DiscoverMorðin á Illugastöðum
Morðin á Illugastöðum
Claim Ownership

Morðin á Illugastöðum

Author: RÚV Hlaðvörp

Subscribed: 3Played: 18
Share

Description

Sagan af Natani og Agnesi, Friðriki og Sigríði.


Aðfararnótt 14. mars árið 1828 voru Natan Ketilsson og maður sem kallaður var Fjárdráps-Pétur, myrtir á hroðalegan hátt á Illugastöðum á Vatnsnesi. Frásagnir og vangaveltur um morðin hafa lifað með þjóðinni í nærri tvö hundruð ár og enn er fjallað um þau.


Agnes Magnúsdóttir, Friðrik Sigurðsson og Sigríður Guðmundsdóttir voru dæmd til dauða fyrir morðin. Tvö þeirra voru hálshoggin á Þrístöpum tæpum tveimur árum síðar og það voru síðustu aftökurnar á Íslandi.

Af hverju ákváðu Agnes, Friðrik og Sigríður að drepa Natan og Pétur? Í þáttunum er leitað skýringa á því, reynt að lesa í persónurnar sem koma við sögu og athugað hvort hægt sé að leita skýringa í réttarfari, tíðaranda og aðstæðum fólks á þessum tíma.


Umsjón: Þorgeir Ólafsson.



Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

4 Episodes
Reverse
Í fjórða þætti um morðin á Illugastöðum er sagt frá dómunum yfir þeim Agnesi, Friðriki og Sigríði. Við fylgjum Agnesi og Friðriki á aftökustaðinn og heyrum samtímafrásögn af því hvernig fullnustu dómanna var háttað. Þá höldum við áfram að reyna að komast til botns í af hverju þremenningarnir ákváðu að myrða Natan. Í lokin er sagt frá hvernig bein Agnesar og Friðriks fundust fyrir tilstilli miðils. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í þriðja þætti um morðin á Illugastöðum er greint frá atburðum næturinnar 14. mars árið 1828 þegar Agnes, Friðrik og Sigríður létu til skarar skríða og myrtu Natan Ketilsson og Fjárdráps-Pétur. Einnig heyrum við um álit fólks fyrr og nú á sýslumanninum Birni Blöndal og veltum fyrir okkur ásetningi þremenninganna auk þess að kynnast þeim nánar og þeim aðstæðum sem þeir bjuggu við. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í 2. þætti er haldið áfram að rekja aðdragandann að morðunum, velt fyrir rannsókn Björns Blöndals sýslumanns, rætt um ástand og lífsviðurværi fólks í byrjun 19. aldar og sagt frá Vatnsenda-Rósu. Þá er haldið áfram að segja frá samfélaginu í byrjun 19. aldar og af ráðagjörðum þremenninganna Agnesar, Friðriks og Sigríðar. Einnig er sagt frá Vatnsenda-Rósu, spáð í persónuleika Natans, rætt um dómskerfið í byrjun 19. aldar og velt fyrir sér afhverju ásakanir Agnesar og Sigríðar um ofbeldi af hálfu Natans var ekkert rannsakað. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í fyrsta þætti er rekinn aðdraganda málsins, rætt um vistarbandið, sagt frá greinum sem skrifaðar hafa verið nýlega um morðin, svipast um á vettvangi og fleira. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.