DiscoverMorðcastið
Morðcastið
Claim Ownership

Morðcastið

Author: Unnur Borgþórsdóttir

Subscribed: 7,043Played: 333,076
Share

Description

Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum.
Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi.

Til að hafa samband:
mordcastid@gmail.com
instagram.com/mordcastid
twitter.com/mordcastid
298 Episodes
Reverse
Í þætti dagsins erum við í Uttar Pradesh héraði í Indlandi. Þar hittum við fyrir svakalega marga ógeðslega menn, marga feiga menn og eina óþægilega stelpu (finnst sumum). Og typpahálsmen. Við heyrum um typpahálsmen.  Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Göteborgs og 1104 by Mar.
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag ferðumst við til Bandaríkjanna á Hrekkjavökunni sjálfri en í staðinn fyrir mikið gerviblóð er alltof mikið alvörublóð. Margt ömurlegt gerist en sem betur fer líka eitthvað gott. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104bymar
Gömul og góð hjón ganga unglingsstúlku í foreldra stað. Fallegt, ekki satt? Alls ekki satt og í Georgíufylki Bandaríkjanna gengur ýmislegt á.   Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104 by Mar.  
Orð dagsins er: Ostakaka

Orð dagsins er: Ostakaka

2025-10-1501:05:00

Í þætti dagsins hittum við fyrir fólk í galopnu sambandi, fólk í alls konar krísu, fólk sem ferðast um með súpupott. Not in a good way! Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Göteborgs og 1104 by Mar.
Orð dagsins er: Klaufhamar

Orð dagsins er: Klaufhamar

2025-10-0201:21:48

Góðan daginn, fimmtudaginn. Stundum er það morð, stundum er það björgun, stundum er það 19 blaðsíðna leiðbeiningabæklingur um hvernig skal myrða með árangri. Þátturinn er í öllu falli ógeðslegur en auðvitað á sama tíma svakalega sorglegur og áhugaverður. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi, Göteborgs og MFitness. Óklipptan þátt má finna inná pardus.is/mordcastid
Í dag eins og svo ótrúlega marga daga áður erum við staðsett í Bandaríkjum Norður Ameríku, nánar tiltekið í New York fylki. Í Syracuse býr hress týpa á besta aldri sem finnst gaman að dansa og fara á tónleika. Hefði svo bara í raun mátt fá að gera meira af því. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi og Göteborgs.
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins förum við til Frakklands hvar tveir ungir strákar fara út að hjóla, en hjóla því miður aldrei aftur heim. Rannsókn málsins er skrítin en allt er gott sem endar vel. Eða hvað? Skrítin endalok mögulega, kannski bara eins góð og hægt er. Við vitum auðvitað ekki neitt.  Í boði Göteborgs kexins, Fulltingi, Nettó, Happy Hydrate og Ristorante.
Orð dagsins er: Skjelsvik

Orð dagsins er: Skjelsvik

2025-09-1101:01:01

Við erum enn og aftur komin til Bandaríkjanna þar sem skrítnir hlutir gerast, að því er virðast í sífellu. Hópur af dripplandi mönnum fer í road trip með nammi og mjólk. Það endar ekki eins og skemmtunin sem það hefði átt að vera. Þátturinn er í boði Fulltingi, Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og Göteborgs. Mál hefst: 
Góðan daginn, fimmtudaginn.  Í þætti dagsins fer Unnur með okkur á smá flakk en aðallega bara um Bandaríkin eins og svo merkilega oft áður. Þetta er saga sem við höfum heyrt og sagt alltof oft og því miður örugglega einhverntíman aftur.  Í boði Mfitness, Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Göteborgs kex. Mál hefst: 10:12
Í þætti dagsins erum við enn og aftur og að eilífu stödd í Bandaríkjunum. Hittum þar Kris Jenner áttunnar og undurfagra dóttur hennar sem ákaflega ung var komin með túperað hár, íklædd skó með hæl. Það er alltaf eitthvað. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó og Happy Hydrate.
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag förum við mjög snemma á morgunæfingu. Augljóslega ekki við systur samt heldur fórnarlamb dagsins í dag. Enginn skilur neitt í neinu og ósvaraðar spurningar eru ótrúlega margar.  Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better you. Mál hefst: 6:57
Orð dagsins er: Tvíburi

Orð dagsins er: Tvíburi

2025-08-1401:04:48

Ástralskir tvíburar vekja mikla velgju í dag, eins og reyndar furðulega oft áður. Bylgja er komin úr sumarfríi og tafsar sig í gegnum ótrúlega sorglegt mál og segir sögu tveggja kvenna sem báðar áttu betra skilið en þær fengu. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og MFitness. Mál hefst: 22:55
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í dag fer Unnur með ykkur í ferðalag til Frakklands og segir ykkur frá því þegar ógeð með grímu, inspireraður af Scream, heldur af stað í sína eigin vegferð. Ömurleg og ógeðsleg vegferð svo við segjum alveg eins og er. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better you. Mál hefst: 5:30
Góðan daginn þennan fimmta fimmtudaginn. Í dag endurnýtum við áskriftarefni og njótum þess að hafa það gott í sólinni, en það gerði hann Aimo Koivunen alls ekki á sínum tíma. Hans ferðalag var ekki svo fullt af sól og gleði, meira svona stútfullt af stríði og amfetamíni. Frábær saga samt og stórmerkileg. Þáttur dagsins er í boði Ristorante og Happy Hydrate. Mál hefst: 13:23  
Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til Bandaríkjanna (þá ótrúlega sjaldan) og hittir fyrir stóra, samsetta fjölskyldu sem virðist hafa það gríðarlega gott. Hús og bátar og kirkjan og góðgerðarsamtök.  En sjaldan eru hlutirnir jafn frábærir og þeir líta út fyrir að vera og þannig er það í dag líka. Einhvers staðar leiddist fólk út af beinu brautinni og tók hræðilegar ákvarðanir. Margar. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Findus, MFitness og Sony (I Know What You Did Last Summer) Þáttur hefst: 
Orð dagsins er: Messa

Orð dagsins er: Messa

2025-07-1701:06:22

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna þar sem hún segir frá fallega samsettri prestsfjölskyldu sem allt í einu mætir svo ekki á réttum tíma í messu. Allt við málið er algjörlega hræðilegt og það hjálpar alls ekki að hafa allar þessar ósvöruðu spurningar.  Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Better you, Smárabíó og Ajax. Mál hefst: 18:25
Orð dagins er: Pabbi

Orð dagins er: Pabbi

2025-07-1001:04:17

Í þætti dagsins fáum við Sigríði Fanneyju loksins í heimsókn eftir langa bið. Bylgja segir sögu ungrar konu sem átti gríðarlega bjarta framtíð en fékk ekki að njóta hennar, þökk sé enn einum aumingjanum. Svo koma feður við sögu einnig. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Findus, Smárabíós og Forlagsins. Þáttur hefst: 17:00.
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins ferðast Unnur með okkur til Nýja Sjálands, segir margar misáhugaverðar staðreyndir um Christchurch áður en hún segir frá tveimur unglingsstúlkum sem tengdust á hreint út sagt ótrúlegan hátt. Of vel segja sumir, mjög illa segja sennilega fleiri. Sama hvað, þá er þetta stórmerkilegt allt og auðvitað hrikalega sorglegt.  Þáttur dagsins er í boði Nettó, Better you, Ristorante. Happy Hydrate, Ajax og Forlagsins Mál hefst: 12:30  
Í þætti dagsins kynnumst við bandarískri fjölskyldu, einu sinni sem oftar. Húsfaðirinn ekki kannski eins almennilegur og við helst vildum og börnin áttu eins og vanalega miklu betra skilið. Öll börnin. Líka þau sem hann giftist. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Findus og Happy Hydrate.   
loading
Comments (2)

OBF1

Unnur og Bylgja, ykkar er sárt saknað💖 Fimmtudagar eru bara venjulegir núna🥺 Ég skil vel að þið þurfið smá frí.... og að það eru bara komnar 2-3 vikur... EN vá.... it feels like months and months? Þið eruð frábærar!💖

Jun 26th
Reply

Kristjana Ragnarsdóttir

það er svo skrýtið þegar þið eruð að hlæja í tíma og ótíma af hræðilegu atburðum

Jul 26th
Reply
loading