Discover
Glaðvarpið
Glaðvarpið
Author: Helga Guðrún Lárusdóttir, Júlíana Kristbjörg Þórhallsdóttir
Subscribed: 30Played: 102Subscribe
Share
© Helga Guðrún Lárusdóttir, Júlíana Kristbjörg Þórhallsdóttir
Description
Takk fyrir að hlusta á Glaðvarpið! Þáttinn sem minnir ykkur á að það þarf ekkert að taka lífinu svona alvarlega ❤️
7 Episodes
Reverse
Í þætti vikunnar setja þáttastjórnendur sig í spor einræðisherra.Hlustendum er frjálst að ímynda sér hvaða mál yrðu sett í forgang ef þær kæmust til valda, og hvor yrði strangari einræðisherra. Meðal þess sem bar á góma voru galdrakarlar, kjötfars í sumarbústað, dónaskapur á internetinu, löðrungar sem refsiaðgerð, badminton og lausnin við stóra þvottavandanum.Takk fyrir að hlusta á Glaðvarpið <3
Símtal við mömmu, álftir, Tussunes, Brandur Enni, Galtalækur, Landmannalaugar og Hitler eru meðal umræðuefna í þessum þætti, þú verður bara að hlusta til að skilja... <3
Vandræðaleg augnablik geta verið ansi eftirminnileg. Í þætti dagsins rifja Glaðverplur (Má segja það? Það er skelfilegt orð en við látum það slæda) upp fyndin, vandræðaleg og jafnvel alveg hryllilega neyðarleg atvik sem þær og fleiri hafa upplifað. Þátturinn er styrktur af Blush og gefst hlustendum kostur á að giska á hjálpartæki út frá hljóðinu einu. Giski þeir rétt, eiga þeir möguleika á að vinna samskonar tæki, beint frá (Blush)býli!Takk fyrir að hlusta <3
Glaðvarpið er komið með styrktaraðila, og það engan smá!Afhverju kann Helga ekki að hlæja?Afhverju segir fólk að Júlíana sé sjúk í Adam Sandler?Hver var þessi gestur sem mætti upp úr þurru OG HVAÐA SNILLINGUR ER AÐ STYRKJA GLAÐVARPIÐ???Svörin við öllum þessum spurningum og fleiri er að finna í fjórða þætti Glaðvarpsins.Afsakið munnræpurnar kæru hlustendur og takk fyrir að hlusta <3
Hvað er í raun og veru skrýtið? Er það að gera pakkasósur? Að fara af stað með Glaðvarp? Eða er kannski skrýtið að vera sérfræðingur í skrýtnu að ræða hvað manni þykir skrýtið?Í þriðja þætti Glaðvarpsins fá Helga og Júlíana til sín Katrínu Þrastardóttur, sjálfskipaðan og ekkert svo yfirvegaðan „sérfræðing í skrýtnu“, til að reyna að skilgreina hvað fellur undir það hugtak og hvað þeim þykir skrýtið að framkvæma, upplifa og segja. Að sjálfsögðu þróast umræðan yfir í hugleiðingar um maísbaunir, flugeldasýningar, samgöngustofu og lífið sjálft, í allri sinni dýrð.Það er kannski skrýtið en það var svosem ekki við öðru að búast af þessum þáttastjórnendum.Takk fyrir að hlusta 💛
Hvað þykir ykkur góð dæmi um að fólk sé orðið miðaldra?Er það áskrift að prjónablaði, skert geta til að kalla tækninýjungar sínum réttu nöfnum, skert tískuvitund eða eitthvað allt annað?„Kannski fáum við einhvern tímann gest sem prumpar“, kvartlífskrísa, botox og búkonuhár eru meðal þess sem um var rætt í öðrum þætti Glaðvarpsins, þar sem rauði þráðurinn snerist um hver skilgreiningin á því að vera miðaldra sé og hvort kornungar stúlkurnar sem stýra Glaðvarpinu séu nokkuð flokkaðar undir þann víðfeðma hatt.Takk fyrir að hlusta á Glaðvarpið <3
Eftir þrjár misheppnaðar tilraunir við gerð kynningarþáttar gera Glaðvarpsstýrur heiðarlega tilraun til þess að kynna sig án þess að byrja að blaðra um allt nema það sem þátturinn átti að fjalla um, á 15 mínútum. Eitt stórt klapp por favor! Takk fyrir að hlusta <3




