DiscoverFotbolti.net
Fotbolti.net
Claim Ownership

Fotbolti.net

Author: Fotbolti.net

Subscribed: 4,017Played: 393,045
Share

Description

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
2951 Episodes
Reverse
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net frumfluttur á föstudegi. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, félagaskipti í Bestu deildinni, landsliðið og fleira. Gestur þáttarins er Flosi Eiríksson formaður Breiðabliks. Hann ræðir um tímabilið í Kópavogi, þjálfarabreytingarnar og landslagið í íslenska boltanum.
Fyrrverandi fjölmiðlamaðurinn Ingólfur Hannesson ræddi við Kára Snorrason og fór yfir feril og kynni sín af Guðjóni Þórðarsyni sem lést á dögunum. Ingólfur starfar jafnframt hjá ÍTF og var farið lauslega yfir stöðu Bestu deildarinnar undir lok þáttar.
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir landsleikjahlé til að undirbúa hlustendur fyrir 11. umferð. Einar tæknimaður frá Livey kynnti nýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.
Landsliðsútgáfa af Innkastinu. Ísland er komið aftur upp í B-deild Þjóðadeildarinnar og goðsögnin Aron Einar Gunnarsson kvaddi í frostinu á Laugardalsvelli. U21 landsliðið tapaði á grætilegan hátt í Grikklandi og EM draumurinn er úti. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Thule jólabjór (léttöl) og Eimskip bjóða upp á þáttinn.
Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri þennan laugardaginn og fara yfir allt það helsta. Guðjón Þórðarson er fallinn frá. Hans er minnst í þættinum. Hringt er til Búlgaríu þar sem Ísland vann 5-0 stórsigur í gær og leikurinn verður gerður upp. Elvar Geir Magnússon og Arnar Gunnlaugsson á línunni. Farið er yfir fréttir vikunnar, bæði hér heima og úti. Mauricio Pochettino er að taka við Manchester United og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson ræðir um þá ráðningu.
loading
Comments