DiscoverAsthmakastið
Asthmakastið
Author: Inga og Sunneva
Subscribed: 24Played: 194Subscribe
Share
© Inga og Sunneva
Description
Næstum því systurnar, Sunneva og Inga brúa bilið á milli Reykjavíkur og Barcelona og ræða mikilvæg málefni á borð við sambönd, kynlíf, geðkvilla, vandræðalegar sögur og dagsins amstur á misgáfulegan hátt ásamt því að koma með hot takes sem gætu orðið til þess að þeim verði cancellað fyrirvaralaust
26 Episodes
Reverse
Í þættinum fara systurnar yfir hvað drifið hefur á daga þeirra frá því í seinustu viku.
Sunneva endaði einhvernveginn sem þræll eldri borgara og sló tengdaföður sinn utan undir og öskraði á hann.
Er hægt að stækka of litlar gallabuxur? SVARIÐ ER JÁ.
Viltu læra hvernig þú gerir það? HLUSTAÐU Á ÞÁTTINN
Í þættinum fara systurnar yfir úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum og hvað drifið hefur á daga þeirra í vikunni.
Af hverju hatar fólk konur það mikið að þau myndu frekar kjósa lirfu til forseta heldur en mjög hæfa konu?
Af hverju eru trúbadorar til og hvað getum við gert til að stöðva þá?
Diddy holan heldur áfram að stækka með nýjum upplýsingum sem koma fram.
Í þættinum velta systurnar upp úr sameiginlegri þynnku sinni við upptökurnar og rifja upp djammsögur og þeirra verstu þynnkur.
Hvað gerir kona þegar hún týnir pabba sínum eftir bender?
Hvernig eru menntaskólaböll löglegt concept?
Hversu mörg rokkstig vann Sunneva þegar hún ældi á hurðina á ráðhúsinu?
Í þættinum fara systurnar yfir fólk sem þær þola ekki og hluti sem fólk gerir sem fara í taugarnar á þeim.
Af hverju er leiðinlegasti maður heims enn í vinahóp?
Af hverju eru sumir svona fokkíng boring?
Í þættinum fara systurnar yfir svokallaðar "Er ég rasshaus?" sögur.
Ertu rasshaus fyrir að hætta með gæjanum sem laumaði sæði í tannkremið þitt?
Ertu rasshaus fyrir að banna nágranna þínum að nota sundlaugina þína?
Ertu rasshaus þegar þú öskrar yfir alla í fjölskylduboði
að systir þín hafi sofið hjá meira en 100 manns?
VARÚÐ | TRIGGER WARNING
Í þessum örþætti fara systurnar yfir það sem hefur skeð í P.Diddy málinu og lesa þar upp kæru gegn honum þar sem hann er sakaður um hópnauðgun ásamt félögum sínum.
Málið er viðbjóður frá A til Ö og við mælum ekki með að fólk undir aldri hlusti, hvað þá fórnarlömb kynferðis og/eða líkamlegs ofbeldis.
Í þættinum fara systurnar yfir mál Menendez bræðranna eftir að hafa legið flatar yfir nýju seríunni Monsters.
Hafa þeir setið af sér sína refsingu?
Var dómur þeirra sanngjarn?
Þarf alltaf að vera pervertakall?
Í þættinum fara systurnar yfir Mandela effect og glitch in the matrix sögur.
Var Monopoly kallinn aldrei með einglyrni?
Hvernig er fólk endalaust að deyja og re-spawna í einhverju loaduðu save-i?
Erum við yfir höfuð raunveruleg eða er þetta allt bara einhver tölva?
HJÁLP!
Í þessum örþætti fara systurnar yfir nýjustu fregnir af P.Diddy málinu umtalaða.
Hver er Dave Dave?
Af hverju berjast fréttamiðlar um kaup á myndbandi af nauðgun ungrar poppstjörnu?
Hverjir sóttu partýin hjá Diddy?
Þetta og margt fleira!
Hollywood heldur áfram að brenna.
Í þessum örþætti fara systurnar yfir nýjustu vendingarnar í P.Diddy málinu.
Yfir 3285 meint fórnarlömb hafa stigið fram, það yngsta aðeins 9 ára gamalt.
Lögfræðingur staðfestra fórnarlamba hefur komið fram og sagt að mun fleiri eru sekir í þessu hörmulega máli, þar á meðal margir heimsfrægir einstaklingar sem við flest ættum að þekkja.
Í þættinum fara systurnar yfir handtöku P. Diddy
og kærurnar á hendur honum ásamt alls kyns orðrómum og slúðri sem að hafa fylgt fast á eftir.
Lét Jay-Z drepa Aaliyah fyrir Beyonce?
Hvernig tengist dauði Michael Jackson þessu öllu saman?
Rísa Tupac og Biggie upp frá dauðum og bera vitni?
Var Kanye í raun að hjálpa Taylor Swift þegar hann drullaði yfir hana á verðlaunahátið?
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA MEÐ ÞAÐ AÐ EIGA ÞÚSUND FLÖSKUR AF BARNAOLÍU?! (og var búið að setja fíkniefni í hana til að fórnarlömb Diddy gætu ekki barist á móti?)
Í þættinum fara systurnar síkátu yfir hluti sem gefa þeim icks,
þá sérstaklega þegar kemur að óæðra kyninu (sem eru karlar ef þú ert heimskur og vissir það ekki)
Hvernig dettur mönnum í hug að verða kalt?
Af hverju þurfa þeir að labba í sandi og niður brekkur?
Geta þeir ekki bara sleppt því að eiga sér áhugamál og farið í stríð eða eitthvað annað karlmannlegt?
TAKTU. HELVÍTIS. SÚKKULAÐIÐ. ÚT. ÚR. DAGATALINU. EINAR ÁSKELL
Ást og friður <3
Í þættinum fær Asthmakastið til sín gestinn Arndísi sem
á met í að sofa hjá ömurlegum gæjum OG besta glowup Íslandssögunnar.
Hvað tekur maður til ráðs þegar að gæinn sem þú ert hrifin af smitar þig OG VINKONU ÞÍNA af klamydíu?
Hvað með þegar að þú sefur hjá gæja og kemst svo að því
að hann á kærustu sem á von á barni?
Tjah, væntanlega þrífur þú Gollum æluna hans og ghostar hann svo.
Í þættinum fara systurnar yfir ferðasögur.
Má þar helst nefna þegar Sunneva var handtekin á flugvelli í Portúgal fyrir að ræna sinni eigin dóttur eða þegar hún sprittaði á sér píkuna eftir að hafa reynt að pissa í múslimsku bænahúsi fyrir konur.
Eða þá þegar Inga fékk matareitrun í Póllandi rétt fyrir flug en tókst samt að prumpa ekki allt flugið ANNAÐ EN RAÐFRETARINN sem hún var svo óheppin að lenda fyrir aftan í flugi á leið til Íslands.
Í þættinum ræða systurnar alls kyns obsessions og hyper fixations sem þær hafa fengið.
Mun Ingu takast að hæna að sér dúfu?
Hvað gerir maður ef maður uppfyllir ekki árlega kúkakvótann sinn í Norður-Kóreu?
Af hverju eru allir kaþólskir prestar með ógeðslega fyndinn hreim?
Þurfti í alvöru að gera remake af Buffy The Vampire Slayer?
Í þættinum fá systurnar til sín sinn fyrsta gest!
Uppeldissystir Ingu og vinkona þeirra beggja, hún Anna Lilja, kemur og deilir með okkur sínum allra verstu stefnumótasögum ásamt því sem systurnar segja sínar eigin (ásamt innsendum sögum).
Hver kynnir manneskju fyrir stórfjölskyldu sinni á fyrsta stefnumóti?
Af hverju tekur maður road rage þegar hann býður konu á ísdeit?
Hversu lengi hefði Inga haldið áfram að næstum því detta ef deitið hennar hefði ekki bjargað henni frá glötun?
Þetta og svo allt of mikið meira!
Systurnar ræða skólasögur.
Voru allir í grunnskóla þar sem einn kennarinn var þekktur fyrir að vera pervert? Eru bara til leiðinlegir dönskukennarar?
Af hverju var(er?) nauðgunarmenning svona stórt vandamál í MH?
AF HVERJU STINGUR KONA PENNA INN Í HANDAHOLUNA SÍNA?
All in all, grunn- og menntaskólaárin voru skrautleg fyrir flesta (nema mögulega Sunnevu sem átti mest wholesome skólagöngu sem sögur fara af)
Í þættinum ræða systurnar lauslega þegar Inga vann fyrir
mann sem reyndist svo vera víetnamskur mafíósi sem stundar mannsal.
Einnig er farið yfir leyndardómana sem þær hafa skrifað hjá sér í notes, þó þær sjálfar geti ekki einu sinni leyst gáturnar og finna þær upp á nýju borðspili í leiðinni.
Í þættinum fara systurnar yfir hræðilegar, fyndnar og vandræðalegar vinnusögur.
Má þar nefna þegar Inga vann á vinsælum veitingastað og eigendurnir neyddu starfsfólkið til að framreiða skólpmarineraðan mat eða þegar yfirmaðurinn hennar greiddi henni fyrir að þegja yfir kynferðislegu áreiti (spoiler alert; hún sagði öllum frá því).
Eða þá þegar Sunneva varð óvart lögregluþjónn þegar hún vann í Bónus á Laugaveginum eða smánaði blindann mann og kallaði hann moldvörpu.
All in all, allt hræðilegt en ógeðslega fyndið.
Í þættinum deila systurnar vandræðalegum sögum af sér.
Má þar nefna þegar Sunneva flassaði fram- og afturrassi fyrir framan alla nágranna sína eða þegar Inga smánaði sjálfa sig því hún stóð í þeirri trú að hún kynni táknmál (þrátt fyrir að hafa aldrei lært stakt orð í því).
HVAÐ ÆTLI SÉ EIGINLEGA AÐ?
Comments
Top Podcasts
The Best New Comedy Podcast Right Now – June 2024The Best News Podcast Right Now – June 2024The Best New Business Podcast Right Now – June 2024The Best New Sports Podcast Right Now – June 2024The Best New True Crime Podcast Right Now – June 2024The Best New Joe Rogan Experience Podcast Right Now – June 20The Best New Dan Bongino Show Podcast Right Now – June 20The Best New Mark Levin Podcast – June 2024
United States