Discover
Heimsglugginn
305 Episodes
Reverse
Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu efnahagsmála heimsins. Gylfi segir að vaxtahækkanir víða að undanförnu séu ekki góðar fréttir en hagkerfi heimsins hafi sýnt mikla seiglu undanfarin ár. Það sé ótrúlegt hvað mikið geti gengið á án þess að við lendum í óviðráðanlegri krísu. Jafnvel þegar kreppur skelli á eins og eftir hrunið 2008 hafi flest hagkerfi verið fljót að jafna sig.
Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um göngu Óraníu-reglu mótmælenda í bænum Portadown. Sólveig þekkir afar vel til málefna á Írlandi og Bogi Ágústsson ræddi við hana í Heimsglugganum. Göngur Óraníu-reglunnar hafa mjög oft orðið tilefni blóðugra átaka. Þessi ganga í Portadown, sem kennd er við Drumcree-kirkjuna þar sem hún hefst, hefur verið bönnuð í næstum 30 ár. Sólveig segir sérkennilegt að leyfa hana aftur.
Undir lokin var rætt um stjórnarkreppuna í Svíþjóð þar sem engin lausn virðist í sjónmáli.
Eftir áralanga ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland og hótanir um að hertaka landið og innlima hefur verið undirritaður samningur á milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um varnir Grænlands. Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur.
Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlensk-íslensku Ingu Dóru Guðmundsdóttur og Rasmus Gjeddsø Bertelsen, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur og prófessor við Norðurslóðaháskólanna í Tromsø. Inga Dóra segir Grænlendingum létt, Rasmus er ósammála flestum sem hafa tjáð sig um samninginn og segir að í honum sé skýr takmörkun á fullveldi konungríkisins Danmerkur.
Mat umsjónarmanns Heimsgluggans var að eftir digurbarkalegar yfirlýsingar og hótanir hefði fjallið tekið jóðsótt og fæðst mús.
Það var ýmislegt á dagskrá Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1 í dag. Fyrstu ráðherrar Norður-Írlands, Skotlands og Wales, sem öll hafa sjálfstæði á dagskránni, hittust í Cardiff og samþykktu að „tími Westminster væri senn á enda“.
Þá ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson um nýja skýrslu um öfugþróun lýðræðis, kosningar í Rússlandi og Serbíu og stjórnmálastöðuna í Svíþjóð. Þar er ljóst að hægri stjórn Ulfs Kristersson hefur misst meirihluta sinn og að Magdalena Anderson, formaður Jafnaðarmanna, reynir að mynda stjórn. Það verður ekki auðvelt því flokkarnir sem hún þarf að fylkja að baki sér eru ósammála um mjög margt.
Í Heimsglugga vikunnar var rætt um refsiaðgerðir tólf vestrænna ríkja vegna fyrirætlana um enn auknar byggðir Ísraelsmanna á herteknu palestínsku landi. Þá var rætt um feðgana Harald og Hákon Noregskonunga og þátttöku konungborinna í þjóðmálaumræðu og í lokin var talað um hörkuspennandi kosningabaráttu í Svíþjóð.



