hátt ásamt því að koma með hot takes sem gætu orðið til þess að þeim verði cancellað fyrirvaralaust

#29 - Fóstureyðing: Besta leiðin til að byrja daginn

Í þættinum fara systurnar yfir folk sem dritar niðu börnum eins og þau fái borgað fyrir það þegar raunin er akkúrat andstæðan. Þær hafa einnig fundið sér nýtt uppáhald til að fylgjast með á samfélagsmiðlum og lesa upp nokkur vel valin "ljóð" og reyna að túlka þau eftir bestu getu.

01-29
49:12

#28 Rage þáttur - Þegar þú færð bráðabjúg í píkuna og hún verður eins og nýbakað pulsubrauð

Í þessum þætti fara systurnar REIÐAR yfir yfirvofandi þriðju heimsstyrjöldina sökum Trump og Elon Musk og hvort að Kína og Rússland muni berjast með Evrópu gegn Bandaríkjunum. Hvernig er hægt að sofa hjá yfir 1000 mönnum á sólahring og af hverju er ekki búið að hengja alla mennina sem tóku þátt? EF ÞÚ ÁTT OG NOTAR BANANABOX ERTU DAUÐ/UR FYRIR OKKUR

01-24
50:30

#27 Blámaður með sultutönn fer til Íslands - Sunneva dó og Inga rændi Friðheima

í þessum þætti fara systurnar yfir jólin og nýlega Íslandsför sem Inga hélt í ásamt kærastanum sínum. Hvernig er svona auðvelt að ræna Friðheima? Hver fer þrisvar til að rótarfylla eina tönn? Hvað finnst stelpunum í raun um LXS gengið og IceGuys?

01-15
52:26

#26 CE(d)Ó - Luigi Mangione, morðinginn sem allir thirsta yfir.

Í þættinum fara systurnar yfir morðið á forstjóra United Healthcare eða öllu heldur, yfir meintan morðingja. Höfum við loks fengið okkar eigin Batman í líki Luigi? Hvenær, ef einhvern tímann er morð réttlætanlegt? SVARIÐ ER NÚNA! Niður með ríka fólkið, niður með spillinguna, þriðja heimsstyrjöldin er við það að skella á og því er TILVALIÐ að drepa ríka fólkið áður en þau drepa okkur öll <3

12-17
46:06

#25 Fólkið sem við eltihrellum á samfélagsmiðlum

Í þættinum fara systurnan yfir fólk sem þær stalka á samfélagsmiðlum, en í stað þess að fylgja og dá venjulega áhrifavalda, eru þær með örlítið óþektara og ja... skrítnara fólk á heilanum.

12-03
55:40

#24 Óhæfileikar - Aumingi með hor og slef og kúk í bandi

Í þættinum fara systurnar yfir hæfileika sína og óhæfileika sína. Af hverju sökkum við í að anda? Hvernig giskar maður á hversu mikið pasta þarf að sjóða á haus? Af hverju er svona erfitt að stækka á sér rassinn?

11-27
53:32

#23 Þegar þú slærð gamlan mann sem lá þversamur í einni rænulaug

Í þættinum fara systurnar yfir hvað drifið hefur á daga þeirra frá því í seinustu viku. Sunneva endaði einhvernveginn sem þræll eldri borgara og sló tengdaföður sinn utan undir og öskraði á hann. Er hægt að stækka of litlar gallabuxur? SVARIÐ ER JÁ. Viltu læra hvernig þú gerir það? HLUSTAÐU Á ÞÁTTINN

11-20
50:38

#22 Trúbadorar eru rock bottom samfélagsins

Í þættinum fara systurnar yfir úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum og hvað drifið hefur á daga þeirra í vikunni. Af hverju hatar fólk konur það mikið að þau myndu frekar kjósa lirfu til forseta heldur en mjög hæfa konu? Af hverju eru trúbadorar til og hvað getum við gert til að stöðva þá? Diddy holan heldur áfram að stækka með nýjum upplýsingum sem koma fram.

11-13
47:10

#21 Djammið og þynnkan - Þegar þú týnir pabba þínum á bender

Í þættinum velta systurnar upp úr sameiginlegri þynnku sinni við upptökurnar og rifja upp djammsögur og þeirra verstu þynnkur. Hvað gerir kona þegar hún týnir pabba sínum eftir bender? Hvernig eru menntaskólaböll löglegt concept? Hversu mörg rokkstig vann Sunneva þegar hún ældi á hurðina á ráðhúsinu?

11-06
54:04

#20 Fólk sem við hötum (þetta er til þín, tussa)

Í þættinum fara systurnar yfir fólk sem þær þola ekki og hluti sem fólk gerir sem fara í taugarnar á þeim. Af hverju er leiðinlegasti maður heims enn í vinahóp? Af hverju eru sumir svona fokkíng boring?

10-30
56:46

#19 Kærastinn sem setti sæði í tannkremið

Í þættinum fara systurnar yfir svokallaðar "Er ég rasshaus?" sögur. Ertu rasshaus fyrir að hætta með gæjanum sem laumaði sæði í tannkremið þitt? Ertu rasshaus fyrir að banna nágranna þínum að nota sundlaugina þína? Ertu rasshaus þegar þú öskrar yfir alla í fjölskylduboði að systir þín hafi sofið hjá meira en 100 manns?

10-23
53:20

Diddy Updates | Varúð Viðbjóður

VARÚÐ | TRIGGER WARNING Í þessum örþætti fara systurnar yfir það sem hefur skeð í P.Diddy málinu og lesa þar upp kæru gegn honum þar sem hann er sakaður um hópnauðgun ásamt félögum sínum. Málið er viðbjóður frá A til Ö og við mælum ekki með að fólk undir aldri hlusti, hvað þá fórnarlömb kynferðis og/eða líkamlegs ofbeldis.

10-20
36:18

#18 Menendez bræðurnir | Þarf alltaf að vera ógeðskall?

Í þættinum fara systurnar yfir mál Menendez bræðranna eftir að hafa legið flatar yfir nýju seríunni Monsters. Hafa þeir setið af sér sína refsingu? Var dómur þeirra sanngjarn? Þarf alltaf að vera pervertakall?

10-16
46:12

#17 Glitch in the Matrix - Erum við yfir höfuð til?

Í þættinum fara systurnar yfir Mandela effect og glitch in the matrix sögur. Var Monopoly kallinn aldrei með einglyrni? Hvernig er fólk endalaust að deyja og re-spawna í einhverju loaduðu save-i? Erum við yfir höfuð raunveruleg eða er þetta allt bara einhver tölva? HJÁLP!

10-09
46:34

P.Diddy Updates - Rannsókn á morði Tupac hafin á ný

Í þessum örþætti fara systurnar yfir nýjustu fregnir af P.Diddy málinu umtalaða. Hver er Dave Dave? Af hverju berjast fréttamiðlar um kaup á myndbandi af nauðgun ungrar poppstjörnu? Hverjir sóttu partýin hjá Diddy? Þetta og margt fleira!

10-07
32:08

P.Diddy Updates-Staðfest að fleiri frægir eru sekir

Hollywood heldur áfram að brenna. Í þessum örþætti fara systurnar yfir nýjustu vendingarnar í P.Diddy málinu. Yfir 3285 meint fórnarlömb hafa stigið fram, það yngsta aðeins 9 ára gamalt. Lögfræðingur staðfestra fórnarlamba hefur komið fram og sagt að mun fleiri eru sekir í þessu hörmulega máli, þar á meðal margir heimsfrægir einstaklingar sem við flest ættum að þekkja.

10-02
28:56

#16 P. Diddy málið. Er Beyonce morðingi? Er Tupac á lífi?

Í þættinum fara systurnar yfir handtöku P. Diddy og kærurnar á hendur honum ásamt alls kyns orðrómum og slúðri sem að hafa fylgt fast á eftir. Lét Jay-Z drepa Aaliyah fyrir Beyonce? Hvernig tengist dauði Michael Jackson þessu öllu saman? Rísa Tupac og Biggie upp frá dauðum og bera vitni? Var Kanye í raun að hjálpa Taylor Swift þegar hann drullaði yfir hana á verðlaunahátið? HVAÐ ER AÐ FRÉTTA MEÐ ÞAÐ AÐ EIGA ÞÚSUND FLÖSKUR AF BARNAOLÍU?! (og var búið að setja fíkniefni í hana til að fórnarlömb Diddy gætu ekki barist á móti?)

10-02
56:42

#15 ICKS og annað sem við hötum við (næstum) alla menn

Í þættinum fara systurnar síkátu yfir hluti sem gefa þeim icks, þá sérstaklega þegar kemur að óæðra kyninu (sem eru karlar ef þú ert heimskur og vissir það ekki) Hvernig dettur mönnum í hug að verða kalt? Af hverju þurfa þeir að labba í sandi og niður brekkur? Geta þeir ekki bara sleppt því að eiga sér áhugamál og farið í stríð eða eitthvað annað karlmannlegt? TAKTU. HELVÍTIS. SÚKKULAÐIÐ. ÚT. ÚR. DAGATALINU. EINAR ÁSKELL Ást og friður <3

09-25
56:28

#14 Þegar þú og vinkona þín fáið klemma frá sama gæja

Í þættinum fær Asthmakastið til sín gestinn Arndísi sem á met í að sofa hjá ömurlegum gæjum OG besta glowup Íslandssögunnar. Hvað tekur maður til ráðs þegar að gæinn sem þú ert hrifin af smitar þig OG VINKONU ÞÍNA af klamydíu? Hvað með þegar að þú sefur hjá gæja og kemst svo að því að hann á kærustu sem á von á barni? Tjah, væntanlega þrífur þú Gollum æluna hans og ghostar hann svo.

09-18
53:56

#13 Þegar þú ert handtekin fyrir mansal (óvart)

Í þættinum fara systurnar yfir ferðasögur. Má þar helst nefna þegar Sunneva var handtekin á flugvelli í Portúgal fyrir að ræna sinni eigin dóttur eða þegar hún sprittaði á sér píkuna eftir að hafa reynt að pissa í múslimsku bænahúsi fyrir konur. Eða þá þegar Inga fékk matareitrun í Póllandi rétt fyrir flug en tókst samt að prumpa ekki allt flugið ANNAÐ EN RAÐFRETARINN sem hún var svo óheppin að lenda fyrir aftan í flugi á leið til Íslands.

09-11
01:13:14

Recommend Channels