Discover
Fókus
128 Episodes
Reverse
Gestur þáttarins er ísdrottningin Ásdís Rán.
Umsjón hefur Guðrún Ósk Guðjónsdóttir blaðamaður.
Saga Dröfn Haraldsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún stígur fram og segir sögu sína af kynferðis- og heimilisofbeldi – og upplifun sinni af því þegar íslenska réttarkerfið brást henni, ekki einu sinni heldur tvisvar. Með henni í þættinum er kærasti hennar, Ingólfur Valur Þrastarson, sem veitir henni stuðning á meðan hún ræðir um þung og viðkvæm málefni. Varað er við lýsingum á ofbeldi og afleiðingum þess.Saga var um fimmtán ára gömul þegar hún kærði nauðgun. Gerandi hennar var dæmdur í héraðsdómi en síðar sýknaður í Hæstarétti, þrátt fyrir vitnisburði sem bentu til þess að hún hefði ekki getað veitt samþykki. Henni fannst kerfið hafa brugðist sér og eftir sat hún án réttlætis.Í fyrra ákvað hún að treysta kerfinu á ný og kærði fyrrverandi kærasta sinn fyrir heimilisofbeldi. Hún segir að hún hafi lagt fram upptökur, myndefni og áverkavottorð sem sönnunargögn og talið það vera nóg. En nýverið fékk hún þær fréttir að rannsókn málsins hefði verið felld niður þar sem brotið var talið minniháttar og fyrnt.Saga og Ingólfur, eða Ingó eins og hann er kallaður, hafa verið saman í rúmt ár. Þau framleiða bæði myndefni fyrir OnlyFans og eru ötulir talsmenn jafnréttis og gegn kynferðisofbeldi.
Hvers vegna ná svona margir aldrei varanlegum árangri, þrátt fyrir góð áform og áramótaheit? Í Fókus, viðtalsþætti DV, er masterslífsþjálfinn og fyrrverandi fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir – betur þekkt sem Linda Pé – gestur vikunnar og fer yfir hvað raunverulega þarf að breytast til að markmið náist. Hún segir vandann ekki liggja í skorti á aga eða þekkingu, heldur í hugsunum okkar og sjálfsmynd.Linda rekur LMLP-prógrammið og Lífsþjálfaskólann og heldur einnig úti Podcastinu með Lindu Pé. Nú er hún nýlega farin af stað með fimm daga frítt netnámskeið þar sem hún kennir svokallaðan árangurskóða – aðferðafræði sem hún segir skila varanlegum breytingum, ekki skammtímalausnum. Í viðtalinu ræðir Linda meðal annars sjálfsmynd, fjármál, lífsstíl, eigin reynslu af gjaldþroti og endurreisn og hvers vegna árangur er aldrei tilviljun.
Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur lengi verið þekkt fyrir mikinn metnað, kraft og fjölbreytt hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Undanfarin ár hefur hún hins vegar ekki aðeins tekist á við krefjandi verkefni í starfi, heldur einnig farið í gegnum persónulegt ferðalag. Fyrir um sex árum lenti Kristín í kulnun eftir langvarandi álag, sjálfsniðurrif og stöðuga streitu, sem að lokum leiddi til þess að taugakerfið hrundi og líkaminn sagði stopp.Í Fókus, viðtalsþætti DV, opnar Kristín Þóra sig um kulnunina, aðdragandann að henni og það afgerandi augnablik þegar hún áttaði sig á að hún þyrfti að fá faglega aðstoð. Hún ræðir einnig um muninn á heilbrigðum metnaði og sjálfsniðurrifi, hvernig streita getur smám saman tekið yfir lífið og hversu mikilvægt það er að greina á milli kulnunar og annarra andlegra veikinda. Samhliða því fjallar hún um annasamt síðasta ár, ný hlutverk í þáttunum Dönsku konunni á RÚV og Heimaey í Sjónvarpi Símans, sýningu hennar Á rauðu ljósi á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu sem hefur slegið rækilega í gegn - og hvernig hún tekst í dag á við álag með meiri mýkt, forgangsröðun og stuðningi fjölskyldunnar.
Spákonan og flugfreyjan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, og jafnframt mætt þriðja árið í röð í sérstakan áramótaþátt þar sem hún spáir fyrir þekktum einstaklingum, íslensku samfélagi og öllu þar á milli. Það kom margt áhugavert fram í þættinum, en samkvæmt Ellý verða miklar breytingar í stjórnmálum, meðal annars mun ný ríkisstjórn taka við í haust og nefnir hún einn flokk sem verður við völd.Það er einnig hægt að horfa á þáttinn á DV.is








