Discover
Labbitúr
30 Episodes
Reverse
Óli Egils um áfengi, Bubba, fjölskylduna og leikinn sem lögmál Ólafur Egill Egilsson hefur komið víða við – sem leikari, leikstjóri og handritshöfundur. Hann hefur leikið í klassískum kvikmyndum eins og Einkalífi, skrifað og leikstýrt á sviðum borgarinnar og nýlega snert hjörtu landsmanna með verkinu Níu líf Bubba, sem hann skrifaði og setti á svið í Þjóðleikhúsinu. Í viðtali við Halli Þorleifsson í Labbitúr fer hann yfir feril sinn og lífið sjálft með þeirri blöndu af dýpt, sjálfsgagni...
Friðgeir Einarsson hefur komið víða við á íslenskum menningarpalli síðustu ár – sem leikari, leikstjóri, rithöfundur og skaupshöfundur. Í nýjasta þætti Labbitúrs ræðir hann við Halla Þorleifsson um það að vilja stjórna öllu… en líka sleppa takinu. Og að skrifa sér hlutverk sem eru svolítið gremjuleg. Eins og hann segir sjálfur: „Ég er kannski bara í svona góðri æfingu að nota einhverja svona karakterbresti og pirring sem koma frá mér sjálfum.“ Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi f...
Bragi Valdimar Skúlason hefur verið hluti af lífi þjóðarinnar í meira en tvo áratugi. Með skop, söng, framkomu á skjá og smekkleysu að eigin sögn. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hann um götur borgarinnar með Haraldi „Halla“ Þorleifssyni þar sem þeir ræða allt frá þungarokki og jólalögum yfir í íslenskuna og gervigreind. Það sem byrjaði sem tæknitilraun um aldamótin hefur á undarlegan hátt þróast í eitt vinsælasta jólaskrímsli landsins. Baggalútur. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapa...
Sigtryggur Baldursson hefur lifað tónlistarlífi sem fæstir geta státað af. Hann var einn af stofnmeðlimum Sykurmolana, sveit sem setti Ísland á heimskortið þegar hún hitaði meðal annars upp fyrir U2 á sínum tíma. Í dag sinnir hann starfi hjá Tónlistarmiðstöðinni, leiðir verkefni sem styðja íslenska tónlist um allan heim og segir tónlistarbransann bæði fallegan og óútreiknanlegan. Halli Þorleifsson gekk með Sigtryggi í nýjasta þætti hlaðvarpsins Labbitúr, þar sem farið var yfir bæði fortíð og ...
Edda Björgvinsdóttir, ein ástsælasta og áhrifamesta leikkona landsins, tók þátt í nýjasta þætti hlaðvarpsins Labbitúr þar sem hún gekk um götur Reykjavíkur með Haraldi „Halla“ Þorleifssyni. Þar ræðir hún opinskátt um leiklistina, sorgina, ástina, húmorinn – og að orkan sé loksins komin aftur. „Ef hláturinn er ekki í lífinu þá á að ná í hann.“ Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa i...
Ingvar E. Sigurðsson, einn virtasti leikari Íslandssögunnar, rölti nýverið með Haraldi „Halla“ Þorleifssyni í gegnum miðborg Reykjavíkur í hlaðvarpsþættinum Labbitúr. Þar deilir hann dýrmætum viskuperlum, myndrænum líkingum og persónulegum sögum af löndum og farsælum ferli á sviði, í þáttum og kvikmyndum. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
Ásgeir Trausti er einn af ástsælustu tónlistarmönnum Íslands, bæði heima og erlendis. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hann með Haraldi „Halla“ Þorleifssyni um götur Reykjavíkur og spjallar opinskátt um ferilinn, fjölskylduna, streaming-kerfið og draumana sem enn lifa. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
Saga Garðarsdóttir er ein ástsælasta leikkona og uppistandari þjóðarinnar. Hún hefur náð einstökum árangri í sviðslistum og grínheiminum með sinn persónulega, hráa og oft hjartnæma stíl. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hún með Haraldi „Halla“ Þorleifssyni um götur borgarinnar og spjallar hispurslaust um fjölskyldulíf, frægð og sjálfstraustið sem fylgir sviðinu – og hvað það er erfitt að semja brandara. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum ti...
Baltasar Kormákur þarf vart að kynna. Hann er líklega þekktasti kvikmyndaleikstjóri Íslandssögunnar, með feril sem spannar íslenskar kvikmyndir, stórmyndir frá Hollywood og eigin kvikmyndaver – RVK Studios – sem hefur sett Ísland á heimskort kvikmyndagerðar. Í þessum þætti labbar hann með Halla um stúdíóið sem sem hann byggði og fer yfir ævi, áhrif og ólíka fasa í sínum stórbrotnu ferli. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórle...
Elísabet Ronaldsdóttir hefur unnið að sumum stærstu kvikmyndum síðari ára. Hún hefur klippt myndir á borð við John Wick, Atomic Blonde, Deadpool 2, Bullet Train og nýverið Fall Guy og Nobody 2. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hún um götur Reykjavíkur með Halla og ræðir um kvikmyndagerð, fjölskyldulíf og hvernig það er að standa bak við tjöldin í Hollywood. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reyns...
Í nýjasta þætti Labbitúrs rölta Halli og tónlistarmaðurinn Mugison saman um götur Reykjavíkur. Mugison, sem heitir réttu nafni Örn Elías Guðmundsson, segir frá óvenjulegum uppruna listamannsnafnsins síns, fyrstu skrefum í tónlist og hvernig lífið hefur tekið stakkaskiptum í gegnum árin. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
Benedikt Erlingsson, leikari, leikstjóri og rithöfundur, er nýjasti gesturinn í Labbitúr með Halla. Þeir félagar röltu saman um götur miðbæjarins, í samtali sem flæddi milli listrænnar sköpunar, fjölskyldusögu, gamansemi og tilverunnar sjálfrar – í anda þáttarins þar sem hugmyndir og orð fylgja gönguskrefum. Benedikt, sem hóf feril sinn í grínþáttunum Fóstbræður árið 1997 og hefur síðan þá vakið alþjóðlega athygli fyrir kvikmyndir á borð við Hross í oss og Kona fer í stríð, lýsir ástríðu sinn...
Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín rithöfundinn Gerði Kristný. Gerður hefur verið einn afkastamesti og virtasti rithöfundur landsins undanfarin ár og gefið út ekki aðeins bækur heldur ljóð, leikrit og annað efni. Verk hennar eru kennd bæði í grunn- og framhaldsskólum og hefur hún hlotið ótal viðurkenningar innan sem utan landsteina, nú síðast Norsku Alfred Anderson-Ryssts bókmenntaverðlaunin. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt ...
Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Hallitil sín tónlistar- og alhliðalistamanninn Ásbjörn “Bubba” Morthens. Bubbi hefur verið einn fremsti tónlistarmaður þjóðarinnar alveg frá útgáfu sinnar fyrstu plötu, Ísbjarnarblús, árið 1980. Hann hefur ekkert gefið eftir á undanförnum 45 árum enda fáir sem jafnast á við útgefinn lagafjölda og segist Bubbi enn semja eitthvað á hverjum degi. Viðtalið býður einstaka sýn í æsku og sálarlíf Bubba þar sem þeir ganga um hans æskuslóðir og rifja upp mótand...
Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín leikstjórann og handritshöfundinn Hafstein Gunnar Sigurðsson. Hafsteinn hefur á undanförnum árum stimplað sig inn sem einn fremsti leikstjóri landsins með verk á borð við París Norðursins og Undir Trénu á ferilskránni ásamt því að vinna til 16 verðlauna. Samtal þeirra er mjög skemmtilegt og dregur fram krefjandi heim upprennandi kvikmyndargerðarfólks hér á landi. Eftir að ljúka námi í bókmenntafræði sótti Hafsteinn nám við Columbia ...
Í þessum þætti hlaðvarpsins Labbitúr Halli til sín listakonuna Lóu Hjálmtýsdóttur. Það er nánast ómögulegt að setja aðeins einn hatt á Lóu en hún er í tónlist, teiknar myndasögur, málar og margt fleira. Í þessum þætti eiga þessir vinir mjög skemmtilegt spjall sem fer um víðan völl um allt og ekkert. Þau ræða stofnun sundlaugagarða á Íslandi, breytingu á svartsýnu viðhorfi og hve lengi hún hefur verið í hljómsveitinni. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu....
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Labbitúr fær Halli til sín tónlistarmanninn Erp Eyvindarson, betur þekktan sem BlazRoca. Í þessu einlæga og skemmtilega spjalli rifja þeir upp feril Erps, áhrif hans á íslensku rappsenuna, og hvernig ferðalög og dýralíf hafa mótað lífsviðhorf hans. Erpur byrjaði snemma að feta sig inn á brautina sem hefur gert hann að einum af mikilvægustu listamönnum Íslands. Hann rifjar upp stofnun Rímnaflæðis, fyrstu keppninnar í íslensku rappi, og hvernig það þróaðist yfir í ...
Í nýjasta þætti Labbitúrs ræðir Halli við rithöfundinn Andra Snæ Magnason, sem hefur verið í fremstu röð íslenskra listamanna í yfir tvo áratugi. Í opinskáu samtali lýsir Andri Snær hvernig sköpunarferlið getur verið þunglamalegt, stundum nánast óbærilegt – en jafnframt gefandi og nauðsynlegt. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.
Í nýjasta þætti Labbitúrs fær Halli til sín einn fremsta tónlistarmann þjóðarinnar, Kristján Kristjánsson sem er mun betur þekktur undir listanafni sínu KK. Hann hefur verið virkur tónlistarútgefandi frá árinu 1991 og unnið til tveggja verðlauna á íslensku tónlistarverðlaununum. Þessi jarðbundni listamaður lítur ekki stórt á sjálfan sig og gerir lítið úr afrekum sínum þó hann viðurkenni að njóta þess að hvíla röddina og láta áhlustendur syngja hástöfum með lögunum sem allir þekkja. K...
Í nýjasta þætti Labbitúrs fær Halli til sín einn ástsælasta leikara þjóðarinnar, Halldóru Geirharðsdóttur. Halldóra hefur um áratugaskeið verið stórt nafn í íslenskri leiklist og kvikmyndagerð – allt frá Englum alheimsins til Konu fer í stríð. Í viðtalinu fer hún yfir langan og litríkann feril, en einnig yfir persónuleg tímamót í lífi sínu og nýjar áherslur. Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reyn...














