DiscoverHefnendurnir
Hefnendurnir
Claim Ownership

Hefnendurnir

Author: Hefnendurnir

Subscribed: 79Played: 3,202
Share

Description

Podcast by Hefnendurnir
195 Episodes
Reverse
Hulkleikur og Ævorman finnst báðum gaman að segja sögur, þess vegna eru þeir komnir á Storytel og þar munu birtast nýir þættir. Það eru meira að segja komnir nýjir þættir þar nú þegar!
Hetjurnar okkar halda ótrauðar áfram í upprifjun sinni á tímans rás til að hita upp fyrir spánýja þætti á Storytel.
Hulkleikur og Ævorman halda áfram niður braut hefndurminninganna í undirbúningi fyrir hefndurkomu Hefnenda á Storytel. Hvað ætli þeir muni í þessum þætti?
Reboot Hefnenda er handan hornsins og í tilefni þess minnast Hulli og Ævar sinna fyrstu ævintýra sem gerðust fyrir alveg aðeins meira en hálfum áratug síðan.
Hulkleikur snýr aftur á klakann og Ævorman treður í hann hamborgurum og bláberjum. Þeir gera sitt besta til að sigrast á kjötsvimanum á meðan þeir ræða um skáskot Jada Pinkett-Smith, Rómarveldið Abrams og mögulegar stafsetningarvillur í víkingaleikjum, áður en Hulli egnir til slagsmála með feitri bombu um Kardemommubæinn.
Ævormann býður Hullann velkominn frá plánetunni Ber-Lin yfir í Stark Tower, þar sem þeir taka fyrir mikilvægustu málefnin, nemlig: Battinson, Sjálfsmorðsliðana og annað désadæmi… og tala síðan aðeins um eina af dauðasyndum bíógláps: að tala meðan ÉG ER AÐ REYNA AÐ HORFA!
Hetjurnar okkar hittast yfir frelsisöli til að ræða um póstkví, blakkfeisoff, smitfaðmlög og Dale Carnegie handabönd og þessa óþolandi áráttu sumra til að vera stöðugt að gefa manni óumbeðin power move kreistuknús!
Strákarnir tuða um sitthvora innipúkaiðjuna úr sitthvorri sóttkvínni. Báðir öruggir og óbreyttir sökum þess að félagsfælin einvera er ekki beint ótroðin slóð hjá þessum sjóuðu njarðaprinsum sem kalla sig Hefnendurna. Stay safe, Jarðarbúar!
Í þessari ævafornu en samt bara 28 daga gamalli upptöku, ræða Hefnendurnir okkar um hva þessi vírus er sooo not all that. Svo tala þeir líka um hvað þeir hlakka til júróvision og hvað Outbreak er ómerkileg mynd. It was a different time.
Feigðin hangir yfir Bíó Paradís og hræfuglar eru byrjaðir að hringsóla í kringum það eins og einhvers konar leigusalar. Hulkleikur og Ævorman taka svona fréttum ekki þegjandi, enda velunnarar og klappstýrur menningarjötunnar sem Bíó Paradís er. Nema Ævorman hljómar töluvert verr en Hulkleikur, vegna þess að hann er veikur og svo var einhver gaur að bora í næstu íbúð og allskonar.
Ævorman langaði eiginlega bara að gera eitt í Berlín. Hann án djóks talaði eiginlega ekki um annað; Fara í bíó með Hulkleiki til að horfa á Cats. Og síðan að tala um það. Tala rosalega mikið um það vegna þess að það er furðulega mikið til að tala um. Þessi mynd? Þessi mynd!
Skywalker sagan skráði sinn hinsta kafla samkvæmt Disney um jólin og Hefnendurnir okkar kíktu í bíó eins og öllum sönnum lærisveinum máttarins er ljúft og skylt. En hvað þýða ljúfsár endalokin um framhaldið? The force is dead and no one cares. If there is a mustafar I’ll see you there.
Hulli flutti til Berlínar, en Ævorman er ekki af baki dottinn heldur lagði land undir fót og mætti heim til hullsubrauðsins til að gefa jarðarbúum góða byrjun fyrir Cyberpunk árið sem gengið er í garð. Afraksturinn er 3! (þrír) sjóðheitir þættir til að hámheyra, Netflix style! Hulkleikur og Ævorman eru búnir að vera seinir allt ár. Svo seinir að þeir koma með uppáhaldsmyndirnar sínar á síðasta ári tuttugu árum of seint í þessum marglofaða 1999 besta kvikmyndaár allra tíma™ þætti.
Hul­k­leikur og ÆvorMan eiga fund í Gríms­son Tower og velta vöngum yfir ímynd­uðum bolta­leikjum í ódæmi­gerðu lög­reglu­ríki, velja topp 2 kvik­myndir sem batna við mute takk­ann og veðja uppá flott­ann kall. Hefn­end­urnir eru í boði Nex­us. Nex­us. Það er svo best sko.
Hulli hinn hvíti og Ævar hinn grái hafa ekki fært á sér bossana síðan í síðasta þætti því þeir hafa bara og mikið að segja. Þar á meðal sitthvað um eigið sköpunarferli, emo ofurhetjur með daddy issues og leiðarlok Luke Perry. Við biðjumst velvirðingar á skruðningunum sem heyrast í þessari upptöku. Það er líklega bara draugur.
Eftir allt of langan dvala skríða tveir stírublindir Hefnendabangsar úr hýði sínu og ræða húmorsleysi Svía og sáðlát Aquamans og að sjálfsögðu rýna þeir eldfast í endalok mikilvægasta nördafyrirbæris síðari ára: Big Bang Theory.
Hefn­end­urnir fá Emil Hjörvar Pet­er­sen, ver­ald­arsmið og örlaga­vefj­ara, í heim­sókn og hefna hann spjör­unum úr. Lengsti Hefn­enda­þáttur ever höldum við bara. Gleði­legt nýtt ár, Jarð­ar­bú­ar!Hefn­end­urnir eru í boði Nex­us. Nexus er í boði guð­anna. Kjarn­inn í sam­­­­starfi við Storytel býður þér að hlusta frítt á þús­undir hljóð­­­­bóka í sím­­­­anum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.­­­­storyt­el.is/kjarn­inn og byrja að njóta. Storyt­el.is, þús­undir hljóð­­­­bóka í sím­­­­anum þín­­­­um.
Hefn­end­urnir fara tvisvar í bíó! Fyrst á gar­la­kalla­mynd og svo á hjól­húsa­mynd! Það var nú aldeilis gam­an. Í bíl­ferðum sínum ræða þeir meðal ann­ars um magíska munn­kossa, ferðir Ted Dansons og örvar kúbids. Hefn­end­urnir eru í boði Himna­rík­is… ég meina Nex­us. Same thing.
Hulli og Ævar minn­ast nýfrá­fall­ins skap­ara skap­ar­anna og ná samt eitt­hvað að tuða um aðra hluti sem skipta minna máli. En það er nátt­úru­lega bara eins og þeir eru.
Hulli hinn hvíti kíkir í heim­sókn til Ævars hins gráa og þeir fara yfir sam­þykki Egils Ólafs, písl­ar­göngu Ofur­hug­ans og hlut­lausa kjúklinga­vængi.Hefn­end­urnir eru í boði Nex­us. Nexus er aðal.
loading
Comments