DiscoverKonsert
Konsert
Claim Ownership

Konsert

Author: RÚV

Subscribed: 27Played: 693
Share

Description

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.
260 Episodes
Reverse
Gildran í Hlégarði 2010

Gildran í Hlégarði 2010

2025-10-0901:56:40

Í Konsert kvöldsins förum við á Eurosonic Festival í Hollandi og heyrum í Kaleo og hvernig þeir hljómuðu þar árið 2015, en það ár spiluðu 19 atriði frá Íslandi. Við förum líka á Glastonbury Festival árið 2000 og heyrum nokkur lög með David Bowie. Við endum á að heyra nokkrar upptökur með Todmobile og vinur þeirra eins og Tony Hadley (Spandau Ballet), Midge Ure (Ultravox) og Jon Anderson (Yes). En við byrjum á Baraflokknum á Eyrarrokki í fyrra og á Gauknum árið 2000.
Í Konsert vikunnar byrjum við á að heyra tónleika Péturs Ben á Reykjavík folk festival í Iðnó í sumar - en hátíðin var endurvakin með góðum árangri í sumar. Pétur spilaði sín eigin lög í bland við lög eftir Prince og fleiri. Í seinni hlutanum hlustum við á Ann Wilson úr hljómsveitinin Heart þar sem hún flytur sín eigin lög en líka lög úr smiðju Heart og lög eftir David Bowie og Led Zeppelin td.
loading
Comments