Dýrheimar

Dýrheimar halda úti hlaðvarpi sem fjallar um hin ýmsu málefni tengd hundum og köttum með áherslur samfélagsins í forgrunni. Fjallað er um það sem eigendur þurfa til að annast dýrin sín með öruggum hætti, tryggt velferð þeirra og heilsu, bæði andlega og líkamlega.

2.6. Animalía - gæludýrasjúkrahús

Helga Hjartardóttir, dýralæknir og annar eigenda Animalíu kom í spjall til okkar um þjónustuna sem allir gætu þurft á að halda en enginn vill þurfa að nýta. Animalía er fyrsta gæludýrasjúkrahúsið á Íslandi sem er opið allan sólahringinn.

11-03
47:02

2.5. Elísabet dýralæknir og Dýraþjónusta Reykjavíkur

Við fengum Elísabetu dýralækni til þess að kynna Dýraþjónustu Reykjavíkur fyrir okkur, Elísabet hefur víðtæka reynslu af dýralæknastörfum á öllum sviðum og sinnir nú einnig heimaþjónustu til dýraeigenda. 

10-20
36:23

2.4 Hundahlaup, canicross og vellíðan hunda í fyrirrúmi!

Viðtal við Kolbrúnu Örnu, dýrahjúkrunarfræðing um Hundahlaupið 2025, forsögu, samvinnu hunds og eiganda og hvaða tækifæri eru úti fyrir bætta vellíðan og ummönun hunda.

08-29
58:50

2.3 Inam dýralæknir segir okkur frá öldrun katta

Viðtal við Inam Rakel dýralækni á Dýralæknastofu Reykjavíkur og sérstaka kisuáhugakonu! Inam heldur úti instagram aðganginum "kisuhornid" á instagram og deilir þar fróðleik fyrir áhugasama um málefni tengd kisum! 

05-15
31:11

2.2. Heiðrún Huld og Skari löggæsluhundur

Viðtal við Heiðrúnu Huld lögreglukonu sem er með löggæsluhundinn Skara. Spjall um lögregluhunda, þjálfun á löggæslu- og vinnuhundum og almennt um hundahald!

04-01
31:54

2.1. Dýrheimar - upphafið, þróunin og framtíðin!

Viðtal við Ingibjörgu, annan eiganda Dýrheima og Jóhönnu Líf um stofnun Dýrheima, hvað hefur breyst, þróunina og hvað sé framundan!

03-17
01:10:14

17. Dýrfinna og áramótin

Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Eygló Anna, meðlimur Dýrfinnu fara yfir nokkur atriði varðandi áramótin, hegðun hræddra dýra og ráðstafanir.

12-20
19:19

16. Áramótin og dýrin

Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Albert, hundaþjálfari fara yfir áramótaráð, þjálfun og hvað er gott að hafa í huga yfir tímabilið.

12-18
16:52

15. Fóðrun kettlinga

Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur með Award of merit í næringu smádýra og Gauja fara yfir næringu kettlinga frá upphafi lífs og fram yfir vaxtarskeiðið.

02-01
28:55

14. Yfirvegaður hvolpur

Auður Björnsdóttir hundaþjálfari og Theodóra ræða saman um þá þætti sem skipta máli í að ala upp yfirvegaðan hvolp.

10-10
22:14

13. Fóðurskammtar hunda og katta

Hvað gefum við dýrinu okkar mikið að borða? Hversu oft á dag? Hvað þarf að hafa í huga? Eru fleiri leiðir? Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Gauja ræða saman um málefnið. 

10-06
21:29

12. Hundasýningar - nokkur ráð

Í þættinum fjalla Theodóra og Gauja um hundasýningar og nokkur ráð sem gott er að hafa í huga fyrir þær. 

10-03
22:01

11. Samfélagsvinur

Í þættinum fjalla Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Auður Björnsd. hundaþjálfari um umhverfisþjálfun, þætti sem skipta máli í að opna samfélagið enn frekar með hundum sem geta farið með okkur hvert sem er. 

09-29
25:00

10. Stress í köttum

Í þættinum ræða Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Gauja, sölu- og markaðsstjóri um streitu katta, áhrif á andlega og líkamlega heilsu ásamt því hvað sé hægt að gera.

06-16
26:03

9. Næring 101

Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Gauja, sölu-og markaðsstjóri ræða saman um grunn í næringu dýra.  

06-04
36:34

8. Hundasýningar

Í þættinum fjöllum við aðeins um hundasýningar, þjálfun hundanna, sýnendurna og hvað er gott að hafa í huga! 

06-01
32:17

7. Hundaþjálfun og skilyrðingar

Í þessum þætti veltum við fyrir okkur hundaþjálfun og skilyrðingum. 

05-26
33:47

6. Kettir og útivera

Í þessum hlaðvarpsþætti Dýrheima ræðum við ketti, útiveru katta, hvort kettir þurfi að vera útikettir og svo varptímann góða. 

05-10
23:06

5. Að velja hinn eina sanna hvolp

Í fimmta hlaðvarpsþætti Dýrheima fara Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Albert, hundaþjálfari Dýrheima aðeins yfir nokkra hluti sem gott er að hafa í huga þegar komið er að því að velja hinn eina sanna hvolp í fjölskylduna. 

04-05
25:15

4. Að fá sér hvolp

Í fjórða hlaðvarpsþætti Dýrheima fara Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Albert, hundaþjálfari Dýrheima aðeins yfir nokkra hluti sem gott er að hafa í huga þegar sú hugmynd kemur upp að bæta hvolp eða hund við fjölskylduna.

04-03
25:03

Recommend Channels