Morðskúrinn

Spjöllum saman um morð, mannshvörf, raðmorðingja og dularfull dauðsföll sem eru bæði leyst eða óleyst mál! Nýr þáttur kemur út alla miðvikudaga. Þú finnur okkur á facebook og instagram: Morðskúrinn. <br />www.pardus.is/mordskurinn

Shauna Maynard

Hin 17 ára gamla Shauna hafði alla tíð verið ofboðslega sjálfstæð og yfirleitt farið sínar eigin leiðir í lífinu. Hún átti erfitt með að láta sér segjast og úr varð einn daginn að hún gekk útaf heimili sínu og systur sinnar. Fjölskyldan hennar leitaði hennar í nokkra mánuði og var það mikið áfall þegar símtal loksins barst um hvar hún var. Fréttirnar voru þó ekki þær sem fjölskyldan hefði óskað sér, en símtalið kom frá líkhúsi í Las Vegas. Þátturinn er í boði  Lamb Street Food & Preppbarinn Define the Line Sport  Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inn á www.definetheline.is Steinunn hjá Kosmetik snyrtistofu býður hlustendum upp á 10% afslátt af Lash lift og Brow Lamination þegar bókað er í gegnum Noona!  https://url-shortener.me/4MWR   

09-10
31:51

Erin Patterson

Einn sunnudag í júlí 2023 bauð Erin Patterson fyrrum tengdaforeldrum sínum sem og fleiri ættingjum í hádegisverð í Ástralíu. Eftir máltíðina veiktust allir gestirnir, og að lokum komu þrjú þeirra til með að láta lífið. Var þetta heiftarleg matareitrun eða hafði einhver eitrað fyrir fjölskyldunni.  Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum.  Þá er 10% afsláttur af Lash Lift og Brow Lamination hjá Steinunni á Kosmetik snyrtistofunni með kóðanum morðskúrinn í athugasemd þegar bókað er í gegnum Noona appið.  Nokkrir miðar eru eftir á Live Show sem fer fram 9. október nk. - tryggið ykkur miða sem fyrst! 

09-03
01:01:38

Christopher Abeyta

Þegar Christopher Abeyta fæddist inn í stóra fjölskyldu tóku þau fangnandi á móti honum, en hann hafði verið svolítið óvænt viðbót við stóran systkinahóp sem voru öll töluvert eldri.  Hann var dekraður fram í fingurgóma því systkini hans og foreldrar dýrkuðu hann.  Það var því ofboðslegt áfall þegar hinn 8 mánaða gamli Christopher hvarf af heimili sínu um miðja nótt. Fjölskyldan hefur leitað hans linnulaust alla daga síðan. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á  www.definetheline.is Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn   

08-27
43:04

Dr. Michael Swango

Michael Swango hafði farið í læknanám til þess að aðstoða fólk við að ná bata, eða svo hélt fólk. Dularfull andlát byrjuðu að gerast á meðan starfi Michael stóð og engar voru afleiðingarnar, hann fann sér einfaldlega nýjan vinnustað þegar fólk fór að vekja grunsemdir. 

08-20
41:22

Steve "Air" McNair

Steve McNair var vel settur og vel þekktur leikmaður í amerísku fótboltadeildinni. Hann hafði ofboðslega gott orð á sér fyrir löngu köstin sem hann kastaði, fyrir snerpuna og dugnaðinn. Þá var hann elskandi faðir og eiginmaður og átti framtíðina fyrir sér nú þegar hann hafði nýverið sett skóna á hilluna, viðskiptatækifærin hreinlega biðu hans.  En svo fór allt úrskeiðis.   Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á  www.definetheline.is   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn 

08-13
38:27

Judith Johnson

Árið 1998 mætti 6 ára Brooke til nágranna ömmu sinnar þar sem hún hafði verið að gista og sagði henni frá því að amma sín væri dáin. Einhver hafði brotist inn á heimilið og myrt ömmu hennar, og meitt Brooke sjálfa. Að sögn tókst henni að sjá árásarmanninn, og var sá aðili nær fjölskyldunni en nokkurn hefði grunað en samt voru mörg ár í að réttlætinu yrði náð!  Miðasala á live showið hefst 8. ágúst á slaginu 12:00!  Inni á www.pardus.is/mordskurinn eru að finna yfir 200 þættir fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði - komdu og vertu með! 

08-06
57:17

Tomomi Hanamure

Hin ævintýragjarna Tomomi Hanamure ákvað að skella sér til Bandaríkjanna í tilefni afmælisdagsins síns árið 2006.  Hún vildi helst fara ótroðnar slóðir og ákvað því í þetta skiptið að eyða tíma sínum á Havasupai verndarsvæðinu í Arizona.  Þaðan kom hún ekki til með að skila sér.   Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definetheline.is    Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn   www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn 

07-30
43:38

Mary Yoder

Þátturinn er í boði Define The Line en kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.is 

07-23
45:48

Clare Wood

      Mál Clare Wood er saga sem hefur áður verið sögð, margoft meira að segja. En Clare var í sambandi með manni sem var af hinni verstu sort. Eftir að hún hafði fundið kjark til að fara frá honum fór allt á versta veg. Fjölskylda hennar barðist hinsvegar fyrir lagabreytingum sem í dag geta komið konum eins og Clare til bjargar.   Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt inn á  www.definetheline.is 

07-16
45:02

Khadidja O

Khadidja O bjó í Þýskalandi, en hennar draumur var að verða áhrifavaldur. Þegar henni bauðst svo einn daginn samningur við snyrtifyrirtæki ákvað hún að grípa tækifærið til að koma sjálfri sér á framfæri, algjörlega ómeðvituð um hvað lægi að baki tilboðinu sem hún fékk.    www.pardus.is/mordskurinn hefur að geyma yfir 190 áskriftarþætti fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði!  Kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum hjá Define The Line Sport! 

07-08
39:21

Jade Ward

Hin 27 ára gamla og fjögurra barna móðir Jade Ward hafði loksins fundið kjarkinn til að fara frá eiginmanni sínum, manni sem hún hafði eytt síðustu 10 árum með.  Ákvörðunin hafði verið henni erfið en þó sú allra besta því eftir að hún óskaði eftir skilnað þá blómstraði hún. Hún loksins gat notið lífsins.  Bara ef hún hefði fengið að njóta lengur en raun bar vitni.   Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á  www.definethelinesport.com   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn   

07-02
53:51

Johnny Cashman

Fjölskylda Johnny hafði ekki heyrt í honum í nokkra daga og voru orðin áhyggjufull, svo lögregla var send heim til hans til að framkalla velferðarskoðun. Hann fannst látinn heima hjá sér, og þar sem fjölskyldan bjó langt í burtu þá fengu þau símtal þess efnis að hann hefði látist af völdum náttúrulegra orsaka. Stuttu seinna fer kærasta hans að sækja nokkra muni á heimilið þegar hún kemur auga á hræðilegan vettvang, og fjölskyldan fer að efa það að andlát hans hafi ekki borið að með saknæmum hætti.  Við mælum með að skoða myndir á samfélagsmiðlum frá málinu samhliða hlustun til að átta sig á alvarleika málsins.  www.pardus.is/mordskurinn 

06-25
41:07

Tyarra Williams

Hin 19 ára Tyarra lét Aaron kærasta sinn vita að hún ætlaði aðeins að skreppa út - hún sagðist ætla vera í burtu í um klukkutíma.  Hún kom þó ekki til með að skila sér heim.   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn  

06-18
39:43

Leslie Mazzara og Adriane Insogna

Þrjár góðar vinkonur bjuggu saman í Napa Valley, í Kaliforníu. Á hrekkjavöku árið 2004 voru þær ekki með neitt sérstakt planað, og voru komnar í háttinn nokkuð snemma. Stuttu eftir miðnætti vaknaði ein þeirra við einhver hljóð koma úr bílskúrnum, sem hún taldi vera köttinn og spáði lítið í það. Það sem hún vissi ekki var að á aðeins fjórum mínútum áttu vinkonur hennar eftir að verða fyrir hræðilegri árás.  Yfir 190 þættir aðgengilegir á pardus fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði!  www.pardus.is/mordskurinn 

06-11
39:50

Kirstin Blaise Lobato

Kirstin Blaise Lobato var 18 ára gömul þegar hún var handtekin í heimabæ sínum fyrir morðið á Duran Bailey.  Þetta kom að öllum fannst eins og þruma úr heiðskíru lofti og þegar fleiri upplýsingar komu fram þá benti allt til þess að Kirstin væri bara ekkert eins sek og lögreglan vildi halda fram.  Framundan var þó margra ára ferli.   Þátturinn er í boði Define The Line Sport  kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt á  www.definetheline.is    Komdu í áskrift fyrir meira efni!  www.pardus.is/mordskurinn   

06-04
01:05:41

Rafay fjölskyldan

Atif og vinur hans Sebastian voru í heimsókn hjá fjölskyldu Atif, en eitt kvöldið fóru þeir meðal annars út að borða, í kvikmyndahús og ætluðu að kíkja á klúbbinn en hann var lokaður svo þeir fóru heim. Heima tók á móti þeim hryllingur, þar sem einhver hafði komið inn á heimilið og myrt meðlimi Rafay fjölskyldunnar.  www.pardus.is/mordskurinn 

05-28
01:02:04

Carroll "Eddie" Cole

Eddie Cole var ungur farin að sýna af sér vafasama hegðun - eitthvað sem í seinni tíð útskýrist af gjörðum móður hans í hans garð.  Hann var ungur þegar hann hóf afbrotarferil sinn og í mörg mörg ár komst hann upp með gjörðir sínar   Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt inná  www.definetheline.is   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn   

05-22
40:46

Sonya Ivanoff

Sonya hafði farið út með vinkonu sinni eitt kvöld, en skilaði sér aldrei heim. Hún var tilkynnt týnd, og ekki leið á löngu þar til vitni kom auga á lík hennar. Rannsókn var hafin og nokkrir einstaklingar komu til greina, en það kom öllum í opna skjöldu þegar kona steig fram sem vitni með þær upplýsingar sem hún sá þetta örlagaríka kvöld.  Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum og það var glæný lína að droppa! 

05-14
46:14

Paul Fronczak

Árið 1964 var hinum tæplega tveggja sólarhringa gamla Paul Fronczak rænt af fæðingardeild spítala í Chicago. Við tók tveggja ára tími þar sem enginn vissi hvað hefði orðið af litla drengnum en kom þó loksins að því að Paul litli fannst. Eða svo hélt fólk allavega, í marga áratugi. 

05-07
53:35

Kamarie Holland

Hin 5 ára Kamarie Holland bjó alfarið á pabba sínum í Georgíu, en móðir hennar hafði misst forræði yfir henni. Hún var samt að reyna að taka sig á, og einn daginn ákvað pabbi Kamarie að gefa mömmu hennar séns til að eyða tíma með dóttur sinni, séns sem varð til þess að hann fékk aldrei að sjá hana aftur.    www.pardus.is/mordskurinn  www.definetheline.is 

04-30
29:44

Þorsteinn Halldórsson

þetta er eitt af bestu og skemmtilegustu sakamála potcastið

12-01 Reply

Recommend Channels