DiscoverFílalag
Fílalag
Claim Ownership

Fílalag

Author: Fílalag

Subscribed: 1,500Played: 55,930
Share

Description

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur.

Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi.

Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
339 Episodes
Reverse
Shocking Blue – Venus Hollenskur nefapi sveiflar sér á grein. Starfsmaður Philips bókar sig á tveggja stjörnu hótel við hlið Paddington stöðvarinnar í London. Kona setur á sig klút. Í efnafræðistofu í austurhluta Reykjavíkur brennur magnesíum. Jack London horfir á.
Bob Marley – No Woman, No Cry Samruni tónlistar og trúar, akursins og borgarinnar, gamla tímans og nýja. Skurðpunkturinn, meitluð sneiðmyndin, hin ljóslifandi rispa á landslagi hugans, auga ljónsins grafið djúpt í gamla Adidas merkið. Í mesta myrkinu, moðreyknum er að finna göngin að ljósinu. Þangað verður gullvagninn sendur og upp í hann stígur riddari […]
Sheryl Crow – All I Wanna Do Þetta er ekki mega djamm. Þetta er ekkert sunnudags sófaspjall heldur. Þetta er miðlungs sötr. Menn að fá sér. Skaðræði í litlum skömmtum. Tilhlýðilegt hangs. Sheryl Crow flaug inn um glugga Ameríku sem bakraddafagmaður. Hún kunni allar ritningar sunnudagsskólans og söngleikjadeildarinnar. Hún kunni og hún framkvæmdi. Og hún […]
Brimkló – Eitt lag enn Það er myrkur. Það er kalt. En hérna inni er heitt. Funheitt og huggulegt. Það er stórhríð úti. Úlfurinn blæs og fnæsir á kofann en grísinn er teppalagður fyrir innan. Það er stormsveipur á ferð, sjó rignir og allt hangir á bláþræði. En hér inni er huggulegt. Allavega í smástund […]
Madness – Our House Takið rytjótt gólfteppi, nýsteikta ástarpunga, nokkur vel notuð garðáhöld, ilmvatn unglingsstúlku og gatslitinn Umbro fótbolta og skellið þessu í hakkavélina og myrjið þessu yfir ballskóna og pússið ofan í leðrið þar til þið sjáið glettið andlit ykkar birtast sem spegilmynd. Sparkið svo upp hurðinni og hoppið upp í aftursætið á Austin […]
Radiohead – Exit Music (For a Film) Himininn yfir París. Þrútið var loft og þungur sjór. Tæring þess tærasta. Annó erótíka. Þú ert steindautt lík við vegarkantinn. Blóði litað blóm. Júlía leggur hníf að hjarta sínu. Lokuð augu Rómeós. Farðu burt, burtu frá mér. Ég er eitur. Manga-teiknimynda aflitun. Rúmdýna fyrir ofan Salatbar Eika. Close-mækuð endurköstun […]
Stevie Wonder – Superstition Klístrugt tyggjó undir kirkjubekk í Tannhjólaborg U.S.A. Kælt kampavín á fjallatígrisfeldi. Brynvarðir leðurjakkar og Jésúskegg. Hugsuðurinn í hillunni. Fjallabaksleið úr landi Stefáns. Ævintýri enn gerast. Sól rís, músík heyrist, hiti stígur upp. Hið hversdagslega kraftaverk sem bindur herbergið saman. Undur og stórmerki. Undur, undur og yndi. Bjórinn Stella Artois var einu […]
Lynyrd Skynyrd – Free Bird Það er morgun. Beikonlitaður mótorhjólamaður kjammsar á djúpsteiktri krókódílatá. Hitamælirinn sýnir 40, rakamælirinn er sprunginn. Úr útvarpinu heyrast skruðningar þar til það brestur á með Free Bird. Krómsleginn álsívalningur flýgur um loftin blá. Sólglampandi fiðrildi fleygir sér inn í opinn og bjartan faðm maís-akranna. Við erum kannski ekki snákar, limlausar […]
Boombastic – Bóman rís

Boombastic – Bóman rís

2024-08-1601:45:57

Shaggy – Boombastic Svalur andvari. Honda Civic keyrir eftir Grensásvegi. Lítil sólgleraugu, hátt orkustig. Shaggy heyrist í útvarpinu. Allir fíla. Sumir halda að þetta sé grín, en verða brátt undir öldunni. Sóli Hólm kom í heimsókn og fílaði lagið um sprengikraftinn, frá uppáhalds eyjunni okkar allra, Jamaica. Allir að vera róóóóó-legir, en það er urrandi […]
Modjo – Lady (Hear Me Tonight) Freknuklasi á andliti fyrirsætu. Endalaus hlátur, endalaus harmur. Fingur móta blautan leir. Ilmur blóma. Hringtorg, fjallaþorp. Himininn er heiðblár. íþróttagallar. Smáglæpir. Citroen. Lokuð augu, þróunin og þykknið. Þú ert ástfanginn í fyrsta sinn. Bláar nótur. Blá veröld, eilífrar æsku og eilífs önuglyndis
Álfareiðin – Björgvin Halldórsson, Gunni Þórðar, Sjonne og Hænir Sveif snúið. Stimplar hamrast niður í þéttum takti. Allir mælar rjúka upp, vísar þeirra titra við mörk hins hvíta og rauða. Þessi vél keyrir á fullri ákefð og hana fær ekkert stöðvað. Það er tjú-tjú-trylla að sporleggjast yfir holt og hæðir, gegnum skóga og dimma dali, […]
Master KG ásamt Nomcebo – Jerusalema Vírusinn herjar. Ekki bara þessi kórónajakkafataklæddi heldur líka annar og skæðari. Dansfár sækir að heimsbyggðinni. Við erum ekki að tala um Macarena eða Gangnamanna-stílinn heldur dans og söng sem sóttur er dýpra, úr sjálfri frumorkunni, frá Afríku. Það má segja margt leiðinlegt um covid og heimsfaraldur, zoom-fundi og fjarlægðartakmarkanir. […]
Dusty Springfield – Windmills of Your Mind Langa-langa-langamma spinnur garn á spólu, hring eftir hring, ull sem hefur krullast og ullast í víraðan spíral af kind sem hefur staðið og jórtrað öld eftir öld, með kjálka sem snúast hring eftir hring, endalaust, að eilífu inn í rafrásir heilans sem gnísta boðum sársauka og gleði um […]
White Stripes – Seven Nation Army Ýlfrandi hundar. Paranoja. Sándtékk. Teppalagning. Apaheili. Converse All Star sólar klístrast við malbik bílastæðis. International House of Pancakes. Altarisdrengir lemja hvern annan með skiptilykli í skottinu á belgvíðum Plymouth með risastórri afturrúðu. Fílabein kramið í morteli, sáldrað í línur yfir gervigras í bakgarði einstæðrar móður sem hlaut ekki lottóvinning kvöldsins. Sýróp. […]
Kaleo – Way Down We Go Kjúklingabringurnar eru lentar á eldhúsbekknum, kaldar og blautar í frauðplastbökkum. Þær smokra sér úr plastinu eins og geimverur í Ridley Scott mynd. Þær smokra sér úr plastinu og klæða sig í ullarsjöl og setja á sig hatta. Kjúklingabringurnar steikja sér egg á pönnu. Þær horfa á eggið spælast á […]
Crazy – Klikkun

Crazy – Klikkun

2024-05-3101:12:58

Crazy – Patsy Cline Kötturinn svífur um eldhúsið. Hárþurrkan syngur sópran inn á baði. Rafmagnslínurnar svigna milli stauranna úti á götu og spila hægan kontrabassagang. Það er klikkun í gangi. Kona lætur renna í krómbað og leggst í kaf sjálfsvorkunnar og efasemda. Þetta er bilun og brjálæði, fegurð og funhiti.
Kings of Leon – Sex on Fire Hafið þið séð ljónshvolpa í dýragarði, leika við hvern annan, bíta í hálsa og veltast um í gamnislag, lúra svo þess á milli ofan á hver öðrum eins og tuskur. Ef það væri hægt að taka þessa orku, þetta ljónshvolpamódjó og setja á flöskur, þá væri maður með […]
Í Svörtum fötum – Dag sem dimma nátt Oft hefur Ísland nötrað. Undan hrolli jöklanna, undan jarðhræringum, undan hafísnum, landsins forna fjanda. Oft hefur hrollurinn læst sér í taugakerfi þeirra sem hér búa, refa, minka og manna. Og hrollurinn framkallar herping, þúfur á handarbaki, húð kennda við gæsir og fygl. Það eru milljón ástæður til […]
The Shirelles / Carole King – Will You Love Me Tomorrow Hvað er þetta annað en paradísarmissir? Allt saman! Allar sögur! Nakið fólk að borða ávexti í vellystingum og búmm skömmustulegt fólk með fýkjublöð um klofið, grátbiðjandi um miskunn. Tveggja ára barn á bleyju, öskrandi og krotandi á veggi. Búmm. Sex ára barn í skóla, […]
Backstreet Boys – Quit Playing Games (With my Heart) Höfrungasýning í skemmtigarði. Aflitaðir endar. Rigning inni í vöruhúsi. Uppásnúnir gallajakkar. Pýramídasvindlara-umboðsmaður. Vinir að eilífu. Plakötin yfir rúmstokknum. Tárin, árin, sárin. Skipt í miðju, uppfært andlit, skemmtiferðasigling um veröld sem var, horfnar ástir, skot í myrkri, ölvunarakstur, MTV í Þýskalandi. Það var hlegið að þeim. Að […]
loading