Í þessum þætti fara Björn og Kjartan yfir fréttir liðinnar viku. Færst hefur ákveðin ró yfir markaðinn og eru sumir byrjaðir að tala um "boring zone". Verðbólgutölur ullu vonbrigðum í Bandaríkjunum á miðvikudaginn, en verðbólga mældist 3% þar í landi, töluvert verr en spár höfðu gert ráð fyrir. Áhrif þessa og margt fleira er fjallað um í þessum þætti.
Í þessum þætti ræða Björn og Kjartan um þær lækkanir sem hafa einkennt rafmyntamarkaði undanfarnar vikur, sérstaklega aðrar rafmyntir en Bitcoin. Met var slegið aðfararnótt mánudags þar sem talað er um að allt að 8-10 milljarðar Bandaríkjadollara voru þurrkaðir út (e. liquidated). Eru hin umtöluðu Trump áhrif að snúast í andhverfu sína? Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Kristján Ingi mætti í fyrsta skipti í hlaðvarpið. Fáir, ef einhverjir, hafa haft jafnmarga snertifleti við rafmyntir á íslenskum markaði og Kristján. Hann hefur jafnframt talað fyrir Bitcoin á opinberum vettvangi í hartnær áratug. Í þessum þætti er farið yfir vegferð hans í heimi rafmynta og hann deilir með hlustendum sínum viðhorfum um Bitcoin og markaðinn. Mælum eindregið með hlustun!
Í þessum þætti er einkum fjallað um atburði vikunnar sem er að líða og fyrirbærið sem Trump Coin er og áhrifin sem það hefur haft á markaðinn. Björn er ekki ýkja hrifinn af framtaki forsetans að gefa út jarmmynt, en telur þó langtímaáhrifin ekki neikvæð. Þetta og margt fleira er fjallað um í þessum þætti.
Í þessum þætti heimsækir Björn Harðarson hlaðvarpið eftir jólafrí. Farið er yfir það helsta sem hefur gerst síðustu vikur á rafmyntamörkuðum og hvers má vænta eftir að Trump verður svarinn í embætti eftir helgi.
Í þessum þætti fengum við Daða Laxdal, framkvæmdastjóra vöruþróunar hjá Sisu Group, sem starfrækir meðal annars Epicbet. Daði fjallar um sína vegferð í heim rafmynta og hvernig vöxturinn hefur verið hjá rafmyntum á sviði veðmála. Fjallað var um veðmál Íslendinga á kosningarnar í nóvember og margt fleira.
Í þessum þætti heldur Björn áfram að fjalla um helstu málefni líðandi stundar á rafmyntamörkuðum. Meðal annars er farið yfir nýjustu tilnefningar Donald Trump í lykilembætti, XRP, Solana og almennt um altcoins og að sjálfsögðu Bitcoin.
Í þessum þætti ræðir crypto fjárfestirinn og Cardano maðurinn um grundvallaratriði Cardano bálkakeðjunnar. Farið er yfir víðan völl, þar á meðal er saga keðjunnar rakin, fjallað er um stofnanda keðjunnar, Charles Hoskinson, ásamt því að Brynjar skýrir frá sinni framtíðarsýn gagnvart Cardano. Ef þú hefur áhuga á Cardano er þetta skylduhlustun!
Í þessum þætti er sjónum fyrst og fremst beint að öðrum rafmyntum en Bitcoin (altcoins). Björn svarar spurningunni hvort tímabil þeirra sé nú hafið og hvers megi vænta af þeim. Fjallað er um helstu rafmyntirnar eins og SOL, XRP, ADA, DOGE o.fl.
Engu líkara er en að Donald Trump sé að setja saman Bitcoin-ríkisstjórn fyrir næsta kjörtímabil. Michael Saylor heldur áfram að kaupa BTC eins og óður maður og fleiri fyrirtæki fylgja eftir hans fordæmi. Solana nær hæstu hæðum og almenningur virðist vera að byrja að kveikja á perunni. Þetta og margt fleira ræðir Kjartan við Björn í þessum þætti.
Atburðarás í heimi rafmynta hefur verið vægast sagt svakaleg undanfarna daga og nú er útlit fyrir að ríki heimsins þurfi að taka afstöðu til þess hvort þau ætli að hafa Bitcoin sem hluta af varaforða sínum. Með fullnaðarsigri Repúblikana yfir báðum deildum þingsins velta margir því fyrir sér hvort frumvarp öldungardeildarþingmannsins Cynthia Lummis þess efnis nái fram að ganga. Kjartan og Björn brjóta þetta viðfangsefni til mergjar í þessum þætti.
Í þessum þætti fjallar Björn Harðarson um þýðingu og áhrif forsetakosninganna í Bandaríkjunum á Bitcoin og aðrar rafmyntir. Einnig fjallar Björn um undanfarnar hreyfingar á gengi Ethereum og ber það saman við Solana. Þetta og margt fleira í þessum þætti af Hlaðvarpi Myntkaupa.
Í þessum þætti ræða Halldór og Kjartan saman um bókina Mikilvægt rusl, sem er stórskemmtileg kómedía með Bitcoin ívafi og líklega fyrsta bókin á íslenskum markaði sem hægt er að kaupa fyrir Bitcoin. Einnig ræða þeir félagar um vegferð Halldórs sem rithöfundar og hvernig það kom til að hann varð hugfanginn af Bitcoin.
Í þessum þætti spjalla Björn og Kjartan almennt um rafmyntir, fjalla um áhrif kosninganna í Bandaríkjunum á rafmyntir. Björn heldur því fram að við séum að fara að sjá nýjar hæðir á rafmyntamörkuðum á næstunni. Þetta og margt fleira var rætt í þessum þætti.
Í þessum þætti er farið yfir gengissveiflur undanfarinna vikna, helstu tíðindi markaðarins og af hverju Björn heldur að bolamarkaðurinn sé loksins byrjaður.
Í þessum þætti fjallar Björn Harðarson um þær miklu sveiflur sem einkennt hafa rafmyntamarkaðinn síðustu daga. Farið er yfir atburðarásina í tímaröð ásamt því að fjalla um það helsta sem hefur gerst með Bitcoin, Ethereum og Solana.
Björn Harðarson mætti aftur og greindi lækkanir á rafmyntamörkuðum undanfarna daga. Fjallað var um áhrif þrotabús Mt. Gox. Einnig var fjallað um væntanlega kauphallarsjóði Solana og Ethereum, Bitcoin í samhengi alþjóðastjórnmála og margt fleira.
Í þessum þætti fórum við yfir það helsta í heimi rafmynta sem gerst hefur eftir helmingunina 19. apríl, ásamt því að fjalla um lykilatriði þeirra rafmynta sem eru að bætast við vöruúrval Myntkaupa. Björn fer á dýptina og greinir helstu rafmyntir í þaula. Mælum eindregið með fyrir þá sem hafa áhuga á öðrum rafmyntum.
Í þessum þætti er fjallað um nýfengið samþykki bandaríska verðbréfaeftirlitsins á Ethereum kauphallarsjóðum (Spot ETF), en Bitcoin kauphallarsjóðir fengu samþykki hjá SEC í janúar á þessu ári. Einnig er fjallað um vendingar í bandarískum stjórnmálum en þar eru nokkuð sterk teikn á lofti um að stjórnmálamenn beggja flokka sjái sér tækifæri í því að taka upp málstað rafmynta þar sem sífellt stækkandi hluti almennings stundar nú viðskipti með rafmyntir.
Kjartan fjallar um Avalanche (AVAX) sem er nýjasta rafmyntin í boði á Myntkaupum.